Morgunblaðið - 11.09.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2019
Bremsuviðgerðir
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sundhópurinn Marglytturnar þreytti í
gær boðsund yfir Ermarsund, sem liggur
milli Bretlands og Frakklands. Hópurinn
lagði af stað klukkan sex í gærmorgun að
íslenskum tíma frá höfninni í Dover á
Englandi. Sundið var 34 kílómetrar, það
tók tæpa sextán tíma og kom hópurinn til
hafnar í Cap Gris-Nez í Frakklandi á tí-
unda tímanum í gærkvöldi. Veittist þeim
sundið að mestu leyti vel.
„Efst í huga okkar Marglyttanna eftir
sundið er þakklæti fyrir að hafa náð að
synda yfir Ermarsundið og láta þannig
drauma okkar rætast. Við erum ánægðar
að hafa hreyft við umræðunni um alvar-
legar afleiðingar plastmengunar í sjó og
sérstaklega glaðar að safna styrkjum fyr-
ir Bláa herinn,“ sagði í tilkynningu frá
Marglyttunum, sem eru þær Sigurlaug
María Jónsdóttir, Sigrún Þ. Geirsdóttir,
Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé,
Birna Bragadóttir, Þórey Vilhjálmsdóttir
og Brynhildur Ólafsdóttir.
erla@mbl.is
Þreyttu Ermarsund
Ljósmynd/Marglytturnar
Ermarsund Marglytturnar í gærmorgun áður en lagt var af stað. Frá
vinstri: Brynhildur, Sigurlaug María, Birna, Sigrún, Þórey og Halldóra.
Höskuldur Daði Magnússon
Hjörtur J. Guðmundsson
Forseti Indlands flutti ávarp í hátíð-
arsal Háskóla Íslands í gær og lauk
því með því að tala sérstaklega til
þeirra stúdenta sem voru viðstaddir.
Sagði hann að kynslóð þeirra væri
framtíðarleiðtogar heimsins og þeir
ættu að gera það sem þeir gætu til
að tryggja græna framtíð. Kynslóðir
framtíðar ættu að fá að sjá ís og
jökla sem Íslandi drægi nafn sitt af.
Shri Ram Nath Kovind, forseti
Indlands, er í opinberri heimsókn
hér á landi í boði forseta Íslands en
heimsókninni lýkur í dag. Ávarp
hans í Háskóla Íslands bar yfir-
skriftina Indland og Ísland fyrir
græna plánetu.
Forsetinn hóf mál sitt með því að
ávarpa gesti og bauð meðal annars
góðan daginn á íslensku. Hann
ræddi um fegurð Íslands og það
hvernig landsmönnum hefði tekist
að skapa sér líf hér í góðri sátt við
náttúruna.
Kovind ræddi um loftslagsbreyt-
ingar og sagði þær mikla áskorun
fyrir mannkyn allt til að takast á við.
Hann vísaði til þess að á Íslandi
horfðum við upp á jökla hopa og
jafnvel hverfa. Sömu vandamál væru
í heimalandi hans. „Loftslagsbreyt-
ingar ógna kerfinu og lífsháttum
okkar,“ sagði forsetinn.
Hann vísaði til eigin æsku við
Ganges-ána og þess hvernig hann
hefði sem ungur maður horft upp á
fjöldasamkomur þar sem fólk faðm-
aði tré til að vekja athygli á baráttu-
málum af þessum toga. Margt hefði
breyst síðan á áttunda áratugnum
og nú væri staðreynd að jöklar hop-
uðu og skógar hyrfu. „Aukin þekk-
ing hefur enn ekki leitt til neins sem
stöðvar þessa þróun en við erum á
leiðinni þangað,“ sagði Kovind.
Hann hrósaði Íslendingum fyrir
nýtingu á endurnýjanlegum orku-
gjöfum. „Þið hafið fundið nýjar leiðir
og Indland getur lært af ykkur.
