Morgunblaðið - 21.09.2019, Page 42
42 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019
60 ára Tómas er Akur-
eyringur en býr á Sauð-
árkróki. Hann er fiskiðn-
aðarmaður að mennt
frá Fiskvinnsluskól-
anum í Hafnarfirði.
Hann er framkvæmda-
stjóri og eigandi Arctic
Hotels og KK Restaurant á Sauðárkróki
ásamt konu sinni.
Maki: Selma Hjörvarsdóttir, f. 1962, list-
rænn ráðunautur.
Börn: Rúnar Ingi, f. 1982, Ragnar Páll, f.
1989, Kristinn Björgvin, f. 1990, Hannes
Geir, f. 1992, og Marta Laufey, f. 1995.
Barnabarn er Dögun Ýr Rúnarsdóttir, f.
2018.
Foreldrar: Hannes Árdal, f. 1926, d. 1972,
bílstjóri, og Úlla Þormar Árdal, f. 1930, d.
2010, húsmóðir og afgreiðslukona.
Tómas
Árdal
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það eru ýmsar breytingar sem
þig langar til að ná fram. Gerðu þetta
eitthvað að veruleika og líf þitt verður
fyllra.
20. apríl - 20. maí
Naut Taktu áhættu í listinni en farðu
varlega þegar kemur að þinni eigin vel-
ferð. Gættu raunsæis, annars er hættara
við að þér finnist aðrir vera að svíkja
þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver er tilbúinn að rétta þér
hjálparhönd í dag. Orð þín munu falla í
frjóan jarðveg en bara ef þú ert einlæg/
ur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert viðkvæm/ur fyrir ójafn-
vægi annarra, sem er ástæðan fyrir því
að veikt fólk þefar þig uppi. Einhver seg-
ir ekki alla söguna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú átt auðvelt í dag með að tjá til-
finningar þínar opinskátt. Fólk tekur bet-
ur eftir þér núna en áður.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Góðir hlutir geta gerst á meðan
þú ert að gera sömu gömlu hlutina.
Glasið kann að vera hálftómt í dag, en
brátt verður það hálffullt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sérvitringur eða mjög sérstakur ein-
staklingur mun líklega verða á vegi þín-
um í dag. Þú færð hugmynd sem á eftir
að slá í gegn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú geislar af krafti og ert
tilbúin/n að hefjast handa hvort sem er í
starfi eða einkalífi, gera líf þitt betra.
Gefðu þér tíma til að vinna úr hlutunum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu jákvæður og hafðu trú
á sjálfum þér. Ekki missa móðinn, tak-
markið er svo skammt undan.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Látið það ekki á ykkur fá þó
hlutirnir gangi ekki upp í fyrstu tilraun.
Vinnufélagarnir eru ekkert nema dá-
semdin ein.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Lífið blasir við þér og þú ert
með bros á vör. Þú munt sitja með
sveittan skallann næstu vikur vegna
vinnunnar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ástvinir munu vilja hjálpa þér og
leysa öll þín vandamál. Látið þig og þín-
ar þrár ekki sitja á hakanum.
viðtökur í karllægri bókmenntahefð.
„Ég hef einnig rannsakað sjálfsævi-
söguleg skrif kvenna og kvenlýsing-
ar í verkum karlhöfunda, svo sem
Halldórs Laxness. Ég hef skoðað
samband karnivals, kvenleika og
karlmennsku í íslenskum miðalda-
bókmenntum, einkum Íslendinga-
sögum og Eddukvæðum.“ Einnig
hefur Helga fengist við þýðingar
sem og greiningu á rannsókna- og
ritstuldi (plagiarisma), rannsóknir á
bréfum og bréfasöfnum frá 19. öld.
Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra
um rannsóknir sínar. „Ég hef haft
gaman af því og ég virðist vera eftir-
sóttur fyrirlesari.“
Helstu útgefin rit Helgu fyrir ut-
an kafla og greinar í tímaritum eru
Máttugar meyjar. Íslensk forn-
bókmenntasaga (1993); Fyrir dyrum
fóstru. Konur og kynferði í íslensk-
um fornbókmenntum (1996); Stúlka.
