Morgunblaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019 Nýverið greindist lungnasjúkdómur hjá unglingi á Íslandi þar sem grun- ur leikur á að veikindin tengist notk- un á rafrettum. Birtingarmynd sjúk- dómsins svipar til þess sem lýst hefur verið í Bandaríkjunum. Við- komandi er á batavegi, segir í frétt sem birt var í gær á vef Landlæknis. Í þeim pistli er sagt afdráttarlaust að börn eigi aldrei að nota rafrettur, hvaða nöfnum sem þær nefnast. Þó sé vitað að notkunin sé umtalsverð, eða um 10% meðal ungmenna í 10. bekk grunnskóla. Kannanir gefi til kynna að hlutfallið sé að hækka og eru foreldrar og skólafólk hvatt til varðstöðu. Neytendur blandi ekki vökva sjálfir Þeim sem vilja hætta tóbaksreyk- ingum sé bent á að nota viðurkennda meðferð við nikótínfíkn að viðhöfðu samráði við lækni; rafrettur séu ekki gagnreynd meðferð. Ekki sé þó mælt með að fólk snúi frá rafrettum og aftur að tóbaksreykingum, sem eru enn skaðlegri, miðað við núver- andi þekkingu. Hámarksstyrkleiki nikótínvökva er lögum samkvæmt 20 mg/ml og notendur rafretta sterklega varaðir við því að blanda vökva sjálfir. Fólki sem notar rafrettur og fær einkenni frá lungum eins og hósta, uppgang, mæði og verk fyrir brjósti er ráðlagt að leita til læknis. Önnur einkenni sem lýst hefur verið í tengslum við rafrettunotkun í Bandaríkjunum eru einkenni frá meltingarvegi, svo sem ógleði, uppköst og niðurgangur, þreyta, hiti og þyngdartap. Læknar eru beðnir að vera á varð- bergi gagnvart slíkum einkennum og spyrja skjólstæðinga sína um raf- rettunotkun Heilbrigðisyfirvöld munu skoða hvort gripið verði til viðbragða vegna mikillar rafrettunotkunar barna, t.d. með því að takmarka bragðefni og umbúðir sem höfða sér- staklega til þeirra, segir Land- læknir. Uppköst og hraður hjartsláttur eru einkenni eitrunar Neytendastofa hefur tekið úr sölu um 100 tegundir af áfyllingum þar sem nikótíni hefur verið bætt við vökva á sölustað. Þegar seljendur slíks vökva blanda hann sjálfir kem- ur ekki fram hve mikið nikótín er í vökvanum. Erfitt er því að komast að því hvaða innihaldsefni eru í slíkri áfyllingu, við hvaða aðstæður blönd- unin fer fram, hvernig mælingar fara fram eða hver eiturhrif eru. Á vefsetri sínu vekur Neytenda- stofa athygli á að meðal einkenna eitrunar af völdum nikótíns eru upp- köst, hraður hjartsláttur, önduna- rerfiðleikar og aukin munnvatns- framleiðsla. Áfyllingar fyrir raf- rettur mega að hámarki innihalda 20 mg/ml af nikótínvökva og tilkynna þarf áfyllingar með nikótíni til sam- eiginlegs skráningarkerfis innan Evrópu. Þá þarf vökvinn að uppfylla öll skilyrði laga og reglugerða sem við hann eiga og afla þarf eiturefna- leyfis frá Vinnueftirlitinu við vinnu þar sem notuð eru að staðaldri eitur- efni. Umræða um rafrettur og mögu- lega skaðsemi þeirra hefur aukist upp á síðkastið. Rúmlega 500 manns hafa veikst eftir notkun á rafrettum í Bandaríkjunum og bann við notkun bragðefna í rafrettum tók gildi í borginni Los Angeles nýverið. Mikið áhyggjuefni Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra sagði í samtali í Morgun- blaði í vikunni að nýlegar fréttir um lungnasjúkdómafaraldur í Banda- ríkjunum, sem virðist tengjast raf- rettunotkun, séu mikið áhyggjuefni. Neytendastofa tekur við ábend- ingum vegna rafrettna og áfyllinga sem grunur er um að séu ekki í lagi og má koma þeim til Neytendastofu í gegnum mínar síður á heimasíðu stofnunarinnar. Veikindi í lung- um talin rakin til rafrettna  Neytendastofa tók um 100 tegundir af vökva úr sölu  Faraldur vestanhafs Morgunblaðið/Hari Rafrettur Um 100 tegundir vökva í þær hafa verið teknar úr sölu. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Peysur – túnikur bolir – kjólar Vinsælu velúrgallarnir fyrir konur á öllum aldri til í mörgum litum og í stærðum S-4XL NÝTT NÝTT gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Köflóttar skyrtur Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 8.990,- Str. S - XXL Opið í dag 11-15 GÆÐA-YFIRHAFNIR FYRIR ÍSLENSKA VEÐRÁTTU Fylgdu okkur á facebook Skipholti 29b • S. 551 4422 VERÐ 39.990,- Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Str. 38-58 BASICS Buxur og bolir í úrvali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.