Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 10

Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 10
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Síðustu vikur hafa verktakar selt nýjar íbúðir í miðborginni fyrir millj- arða króna. Frá talningu Morgun- blaðsins í lok júní hafa þannig selst 49 íbúðir og gætu 72 íbúðir bæst við á Brynjureit ef samningar takast. Alls yrðu það 120 íbúðir en miðað við að meðalverð sé 50 milljónir yrði söluverðið alls 6.000 milljónir. Fjárfestar eiga þannig í viðræðum við verktakafyrirtækið Þingvang um kaup á 72 íbúðum á Brynjureit í mið- borginni. Ásett verð á íbúðirnar er á fjórða milljarð króna. Brynjureitur er við Hverfisgötu og á baklóðum. Ný göngugata hefur verið gerð á Brynjureit frá Laugavegi og undir nýtt fjölbýlishús við Hverfisgötu. Pálmar Harðarson, framkvæmda- stjóri Þingvangs, segir félagið eiga í viðræðum við fjárfesta um kaup á öllum íbúðunum 72. Fleiri hafi sýnt því áhuga að kaupa allar íbúðirnar. Hann geti að öðru leyti ekki tjáð sig um málið á þessu stigi. Íbúðir á Brynjureit komu í sölu í tveimur lotum. Í þeim fyrri eru 49 íbúðir sem snúa að Hverfisgötu en í þeim síðari 23 íbúðir á baklóð. Fram- kvæmdirnar eru á lokastigi. Ganga myndi á framboðið Framboð nýrra íbúða í miðborg- inni í ár er sennilega án fordæma. Með kaupunum á Brynjureit myndi ganga verulega á framboð nýrra íbúða. Salan var hæg í byrjun sum- ars, en óvissa í kjölfar gjaldþrots flugfélagsins WOW air og órói vegna kjarasamninga voru nefnd sem skýr- ingar. Líf hefur hins vegar færst í sölu miðborgaríbúða síðustu vikur. Pálmar segist aðspurður hafa þá kenningu að óvenjugott tíðarfar í sumar eigi þátt í rólegri sölu. Nú sé markaðurinn að fara í gang á ný. „Kaupgetan hefur verið til staðar. Það hefur hins vegar verið óvissa í efnahagslífinu. Fólk hefur verið að bíða og sjá hvernig framhaldið yrði. Annað sem vekur athygli er að fyrstu kaupendur hjá okkur í mið- borginni reikna með tekjum af út- leigu til ferðamanna í 90 daga á ári. Þeir ætla svo að borga afraksturinn inn á lánið. Þetta er aðeins hægt að gera í miðbænum,“ segir Pálmar. Kaupa íbúðir á Frakkastígsreit Þá hafa fjárfestar keypt 15 íbúðir á Frakkastígsreit. Félagið Blóma- þing fer með uppbygginguna. Þorsteinn Pálsson, framkvæmda- stjóri félagsins, segir kaupendur ætla að nota íbúðirnar fyrir starfs- menn sína. Íbúðirnar á Frakkastígsreit hafa komið í sölu í nokkrum áföngum. Sá fyrsti kom í sölu í nóvember 2017. Með kaupunum eru nú aðeins tvær íbúðir óseldar af 18 á hæðum fimm og sex á reitnum og ein íbúð á 2. hæð. Hins vegar eru fimm íbúðir óseldar á fjórðu hæð og sjö íbúðir á þriðju hæð. Samanlagt eru 15 íbúðir óseldar af 68 á reitnum. Þá vekur athygli að allar íbúðirnar 11 á Klapparstíg 30 eru seldar. Þær eru í sömu nýbyggingu og Skelfisk- markaðurinn, sem var lokað eins og kunnugt er. Annar veitingastaður er þar í undirbúningi. Hins vegar eru þrjár íbúðir af fjórum óseldar á Klapparstíg 28, sem einnig var byggður af félaginu Þingvangi. Íbúð- irnar þar eru töluvert stærri og dýr- ari en á Klapparstíg 30, sem bendir til að verð hafi áhrif á eftirspurn. Þá eru 15 íbúðir óseldar á Höfða- torgi sem kosta undir 60 milljónum. Þar eru 94 íbúðir í tveimur húsum og eru nú tíu íbúðir óseldar sem kosta yfir 90 milljónir króna, sú dýrasta 195 milljónir króna. Níu íbúðir seld- ust á Hafnartorgi í sumar og styttist í að önnur hver íbúð þar sé seld. Þá hafa 10 íbúðir selst á tveimur reitum ofarlega á Hverfisgötu. Meiri sala á miðborgaríbúðum  Um 50 nýjar íbúðir á þéttingarreitum í miðborginni seldust í sumar  Fjárfestar keyptu 15 íbúðir á Frakkastígsreit  Þá eiga fjárfestar í viðræðum um kaup á öllum íbúðunum 72 á Brynjureitnum 3 4 5 6 8 9 10 14 11 16 12 13 18 19 26 25 20 22 23 27 1 7 21 2 15 Óseldar íbúðir í miðborg Reykjavíkur Salan í sumar og hlutfall seldra íbúða* Kortagrunnur: Stamen Íbúðir í söluferli Fjö ld i Se ld ar 26 .6 . 2 01 9 Se ld ar 4. 9. 