Fréttablaðið - 30.10.2018, Qupperneq 7
HEILBRIGÐISMÁL Verði frumvarp
Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðis-
ráðherra um þungunarrof að lögum
yrði íslensk löggjöf sú frjálslyndasta
meðal norrænna ríkja í þeim efnum.
Aðeins bresk og hollensk löggjöf
gengur lengra í frjálslyndi en sú sem
á að leggja fyrir þingið í vetur.
Árið 2016 skilaði vinnuhópur af
sér niðurstöðum til heilbrigðisráð-
herra um breytingar á íslenskum
lögum um fóstureyðingar, sem eru
frá 1975.
„Niðurstaða nefndarinnar var að
mæla með því að kona hefði heimild
til að taka þessa ákvörðun til loka 22.
viku meðgöngu. Margir þættir liggja
að baki þeirri niðurstöðu og einn
veigamesti þátturinn er að virða
sjálfsákvörðunarrétt konunnar og að
hún hafi vald til að ráða yfir eigin lík-
ama,“ segir Sóley S. Bender, prófess-
or við hjúkrunarfræðideild Háskóla
Íslands og formaður nefndarinnar.
Á Íslandi er konu heimilt að
ákveða sjálf um þungunarrof fram
að tólftu viku meðgöngu. Slíka lög-
gjöf er einnig að finna í Noregi, Dan-
mörku og Finnlandi. Svíar, Bretar
og Hollendingar eru hins vegar
frjálslyndari hvað þetta varðar og
veita konum aukið vald til að enda
þungun.
Í nýju frumvarpi heilbrigðisráð-
herra verður lagt til að konur hafi
vald til að ákveða um þungunar-
rof fram að 22. viku meðgöngu.
Lagt er til að konu verði veitt fullt
ákvörðunar vald um það hvort hún
elur barn og eitt meginmarkmið
frumvarpsins er að tryggja konum
sjálfsforræði um barneignir.
-
Að játaást í fyrsta sinn
Finndu okkur
á facebook
Tímamörk laga á þungunarrofi
Svíþjóð
18 vikur
Finnland
12 vikur
Danmörk
12 vikur
Bretland
24 vikur
Holland
24 vikur
Ísland
12 vikur
verður 22 vikur
Noregur
12 vikur
Yrði að frjálslyndustu
löggjöf Norðurlanda
Hugmyndir heilbrigðisráðherra um lög um þungunarrof myndu setja Ísland á
stall með frjálslyndustu ríkjum hvað snertir ákvörðunarrétt kvenna í þessum
efnum. Hollendingar og Bretar leyfa þungunarrof fram að 24. viku meðgöngu.
ÞÝSKALAND Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, tilkynnti í gær um að
hún myndi ekki sækjast eftir neinni
pólitískri stöðu eftir að yfirstandandi
kjörtímabili þýska sambandsþings-
ins lýkur. Þá myndi hún ekki heldur
sækjast eftir endurkjöri til formanns
Kristilegra demókrata í desember.
Þetta þýðir að árið 2021 verður engin
Merkel á kanslarastólnum.
Merkel tók við embættinu árið
2005 og við formennsku í Kristi-
legum demókrötum árið 2000. Í dag
þekkja yngstu kjósendurnir ekki
annan formann en Merkel og árið
2021 mun Merkel hafa gegnt emb-
ætti kanslara í sextán ár. Að öllu
óbreyttu mun Merkel sigla upp að
hlið Helmuts Kohl yfir þaulsætnustu
þýsku kanslarana en hann sat einnig
í sextán ár.
Ákvörðun Merkel var tekin eftir
kosningar í þýska ríkinu Hesse þar
sem Kristilegir demókratar guldu
afhroð. Töpuðu tíu prósentum á
milli kosninga. Kristilegir demó-
kratar töpuðu einnig miklu fylgi í
kosningum í Bæjaralandi á dögun-
um. Á blaðamannafundi í gær sagð-
ist Merkel axla ábyrgð á stöðunni
og ítrekaði að hún myndi ekki velja
eftirmann sinn sjálf. – þea
Angela Merkel
stefnir upp að
hlið Kohls
Angela Merkel,
formaður Kristi-
legra demókrata
og kanslari
Þýskalands.
„Þegar þungunarrof á sér stað
í nútíma samfélagi er það í lang-
flestum tilvikum gert afar snemma á
meðgöngunni. Árið 2017 voru 98%
allra þungunarrofa á Íslandi fram-
kvæmd fyrir lok 16. viku meðgöngu.“
segir Sóley. „Það er staðreynd og því
er að mínu mati þessi ótti, að konur
fari seint í þungunarrof, úr lausu lofti
gripinn.“
Á haustþingi 2018 hyggst heil-
brigðisráðherra leggja fram frum-
varpið og mun því koma til kasta
þingsins innan tíðar. Halldóra
Mogensen, formaður velferðar-
nefndar, segir að það sem hún hafi
séð af frumvarpsdrögunum sé að
mörgu leyti betrumbót frá fyrri
lögum.
„Lögin eru auðvitað orðin nokkuð
gömul og þörf hefur verið á endur-
skoðun laganna. Hvað varðar einstök
atriði í frumvarpinu þá væri ég til í
að sjá frumvarpið í heild og lesa það
almennilega með umsögnum til að
ræða þau sérstaklega. Hins vegar eru
álit sérfræðinga sem liggja að baki og
sérfræðingar eiga að ákveða svona
hluti en ekki pólitíkin,“ segir Hall-
dóra. sveinn@frettabladid.is
Fórust með glænýrri þotu
Allir 189 sem voru um borð í farþegaþotu Lion Air flugfélagsins fórust er vélin hrapaði í sjóinn 13 mínútum eftir flugtak frá Djakarta í Indónesíu í gær.
Lion Air fékk þessa nýju Boeing 737 MAX 8 þotu afhenta í ágúst. Ekki er enn vitað um orsök slyssins en komið hefur fram að í fluginu á undan kom upp
bilun í þotunni. Hún er sömu gerðar og vélar sem Icelandair festi nýlega kaup á. Brak og líkamshlutar voru flutt með skipum í land. NORDICPHOTOS/GETTY
3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð