Fréttablaðið - 13.05.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 13.05.2016, Blaðsíða 16
Fyrir þig í Lyfju www.lyfja.is af 100g og 150g Voltaren Gel í maí 15% afsláttur Lyaauglýsing Voltaren-Gel-2tupur-15%-LYFJA-5x10 copy.pdf 1 11/04/16 12:35 skylda hans afsala sér umtalsverðu frelsi. Þess vegna erum við glöð, ekki bara ég og Dorrit heldur börnin mín og barnabörn. Að geta farið að lifa eðlilegu lífi eins og aðrir og notið lífs- ins. Haft frelsi.“ Þú sem ert vanur þéttri dagskrá, hvað ætlarðu að gera? „Ég haf alltaf haft áhuga á mörgu. Það eru mörg viðfangsefni. Bæði varðandi norður- slóðir, baráttu gegn loftslagsbreyting- um, eflingu hreinnar orku, rannsóknir og fræði, sem ég mun sinna af krafti.“ Muntu sækjast eftir einhverju emb- ætti? „Nei. Þið megið ekki gleyma að ég verð 73 ára eftir nokkra daga,“ segir Ólafur og hlær. „Ég hef hins vegar fengið óskir, frá íslenskum aðilum og erlendum, um að koma að verkefnum. Ég var skip- aður í sérstaka nefnd í verkefninu Sustainable Energy For All sem mið- ast að því að breyta orkukerfum allra landa, til hreinnar orku,“ segir Ólafur. Hann segist einnig munu halda áfram að vinna að málefnum norðurslóða. Það var enginn annar Aðspurður hverju hann sé stoltastur af á forsetaferlinum segir Ólafur fimm meginþætti efst á baugi. Efling lýðræðis með því að skjóta málum til þjóðaratkvæðisgreiðslu er sá fyrsti. Þá nefnir hann að fara fram og verja hagsmuni Íslands í kjölfar hrunsins. „Þegar reynt var að brjóta okkur á bak aftur með margvís- legum hætti. Íslenska markið stóð opið og hver sem er gat sparkað boltanum í það og enginn var til varnar. Þá taldi ég nauðsynlegt að stíga það skref sem er mjög óvenju- legt og sumir hefðu getað sagt með nokkrum rökum óeðlilegt fyrir for- seta. Það var bara enginn annar. Að fara í alla helstu fjölmiðla heimsins og verja Ísland og færa fram okkar rök og málstað.“ Ólafur nefnir framlagið til barátt- unnar gegn loftslagsbreytingum, mál- efni norðurslóða og eflingu tengsla við Kína, sem hann hefur þó hlotið talsverða gagnrýni fyrir, og annarra landa í Asíu. „Ég er ekki bara að tala um Kína, heldur Indland, Kóreu, Singapúr, o.s.frv. Vegna þess að Asía er og verður helsta aflvélin í hagkerfi heimsins. Ég taldi rétt fyrir Íslendinga að búa í haginn fyrir 21. öldina og efla tengslin við þessi ríki.“ Persónulegur fórnarkostnaður Erfiðast á ferlinum segir hann ákvarðanirnar um Icesave. Varstu beittur þrýstingi? „Það er vægt til orða tekið.“ Var þér hótað? „Það fer eftir því hvað þið kallið hótanir, en förum aftur í tímann. Það var umsátur um Ísland, öll Norðurlönd, allar ríkis- stjórnir í ESB voru á móti okkar mál- stað. Vildu knýja okkur til að semja við Breta og Hollendinga. Í stjórn AGS var því valdi Evrópuríkjanna beitt að við fengum ekki fyrirgreiðslu, sem við áttum rétt á, nema við beygðum okkur undir nauðasamninga við þessar þjóðir. Jafnframt voru margir fremstu sérfræðingar og álitsgjafar þessa lands sem sögðu að ef ég leyfði þjóðinni að kjósa um þetta mál væri ég að dæma Ísland til eilífrar útskúf- unar úr fjármálakerfi heimsins. Merkimiðinn Kúba norðursins var þekkt í þeirri umræðu. Ríkisstjórnin og þingmeirihlutinn var ekki bara á móti mér – heldur harkalega á móti mér. Í þessari stöðu var erfitt að taka þá ákvörðun að færa þetta vald til fólksins. Þessi kraftur erlendra ríkja og innlendra afla var slíkur að ég held ég geti fullyrt að það hafi ekki nokkur maður í sögu Íslands verið beittur öðrum eins þrýstingi í nokkru máli eins og ég í Icesave-málinu.“ Hann segir þessa daga í lok árs 2009 og ársbyrjun 2010 erfiðustu stundir sem hann hafi þurft að fara í gegnum. „Ég vona að enginn forseti og þjóðin eigi aldrei aftur eftir að standa frammi fyrir því, ég veit manna best hvað var í húfi og hvað þetta var erfitt.