2 01 9 Se lda r síð an 26 .6. Hl ut fa ll se ld ra íb . Ós el da r í b. 1 Höfðatorg 94 64 67 3 71% 27 2 Kirkjusandur 77 6 11 5 14% 66 3 Frakkastígsreitur 68 37 53 16 78% 15 4 Hverfi sgata 85-93 70 10 17 7 24% 53 5 Hverfi sgata 94-96 38 16 19 3 50% 19 6 Hafnartorg 70 22 31 9 44% 39 7 Brynjureitur** 72 0 72 72 100% 0 8 Klapparstígur 30 11 8 11 3 100% 0 9 Klapparstígur 28 4 0 1 1 25% 3 10 Tryggvagata 13 38 25 27 2 71% 11 Samtals 542 188 309 121 57% 233 Samtals án Brynjureits 237 49 44% 305 Væntanlegt*** U.þ.b. fjöldi 11 Brynjureitur 2 21 12 Austurhöfn við Hörpu 70 13 Borgartún 28 21 14 Borgartún 41 30 15 Sólborg, Kirkjusandi 52 16 Hverfi sgata 88-92 30 17 Ingólfstorg 16 Samtals 240 *Samkvæmt söluvefjum 4.9. 2019. **Íbúðir eru fráteknar. Sala er ófrágengin. ***Heimildir: Kynningarefni borgarstjóra, fréttasafn Morgunblaðsins, kynnt deiliskipulag. Dæmi um verkefni í bið eða á teikniborðinu U.þ.b. fjöldi 18 F-reitur Kirkjusandi 30 23 Héðinsreitur 330 19 Annar íb.turn á Höfðatorgi 100 24 Snorrabraut 60 49 20 Borgartún 24 65 25 Frakkastígur 1 20 21 Borgartún 34-36 86 26 Guðrúnartún 100 22 Vesturbugt 176 27 Byko-Steindórsreitur 80 Samtals 1.036 17 24 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Meðal nýbygginga í miðborginni er fjölbýlishúsið Tryggvagata 13. Hildigunnur Haraldsdóttir, hjá arkitektastofunni Húsum og skipu- lagi, er arkitekt og samræmingar- hönnuður bygging- arinnar. Hún segir þegar seldar 27 af 38 íbúðum. Sala sé lengra komin en víða á svæðinu, enda salan hafist fyrr. „Við erum betur sett en flestir,“ segir Hildigunnur, sem vonast til að borgaryfirvöld bregðist við til að auka möguleika þeirra sem hafa stuðlað að uppbyggingu í miðborginni. Það sé t.d. hægt með því að veita íbúum í íbúðum án bílastæða íbúakort og leigja þeim stæði í bílakjallara á Hafn- artorgi á sérstöku íbúaverði. Þörf fyrir bílastæði muni minnka hratt á næstu árum með fjölgun deilibíla. Einnig telur hún að æskilegt væri ef borgin heimilaði byggingaraðilum að hafa hótel- eða gistirými tímabund- ið í nýbyggingum í allt að 23 prósent- um byggingarmagns á lóð í samræmi við ákvæði í deiliskipulagi fyrir Kvosina frá maí 2015. Þar með væri jafnræðis gætt. Skortir á samráð Hún gagnrýnir forgangsröðun borgaryfirvalda í skipulagsmálum. „Ég hef þungar áhyggjur af mið- borginni og stefnu borgaryfirvalda. Mér virðist sem ekki sé haft nægjan- legt samráð við rekstraraðila. Því miður er það allt of algeng sjón í mið- borginni að sjá rýmingarsölur aug- lýstar vegna lokunar eða flutninga. Þegar rótgróin fyrirtæki eru farin í burtu hlýtur það að vera áhyggjuefni. Ég tel að þetta orsakist að hluta til af því að byrjað er á röngum enda. Það þarf fyrst að efla deilibílakerfi og skapa góðar almenningssamgöngur, kenna fólki að nota þær og svo má þrengja að einkabílnum. Ég er í hjarta mínu sammála þeirri stefnu að stuðla að bíllausum lífsstíl og uppbyggingu miðborgarinnar. Það tekst hins vegar varla með því að hrekja fjölbreytilegan rekstur í burtu með háum fasteignagjöldum og tak- mörkun á bílaumferð áður en aðrar lausnir eru fullþróaðar.“ Samráð skortir hjá borginni  Brotthvarf fyrirtækja áhyggjuefni Hildigunnur Haraldsdóttir Félagið Rauðsvík setti 70 íbúðir á Hverfisgötu 85-93 í sölu í apríl og eru 17 seldar. Þá er félagið að byggja 24 íbúðir á Hverfisgötu 92 og fimm íbúðir á Hverfisgötu 88-90 sem fara í sölu á næstu mánuðum, alls 99 íbúðir. Sturla Geirsson, framkvæmdastjóri Rauðsvíkur, segir mikið framboð á skömmum tíma hafa haldið niðri verði nýrra íbúða í miðborginni. Það muni ekki vara mikið lengur. „Verðið hefur ekki hækkað í hlutfalli við kostnað. Krónan hefur veikst og allur byggingarkostnaður hækk- að. Verðið mun því hækka um leið og framboðið minnk- ar. Það liggur í hlutarins eðli. Nú er boðið upp á nýjar íbúðir á svipuðu verði og í Garðabæ og á Hlíðarenda. Það mun ekki endast. Ég vænti þess að um áramótin verði búið að ganga verulega á framboðið. Þá mun þessari kyrrstöðu í verðlagningu ljúka,“ segir Sturla. Rætt sé um að kaupendur bíði eftir útspili ríkisstjórnarinnar í haust varðandi fyrstu kaup. Verðið muni hækka á nýju ári FRAMBOÐIÐ SAGT HALDA NIÐRI VERÐINU Sturla Geirsson Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Gerið verðsamanburð Verð 9.800 Verð 5.990 Kjóll Skyrta Stútfull búð af Nýjum vörum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.