Fréttablaðið - 14.03.2016, Síða 2

Fréttablaðið - 14.03.2016, Síða 2
Kapp í kinnVeður Suðvestankaldi og rigning eða slydda með köflum í dag, en bjartviðri norð- austanlands. Hiti 1 til 10 stig, svalast á Vestfjörðum. Sjá Síðu 18 StjórnSýSla Sveitarstjórn Ölfuss hefur ákveðið í framhaldi af mikilli aukningu á útleigu á húsnæði til ferðamanna að leggja fasteignaskatt á umræddar eignir í samræmi við ákvæði laga. „Er það ekki síst réttætismál gagn- vart öðrum sem stunda ferðaþjónustu og greiða af henni lögboðna skatta og skyldur,“ segir í bókun sveitarstjórnar- innar sem kveður mörg önnur sveitar- félög vinna að því sama. Með þessu myndu fasteignagjöld á viðkomandi húsnæði hækka um 164 prósent, fara úr 0,5 prósentum af fasteignamati í allt 1,32 prósent. Samhliða á að efla eftirlit með þessum eignum. – gar Hækka gjöld á túristagistingu María Björk Guðmundsdóttir hvetur sleðahunda sína á Íslandsmeistaramóti Sleðahundaklúbbs Íslands á Mývatni um helgina. María lenti í þriðja sæti í sínum flokki sem var 10 kílómetra kapp með tvo til þrjá hunda. Hátt í hundrað hundar tóku þátt. Veðrið setti ekki strik í reikninginn þrátt fyrir að leik- mynd af tökustað Fast & the Furious sem er í grennd við mótið fyki nærri hundum og keppendum. Fréttablaðið/auðunn Eftirspurn eftir gistingu er mikil. Fréttablaðið/GVa FílabeinSStröndin Sextán manns létust í skotárás á ferðamannastað í bænum Grand Bassam á Fílabeins- ströndinni. Talið er að árásarmennirnir tengist Al-Kaída-samtökunum en að sögn yfirvalda hafa þeir verið „teknir úr umferð“. Meðal látinna eru ferðamenn frá Frakklandi og Þýskalandi. Fílabeinsströndin hefur verið með friðsælli ríkjum á svæðinu þar til að borgarastyrjöld braust út í ríkinu árið 2002. Síðan þá hafa tíðar skærur átt sér stað á milli múslima og kristinna manna í landinu. – srs Sextán drepnir á baðströnd Fjórir ferðamenn voru skotnir í árásinni á Fílabeins- ströndinni í gær. lögreglumál Systurnar sem sættu mansali á Vík í Mýrdal eru farnar úr landi að eigin ósk. Réttargæslu- maður kvennanna gagnrýnir þau úrræði sem konunum stóðu til boða. Konurnar fundust við húsleit hjá fyrirtækinu Vonta International þann 18. febrúar síðastliðinn. Í kjölfarið fengu þær skjól í Kvenna- athvarfinu en fóru af landi brott aðfaranótt fimmtudags. Vonta International var undir- verktaki IceWear sem framleiðir útivistarfatnað. Eigandi fyrir- tækisins, karlmaður frá Srí Lanka, var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um mansalið. Hann var látinn laus fyrir nokkrum dögum en sætir farbanni til 1. apríl. – kbg Systur í mansali farnar heim Það var grátt yfir á Patreksfirði í gær þegar fyrstu asahláku ársins bar að garði. Íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín vegna ofanflóðahættu. Mynd/HElGa GÍsladóttir Veður „Auðvitað tekur hjartað kipp þegar svona símtal kemur. Annað væri óvenjulegt,“ segir Magnús Ólafs Hansson íbúi á Patreksfirði sem þurfti að yfirgefa heimili sitt í gærkvöldi vegna ofanflóðahættu í bænum. Þegar Fréttablaðið náði tali af Magnúsi var hann kominn á hótel bæjarins og var, að eigin sögn, í góðu yfirlæti. „Þegar einhver svona vá steðjar að fólki þurfa til þess bær yfirvöld að bregðast við því. Ég tel að þau hafi gert það mjög vel í þessu tilfelli,“ segir Magnús og hrósar yfirvöldum fyrir að aðstoða fólk við að komast úr húsunum sínum og á hótel. „Mér þykir ekki leiðinlegt að segja frá því að það vill svo skemmtilega til að mér var falið það á sínum tíma að finna fjárfesta að þessu hóteli sem er orðið hér á Patreksfirði. Þetta er ákaflega gleðilegt fyrir mig að fá að gista á þessu frábæra hóteli, alveg yndislegt,“ segir Magnús. Magnús þurfti líka að yfirgefa heimili sitt á síðasta ári. „Í fyrra var þetta vegna mikillar snjósöfnunar í Stekkagili fyrir ofan en nú í ár er þetta ekki snjór heldur er óttast krapaflóð úr þessu sama gili. Mér finnst þetta hárrétt ákvörðun hjá til þess bærum yfirvöldum.“ Svæði tíu, ellefu og tólf voru rýmd í bænum að sögn Helgu Gísladóttur, formanns Rauða krossins á Patreks- firði. Á níunda tímanum í gærkvöldi höfðu 23 íbúar bæjarins verið fluttir á hótelið en aðrir fóru til vina og ættingja. Á Bíldudal féll krapaflóð úr Búðargili á hús og olli skemmdum á því. Flóðið rann meðfram snjó- flóðavarnargarði á svæðinu sem byggður var árið 2009. Á vef Veður- stofu Íslands kemur fram að flóðið hafi verið tíu metra breitt. Asahláka var um land allt í gær með mikilli rigningu og roki víðast hvar. Um fyrstu asahláku ársins er að ræða en mest var rokið á Norð- vesturlandi, Vestfjörðum og Snæ- fellsnesi. snaeros@frettabladid.is Í góðu yfirlæti á Patró þrátt fyrir hættuástand Íbúar á Patreksfirði þurftu að yfirgefa heimili sín í gær og leita skjóls á hót- eli bæjarins vegna ofanflóðahættu. Búist var við krapaflóði í Stekkagili ofan byggðarinnar í Patreksfirði. Fyrsta asahláka ársins var um allt land. Mér finnst þetta hárrétt ákvörðun hjá til þess bærum yfir- völdum. Magnús Ólafsson íbúi á Patreksfirði 1 4 . m a r S 2 0 1 6 m á n u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.