“ Hvernig var þessum þrýstingi beitt? „Ef þið viljið dæmi, þá settust Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi for- sætisráðherra Danmerkur, og Mogens Lykketoft, fyrrverandi forseti danska þingsins og ráðherra til margra ára, í vikulegan umræðuþátt sinn í danska sjónvarpinu sem allur gekk út á hvers konar fífl þessi forseti á Íslandi væri. Rökkuðu mig niður fyrir framan danska þjóð því ég vildi ekki klappa upp þennan samning. Ég gæti talið upp fjölmörg önnur dæmi, auk þess eins og ég hef sagt áður, að kjarninn í þeirri stuðningsmannasveit sem bar uppi sigur minn 1996, var æf út af þessari ákvörðun. Það hefur kostað mig það að ýmsir af gömlum vinum mínum og stuðningsmönnum til margra ára hafa ekki talað við mig síðan. Þannig að fórnarkostnaður forseta Íslands í ákvörðunum af þessu tagi getur líka verið persónulegur.“ Úrelt lög þjóðskrár Nú munt þú flytja af Bessastöðum í sumar, hvert flytjið þið? „Dorrit hefur verið með sitt gamla heimili í London og ég keypti fyrir fjórum árum hús á fallegum stað í Mosfellsbæ. Ég reikna með að þessir tveir staðir verði aðal- vistarverur okkar. Það á nú eftir að koma í ljós hvað við verðum lengi í London, eða hér. Síðan eru ýmis verk- efni sem eru þess eðlis á alþjóðavett- vangi að ég verð töluvert á ferðalagi.“ Það hefur verið gagnrýnt að þið hafið ekki sama lögheimili, ætlið þið að búa saman þegar þú lætur af embætti? „Það er eins með okkur og hundruð Íslendinga, ef að makinn þarf að vera lengi í burtu vegna atvinnu sinnar og aðstæður eru þannig að hann eða hún verða að skrá lögheimili sitt í því landi sem vinnan er stunduð í, þá leyfir þjóðskrá þér ekki annan reit. Sem mér finnst gamaldags. Við búum í veröld þar sem makar vinna langt hver frá öðrum,“ segir hann. „Einfaldlega vegna þess að starf hjóna í dag, þegar konur eru jafn vel menntaðar og hæfar til að sinna störfum og karlar, þá er þetta gamla kerfi að kona fylgi karlinum úrelt lög.“ Engin klíka í kringum forsetann Ólafur segir ýmislegt hafa setið á hakanum frá því hann varð forseti. Til dæmis hafi hann ekki ræktað vinasambönd við gamla vini. „Ég á trausta og góða vini. Hins vegar verður að segjast eins og er, að á þessum 20 árum hefur ekki gefist mikill tími til að rækta þá. Þegar Guðrún Katrín lést tók ég þá ákvörðun að veita dætrum mínum og fjölskyldum þeirra algjöran for- gang. Svo kom Dorrit til sögunnar og það sama gilti um hana. Ákvörðun mín eftir þessa hryllilegu reynslu með Guðrúnu Katrínu að gefa fjöl- skyldunni og okkur sjálfum allan þann lausa tíma sem við hefðum hefur orðið til þess að ég hef haft minni tíma til að rækta góð vina- sambönd,“ segir hann alvarlegur. „Það er auðvitað eitt af því sem nýr forseti mun reyna, þegar embættið fær sinn daglega takt að annirnar eru þess eðlis að það verður ekki mikill tími fyrir annað. Síðan ef forsetinn fer að rækta sérstaklega vini sína og eiga með þeim samverustundir, þá búum við Íslendingar í þannig samfélagi að slíkt yrði ekkert leyndarmál. Það yrði ákveðin hætta á því að menn teldu að það væri klíka í kringum forsetann. Sérstaklega fyrir einstakling eins og mig sem kom af vettvangi stjórn- mála. Þá var mikilvægt að sýna það í verki að það væri ekki í kringum mig hópur fólks sem hefði verið samferða mér áður og fylgdi mér til Bessastaða. Það getur verið nauðsynlegt fyrir for- seta sem er allra, að búa ekki til sér- hóp sem njóti forréttinda varðandi aðgang að forsetanum eða sé vina- klíka í kringum forsetann.