Morgunblaðið - 06.09.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 06.09.2019, Síða 6
VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Jin Zhijian, sendiherra Kína á Íslandi, segir það alrangt hjá Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, að íslensk stjórnvöld hafi hafnað samstarfi í verkefninu belti og braut. Tilefnið er heimsókn varaforsetans til Ís- lands í fyrradag þar sem hann þakkaði ís- lenskum stjórnvöldum fyrir að afþakka þátt- töku í umræddu alþjóðasamstarfi með Kína. Zhijian rifjar upp forsöguna: „Fyrir um tveimur árum afhentum við íslenskum stjórn- völdum drög að samkomulagi innan ramma beltis og brautar. Það er venjan og við höfum gert slíkt í mörgum öðrum löndum. Þegar við- takandi hefur fengið slíkt skjal í hendur hefur hann þá ábyrgð að kynna sér það og svara því. Eftir því sem ég best veit eru utanríkisráð- herra og forsætisráðherra Íslands að kynna sér möguleikann á því að ganga til samstarfs um belti og braut. Það hefur hins vegar engin ákvörðun verið tekin. Þau ummæli varafor- seta Bandaríkjanna að íslensk stjórnvöld hafi hafnað belti og braut eiga sér því enga stoð. Ég kalla þetta falsfréttir,“ segir Zhijian og brosir, „því þetta er afvegaleiðandi og lýsir ekki raunveruleikanum. Þess vegna hafa ís- lenskir ráðamenn tekið skýrt fram að þetta sé ekki nákvæm lýsing á stöðunni“. Því fyrr, þeim mun betra Spurður hvenær kínversk stjórnvöld hafi væntingar um að íslensk stjórnvöld undirriti samkomulagið segir hann því fyrr, þeim mun betra. Þetta sé Íslendinga að ákveða. Spurður hvort kínversk stjórnvöld hafi boð- ið íslenskum stjórnvöldum þátttöku í slíkri fjárfestingu rifjar Zhijian upp að Ísland sé meðal stofnaðila Fjárfestingarbanka Asíu í innviðum (skammstafa AIIB á ensku). Bank- inn skoði hvert verkefni fyrir sig á grundvelli hagkvæmnisathugunar. Síðar í samtalinu bendir hann á að tvíhliða viðskipti ríkjanna hafi aukist úr 400 milljónum dala í 700 millj- ónum dala frá því fríverslunarsamningur ríkjanna var undirritaður árið 2013. Kína hafi farið úr því að vera í 9. sæti yfir helstu við- skiptaríki Íslands yfir í að vera í 6. sæti. Síðar í samtalinu segir hann Kínverja áhugasama um fjárfestingu á Íslandi. „Að sjálfsögðu viljum við skoða hin ýmsu tækifæri á Íslandi. Ef íslenska þjóðin þarf að ráðast í innviðaverkefni … og ef kínversk fyrirtæki eru öflug á þeim sviðum … og ef það eru engar svonefndar viðkvæmar hliðar á mál- um hefðu kínversk fyrirtæki án efa áhuga á að koma hingað og skoða verkefni,“ segir Zhijian og rifjar upp mikinn árangur Íslendinga á sviði jarðhita. Kínverjar og Íslendingar geti unnið saman á því sviði í öðrum ríkjum. Leggja mikla áherslu á flugið Þá hafi hafi það verið ofarlega á dagskrá hans sem sendiherra að stuðla að beinu flugi milli Íslands og Kína. Leitað hafi verið til nokkurra kínverskra flugfélaga en þau ekki verið í aðstöðu til að hefja flugið að sinni. „Á frumstigum slíks flugs gætum við hins vegar beitt okkur fyrir flugi leiguflugvéla frá Kína sem millilenda einu sinni, til dæmis í Helsinki eða öðru norrænu landi. Þjónustan gæti verið árstíðabundin. Það yrði sennilega ekki flogið daglega heldur nokkrum sinnum í viku. Slíkt tilraunaflug gæti gefist vel,“ segir Zhijian og tekur fram að hann eigi við leigu- flug fyrir farþega. Slíkt flug geti m.a. gagnast kínverskum fyrirtækjum með því að greiða fyrir flutningi varnings á íslenskan markað. „Vonandi gæti orðið af þessu á næsta hálfa árinu eða svo,“ sagði sendiherrann. Spurður hvers vegna erlendir ráðamenn sýni Íslandi nú svo mikinn áhuga sagði Zhijian að „vegna strategískar staðsetningar hafi mörg ríki sýnt því áhuga að stofna til góðs sambands við Ísland, Kína þar með talið“. Mikilvægi Íslands kunni að aukast með opnun siglingaleiða yfir norðurpólinn. Hversu mikið fari eftir því hvaða leiðir muni opnast. „Ég vil leggja á það áherslu, úr því rætt er um tvíhliða samskipti ríkjanna, að það býr ekki að baki strategísk hugmyndafræði [hjá Kína].“ Fyrirskipa ekki gagnasöfnun Hvað varðar þau varnaðarorð varaforsetans Pence til íslenskra stjórnvalda að skipta ekki við tæknirisann Huawei segir Zhijian að því fari víðs fjarri að kínversk stjórnvöld fyrir- skipi fyrirtækinu að safna gögnum frá við- skiptavinum. Þá séu fullyrðingar um hug- verkaþjófnað Kínverja alrangar. Slíkar yfirlýsingar Bandaríkjamanna séu tilkomnar af því viðhorfi að kínversk fyrirtæki séu álitin ógna stöðu bandarískra fyrirtækja. „Þjóðar- framleiðsla Kína er nú þegar í 2. sæti, 2⁄3 af þjóðarframleiðslu Bandaríkjanna. Út frá því hvernig Bandaríkin komu fram við Japan, Sovétríkin og suma bandamenn í ESB má sjá hvernig þau munu koma fram við Kína.“ Mörg tækifæri á Íslandi  Sendiherra boðar flug milli Íslands og Kína, mögulega innan hálfs árs  Ummæli varaforseta Bandaríkjanna séu í senn röng og afvegaleiðandi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sendiherra Jin Zhijian, sendiherra Kína á Íslandi, fór yfir málin í kínverska sendiráðinu. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 Albert Jónsson, fv. sendi- herra Íslands í Washington og sérfræðingur í alþjóða- málum, segir fulltrúa Bandaríkjastjórnar tala um það opinskátt að áhuginn á Íslandi og norðurslóðum sé hluti af samkeppni við Kína á heimsvísu. „Þetta hófst með því þegar Mike Pom- peo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Íslands í febrúar sl. Viku áður áttu hátt settir fulltrúar bandaríska utanríkisráðherrans símafund með blaðamönn- um. Þar var m.a. spurt hvort Bandaríkjastjórn hefði áhyggjur af auknum umsvifum Kínverja á norðurslóðum. Þá kom það svar að svo vildi til að Pompeo ætlaði að koma við í Reykjavík vegna umsvifa Kínverja,“ segir Albert. Skýr skilaboð varaforsetans „Örfáum mánuðum síðar kemur Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, til Íslands. Þegar hann gekk út úr Höfða [í fyrradag] talaði hann eins skýrt og opinskátt um þetta og unnt var að gera,“ segir Albert og bendir á að Pence hafi jafnframt vísað til aukinna umsvifa Rússa á norðurslóðum. Albert tekur í því sambandi fram að stefna Rússa á norðurslóðum hafi verið þekkt í áratugi. Grundvallarhagsmunir þeirra liggi á Kólaskaga og í Barentshafi. „Áhugi Kínverja er hins vegar nýtilkominn. Hann tengist hlýnun jarðar og bráðnun heim- skautaíss. Svo á eftir að koma í ljós til hvers það leiðir og hvað verður að veruleika, sigl- ingaleiðir og slíkt. Kínverjar hafa sýnt Græn- landi og Íslandi áhuga. Sendiherra Kína á Ís- landi liggur ekki á því í ræðu