Morgunblaðið - 06.09.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.09.2019, Qupperneq 14
Leikjahönnun Halldór, Daníel og Friðrik í höfuðstöðvum Myrkur Games, þar sem nú er unnið myrkranna á milli við gerð tölvuleiksins The Darken. Leikurinn er sögudrifinn ævintýraleikur og fjallar um söguhetjuna Ryn. Morgunblaðið/Hari Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Fimmtán manns vinna nú af kappi við gerð leiksins The Darken, sem þróað- ur er af íslenska tölvuleikjafyrir- tækinu Myrkur Games sem tryggði sér nýverið 50 milljóna króna fjár- festingu frá að mestu íslenskum fjár- festum, en áður hafði fyrirtækið hlot- ið 25 milljóna styrk frá Tækniþróunarsjóði og Nýsköpunar- miðstöð Íslands. Fram undan er önn- ur og talsvert stærri fjármögnunar- umferð við erlenda aðila sem á að klárast fyrir lok þessa árs. Þeir Hall- dór Snær Kristjánsson fram- kvæmdastjóri, Daníel Arnar Sigurðs- son og Friðrik Aðalstein Friðriksson, sem stofnuðu Myrkur Games árið 2016, hafa í nógu að snúast þessa dag- ana og voru fyrir skemmstu að kynna leikinn á Gamescom-ráðstefnunni í Köln í Þýskalandi sem 400 þúsund manns sóttu. Tvöfalda starfsmannafjöldann Þeir hófu þróun á leiknum fyrir um einu og hálfu ári og að sögn Halldórs er stefnan sett á að tvöfalda starfs- mannafjöldann á næstunni. Hann vill aftur á móti stíga varlega til jarðar þegar kemur að útgáfutíma leiksins, en vinnudagsetningin í dag miðar að því að leikurinn verði klár eftir um tvö ár. The Darken er sögudrifinn ævintýraleikur sem fjallar um sögu- hetjuna Ryn. Tveir handritshöfundar starfa hjá Myrkur Games og vinna að því að skapa ævintýraheiminn sem Ryn býr í frá grunni, „allt niður í eðl- isfræðina og tungumálið,“ eins og Halldór orðaði það í samtali við Morgunblaðið. Ryn er raunar leikin af leikkonunni Aldísi Amah Hamilton, en í húsnæði Myrkurs er búið að setja upp 100 fer- metra upptökuver þar sem allar sen- ur í leiknum eru teknar upp. Aldís Amah verður ásamt öðrum leikurum auðþekkjanleg í leiknum en klædd í tölvugerðan ævintýrabúning. Margir kannast eflaust við aðferðafræðina úr kvikmyndunum um Hringadrottins- sögu þar sem persónan Gollrir var gerð raunveruleg með þessum hætti. „Við setjum leikarana í hreyfi- greinanlega (e. motion capture) galla þar sem við tökum upp allar líkams- hreyfingar þeirra, andlitshreyfingar, öll hljóð í leiknum, skylmingaatriði og svo framvegis,“ segir Halldór í sam- tali við Morgunblaðið. „Við höfum einnig sett upp fullt af myndavélum í hring þar sem við ljósmyndaskönnum alla leikarana til þess að búa til tölvu- gerða tvífara. Manneskjan í leiknum lítur sem sagt alveg eins út og leik- arinn,“ segir Halldór. Minni kostnaður Halldór segir að um spennandi verkefni sé að ræða. Það sé óhefð- bundið að því leytinu til að kostnaður- inn við gerð leiksins sé töluvert minni en hefur tíðkast í tölvuleikjabransan- um. „Helsta málið með svona leiki hingað til hefur verið að þeir eru mjög umfangsmiklir í þróun með nokkur hundruð starfsmenn á bak við venju- lega leiki. Sem gerir þá rosalega dýra í framleiðslu, sem aftur setur mikla áhættu í verkefni því þá þarf að selja afar mikið, kannski um milljón ein- tök, til þess að skila sléttu,“ segir Halldór og nefnir að útgáfa Tomb Raider-leiksins fyrir nokkrum árum, sem seldist í þremur milljónum ein- taka, hafi ekki verið talin vel heppn- uð. „Við þurfum ekki að selja nema 200-300 þúsund eintök og þá erum við komin á núllið bara af því að tæknin sem við erum að nota og við höfum þróað sjálf er í rauninni að gera okkur kleift að vinna að gerð leiksins með miklu minna teymi en hefðbundið er. Á næstu árum tel ég að við munum sjá mikla breytingu hvað þetta varðar þar sem við fáum að sjá marga nýja og spennandi leiki. Í stað þess að vera að gera leik númer sjö í seríu kemur frekar eitthvað nýtt og spennandi sem nær til fleiri markhópa þar sem ekki þarf jafn mikla sölu til þess að gera leiki vel heppnaða, bæði fyrir fjárfesta og fyrirtæki,“ segir Halldór. Vinna myrkranna á milli að The Darken  Ný 50 milljóna króna fjárveiting frá íslenskum fjárfestum Tækni Leikkonur sjást hér í hreyfigreinanlegum göllum. 