“ Ólafur Ragnar hefur í gegnum tíð- ina ekki farið varhluta af slúðursög- um. „Ég læt það sem vind um eyrun þjóta. Ég hafði verið á vettvangi þjóð- mála í langan tíma áður en ég varð forseti, það var nú margt um mig sagt þegar ég var fjármálaráðherra,“ segir hann og rifjar upp þegar Gísli Rúnar lék hann eftirminnilega sem Skatt- mann í áramótaskaupinu eitt árið. „Það var ekkert alltaf auðvelt fyrir dætur mínar litlar á Seltjarnarnesi, þar sem meginþorri fólks hafði aðrar stjórnmálaskoðanir en ég, að vera dætur pabba síns. Ég hef langa reynslu og við af því að láta svona umtal ekki á mig fá. Það var fyndið þetta með Skattmann, því þetta átti að vera mér til háðungar, en svo nokkrum dögum síðar fór ég í sund og þá hópuðust til mín skólakrakkar, fullir aðdáunar, því Súperman var þeirra hetja og ég áttaði mig á því að þetta hafði skapað mér gríðarlegar vinsældir meðal nýs hóps,“ segir hann hlæjandi. Lætur umtalið ekki á sig fá „Ég hef oft sagt við þá sem eru að taka til starfa á vettvangi þjóðmála, og þeir taka nærri sér alls konar umræður sem eru byggðar á rangfærslum eða illvilja að þeir eiga að temja sér hug- arfar mannsins sem stendur á fljóts- bakkanum. Það er drasl og rusl sem flýtur á fljótinu og ef maður byrjar að æsa sig yfir því þá gerir maður ekkert annað. Ef maður stendur kyrr og heldur sig við sitt, þá flýtur þetta fram hjá. Menn þurfa að fylgja sinni sannfæringu og láta ekkert hagga sér af þessu tagi.“ Hann segir umræðuna hafa breyst með tilkomu netsins. „Í gamla daga fyrir netið, þegar maður fór í leið- angra til þess að kynna sér almenn- ingsálitið fór maður í beitiskúrana eða í kaffi til hafnarverkamannanna hjá Dagsbrún. Þetta voru aðallega karlar, en þeir helltu sér yfir mann, og sögðu til dæmis: Ertu nú kominn, helvítis fíflið þitt? Og sumt á netinu er eins og menn séu komnir aftur í beitiskúr- inn og allir séu í beitiskúrunum, dag og nótt. En ef þú fékkst eldskírn eins og ég fékk fyrir mörgum áratugum í beituskúrunum og hjá hafnarverka- mönnunum, þá er þetta nú bara eins og jólaball.“ Hann hlær. Forsetinn mikilvægur Sumir hafa viðrað þá skoðun að leggja eigi niður embætti forsetans. Þar á meðal Helgi Hrafn Gunnars- son, þingmaður Pírata, sem sagði að forsetinn ætti bara að sinna kokt- eilboðum. Ólafur er ekki sammála. „Það er einfaldlega röng sýn, að for- setinn sé veislustjóri og sitji sífellt í málsverðum. Forseti Íslands sinnir mikilli vinnu.“ Hann segir mikilvægt að hafa þjóðhöfðingja þegar kemur að alþjóðasamskiptum. „Það er mikil- vægt að eiga aðgang að manni sem ber ábyrgð gagnvart kjósendum en er ekki háður flokkum. Hver sem er getur knúið dyra hjá forsetanum og borið upp vonir, viðfangsefni, kvart- anir og væntingar og telur það sér til framdráttar að geta nálgast forsetann með þessum hætti því honum finnst dyr annarra kjörinna fulltrúa lokaðar eða erfitt að fá áheyrn. Síðan hefur reyndin sýnt að það geta komið upp tímar að Alþingi takist illa eða alls ekki að mynda ríkisstjórn. Þá er það ekki Alþingi sem ber ábyrgð á að landið verði stjórnlaust, það er for- setinn. Þegar menn eru að segja að forseti þingsins geti gegnt þessu, og ég ber virðingu fyrir forseta Alþing- is, er hann ávallt kosinn í flokks- pólitískri kosningu. Eru menn þá að segja um leið að þjóðhöfðinginn á Íslandi eigi að vera einhver auka- geta hjá flokkspólitískum forseta Alþingis? Þjóðin myndi aldrei sætta sig við það. Það er mikilvægt að eiga kjörinn fulltrúa sem er ekki í fram- boði fyrir flokk.“ Ólafur Ragnar segir Icesave-málið það erfiðasta á ferlinum. FRéttabLaðIð/StEFán Þeir helltu sér yfir mann, og sögðu til dæmis: Ertu nú kominn, helvítis fíflið þitt? 1 3 . m a í 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U R16 F R é T T i R ∙ F R é T T a B L a ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.