Morgunblaðið - 06.09.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.09.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 VIÐ TENGJUMÞIG KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Bárður á Steig Nielsen, formaður Sambandsflokksins í Færeyjum, hef- ur fengið umboð til að mynda nýja landstjórn eftir kosningar sem fóru fram á laugardaginn var. Sam- bandsflokkurinn hyggst mynda stjórn með Fólkaflokknum og Miðflokknum. Þeir eru með sautján þingsæti af 33. Forseti færeyska lögþingsins veitti Bárði Nielsen umboðið eftir að hafa rætt við formenn flokkanna um hver þeirra ætti að reyna að mynda stjórn. Áður hafði Aksel V. Johannesen, lögmaður Fær- eyja, lagt fram af- sagnarbeiðni eftir að landstjórn Jafnaðar- flokksins, Þjóð- veldisflokksins og Framsóknar missti meirihluta sinn á þinginu. Flokkarnir þrír voru með alls 17 þingsæti en Jafn- aðarflokkurinn og Þjóðveldisflokkur- inn misstu eitt sæti hvor. Fylgi Jafn- aðarflokksins minnkaði úr 25,1% í 22,1% og hann er nú með sjö þing- menn. Þjóðveldisflokkurinn er með sex þingmenn og fylgi hans minnkaði úr 20,7% í 18,1%. Framsókn, flokkur sem klauf sig út úr Fólkaflokknum ár- ið 2011, fékk 4,6% og missti 2,4 pró- sentustig en hélt báðum þingsætum sínum. Fólkaflokkurinn stærstur Stóru hægriflokkarnir tveir styrktu stöðu sína á lögþinginu. Fólkaflokkurinn bætti við sig tveimur þingsætum, fékk átta sæti og 24,6% atkvæðanna, 5,7 prósentustigum meira en í kosningum fyrir fjórum ár- um. Sambandsflokkurinn fékk sjö þingsæti og bætti við sig einu. Hann fékk 20,3% atkvæðanna, 1,6 prósentu- stigum meira en í kosningunum í september 2015. Miðflokkurinn fékk 5,4% atkvæðanna, stóð nánast í stað og hélt tveimur þingsætum. Flokkur- inn Sjálvstýri missti annað þingsæta sinna, fékk 3,4% fylgi, tæpu prósentu- stigi minna en fyrir fjórum árum. Aksel V. Johannesen, formaður Jafnaðarflokksins, sagði í viðtali við danska ríkisútvarpið að hann teldi að fiskveiðilög sem samþykkt voru á síð- asta kjörtímabili væru meginástæða þess að stjórnin féll. Þau voru mála- miðlunarlausn, fela m.a. í sér að hluti af fiskveiðiheimildum er seldur á upp- boði til eins eða nokkurra ára. Þingforsetinn náði ekki endurkjöri Færeyjar hafa verið eitt kjördæmi frá árinu 2008 og frambjóðendum er ekki raðað í sæti á framboðslistunum heldur velja kjósendur flokk og þann frambjóðanda hans sem þeim hugn- ast. Aðeins átta konur voru kjörnar á þingið að þessu sinni. Frambjóðendurnir voru 179 og þeir fengu alls 32.151 atkvæði. Aksel V. Jo- hannesen fékk flest, 2.327, og Bárður á Steig Nielsen næstflest, 1.220. Í þriðja sæti var Høgni Hoydal, for- maður Þjóðveldisflokksins, með 1.209 atkvæði. Formaður Fólkaflokksins, Jørgen Niclasen, varð þriðji fylgismesti fram- bjóðandi flokksins, með 724 atkvæði. Beinir Johannesen fékk 995 og Jacob Vestergaard 779. Á meðal þeirra sem komust ekki á þing er fráfarandi forseti lögþingsins, Páll á Reynatúgvu, sem er í Þjóð- veldisflokknum. Formaður Sjálvstýr- is, Jógvan Skorheim, var ekki heldur kjörinn á þingið. Fylgisminnsti frambjóðandinn fékk aðeins eitt atkvæði. Nýja lögþingið á að koma saman í fyrsta skipti ekki síðar en laugardag- inn 14. þessa mánaðar. Hyggjast mynda mið- hægristjórn  Bárður Nielsen fékk umboðið