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 VINNINGASKRÁ 18. útdráttur 5. september 2019 249 10924 20091 30269 41478 52399 62425 69974 503 11286 20237 30390 41689 52448 62500 69993 739 11339 20270 30902 42197 52624 62579 70310 2149 11498 20508 30998 42310 52695 62628 70411 2190 11584 21224 31022 42449 53029 62780 70860 2283 12290 21261 31419 42758 53178 62937 70998 2333 12630 21364 31720 42853 53185 62980 72044 2502 12928 21499 32605 42973 53203 63216 72877 2522 13682 21683 32858 42992 53549 63310 73075 2679 13932 22033 32993 43088 53894 63363 73780 3480 14193 22149 33519 44294 54075 63397 73836 3792 14244 23615 33603 44320 54313 63619 73923 3993 14355 23621 33829 44403 54724 64245 74005 4151 14499 24202 33941 44813 55081 64507 74196 4340 14561 24213 34022 45011 55213 64824 74748 4428 14572 24885 34531 45454 55588 64852 75086 5076 14640 24979 34731 45845 55658 64934 75178 5364 14974 25329 34766 46021 55732 64971 75405 5526 15045 25392 35654 46075 56099 65374 76222 6818 15276 25541 35979 46837 56115 65476 76290 7114 15530 25640 36062 46893 56212 65780 76499 7454 15983 25770 36235 47028 56837 65874 76542 7692 16246 26056 36356 47111 57098 66683 78241 7710 16629 26877 36673 48115 57139 67073 78275 7796 16633 27014 36952 48245 57546 67161 78388 8142 17094 27273 36995 48512 58290 67247 79014 8219 17590 27448 37181 48729 58544 67467 79057 8248 17787 27760 37292 50121 58890 67511 79279 8326 17823 27950 37923 50235 59254 67697 79309 8351 18099 28466 38228 50475 59637 67813 79695 8386 18326 28647 38494 51172 60041 67845 79923 8673 18383 29001 38866 51461 60472 67912 8862 18607 29099 39925 51645 61135 68101 9705 18823 29360 39931 52160 61174 68102 9775 18876 29823 40140 52177 61286 68299 9780 18932 29844 40185 52178 61804 69161 9973 20076 29873 40303 52337 62404 69831 374 10851 20042 28885 43147 56217 64999 73043 782 10874 21126 32320 43381 56537 66722 73468 1090 10986 21444 32432 45056 56822 66739 74088 1712 12578 23982 32753 46073 57138 67424 77374 1935 12805 24700 33051 47077 57262 68860 77451 2227 12904 24781 34212 47478 57799 69438 77716 3093 13198 25465 35617 48215 58875 69744 78306 6695 13867 25551 38726 50214 59508 70254 78327 7414 13955 26243 39087 52532 61201 71442 79768 9522 14973 26456 41681 52555 61208 71633 9535 15961 26536 42029 52606 61626 71714 9863 16313 27349 42938 53636 62093 72158 10141 19129 28592 42987 54658 62777 72554 Næstu útdrættir fara fram 12., 19. & 26. september 2019 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 19974 25169 25581 34625 59970 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 10550 21629 53833 57873 67778 76800 11565 23600 54254 62056 67941 76962 13553 28042 56716 64847 73429 77049 15325 35454 57331 65358 76089 77476 Aðalv inningur Kr. 15.000.000 Kr. 30.000.000 (tvöfaldur) 7 7 0 5 6 Til að stuðla enn frekar að nýsköp- un á sviði fjártækni á Íslandi hefur Meniga nú ákveðið að veita bönk- um og fjártæknifyrirtækjum að- gang að grunnþjónustu Meniga, sem gerir þeim kleift að sameina fjármálagögn einstaklinga með upplýstu samþykki þeirra. Að- gangurinn er í formi öruggrar skýjaþjónustu og hefur í för með sér að bankar og fjártæknifyr- irtæki geta nú boðið sínum not- endum upp á að sækja og vinna með færslur frá öllum stóru bönk- unum á Íslandi, svo lengi sem not- endurnir gefa fyrir því samþykki sitt. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá Meniga. tobj@mbl.is Bankar fá aðgang að grunnþjónustu Meniga  Vill stuðla enn frekar að nýsköpun 6. september 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.17 126.77 126.47 Sterlingspund 153.79 154.53 154.16 Kanadadalur 94.63 95.19 94.91 Dönsk króna 18.624 18.732 18.678 Norsk króna 13.908 13.99 13.949 Sænsk króna 12.925 13.001 12.963 Svissn. franki 128.04 128.76 128.4 Japanskt jen 1.1873 1.1943 1.1908 SDR 172.44 173.46 172.95 Evra 138.91 139.69 139.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.3063 Hrávöruverð Gull 1538.8 ($/únsa) Ál 1714.0 ($/tonn) LME Hráolía 58.17 ($/fatið) BrentAllt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.