Fréttablaðið - 14.03.2016, Síða 36

Fréttablaðið - 14.03.2016, Síða 36
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Sigríður Guðmundsdóttir frá Hurðarbaki, Grænumörk 2, lést á Dvalarheimilinu Lundi 4. mars. Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn 16. mars kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Vinafélag Ljósheima og Fossheima. Guðmundur Kr. Jónsson Lára Ólafsdóttir Sigurður Jónsson Esther Óskarsdóttir Þuríður Jónsdóttir Gísli Árni Jónsson Emilía Gränz Sigríður Jónsdóttir Valtýr Pálsson Kári Jónsson Kristjana Kjartansdóttir Gunnar Jónsson Anna Fríða Bjarnadóttir Ásmundur Jónsson Margrét Alice Birgisdóttir og barnabörn. Guðbjörg Þórðardóttir og Viðar Einarsson eru tvö þeirra sem ætla að hjóla til styrktar krabbameinssjúkum börnum í sumar. Fréttablaðið/Ernir Hjólreiðamenn í team rynkeby hjóla í sveitum Frakklands síðasta sumar. Mynd/tHoMas nørrEMark Upphaf þessa verkefnis er í Dan-mörku árið 2002 þegar nokkrir starfsmenn djúsframleiðandans Rynkeby sem höfðu mikinn áhuga á Tour de France hjóluðu til Parísar og söfnuðu með því styrkjum fyrir krabbameins- deildina hjá barnaspítalanum í Óðins- véum,“ segir Viðar Einarsson um góð- gerðarhjólatúrinn Team Rynkeby. „Þetta þótti takast það vel að þeir voru hvattir til að fara aftur að ári og síðan þá hefur þetta stækkað og spurst út fyrir Danmörku. Þeir ákváðu að allur ágóði af þessu færi til krabbameinssjúkra barna,“ segir Viðar sem mun í sumar taka þátt í túrnum ásamt  eiginkonu sinni, Guð- björgu Þórðardóttur, og hjónunum Lár- usi Frans Guðmundssyni og Ástu Ragn- arsdóttur. Fjölmargir þátttakendur frá nokkrum löndum skipa 38 lið sem hjóla um 1.300 kílómetra langa leið frá Danmörku til Parísar. „Í heildina er þetta um 2.000 manns sem fara þessa leið ár hvert,“ segir Viðar sem segir að þrátt fyrir vegalengdina ættu flestir að geta tekið þátt með smá æfingu. „Þetta er alls ekki keppni. Það á að vera fært fyrir alla að fara þetta. Það er hjólað á sjö dögum og ekkert þannig óyfir- stíganlegt sem er hjólað á hverjum degi.“ Næsta sumar  mun svo séríslenskt lið taka þátt í keppninni í fyrsta sinn með Team Rynkeby. „Félagi minn, Lárus Frans, býr í Dan- mörku og honum þótti þetta voðalega sniðugt. Hann setti sig í samband við Team Rynkeby. Þeir tóku þessu bara fagnandi, að það væru þarna einhverjir frá Íslandi sem hefðu áhuga á að leggja þessu lið,“ segir Viðar. „Núna í sumar er nokkurs konar undir- búningur fyrir næsta ár en sumarið 2017 fer svo alveg íslenskt lið út.“ Þau stefna á að  safna um 25 manna íslensku liði með átta aðstoðarmönnum en Viðar bendir áhugasömum á að skrá sig á vefnum www.teamrynkeby.is. stefanrafn@frettabladid.is Senda fyrsta íslenska Rynkeby liðið í „Tour de France“ Danmerkur Hópur Íslendinga ætlar að taka þátt í góðgerðarhjólatúr Rynkeby djúsframleiðandans í sumar. Hjólaðir verða 1.300 kílómetrar frá Danmörku til Parísar til styrktar krabbameins- sjúkum börnum. Stefnt er á að hafa alíslenskt lið í hjólatúrnum sumarið 2017. Þetta er alls ekki keppni. Það á að vera fært fyrir alla að fara þetta. Það er hjólað á sjö dögum og ekkert þannig óyfirstíganlegt sem er hjólað á hverjum degi. Merkisatburðir   Þ ETTa G E R ð i sT : 1 4 . m a R s 1 9 8 8 Eðlisfræðingar gæða sér á ávaxtabökum 1828 - Friðrik Sigurðsson, Agnes Magnúsdóttir og Sigríður Guð- mundsdóttir myrtu Natan Ketilsson og Pétur Jónsson. Friðrik og Agnes voru síðar tekin af lífi en það voru síðustu aftökurnar á Ís- landi. 1879 - Albert Einstein, Nóbelsverðlaunahafi í eðlisfræði, fæðist þennan dag. 1883 - Karl Marx, faðir kommúnismans, deyr. 1964 - Jack Ruby er sakfelldur fyrir morðið á Lee Harvey Oswald. Oswald var meintur morðingi Kennedys Bandaríkjaforseta. 1966 - Vísir greinir frá því að drukkinn maður hafi stolið og strand- að bátnum Mjöll við Geldingarnes. Vísir greinir frá yfirheyrslu lög- reglunnar yfir manninum: „Skýrði hann svo frá, að um miðnætti í fyrrinótt hefði hann komið drukkinn um borð í Mjöll. Fyrir drykkju- æði hafi honum komið til hugar að fara smá siglingaferð á bátnum, leysti því festar, setti vélina í gang og sigldi út um Sundin.“ 1981 - Fyrsti Tommaborgarastaðurinn er opnaður í Reykjavík. 1986 - Íslenskir jafnaðarmenn halda minningarathöfn um Olof Palme á Lækjartorgi hálf- um mánuði eftir morðið á honum. „Þótt undar- legt kunni að virðast falla slíkir menn, öðrum mönnum oftar fyrir höndum morðingja. Þeir sem heitast elska friðinn, verða oftar fórnarlömb ofbeldis en aðrir,“ stóð í Alþýðublaðinu þennan dag. 2003 - Femínistafélag Ís- lands er stofnað. Allsherjar pí-dagurinn gekk í garð þennan dag árið 1592. 14. mars ár hvert er helgaður stærðfræðilega fastanum pí sem táknar hlutfallið milli um- máls og þvermáls hrings og er gjarnan ritaður með gríska bókstafnum π. Ástæða þess að 14. mars er kenndur við pí er að hann endurspeglar fyrstu stafi og aukastafi Pí sem eru 3,14. Pí-dagurinn árið 1592 er alls- herjar pí-dagurinn sökum þess að hann táknar fyrstu sjö stafi pí eða 3,141592. Deginum var þó fyrst fagnað þann 14. mars 1988. Eðlisfræð- ingurinn Larry Shaw var sá fyrsti til að halda dag- inn hátíðlegan en það gerði hann ásamt samstarfsfólki sínu í rannsóknarsetri San Francisco-borgar. Shaw og sam- starfsfólk hans heiðruðu pí með því að dansa í hring á rannsóknarstofu sinni á meðan þau gæddu sér á ávaxtabökum en á ensku hljómar pí eins og enska heitið yfir böku eða „pie“. Árið 2009 samþykkti Bandaríkja- þing að 14. mars skuli vera þjóðardagur pí í Bandaríkjunum. – srs 1 4 . m a r s 2 0 1 6 m Á N U D a G U r16 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð tímamót

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.