Bárður Nielsen Fellibylurinn Dorian geisaði með- fram strönd ríkjanna Suður- og Norður-Karólínu í gær eftir að hafa valdið mikilli eyðileggingu og orðið að minnsta kosti tuttugu manns að bana á Bahamaeyjum. Hundruð þúsunda manna voru án rafmagns í Karólínuríkjunum og Georgíu vegna óveðursins og varað var við „lífshættulegum stormöld- um“. Fellibylnum fylgdi mikil úr- koma sem olli flóðum, meðal annars í borginni Charleston í Suður-Karól- ínu þar sem loka þurfti tugum gatna vegna vatnselgsins. Um 2,2 milljónum manna hafði verið sagt að forða sér af heimilum sínum á strönd Karólínuríkjanna, Flórída og Georgíu. Fellibylurinn olli þó minna tjóni í Flórída en óttast hafði verið. Vindhraðinn mældist allt að 51 m/s í gær en var 83 m/s þegar Dori- an kom að landi á Bahamaeyjum á sunnudaginn var. Fellibylurinn var þá í fimmta og hæsta styrkleika- flokki. Hann var lengst af ýmist í öðrum eða þriðja styrkleikaflokki í gær, að sögn Fellibyljamiðstöðvar Bandaríkjanna. Allt að 70.000 manns þurfa hjálp Duane Sands, heilbrigðisráðherra Bahamaeyja, sagði að sautján manns hefðu látið lífið á Abaco-eyj- um og þrír á eyjunni Grand Ba- hama. Talið er að fleiri hafi farist vegna þess að björgunarsveitir hafa ekki enn lokið leit að fólki á ham- farasvæðunum. Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans óttast að um 45% húsanna á Grand Bahama og Abaco-eyjum, eða um 13.000 hús, hafi stórskemmst eða eyðilagst í náttúruhamförunum. Embættis- menn hjálparstofnana Sameinuðu þjóðanna sögðu í gær að allt að 70.000 manns þyrftu á tafarlausri hjálp að halda. Þeir sögðu að sjá þyrfti um það bil 50.000 manns á Grand Bahama og 15.000-20.000 á Abaco-eyjum fyrir húsaskjóli, hreinu drykkjarvatni, matvælum, lyfjum og öðrum hjálpargögnum. Bandaríska strandgæslan hefur sent þrjú varðskip að eyjunum og þau höfðu í gær bjargað 135 manns frá því að óveðrið hófst. Fleiri skip og björgunarbátar voru á leiðinni þangað til að aðstoða við björgunar- starfið, að sögn fréttavefjar CNN. Breskt herskip hefur verið sent með hjálpargögn til Abaco-eyja. Bretar hafa einnig sent þyrlur og björg- unarsérfræðinga til að aðstoða við björgunarstarfið, að sögn frétta- vefjar BBC. AFP Eyðilegging Loftmynd af húsum í bænum Marsh Harbour á Stóru Abaco-eyju á Bahamaeyjum eftir hamfarirnar. Dorian olli usla í Karólínuríkjunum  Að minnsta kosti tuttugu manns fórust á Bahamaeyjum Bjargað Bátsmaður varðskips bandarísku strandgæslunnar situr hjá konu sem var bjargað ásamt fleiri nauðstöddum íbúum á Abaco-eyjum. Eigandi franska hanans Maurice fór með sigur af hólmi í dómsmáli sem nágrannar hans höfðuðu gegn honum vegna þess að haninn hefur vakið þá um fjögurleytið á morgn- ana með gali sínu. Dómarinn í mál- inu komst að þeirri niðurstöðu að haninn hefði rétt til að gala á morgnana og stefnendunum bæri að greiða eiganda hans jafnvirði 140.000 króna í bætur vegna máls- kostnaðar. Dómsmálið vakti mikla athygli og þótti til marks um spennuna sem getur skapast í samskiptum íbúa sveitahéraða og sumarhúsaeig- enda. Hjón, sem eru á eftirlaunum og keyptu hús á eyjunni Oleron til að dvelja þar á sumrin, höfðuðu málið gegn eiganda hanans. FRAKKLAND Haninn má gala á morgnana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.