Þróun og verndun geta haldist í
hendur.“
Horfi til fordæmis Íslendinga
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrver-
andi forseti Íslands, flutti lokaorð
eftir að forseti Indlands hafði lokið
máli sínu. Ólafur rakti þær breyt-
ingar sem Indland hefði gengið í
gegnum undanfarin ár. „Þessi heim-
sókn verður vonandi byrjun á enn
frekara samstarfi landanna á þessu
sviði,“ sagði Ólafur.
Hann sagði að jöklarnir í Hima-
laja væru að bráðna eins og jöklar
hér á landi. Það myndi hafa mikil
áhrif á Indland og fleiri lönd og því
væri mikilvægt að huga að framtíð-
inni. Endurnýjanleg orka væri fram-
tíðin og Indland gæti orðið leiðandi í
nýtingu sólarorku. Skynsamlegast
væri að fylgja því módeli sem Ís-
lendingar hefðu notað við nýtingu
jarðhitavarma.
„Skiptin yfir í hreina orku eru
spurning um líf og dauða. Við þurf-
um að vinna hratt og við þurfum að
vinna saman. Annars er úti um okk-
ur öll, vinir mínir. Þetta er ekki spá-
dómur, þetta er því miður vísindaleg
niðurstaða,“ sagði Ólafur.
Hann sagði jafnframt að þegar
Indverjar horfðu til fordæmis Ís-
lendinga myndu þeir sjá að nýting
jarðhita þróaðist smám saman. Hún
hefði byrjað hjá einum bónda en síð-
ar hefðu fleiri hús og fleiri staðir
bæst við þar til allt landið var undir.
„Eins og ég sagði indverskum vinum
mínum: Þetta var ekkert plan, við
gerðum þetta af því þetta var góður
bissness.“
Bauð Guðna í heimsókn
Fyrr um daginn tók Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Íslands, á móti
Kovind og föruneyti hans á Bessa-
stöðum. Þar voru undirritaðir þrír
samningar á milli Íslands og Ind-
lands; samkomulag um vegabréfs-
áritanir, áætlun um samstarf í
menningarmálum og um samstarfs-
samning á sviði fiskveiða.
„Úthöfin kunna að aðskilja okkur
en þau sameina okkur líka,“ sagði
Guðni í ávarpi sem hann flutti við
þetta tilefni. „Við viljum trúa því hér
á Íslandi að við höfum margt að
bjóða þegar kemur að sjálfbærum
fiskveiðum. Við hlökkum til þess að
þróa samstarf okkar á þessu sviði
enn frekar,“ sagði Guðni.
Sagðist hann hafa fulla trú á því
að Íslendingar og Indverjar ættu
samleið á fjölda annarra sviða. Þótt
mikill stærðarmunur væri á lönd-
unum tveimur og talsvert langt á
milli þeirra þá deildu þjóðirnar von-
um um bjarta framtíð fyrir borgara
sína. Framtíð velferðar og öryggis,
frelsis einstaklingsins og jafnréttis
kynjanna.
Forseti Indlands tók undir með
Guðna um að fjölmörg tækifæri
væru fyrir samstarf á milli Íslands
og Indlands. Fagnaði hann fjölgun
indverskra ferðamanna til Íslands
og viðraði þá von sína að fleiri ís-
lenskir ferðamenn ættu eftir að
heimsækja Indland. Sagðist hann
hlakka til frekara samstarfs við
Guðna við að styrkja tengsl land-
anna.
Þá upplýsti Kovind að hann hefði
boðið Guðna í opinbera heimsókn til
Indlands og hann hefði þegið boðið.
Eiga samleið á mörgum sviðum
Forseti Indlands í opinberri heimsókn Móttaka á Bessastöðum þar sem samningar um samstarf
landanna voru undirritaðir Ræddi loftslagsbreytingar og græna framtíð í erindi í Háskóla Íslands
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á Bessastöðum Guðni Th. Jóhannesson, Shri Ram Nath Kovind forseti Indlands, Savita eiginkona hans og Eliza Reid forsetafrú í gærmorgun.
Í Háskóla Íslands Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, Shri Ram Nath Kovind,
forseti Indlands, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.
Undirritun Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, skrif-
aði undir samstarfssamning við Indverja í menningarmálum á Bessastöðum.