Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 33

Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 33
ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 FRAM Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Þorgrímur Smári Ólafsson, leik- maður handknattleiksliðs Fram, er brattur fyrir komandi tímabil þrátt fyrir að Framarar hafi misst lykil- menn frá síðustu leiktíð. Framarar ætla sér að taka einn leik fyrir í einu, en liðið endaði í tíunda sæti deildar- innar síðasta vetur og rétt slapp við fall. Fram hefur leik í úrvalsdeild- inni á mánudaginn kemur þegar liðið heimsækir Val á Hlíðarenda, en Frömurum er spáð tíunda sætinu í ár af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar. „Tímabilið leggst ágætlega í okk- ur þannig séð. Við misstum góða menn eftir síðasta tímabil en við er- um samt sem áður staðráðnir í að gera góða hluti á komandi leiktíð. Við ætlum okkur að taka einn leik fyrir í einu en þetta verður erfitt tímabil enda önnur lið í deildinni gríðarlega vel mönnuð. Að sama skapi er enginn leikur gefins í þess- ari deild og við förum í alla leiki til þess að sækja einhver stig. Okkur hefur verið spáð á þessum slóðum undanfarin þrjú ár og við höfum ver- ið á þessum slóðum þegar deildin hefur verið að klárast þannig að spá- in núna er bara í takt við gengi liðs- ins síðustu ár. Auðvitað viljum við gera betur og stefnan er að sjálf- sögðu sett á það en það þarf svo bara að koma í ljós hvernig tekst til.“ Býr mikið í liðinu Fram hefur misst öfluga leikmenn frá síðustu leiktíð en þar ber hæst að nefna þá Viktor Gísla Hólmgeirsson landsliðsmarkvörð og tvo af þremur markahæstu mönnum liðsins, Þor- stein Gauta Hjálmarsson og Andra Þór Helgason. Þorgrímur er samt sem áður bjartsýnn og telur aðra leikmenn fullfæra um að fylla skörð- in sem þeir þrír skilja eftir sig. „Það er alltaf leiðinlegt að missa góða félaga og vini en breytingarnar sem hafa orðið á leikmannahópnum heilt yfir horfa ágætlega við mér. Þetta eru allt sterkir leikmenn sem við misstum frá okkur, þannig séð, en ég treysti þeim sem hafa komið inn í stað þeirra til að fylla skörð þeirra þegar fram líða stundir og heilt yfir hefur ég litlar áhyggjur af þessu. Leikstíll liðsins breytist að- eins við þetta en það þarf alls ekki að vera neitt verra. Við eigum aðeins eftir að spila okkur saman en við er- um að bæta okkur frá degi til dags og það er ákveðinn stígandi í leik- mannahópnum. Það tekur alltaf tíma að púsla saman nýju liði ef svo má segja og það er ekkert öðruvísi hjá okkur. Við erum ennþá að læra inn á hver annan en baráttan hefur alltaf verið til staðar í Framliðinu og þú kemst alltaf langt á henni líka.“ Gengi Framara hefur verið mikil rússíbanareið á undanförnum árum. Liðið varð Íslandsmeistari árið 2013 en síðan þá hefur það verið að berj- ast í neðri hluta deildarinnar. „Þetta hefur verið upp og niður undanfarin ár. 2017 duttum við út í undanúrslitum Íslandsmótsins og 2018 fórum við alla leið í bikarúrslit. Það býr rosalega mikið í þessu liði að mínu mati en mín tilfinning er sú að hausinn á okkur hafi aðeins stoppað okkur í því hversu langt við getum farið sem lið. Menn þurfa líka að átta sig á því að barátta og vilji skipta miklu máli þegar kemur að því að ná einhverjum alvöru árangri. Það þarf aðeins að prenta það inn í mann að það sé allt hægt, ef viljinn er fyrir