Fréttablaðið - 14.03.2016, Page 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
19.800 kr.
DÚNMJÚKT
TVENNUTILBOÐ
O&D dúnsæng – Stóri björn
· 50% dúnn og 50% smáfiður
Fullt verð: 19.900 kr.
+ Dúnkoddi – Stóri björn
Fullt verð: 5.900 kr.
Fullt verð samtals:
25.800 kr.
FERMINGAR
TVENNA
Afgreiðslutími Rvk.
Mán. til fös. kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
6.990 kr.
MISTRAL HOME
sængurföt
Sængurföt úr 100%
bómullarsatíni
þrír litir.
300 tc.
Fullt verð:
8.990 kr.
FERMINGAR
TILBOÐ
NATURE’S
COMFORT
heilsurúm með
classic botni og löppum
Nature’s Comfort:
• Svæðaskipt poka-
gormakerfi
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar pr fm2
• Steyptar kantstyrkingar
Stærð cm. M/ Classic Tilboðs-
botni verð
80x200 86.900 65.175
90x200 92.900 69.675
100x200 99.900 74.925
120x200 119.900 89.925
140x200 138.900 104.175
160x200 149.900 112.425
180x200 164.900 123.675
PÁSKATILBOÐ
25%
AFSLÁTTUR
Val um svart
eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á botni.
Aukahlutur á mynd:
Helsinki höfuðgafl.
Heilsu- og
hægindalag í yfirdýnu
Fyrir þínar
bestu stundir
Páskar 2016
Þú finnur nýja
Páskabæklinginn
okkar á
www.dorma.is
1 4 . m a r s 2 0 1 6 m Á N U D a G U r26 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
Karitas María vonast til að ná að blanda saman hreyfingu og hollri næringu með þessari nýju viðbót við flóru hollustustaða í
miðborginni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Já, þetta gerðist svolítið hratt, við
vorum alltaf að bíða eftir húsnæði
og fengum það svo allt í einu um
miðjan janúar svo við höfum verið á
kafi í þessu og lagt dag við nótt með
vinnumönnunum. Við breyttum
þannig fatabúð í veitingastað á
rúmum einum og hálfum mánuði,“
segir hin tuttugu og fimm ára Karit-
as María Lárusdóttir sem á föstudag
opnaði dyrnar að frumraun sinni í
veitingageiranum, heilsustaðnum
Nat við Laugaveg þar sem áður var
herrafataverslunin Calvi. Hún er
svo sem öllum hnútum kunnug í
veitingabransanum en faðir hennar,
Lárus Guðmundsson, á Ítalska stað-
inn Rossopomodoro á Laugavegi.
„Ég er eiginlega alin upp í þessu, öll
fjölskylda mín er í þessum bransa.
Sjálf hef ég verið með hugmyndina
í hausnum í mörg ár, hef ferðast
mikið og fengið þaðan innblástur.
Mig langar að kenna fólki að borða
hollt og sýna hvað maturinn getur
verið hollur. Þannig má taka heils-
una alla leið,“ segir hún og heldur
áfram; „Sjálf held ég að það sé vakn-
ing hérna heima fyrir hversu mikil-
vægt er að borða hollt og hvað það
er raunverulega gott að borða rétt.
Það skiptir máli.“ Hún lætur kné
fylgja kviði og tekur heilsustefnuna
ef til vill skrefinu lengra en aðrir
veitingastaðir sem kenna sig við
heilbrigt líferni. „Við erum komin
í samstarf við Nike og munum í
sumar gera Nat að upphafspunkti
hlaupahópa. Þannig viljum við láta
alla heilsuna mætast einmitt hér.“
Mun Karitas hafa opið frá klukk-
an átta á morgnana og leggja sig
fram um að bjóða upp á meinhollan
bröns svo eitthvað sé nefnt. „Þarna
verða próteinpönnukökur, hafra-
grautur og ýmislegt,“ bendir hún á
og undirstrikar að nafn staðarins
Nat, endurspegli stefnu staðarins
sem sé „allt náttúrulegt og laust við
aukaefni“ sem henni þykir sjálfri
skipta miklu máli.
„Ég er sjálf mikið í íþróttum og hef
verið frá unga aldri. Kenni í World
Class og er rosalega mikið í heilsu-
bransanum. Enzo og pabba langaði
bara að opna einhvern veitingastað,
mig langaði að láta hann snúast um
heilsu,“ segir hún og skellir upp úr.
Að þessari nýju viðbót við sívax-
andi heilsuveitingastaðabransa
standa auk Karitasar faðir hennar
og kokkurinn Enzo Rinaldi, sem
jafnframt tekur sér stöðu yfirkokks.
„Enzo hefur verið lengi í þessu Hann
hefur verið lengi í þessum bransa.
Hann sér um eldamennskuna en ég
fæ að sjá um smoothi-ana og vera
framkvæmdastjórinn,“ segir hún og
brosir. gudrun@frettabladid.is
Breytti fatabúð
í heilsuveitingastað
á mettíma
Karitas María Lárusdóttir ætlar að kenna fólki að borða hollt og senda
það út að hlaupa með tilkomu nýs heilsuveitingastaðar sem hún hefur
opnað á Laugaveginum. „Við viljum láta heilsuna mætast hér.“
Karitas María og Enzo Rinaldi munu standa vaktina á Nat. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR