Fréttablaðið - 14.03.2016, Síða 16
Verk sem sýnd voru á sýningunni Kyrrð. Hér má glögglega sjá þrívíddina í verkum Laufeyjar. MYND/ÚR EINKASAFNI
Í útskornum myndum er leikið með ljós og skugga. MYND/ÚR EINKASAFNI
Laufey Jónsdóttir er sjálf-
stætt starfandi fatahönnuður
og tískuteiknari sem hefur komið
víða við á undanförnum árum.
Hún starfaði m.a. sem hönnuður
hjá tískufyrirtækinu STEiNUNNI
árin 2010 til 2013 auk þess sem hún
hefur unnið við myndskreytingar,
t.d. í auglýsingum, bókum og tíma-
ritum. Á HönnunarMars árið 2012
opnaði hún sína fyrstu einkasýn-
ingu á teikningum en þetta árið
tók hún þátt í tveimur sýningum
á HönnunarMars sem lauk í gær-
kvöldi.
Hún er ánægð með afrakstur-
inn enda verið bæði annasamir
og skemmtilegir dagar að henn-
ar sögn. „Þetta árið tók ég þátt í
tveimur sýningum á Hönnunar-
Mars. Sú fyrri var sett upp í sam-
starfi við Sif Baldursdóttur og bar
nafnið Kyrrð. Á sýningunni gaf að
líta tískuteikningar eftir mig af
vor/sumar 2016 línu Sifjar fyrir
fatamerki hennar sem ber heitið
Kyrja. Hugmyndin á bak við teikn-
ingarnar er að Kyrja sé eins konar
kyrrð í kaosi. Það er vísað til ein-
faldleikans og kyrrðarinnar sem
lesa má úr hönnun Kyrju og kaos
hversdagsins og hins endalausa
áreitis í nútímasamfélagi. Mark-
miðið var að draga fram fegurðina
sem finna má í einfaldleikanum.“
Seinni sýningin var sett upp í
samstarfi við Magneu Einarsdótt-
ur og fatamerkið hennar, Magn-
ea. „Ég hannaði mynstur fyrir
nýju línuna hennar og innsetningu
fyrir sýninguna sem haldin var á
laugardagskvöldi HönnunarMars.
Þá buðum við gestum og gangandi
upp á einstaka upplifun í Dans-
verkstæðinu við Skúlagötu.“
Fjölbreytt nýting
Í teikningum sínum hefur Laufey
gert miklar tilraunir með klippi-
myndir, með áherslu á leik með
rými og víddir, ljós og skugga. Góð
dæmi um það eru verk af sýning-
unum Kyrrð, Persona og Framed.
„Myndirnar ganga bæði einar sér
eða nokkrar saman og þá er hægt
að raða þeim upp á ýmsa vegu í
ólíkum rýmum heimila. Ég bjó til
rammana sérstaklega fyrir sýning-
una og í honum er pappírinn ber.
Það væri einnig fallegt að ramma
myndina inn flata á klassískan hátt
eða skapa örlítið rými milli laganna
með t.d. frauði til þess að gefa henni
meiri dýpt.“
Aðspurð um þýðingu Hönnunar-
Mars fyrir íslenska hönnuði segir
hún hann vera gífurlega mikilvæg-
an vettvang. „Í raun er Hönnunar-
Mars bæði mikilvægur gagnvart
íslenskum almenningi sem og er-
lendum gestum hátíðarinnar, en
fjölmargir erlendir kaupaðilar og
blaðamenn sækja hátíðina ár hvert.“
Það eru ýmis spennandi verk-
efni á döfinni í ár hjá Laufeyju.
„Þar má helst nefna útgáfu barna-
bókarinnar Leynigesturinn, sem
ég er að vinna með Önnu Mar-
gréti Björnsson blaðamanni. Einn-
ig kem ég að klippimyndanám-
skeiði fyrir börn í samstarfi við
frístundamiðstöðina Kamp og að
sjálfsögðu undirbúningi vegna
næstu sýningar.“
Verkin af sýningunni Kyrrð verða
til sölu í versluninni STEiNUNN á
Grandagarði og í vefverslun Lauf-
eyjar, www.spreesy.com/laufeyj.
Nánari upplýsingar um verk Lauf-
eyjar má finna á www.laufeyj.com.
Bragðgóðir réttir,
fullir af þarflegum
næringarefnum.
Hollusturettir
byrjað á páskaFöndrinu
Nú fer að styttast í páska og
því sniðugt að fara að huga að
páskaskrautinu. Það er allt-
af gaman að endurnýja árstíða-
bundna skrautið eða hreinlega
bæta við safnið. Börn-
in hafa flest gaman
af því að taka þátt í
því að föndra með
foreldrunum
og því er tilval-
ið að velja sér
eitthvert fönd-
ur sem þau geta
verið með í að
útbúa.
Margar fjöl-
skyldur mála egg í
skrautlegum litum fyrir
hverja páska. Þá er hægt að nota
annað hvort hrá eða soðin egg og
hægt að blása úr þeim með því
að stinga lítil göt báðum megin á
eggin og blása inn í annað gatið.
Þeir fullorðnu ættu að sjá um að
gera þetta fyrir yngstu föndrar-
ana. Svo eru eggin einfaldlega
máluð eins og andinn blæs hverj-
um og einum í brjóst.
Allt páskanammið má nýta í
föndur (áður en það er svo
snætt með bestu lyst)
en það er yfirleitt lit-
ríkt og fallegt. Ein-
faldast er að taka
til dæmis lítil egg
í mislitum um-
búðum og skella
þeim í fallega
skál. Einnig mætti
hálffylla háan, glær-
an vasa af sælgæti
og hnýta fallegan borða
á hann.
Svo má ekki gleyma fallegu
páskablómunum. Það kemur vel
út að raða nokkrum vösum upp
saman, dreifa einum blómvendi í
þá og stilla þeim upp á borð eða
út í glugga.
Laufey Jóhannsdóttir fatahönnuður og tískuteimnari FRéTTAbLAðIð/VILHELM
Prófið að dreifa páskaliljunum á milli nokkurra vasa.
2.990 KR.*
ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS
OG ÓTAKMARKAÐ
GAGNAMAGN
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
*Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til
útlanda og í upplýsinganúmer. Nánari upplýsingar á 365.is
1 4 . m a r s 2 0 1 6 m Á N U D a G U r2 F ó l k ∙ k y N N i N G a r b l a ð ∙ v i ð b U r ð U r