hendi, og þá eigum við að geta gert flotta hluti. Við ætlum ekki fram úr okkur sjálfum og við munum taka eitt skref í einu í staðinn fyrir það að horfa á eitthvað ákveðið sæti. Við munum svo brjóta hvern leik niður í smærri markmið og við sjáum svo bara hvert það skilar okkar næsta vor,“ sagði Þorgrímur í samtali við Morgunblaðið. Barátta og vilji lykillinn að árangri Morgunblaðið/Hari Drjúgur Þorgrímur Smári Ólafsson var næstmarkahæsti leikmaður Fram- ara á Íslandsmótinu síðasta vetur með 91 mark í 22 leikjum liðsins.  Þorgrímur telur að andlegi þátturinn hafi þvælst fyrir mönnum í Framhúsi MARKVERÐIR: Lárus Helgi Ólafsson Valtýr Már Hákonarson HORNAMENN: Arnar Snær Magnússon Hallur Kristinn Þorsteinsson Kristinn Hrannar Bjarkason Matthías Daðason Svanur Páll Vilhjálmsson LÍNUMENN: Aron Fannar Sindrason Valdimar Sigurðsson Ægir Hrafn Jónsson ÚTISPILARAR: Andri Heimir Friðriksson Andri Dagur Ófeigsson Aron Gauti Óskarsson Lúðvík Thorberg Arnkelsson Sigurður Örn Þorsteinsson Stefán Darri Þórsson Svavar Kári Grétarsson Þorgrímur Smári Ólafsson Þjálfari: Guðmundur Helgi Páls- son. Aðstoðarþjálfari: Roland Valur Eradze. Árangur 2018-19: 10. sæti. Íslandsmeistari: 1950, 1962, 1963, 1964, 1967, 1968, 1970, 1972, 2006, 2013. Bikarmeistari: 2000.  Framarar mæta Val á Hlíð- arenda í fyrstu umferð Olísdeild- ar á mánudagskvöld kl. 19.30. Lið Fram 2019-20 KOMNIR Hallur Kristinn Þorsteinsson frá Haukum (lán) Kristinn Hrannar Bjarkason frá Aftureldingu Stefán Darri Þórsson frá Alcobendas (Spáni) Svanur Páll Vilhjálmsson frá Víkingi FARNIR Andri Þór Helgason í Stjörnuna Bjarki Lárusson, óvíst Viktor Gísli Hallgrímsson í GOG (Danmörku) Þorgeir Bjarki Davíðsson í HK Þorsteinn Gauti Hjálmarsson í Aftureldingu Breytingar á liði Fram  Framarar eru búnir að missa góða leikmenn frá síðasta keppnistímabili.  Þeir þurfa að berjast fyrir sæti sínu í deildinni í vetur.  Lárus Helgi Ólafsson markvörður hefur aldrei litið betur út en núna.  Áhugavert: Í hvora áttina ætla þeir í ár? Sebastian Alexandersson um Fram Samkvæmt nýjustu tölum frá KSÍ eru 25.000 knatt- spyrnuiðkendur á Íslandi í dag. Til þess að teljast til knatt- spyrnuiðkenda þarftu að ann- aðhvort æfa eða keppa í fót- bolta. Af þessum 25.000 iðkendum eru einn þriðji kven- kyns eða rúmlega 8.000. Það þýðir að rúmlega átta þúsund stelpur eða konur æfa eða keppa í fótbolta á Íslandi og iðk- endum hefur fjölgað jafnt og þétt á milli ára. Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hóf leik í unda- keppni EM 2021, mánudaginn 29. ágúst, þegar liðið vann 4:1- sigur á Ungverjalandi á Laug- ardalsvelli. 2.019 manns mættu á leikinn. Ísland mætti svo Sló- vakíu 2. september og þá mættu 2.346 manns á völlinn og sáu Ísland vinna 1:0-sigur. Það var geggjað veður báða leikdag- ana, hitinn var í kringum 12° stig og heiðskýrt. Það er í tísku í dag að móðg- ast fyrir hönd annarra en ég fyr- ir mitt litla leyti fæ bara ekki skilið af hverju það mæta rúm- lega 2.000 manns á landsleik á virkum degi í frábæru veðri. Þegar HM-kvenna fór fram í sumar kepptist fólk við að hrósa öflugum og litríkum knatt- spyrnukonum og drulla yfir grútlina og persónulausa knatt- spyrnumenn á sama tíma. Það er svo sem ekki hægt að gera stórar kröfur til fólks sem hugsar í lækum. Það veldur mér hins vegar vonbrigðum að fólk sem hefur kallað eftir jafnrétti í knattspyrnuhreyfingunni hérna heima geti ekki drullað sér á völlinn. Þá finnst mér skítt, með fullri virðingu fyrir bæði konum og körlum, að konur standi ekki betur við bakið á öðrum konum með því að mæta með unga knattspyrnuiðkendur sína á leiki hjá kvennalandsliðinu. