Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba Gold 60+ kl. 10.30.
Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Leikfimi með Hönnu kl. 9-9.45. Fundur Karlaklúbbs kl. 13. Opið hús kl.
13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16. 15-17. Opið fyrir inni-
pútt og 18 holtu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl.
14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Áskirkja Safnaðarfélag Áskirkju verður með vöfflukaffi eftir messu,
sunnudaginn 8. september kl. 12 til styrktar félaginu; vöfflur, sulta og
rjómi, kaffi og djús - fullorðnir 1000 kr., börn yngri en 12 ára 500 kr.
Allir velkomnir, Safnaðarfélag Áskirkju.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunleikfimi með
Rás 1 kl. 9.45. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Fatasala kl. 11-13. Bíó í setu-
stofu kl. 13-15. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-12. Botsía kl. 10.15. Þátttöku-
listarnir liggja í holinu, komdu og athugaðu hvort það er ekki eitthvað
sem heillar þig að gera í vetur. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlist með
Margréti kl. 12.30. Hæðargarðsbíó kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir
velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi í setustofu kl. 9.45.
Botsía setustofu kl. 10. Föstudagshópurinn hittist í handverksstofunni
kl. 10. Frjáls spilamennska í setustofu kl. 13-16.30. Handaband í hand-
verksstofu kl. 13. Bingó kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30-12.30 og
vöfflukaffi kl. 14.30. Í næstu viku hefst námskeið í trétálgun, áhuga-
samir skrái sig í móttökunni á 3. hæð eða í síma 411-9450.
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30, og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjónakaffi kl. 10-
12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30.
Leikfimi Maríu kl. 10.30-11.15. Bókband með leiðbeinanda kl. 13-16.
Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–12. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30.
Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, söngstund með
Martón og Kristbjörgu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Sundleikfimi kl. 9 í Grafarvogssundlaug, ganga kl. 10 frá
Borgum, allir styrkhópar. Bridshópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum og
hannyrðahópur á sama tíma í Borgum. Hið sívinsæla föstudagsvöfflu-
kaffi hefst á ný eftir sumarfrí kl. 14.30-15.30 í dag, allir velkomnir og
minnum á skráningalista í Borgum þar sem skráð er á ýmsa viðburði
og námskeið.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í
salnum á Skólabraut kl. 11. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðis-
mýri 30, kl. 13.30. Ath. söngurinn hefst næsta föstudag þann 13. sept-
ember kl. 13. Þeir sem eiga pantaða miða á óperuna Brúðkaup
Figarós vinsamlega hafi samband við Kristínu varðandi greiðslu.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða
bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, Dansleikur í Stangarhyl 4, sunnudagskvöld 8. sept-
ember kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Laugavegi 178, 105 Reykjavík
sími 551 3366. Opið virka daga
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Misty
Tahoo Maxi - Stærðir S-3XL
Svart, hvítt og húðlitt.
Verð 1.790 kr.
Gabe - Stærðir M-XXL
Svart og hvítt.
Verð 2.650 kr.
Rona - Stærðir M-3XL.
Verð 2.990kr
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
KR 4990 St. 10-30
ST.36-52
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
mbl.is
alltaf - allstaðar
Mikil eftirvænt-
ing lá í loftinu þeg-
ar við hittumst öll,
tæplega fimmtíu,
við upphaf MBA-náms við Há-
skólann í Reykjavík haustið
2014. Hlátrasköll og keppnisandi
dró athyglina að hverju og einu.
Í miðjum hópnum stóð Óli
Freyr. Yfirvegaður, glaðlegur og
jarðbundinn.
Á meðan skoðanaríkur hóp-
urinn hafði sig í frammi beið Óli
oftar en ekki rólegur hjá og
hlustaði af athygli, sposkur á
svip með liðuðu lokkana sína.
Eftir nokkra stund skoðana-
skipta átti Óli það til að standa
upp, ganga að töflu í vinnuher-
bergjunum og teikna upp fallegt
og skýrt flæðirit af því sem sagt
hafði verið. Af athygli og áhuga
kunni hann að hlusta, draga síð-
an saman aðalatriðin og gefa öll-
um hlut í niðurstöðunni.
Það er ekki oft á lífsleiðinni
sem við hittum fólk sem hvílir
svona vel í sjálfu sér eins og
hann gerði. Hann var svo hæv-
erskur, yfirvegaður og staðfast-
ur. Við lærðum hratt að ef hann
talaði var vert að leggja við
hlustir því hann talaði af visku
og þekkingu. Óli var líka svo
hreinn og beinn, hann talaði af
virðingu við fólk og hann talaði
af virðingu um fólk. Hann sagði
okkur svo fallega frá fólkinu
sínu, Ágústu og börnunum, og
ást hans til þeirra skein í gegn-
um allt sem hann gerði.
