Morgunblaðið - 06.09.2019, Page 36

Morgunblaðið - 06.09.2019, Page 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Okkur fannst viðeigandi að yfir- skrift tónleikanna væri „Ást og hatur“, þar sem aríurnar og dúett- arnir sem við flytjum eru fremur dramatísk og spanna allan tilfinningaskalann. Oftar en ekki eru þessar aríur og dúettar vendi- punktur í óperunni þar sem örlögin ráðast og ekki verður aftur snúið,“ segir Guðbjörg R. Tryggvadóttir sópran, sem fram kemur á tón- leikum í tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar í Hörpu í Norður- ljósum sunnudaginn 8. september kl. 16. Með henni koma fram Guð- mundur Karl Eiríksson barítón og Antonía Hevesi píanóleikari. Á efnisskrá tónleikanna eru arí- ur og dúettar eftir Giuseppe Verdi og aríur eftir Umberto Giordano. Eftir Verdi verða fluttar aríurnar „Arrigo“ úr I vespri siciliani; „Dagl‘immortali vertici“ úr Atilla̧ „Pace, pace mio Dio“ úr La forza del destiono; „Di Provenza il mar il sol“ úr La traviata, „D́amor sulĺali rose“ úr Il trovatore, „Per me gi- unto è il dì supremo“ úr Don Carlo og dúettar annars vegar Víolettu og Germont úr II. þætti La traviata og hins vegar Conte di Luna og Leonoru úr IV. þætti Il trovatore. Eftir Giordano verða fluttar aríurnar „Nemico della patria“ og „La mamma morta“ úr Andrea Chenier. Háir tónar liggja vel fyrir mér „Þegar við settum efnisskrána saman höfðum við það að markmiði að flytja gullmola úr óperum sem heyrast sjaldan eða aldrei hér- lendis – þrátt fyrir að um þungavigtararíur sé að ræða,“ seg- ir Guðbjörg og nefnir í því sam- hengi óperurnar I vespri siciliani, Atilla, La forza del destiono, og Andrea Chenier. „Vissulega hefur til dæmis Il trovatore verið sett upp hérlendis, en sjaldan er hins vegar troðið upp á tónleikum með aríur og dúetta úr þeirri óperu,“ segir Guðbjörg. Spurð hvað valdi svarar hún kímin að óperan sé pínu erfið. „Það eru nokkur há c sem sópraninn þarf að taka,“ segir Guðbjörg og tekur fram að hún sé alveg óhrædd við hæðina. „Ég ætla bara að hafa gaman af því að taka sem flest há c á tónleikunum. Háir tónar liggja frekar vel fyrir mér. Ég hef þurft að vinna miklu meira á neðra radd- sviðinu en því efra,“ segir Guð- björg og bætir við. „En það er þannig að eftir því sem þú vinnur neðra og miðsviðið betur verða hærri tónarnir bæði fallegri og fyllri. Þar í liggur leyndar- dómurinn.“ Innt nánar eftir samsetningu efnisskrárinnar segir Guðbjörg að dramatískar aríur og dúettar hafi alltaf höfðað meira til hennar. „Enda nýt ég mín best þar. Ég held að það sama eigi við um Guð- mund. Honum finnst gaman að syngja þetta. Við hlökkum mikið til og ætlum auðvitað að sýna okkar bestu hliðar,“ segir Guðbjörg. Að- spurð segir hún þau Guðmund hafa kynnst í gegnum Kristján Jó- hannsson tenór, en þau hafa bæði sótt einkatíma hjá honum. „Við höfum einnig sungið með honum á tónleikum en ekki sungið dúetta saman áður. Mér finnst mjög gam- an að syngja með Guðmundi, enda hefur hann afskaplega fallega rödd og er flottur ungur söngvari,“ segir Guðbjörg og bendir á að auðvitað sé býsna skondið að hann syngi hlutverk föður hennar í dúettinum úr La traviata þar sem hún sé tölu- vert eldri en hann . „En við látum það ekkert á okkur fá. Það gerist svo margt skrýtið í óperum.“ Góð tækni lykilatriði Talandi um aldur liggur beint við að spyrja hver sé galdurinn að því að halda góðri söngrödd áratugum saman, eins og til dæmis Kristjáni Jóhannssyni hefur tekist. „Krist- ján er gott dæmi um það hvernig hægt er að halda sér og söngvarar eru ekki búnir að syngja sitt síð- asta um fimmtugt eða sextugt ef þeir halda sér í góðu formi. Lykill- inn er að halda sér í góðu líkam- legu formi, andlegu jafnvægi og búa yfir góðri tækni. Raddir eru svo mismunandi frá náttúrunnar hendi og ólíkt hvað söngvarar þurfa að vinna mikið með tæknina. Mér sýnist samt að þeir sem búa yfir góðri tækni haldi góðri rödd lengur. Tæknin grípur líka söngv- arann þegar hann á ekki góða daga,“ segir Guðbjörg og bendir á að eðlilega sé dagamunur hjá fólki sem helgist af því að söngvarinn noti líkamann sem hljóðfæri sitt. Að sögn Guðbjargar þurfa söngvarar ávallt að kynna sér vel þær óperur sem þeir syngja aríur og dúetta úr. „Það er nauðsynlegt að vita hvers vegna persónan brestur í umrædda aríu á nákvæm- lega þessum tímapunkti. Sökum þessa er nauðsynlegt að þekkja textann afar vel,“ segir Guðbjörg, en allt efnið sem flutt er á tónleik- unum er á ítölsku. „Mér finnst það besta tungumálið til að syngja á, enda sérhljóðarnir svo einfaldir, öfugt við íslenskuna sem hefur talsvert af tvíhljóðum. Ítalskan er svo hreint tungumál og liggur þess vegna vel fyrir söng. Sem er ástæðan fyrir því að langflestar óp- erur sem samdar hafa verið eru á ítölsku,“ segir Guðbjörg að lokum. „Spanna tilfinningaskalann“  „Ást og hatur“ yfirskrift næstu tónleika á Sígildum sunnudögum í Hörpu Eftirvænting Guð- mundur Karl, Antonía og Guðbjörg í Hörpu. »KAF, ný íslensk heimildarmynd eftir Elínu Hansdóttur, Önnu Rún Tryggvadóttur og Hönnu Björk Valsdóttur, var frumsýnd í Bíó Paradís í fyrrakvöld. Í henni er veitt innsýn í heim Snorra Magnússonar þroskaþjálf- ara, sem hefur helgað líf sitt kennsluaðferðum í ungbarnasundi. Myndin var tekin upp í Skálatúnslaug í Mosfellsbæ, þar sem Snorri hefur byggt upp litríkan heim. Í myndinni er einnig fylgst með ungbörnum stálpast og þroskast og því hvernig foreldrar kynnast börnum sínum í ungbarnasundi. Heimildarmyndin KAF frumsýnd í Bíó Paradís Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höfundar Elín Hansdóttir, Hanna Björk Valsdóttir og Anna Rún Tryggvadóttir, höfundar myndarinnar. Ánægðar Kristín Dagmar, Katrín Almarsdóttir og Margrét Kristinsdóttir. Bíó Auður D. Bachmann, Hrefna L. Bachmann, Gagga og Sara Jónsdóttir. „Íslendingasögur í nýjum búningi á dönsku, norsku, sænsku og íslensku – og hvað svo“ nefnist ráðstefna sem haldin verður í Veröld í dag milli kl. 9 og 17 í tilefni af því að Ísland gegn- ir formennsku í Norrænu ráðherra- nefndinni árið 2019. „Ráðstefnunni er ætlað að velta upp nýjum og hugmyndaríkum leiðum til þess að koma Íslendinga- sögunum á fram- færi við nýjar kynslóðir og halda þeim á lofti sem hluta af sam- eiginlegum norrænum menningar- arfi okkar,“ segir í tilkynningu. Vigdís Finnbogadóttir og Lilja Alfreðsdóttir ávarpa ráðstefnugesti. Fyrirlesarar eru Guðrún Nordal, sem fjallar um Íslendingasögurnar á stóra sviðinu, Örnólfur Thorsson, sem fjallar um útgáfur Íslendinga- sagna fyrir almenning, Johannes Riis, sem fjallar um arf og endurnýj- un, Bo Ralph, sem fjallar um hlut- verk Íslendingasagna í Svíþjóð samtímans, Emily Lethbridge, sem fjallar um þýðingar og ferðalög er- lendra kvenna á Íslandi á 19. öld, Martin Ringmar, sem fjallar um nýj- ar norrænar þýðingar á Gunnlaugs sögu ormstungu, og Þórarinn Eld- járn, sem fjallar um það hvort arf- urinn sé þarfur. Boðið verður upp á nokkur pall- borð, m.a. ræða rithöfundar frá Íslandi, Svíþjóð og Danmörku um lestur sinn á íslenskum fornsögum og segja frá því hvernig þessar sög- ur hafa nýst þeim við eigin ritstörf. Þeir sem þátt taka í pallborðum eru Jón Gunnar Jörgensen, Jan Ragnar Hagland, Kristinn Jóhannesson, Stine Pilgaard, Gerður Kristný, Mette Karlsvik, Rolf Stavnem, Silje Bitte Løken, Anna Gunnarsdotter Grönberg, Gunnar D. Hansson og Merete Pryds Helle. Dagskránni lýkur með upplestri úr Íslendinga- sögum í flutningi leikkvennanna Sofie Gråbøl og Halldóru Geirharðs- dóttur. Ráðstefnustjóri er Annette Lassen. Aðgangur er ókeypis. Arfurinn ræddur á ráðstefnu Sofie Gråbøl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.