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Tékkar, sem töpuðu fyrir Íslend- ingum í eftirminnilegum leik í Laugardalshöll fyrir hálfu öðru ári, eru komnir í sextán liða úrslit heimsmeistaramóts karla í körfu- knattleik í Kína. Þeir gerðu sér lítið fyrir í gær og unnu sannfærandi sigur á Tyrkjum, 91:76, í hreinum úrslitaleik liðanna um hvort þeirra myndi fylgja Bandaríkjunum í milliriðil. Tyrkir voru nærri því búnir að vinna bandaríska liðið en virtust sprungnir eftir þá mögnuðu viðureign og verða nú að sætta sig við að spila um sæti 17-32 á mótinu. Jaylen Brown skoraði 20 stig og Kemba Wal- ker 15 fyrir Bandaríkin sem burstuðu Japan 98:45. Bandarík- in og Tékkland fara í milliriðil með Brasilíu og Grikklandi. Úr- slit síðustu leikja riðlakeppninnar má að öðru leyti sjá hér hægra megin á síðunni. vs@mbl.is Tékkarnir skildu Tyrki eftir Jaylen Brown Finnar eru komnir í afar góða stöðu í undankeppni Evrópumóts karla í fótbolta eftir að hafa sigrað Grikki, 1:0, í Tampere í gærkvöld. Teemu Pukki, leikmaður Norwich City, skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik og Finnar hafa nú unnið fjóra af fimm leikjum sínum í fyrri umferðinni. Þeir eru með gott forskot á Bosníumenn, Ar- mena og Grikki eftir fyrri umferð- ina en þessi lið eru í baráttu um að fylgja Ítölum áfram úr riðlinum og í lokakeppni EM 2020. Alexander Isak skoraði tvö mörk fyrir Svía sem unnu Færeyinga 4:0 í Þórshöfn en FH-ingarnir Gunnar Nielsen og Brandur Ol- sen voru í fær- eyska liðinu. Sví- ar, Norðmenn og Rúmenar eru í baráttu um ann- að sæti riðilsins en Spánverjar eru með yfir- burðastöðu. Öll úrslit og stöður eru á síðunni til vinstri. vs@mbl.is Eru Finnar á leiðinni á EM? Teemu Pukki HM karla í Kína E-RIÐILL: Tyrkland – Tékkland ........................... 76:91 Bandaríkin – Japan .............................. 98:45  Lokastaðan: Bandaríkin 6, Tékkland 5, Tyrkland 4, Japan 3. F-RIÐILL: Brasilía – Svartfjallaland..................... 84:73 Grikkland – Nýja-Sjáland ................. 103:97  Lokastaðan: Brasilía 6, Grikkland 5, Nýja-Sjáland 4, Svartfjallaland 3.  Í milliriðli K leika Bandaríkin, Tékkland, Brasilía og Grikkland. G-RIÐILL: Þýskaland – Jórdanía........................... 96:62 Dóminíska lýðveldið – Frakkland....... 56:90  Lokastaðan: Frakkland 6, Dóminíska lýðveldið 5, Þýskaland 4, Jórdanía 3. H-RIÐILL: Kanada – Senegal................................. 82:60 Litháen – Ástralía ................................ 82:87  Lokastaðan: Ástralía 6, Litháen 5, Kan- ada 4, Senegal 3.  Í milliriðli L leika Frakkland, Dóminíska lýðveldið, Ástralía og Litháen. KÖRFUBOLTI Argentínumaðurinn Diego Mara- dona, einn frægasti knatt- spyrnumaður sögunnar, er byrj- aður að þjálfa á ný. Hann hætti með mexíkóska liðið Dorados í júní af heilsufarsástæðum en eftir aðgerð- ir á hné og öxl í sumar er hann klár í slaginn. Í gærkvöld var tilkynnt að Maradona hefði verið ráðinn þjálfari Gimnasia La Plata sem er neðst í argentínsku A-deildinni og rak þjálfara sinn í vikunni. Maradona tek- ur við botnliði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.