Fréttablaðið - 30.10.2018, Síða 26
þjónustu Grænna skáta. „Fólk getur
alltaf haft samband við okkur,
annaðhvort í síma eða með tölvu-
pósti, Facebook-skilaboðum eða
hvernig sem er og við komum. Við
erum líka með fyrirtækjaþjónustu
sem gengur út á að við sækjum þær
endurvinnsluumbúðir sem falla til
og greiðum hluta skilagjaldsins fyrir
til þeirra sem það vilja. Það rennur
þá víðast í sjóði starfsmannafélaga.“
Starfsemi Grænna skáta er því
þríþætt samfélagsverkefni sem snýr
að æskulýðsstarfi, umhverfisvernd
og atvinnusköpun fyrir fólk með
skerta starfsgetu. Til að nýta sér
þjónustu Grænna skáta er bent á
heimasíðuna graenirskatar.is þar
sem hægt er að skrá sig og fá allar
nánari upplýsingar.
Ásgeir Ólafsson
verkefnastjóri
í Rekstrardeild
Íslandsbanka:
Frábærir
starfsmenn og
góð þjónusta
„Íslandsbanki
hefur nýtt
sér þjónustu
Grænna skáta í
höfuðstöðvun-
um frá 2015. Hafa
þeir sinnt þessari
þjónustu vel og koma
til okkar einu sinni í viku. Áður var
farið óreglulega í þetta verkefni og
urðu bílarnir sem notaðar voru í
þetta einnig frekar skítugir, þar sem
það lekur oft úr pokunum, og sér-
staklega þegar búið er að fylla bílinn
af dósum og flöskum.
Með reglulegri losun dósa var því
komist hjá dýrum þrifum á bílum,
og betri nýting var á tíma starfsfólks
við að fara og skila dósunum. Með
því að hafa þjónustugjaldið inni-
falið í skilagjaldi dósarinnar þá má
segja að þjónustan borgi sig sjálf.
Einnig eru starfsmennirnir frá þeim
frábærir og gaman að geta stutt
við vinnustað eins Græna skáta og
styrkt æskulýðsstarf í landinu um
leið.“
Hulda Kristín
Magnúsdóttir
aðstoðarmaður
forstjóra í Hörpu:
Grænir skátar
vel með á
nótunum
„Við höfum notað
þjónustu Grænna
skáta í ein
fjögur ár. Hér
fellur mikið
til af dósum
og flöskum og
stundum eru tunn-
urnar okkar yfirfullar eftir stóra við-
burði og við hringjum og þeir eru
komnir eftir klukkutíma. Flöskurnar
og dósirnar eru sóttar reglulega
en svo eru þeir líka svo vel með á
nótunum að þeir fylgjast með hvað
er að gerast í Hörpu og ef það eru
stórir viðburðir þá þarf ekki einu
sinni að hringja, þeir mæta.
Mér finnst líka mikilvægt að fyrir-
tækið veitir vinnu fólki sem á erfitt
með að fóta sig á vinnumarkaðin-
um. Ég mæli eindregið með þessari
þjónustu,“
Friðrik Helgason
rekstrarstjóri á HúrraBar:
Einfaldar málin
mjög mikið
„Ég hef verið
ánægður við-
skiptavinur
Grænna skáta
í ár. Ég rek
skemmtistaði
þar sem mikið
fellur til af flöskum
og dósum og þegar ég heyrði af
þessari þjónustu hafði ég strax
samband. Grænir skátar sjá alfarið
um allar dósir og flöskur og borga
mér til baka ákveðinn hlut af skila-
gjaldinu og ég hef bara ekkert þurft
að hugsa um þetta síðan ég byrjaði
að láta þá sjá um endurvinnanlegu
umbúðirnar. Það einfaldar málin
mjög mikið fyrir mig að þurfa ekki
að sjá um þessi mál. Þetta er svo
frábær díll því með honum náum
við bæði að leggja af mörkum til
samfélagsins og umhverfisins.“
Fólk getur alltaf
haft samband við
okkur, annaðhvort í síma
með tölvupósti, eða
Facebook-skilaboðum og
við komum.
Júlíus Aðalsteinsson
Við tökum við einnota drykkjarumbúðum, bæði plasti, áli og gleri, flokkum
og komum í endurvinnslu,“ segir
Júlíus Aðalsteinsson, rekstrarstjóri
Grænna skáta. „Við erum með
yfir hundrað söfnunarstaði um
allt höfuðborgarsvæðið og það er
alltaf stutt fyrir fólk að fara til að
losa sig við þessar einingar. Með
þessu erum við að reyna að minnka
plast sem fer í urðun eða fýkur um
í náttúrunni auk þess sem þetta er
fjáröflun fyrir skátahreyfinguna.“
Hann segir verkefnið Grænir
skátar vera þríþætt. „Skilagjaldið
sem Grænir skátar fá fyrir dósir og
flöskur fer í dagskrárgerð fyrir skáta
á skátaaldri. Við höldum námskeið
fyrir leiðtogana, bjóðum upp á
viðburði og þróum hugmyndafræði
og dagskrártilboð sem foringjarnir
geta unnið úr. Svo eru það auð-
vitað umhverfissjónarmiðin og
svo framkvæmdin sjálf en Grænir
skátar er vinnustaður fyrir fólk
sem er með einhvers konar skerta
starfsgetu. „Við erum í samstarfi við
Vinnumálastofnun í verkefni sem
heitir Atvinna með stuðningi,“ segir
Júlíus og bætir við: „Flestir okkar
starfsmenn eru í hlutastarfi þar
sem þeir eru að einhverju leyti með
skerta starfsgetu og þrífast ekki á
almennum vinnumarkaði.“
Júlíus segir auðvelt að nýta sér
Grænir skátar þríþætt
samfélagsverkefni
Grænir skátar eru með móttökugáma fyrir skilagjaldsskyldar umbúðir víðs-
vegar um höfuðborgarsvæðið. Fyrirtækjaþjónusta Grænna skáta sér einnig
um að sækja dósir til fyrirtækja og félagasamtaka.
Júlíus Aðalsteinsson, rekstrarstjóri Grænna skáta, við höfðustöðvarnar og bílinn sem margir hafa séð á fleygiferð um bæinn að afla dósa. MYND/STEFÁN KARLSSON
Kraftmikill hóp-
ur starfsmanna
á flokkunarstöð
Grænna skáta.
KYNNINGARBLAÐ 5 Þ R I ÐJ U DAG U R 3 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 ENDURVINNSLA