Óli Freyr veiktist á meðan við
vorum í námi. Hann talaði ekki
mikið um veikindin en það var
alveg ljóst að hann ætlaði að
klára námið. Fölur og án lokk-
anna með smart kaskeiti stóð
hann og varði með hópnum sín-
um lokaverkefnið vorið 2016.
Við vonuðum öll að hann næði
sér og héldum sum að svo væri
því roðinn kom aftur í kinnarnar
og lokkarnir uxu. Óli Freyr
hress í vinnu, að skrifa bók og
greinar um fjármálamarkaðinn.
Lífið héldi áfram. Nú stöldrum
við öll við, hugsum, minnumst og
endurmetum lífið.
Óli Freyr átti svo sannarlega
skilið að fá lengri tíma, hann var
einn af þessum góðu í orði og at-
höfnum. Óli Freyr bauð upp á
svo góða nærveru, gott and-
rúmsloft og léttleika. Hann gaf
af sér þannig að allir sem hann
snerti áttu í honum hlut.
Mikill er missir fjölskyldunn-
ar og sorgin sár að hafa misst
máttarstólpa úr lífi sínu. Heil-
steyptan, vandaðan mann. Við
samnemendur Óla Freys vottum
Ágústu, Vigdísi, Kristjáni og
Katrínu ásamt fjölskyldu og vin-
um okkar dýpstu samúð. Við er-
um lánsöm að hafa fengið að
kynnast honum og munum halda
minningu hans á lofti. Skarð er
hoggið í hópinn okkar sem ekki
verður fyllt.
Fyrir hönd útskriftarárgangs
MBA-nema í HR 2016,
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir og
Katrín Júlíusdóttir.
Í dag fylgjum við kærum vini
okkar og samstarfsfélaga, Óla
Frey, til grafar. Það er þyngra
en tárum taki.
Í starfi hlífði Óli sér hvergi
þrátt fyrir veikindi sín, kærði sig
ekki um vorkunn og var mik-
ilvægur hluti af hópnum.
Frumraun Óla á vettvangi
eignastýringar var ritun bókar-
Óli Freyr
Kristjánsson
✝ Óli FreyrKristjánsson
fæddist 6. júlí 1978.
Hann lést 25. ágúst
2019.
Útför Óla Freys
fór fram 5. sept-
ember 2019.
innar Umboðs-
skylda. Rit sem
hann hlaut verð-
skuldað lof fyrir og
sýndi að hann átti
fullt erindi á nýjum
starfsvettvangi. Óli
var að því loknu
fenginn til að leiða
vinnu við stefnu-
mótun ábyrgra fjár-
festinga fyrir
nokkra af stærstu
fagfjárfestum landsins. Verkefn-
ið var að brúa það bil sem á
vantaði í þekkingu, framkvæmd
og vitundarvakningu í fagum-
hverfinu. Óli bar virðingu fyrir
þekkingu og reynslu annarra og
leitaði í reynslubrunn nokkra
stærstu fjárfesta heims. Hann
ritaði reglulega faglegar greinar,
fræddi, heimsótti og greindi
nokkur stærstu fyrirtæki lands-
ins varðandi málefni ábyrgra
fjárfestinga. Hélt einnig fjölda
erinda og fyrirlestra í á opinber-
um og almennum vettvangi.
Óhætt er að fullyrða að í fag-
og nærumhverfi málefna
ábyrgra fjárfestinga er litið til
Óla sem brautryðjanda og sem
fræðimanns í fremsta flokki.
Framlag hans og atorka er
aðdáunarverð. Ekki má því
gleyma að á sama tíma og unnin
var fullur vinnudagur, hlutverki
þriggja barna fjölskylduföður
var gegnt, var háð hatrömm bar-
átta við þann illa óvætt sem
krabbamein er.
Við eigum eftir að sakna okk-
ar klára, hnyttna, réttsýna og
ljúfa drengs. Félagsskaparins á
góðu svo og slæmu stundunum.
Metnaðarins, jákvæðninnar og
ekki síst húmorsins.
Við erum stolt af vini okkar,
þakklát fyrir vinskapinn og fyrir
þann heiður að hafa fengið að
hafa kynnast honum.
Við kveðjum þig Óli Freyr
með fleygum orðum Eddukvæða
frá 13. öld
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Hávamál)
Minningin lifir.
Þínir vinnufélagar
Hjörleifur, Haraldur,
Halldór, Guðbjörg, Ólafur,
Aníta Rut, Diljá og Rut.
„Ekki einu sinni velta þessu
fyrir þér, það kemur ekki til
greina að þú verðir ekki til stað-
ar fyrir barnið þitt þegar það
þarfnast þín, börnin okkar og
fjölskyldan eiga alltaf að hafa
forgang.“ Þetta sagði hann Óli
við eina af okkur í byrjun sum-
ars þegar hún þurfti að rjúka út
í miðju verkefni. Þetta svar Óla
lýsti honum svo vel, hann elskaði
fjölskylduna sína meira en allt
annað og talaði ávallt svo fallega
um hana.
