Morgunblaðið - 21.09.2019, Síða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019
Glæsilegt heilsárshús á 9,6 hektara
eignarlóð í Eyjafirði
Um er að ræða 172,4 fm heilsárshús á 9,6 hektara eignarlóð úr landi
Tréstaða í Hörgársveit Eyjafirði. Byggingarefni er timbur og stein-
steypa. Einstakt útsýni er bæði út og inn og yfir Eyjafjörðinn. Afleggjari frá
þjóðvegi liggur að bústaðnum og er læst hlið að honum. Landið er afgirt.
Húsið er byggt sem sumarbústaður en er í raun vandað einbýlishús sem
uppfyllir allar nútíma kröfur þar sem allur frágangur er til fyrirmyndar.
Rotþró er við húsið.
Húsið er einstaklega vandað að innan sem utan. Eftir endilöngu húsinu er
hár steyptur veggur (sjónsteypa) sem skiptir húsinu í tvo meginhluta,
stofur og eldhús að vestanverðu en svefnálmu o.fl. að austanverðu. Inn-
byggð næturlýsing. Verandir og skjólveggir eru við húsið. Húsið er klætt
að utan með harðviði.
TILBOÐ ÓSKAST
BjörnDavíðsson
löggiltur fasteignasali
bubbi@kaupa.is
Sími8620440
KjartanHallgeirsson
löggiltur fasteignasali
kjartan@eignamidlun.is
Sími8249093
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
E I G N A M I Ð L U N
w w w . k a u p a . i s
Nú eru 16 keppendur eftirá heimsbikarmóti FIDEsem stendur yfir íKhanty Mansyisk í Síb-
eríu og nokkrir góðir hafa fallið úr
leik, t.d. Giri, Nakamura og Wei Yi. Í
4. umferð sem hófst í gær átt að tefla
saman átt að tefla saman Aronjan og
Liem Quang, Liren Ding og Aleks-
eenko, Grischuk og Dominguez, So
og Vitiugov, Nepomniachctchi og Yu
Yangyi, Duda og Jeffrey Xiong,
Radjabov og Mamedyarov og síðan
Vachier-Lagrave og Svidler.
Hægt er að fylgjast með keppn-
inni á nokkrum vefsvæðum t.d. á
Chess24.com en meðal skákskýr-
enda þar í vikunni var Magnus Carl-
sen. Á miðvikudaginn voru þau ein-
vígi þriðju umferðar til lykta leidd
sem ekki kláruðust með kappskák-
unum.
Anish Giri – Yeffery Xiong
Í útsendingunni gerði Magnús
óspart grín að Giri og kvaðst tilbú-
inn að taka veðmáli um að í þessari
stöðu myndi Giri skorta kjark og
leika 22. Kb2 með það fyrir augum
að semja jafntefli eins og í öllum
fimm skákum einvígis hans við hinn
unga Bandaríkjamann því þrátefli er
þá í boði eftir 22. … Rc4+ 23. Kb1
Ra3+ 24. Kb2 o.s.frv. Greinarhöf-
undur var nú ekki mjög trúaður á
þetta myndi gerast en viti menn.
Giri lék …
22. Kb2?
Mun djarfara og betra var 22. g4!
og hvíta staðan er mun betri.
22. … Hc4!
En svartur vill ekki jafntefli!
23. Dd3 Hfc8 24. Hc1 b5 25. f5??
Hxc3! 26. Rxc3 Hxc3!
– og nú sáu menn fram á að 27.
Dxc3 er svarað með 27. … Rc4+ og
drottningin fellur. Eftir 27. De1
Rc4+ 28. Ka1 Re5 var svarta staðan
auðunnin og hvítur gafst upp eftir 36
leiki.
Guðmundur og Hjörvar
efstir á Haustmóti TR
Guðmundur Kjartansson og
Hjörvar Steinn Grétarsson eru efst-
ir og jafnir á Haustmóti Taflfélags
Reykjavíkur þegar tvær umferðir
eru eftir í keppni A-riðils. Þeir gerðu
jafntefli í innbyrðis viðureign
fimmtu umferðar og eru báðir með 4
½ vinning. Teflt er í fjórum riðlum
og í B-riðli er Aron Thor Mai efstur,
í C-riðli er Frakkinn Asef Alashtar
með örugga forystu og í opna
flokknum hefur Ingvar Wu Skarp-
héðinsson unnið allar sínar skákir en
tekið eina ½ vinnings yfirsetu.
Ein athyglisverðasta skák móts-
ins var viðureign Daða Ómarsson og
Guðmundar Kjartanssonar í 4. um-
ferð. Þeir tóku til meðferðar eitt
elsta og þekktasta afbrigði skák-
fræðanna og Guðmundur lét sig ekki
muna um að tefla eins og Emanuel
Lasker gerði fyrir 127 árum:
Daði Ómarsson –
Guðmundur Kjartansson
Ítalskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4.
Rg5 d5 5. exd5 Ra5 6. Bb5+ c6 7.
dxc6 bxc6 8. Bd3
Einn fjölmargra leikja í stöðunni.
Þekkt leið er 8. Be2 h6 9. Rh3 en
þannig tefldu Fischer og síðar Short
nokkrum sinnum.
8. … Rg4 9. Re4 f5 10. Be2 h5 11.
h3 fxe4 12. hxg4 Bc5 13. b4!?
Ekki slæmur leikur en 13. Rc3
kom einnig til greina.
13. … Dd4 14. bxc5 0-0 15. Hf1?
Af hverju Daði hrókeraði ekki
stutt er eiginlega stóra spurningin.
Kóngurinn stendur ekki vel á e1 en
eftir 15. 0-0 Dxa1 16. Rc3 og nú
16. … e3!? en hvítur á samt ágætis
möguleika.
15. … Dxa1 16. Rc3 Bxg4 17.
Bxg4 hxg4 18. Hh1 Hab8
Kemur hróknum í spilið. „Vél-
arnar“ eru fljótar að finna 18. … g3!
19. fxe3 e3 með vinningsstöðu.
19. Rxe4 Hb1 20. Ke2 Dxa2 21.
Hh4 Hf4 22. d3 Rb3!
Óvenjuleg leppun. Hvítur getur
sig hvergi hrært og gafst því upp.
Tefldi eins og Lasker gerði fyrir 127 árum
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Hugsi Guðmundur
Kjartansson við tafl-
ið á síðasta Reykja-
víkurskákmóti.