og riti að íslensk stjórnvöld séu opin fyrir því að undirrita sam- komulag um aðkomu Íslendinga að belti og braut. Hann gerði þetta síðast í viðtali við Vísi 1. september. Þá lét hann enn einu sinni í ljós von um að af því yrði. Hann talar um að Ísland gæti orðið flutningamiðstöð,“ segir Albert. „Ég lít svo á að Pompeo og Pence séu að koma hingað til að sýna þessu ákveðið viðnám og gefa ákveðið merki um að Grænland og Ís- land sé á þeirra svæði,“ segir Albert. Hann segir aðspurður ekki útlit fyrir að for- sendur verði fyrir því að endurvekja herstöðina í Keflavík. Þá vísar hann á heimasíðu sína um alþjóða- og utanríkismál, albert-jonsson.com. Viðnám við umsvifum Kína í norðri  Fv. sendiherra bendir á yfirlýsingar á þessu ári Albert Jónsson er hann ekki að greiða neitt útsvar, þ.e.a.s. hann greiðir ekkert í inn- viðauppbygginu, ekkert fyrir þjón- ustuna sem hann notar á vegum sveitarfélagsins,“ segir hún. Þessi tillaga snúist um réttlæti og að unn- ið sé gegn þessu ósamræmi í skatt- lagningu. „Manni finnst ekki sann- gjarnt að þeir allra ríkustu séu ekki að greiða neitt útsvar eða hlutfalls- lega lægra en launafólk og launafólk á ekki eitt að bera hitann og þung- ann af innviðauppbyggingu sveitar- félagsins,“ segir hún í svari. Ekki södd og vill hækka álögur Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð- isflokksins í borgarstjórn, gagnrýn- ir þessar skattahugmyndir. „Reykjavík er í fararbroddi varð- andi háa skatta og gjöld, er með hæsta útsvarið á höfuðborgarsvæð- inu og fasteignaskatturinn hefur hækkað, bara á þessu ári um 17% af atvinnuhúsnæði. Það er ekki á það bætandi að fara að hækka aðra skatta og það er sérkennilegt að Reykjavíkurborg beini því til rík- isins,“ segir Eyþór. Hann segist ekki vera undrandi á að Sósíalistaflokkurinn komi fram með þessa tillögu en segir með ólík- indum að Viðreisn skuli taka undir þetta. ,,Það finnst okkur afhjúpandi. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Borgarfulltrúar meirihlutaflokk- anna í borgarstjórn samþykktu á seinasta borgarstjórnarfundi að vísa áfram til meðferðar borgarráðs til- lögu Sönnu Magdalenu Mörtudótt- ur, borgarfulltrúa Sósíalistaflokks- ins, um álagningu útsvars á fjármagnstekjur. Leggur hún til að borgarstjórn leiti til hinna sveitarfé- laganna í landinu til að mynda sam- stöðu um að útsvar verði lagt á fjár- magnstekjur með lögum frá Alþingi. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins leggjast alfarið gegn hug- myndum um skattahækkanir enda séu skattar í Reykjavík í hæstu hæðum. Í bókun segja þeir að með hærri sköttum á fjármagnstekjur væri dregið úr fjárfestingargetu og gengið á sparnað almennings. Sanna segir að helstu ástæður þessarar tillögu séu þær að ekkert útsvar er lagt á fjármagnstekjur, ólíkt launatekjum og tekjur hinna allra auðugustu séu að miklu leyti fjármagnstekjur „þannig að þeir að- ilar eru ekki að greiða sama hlutfall af tekjum sínum til borgarinnar eða sveitarfélaganna sem þeir búa í, og launafólkið gerir. Svo ef að viðkom- andi hefur bara fjármagnstekjur þá Vill leggja útsvar  Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir skatta í hæstu hæðum og ekki sé á það bætandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.