Í dag opnast himnarnir fyrir
kærum vini og samstarfsfélaga.
Óli Freyr var einstakur vinur,
félagi og samstarfsmaður. Við
vorum svo heppnar að hafa feng-
ið Óla sem meðspilara bæði á
Verkefnastofu Arion banka sem
og í öðrum verkefnum í gegnum
árin. Það eru ekki margir með
jafn þægilega, góða og fallega
nærveru og Óli. Ekkert kom
honum úr jafnvægi, alltaf var
hann úrræðagóður og reyndi að
finna bestu mögulegu niðurstöð-
una og var brosið og húmorinn
aldrei langt undan. Óli Freyr var
sá samstarfsaðili sem allir vildu
hafa með sér í liði.
Það var mikið áfall fyrir hóp-
inn þegar Óli tilkynnti að hann
hefði greinst með illvígt krabba-
mein. Hann gafst aldrei upp,
hélt áfram, var jákvæður og vildi
enga vorkunn.
Við munum minnast hans sem
trausts og góðs vinar með ein-
staka yfirvegun og góðan húm-
or.
Ágústu og fallegu börnunum
hans þremur sendum við okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Óli mun lifa áfram í gegnum
ykkur.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Guðrún Helga, Katrín Rós
og Petra Björk.
Horfið er nú sumarið og sólin
segir í hinu ástsæla sönglagi Vil-
hjálms Vilhjálmssonar. Þessi
ljóðlína kom upp í hugann þegar
fréttir bárust af ótímabæru and-
láti Óla Freys Kristjánssonar
manns í blóma lífsins. Leiðir
okkur lágu saman fyrir tæpum
tveimur árum þegar IcelandSIF,
samtök um ábyrgar og sjálfbær-
ar fjárfestingar, voru stofnuð.
Það var mikill fengur að fá Óla í
stjórn samtakanna enda brann
hann fyrir málefninu og var
mjög virkur í starfinu allt fram á
síðasta dag. Hann átti mikinn
þátt í að leiða félagið áfram og
lét ekki erfið veikindi halda aftur
af sér í starfinu. Við sem fengum
þann heiður að kynnast Óla
sáum fljótt að þar var einstak-
lega góður og heilsteyptur ein-
staklingur á ferð. Óli lét sér annt
um umhverfið og samfélagið en
leit sér einnig nær og var mikill
fjölskyldumaður, Garðbæingur
og stuðningsmaður Stjörnunnar.
Nú er sólin hans Óla sest en
minningin um hann lifir áfram.
Hugur okkar er hjá fjölskyldu
og vinum Óla, sem fá það erfiða
verkefni að takast á við lífið án
hans.
Stjórn IcelandSIF,
Kristín Jóna Kristjánsdóttir.
Í dag kveðjum við kæran
samstarfsfélaga og vin, Óla Frey
Kristjánsson, sem féll frá langt
fyrir aldur fram.
Óli Freyr hóf störf í Arion
banka árið 2011 sem verkefna-
stjóri. Því starfi sinnti hann af
faglegum metnaði og innsæi.
Þar kom vel fram hæfni hans í
samskiptum því hann átti auð-
velt með að miðla málum, finna
lausnir og fá fólk á sitt band.
Störf sín vann hann af hógværð
en ávallt var stutt í glettnina og
húmorinn. Óli Freyr söðlaði um
og hóf störf í eignastýringu Ar-
ion banka síðla árs 2016 þegar
hann tók að sér að skrifa ritið
Umboðsskylda, sem var upphaf-
ið að forystu hans í málefnum
ábyrgra fjárfestinga.
Óli Freyr tók jafnframt virk-
an þátt í samtökunum Ice-
landSIF, sem vinna að því að
auka þekkingu og faglega vinnu
á þessu sviði meðal íslenskra
fagfjárfesta og fjármálafyrir-
tækja. Það var aðdáunarvert að
sjá það mikla starf sem Óli
Freyr vann um leið og hann
barðist við sín alvarlegu veik-
indi. Við minnumst Óla Freys
fyrir hans faglega metnað, dugn-
að og góð ráð en ekki síst fyrir
léttleikann og jákvæðnina sem
einkenndi öll hans störf.
Óli Freyr skilur eftir sig stórt
skarð hjá samstarfsfélögum en
verk hans og faglegt starf lifir
áfram.
Við vottum Ágústu, börnum
og fjölskyldu okkar dýpstu sam-
úð. Minning um góðan mann lif-
ir.
F.h. Arion banka,
Margrét Sveinsdóttir
Rakel Óttarsdóttir.