Ljóð eftir íslenskar konur (1997,
2001); Speglanir. Konur í íslenskri
bókmenntahefð og bókmenntasögu
(2000); Óþarfar unnustur og aðrar
greinar um íslenskar bókmenntir
(2009).
arhorni. Hún var brautryðjandi í
femínískum bókmenntarannsóknum
á Íslandi og er með mikilvirkustu og
áhrifamestu bókmenntafræðingum
landsins. Hún hefur rannsakað sögu
íslenskra kvennabókmennta frá
upphafi með áherslu á fyrstu kven-
rithöfundana, ósýnileika þeirra og
H
elga Kress fæddist 21.
september 1939 í
Reykjavík og ólst upp
á Laufásvegi 10,
Lokastíg 16 og Frí-
kirkjuvegi 3. Afi og amma áttu
heima á Fríkirkjuvegi þrjú og þau
gengu mér í föðurstað ef svo má
segja og einnig móðursystkini mín, í
fjarveru pabba. Ég var átta mánaða
þegar hann var tekinn og færður í
fangabúðir Breta.“ Helga var þrjú
sumur í sveit á Hóli í Hvammssveit í
Dalasýslu.
Helga gekk í Miðbæjarskólann,
Menntaskólann í Reykjavík, og tók
stúdentspróf vorið 1959. Hún fór síð-
an í Háskóli Íslands og lauk kandí-
datspróf í íslenskum fræðum með
þýsku sem aukagrein vorið 1969.
Hún tók síðan próf í bókmennta-
fræði (litteraturvitenskap) frá Uni-
versitetet i Bergen, Noregi, 1980.
Með námi vann Helga flug-
freyjustörf, skrifstofustörf, orðabók-
arstörf við Orðabók Háskólans,
stundakennarastörf við Mennta-
skólann í Reykjavík og Kvennaskól-
ann í Reykjavík. Hún var lektor í ís-
lensku fyrir erlenda stúdenta við
heimspekideild Háskóla Íslands
1970-1973 og fyrsta konan sem var
fastráðin kennari við deildina. Hún
var síðan sendikennari í íslenskum
máli og bókmenntum við Universite-
tet i Bergen 1973-1979. Árið 1981
var Helga skipuð lektor og síðan
dósent í almennri bókmenntafræði
við heimspekideild Háskóla Íslands.
Hún vann við rannsóknir og kennslu
við norrænudeild Kaliforníuháskóla
í Berkeley 1989-1990.
Á kvennadaginn 19. júní 1991 var
hún skipuð prófessor í almennri bók-
menntafræði við heimspekideild Há-
skóla Íslands með forsetabréfi und-
irrituðu af Vigdísi Finnbogadóttur.
Hún var Forseti heimspekideildar
Háskóla Íslands 1997-1999, fyrsta
konan sem kjörin var til embættis
deildarforseta frá stofnun hans 1911.
Hún hefur verið prófessor emerita
frá september 2009.
Helga hefur rannsakað íslenska
bókmenntasögu og íslenska bók-
menntahefð að fornu og nýju frá
kvenna- og kynjafræðilegu sjón-
Meðal félagsstarfa, trúnaðarstarfa
og stjórnunarstarfa þá sat Helga í
stjórn Félags íslenskra fræði 1971-
1973, í stjórn og úthlutunarnefnd
Vísindasjóðs (síðar Vísindaráðs)
1981-1991, og í Menntamálaráði Ís-
lands og stjórn Menningarsjóðs
1987-1991. Hún var meðal stofnenda
Rannsóknastofu í kvennafræðum við
Háskóla Íslands 1990, sat í stjórn
stofunnar 1990-1998 og var fyrsti
forstöðumaður. Hún hefur verið fé-
lagi í Vísindafélagi Íslendinga frá
1986 og í stjórn þess 2005-2009.
Helga hlaut Riddarakross hinnar
íslensku fálkaorðu á nýársdag 1998
fyrir bókmenntarannsóknir og við-
urkenningu jafnréttisráðs 24.10.
2000 sem brautryðjandi í jafnrétt-
ismálum. Hún varð heiðursfélagi í
Félagi íslenskra fræði 27.4. 2007.
Mín helstu áhugamál eru náttúru-
vernd, gönguferðir, menningarmál,
íslenskt mál, málnotkun og mál-
vöndun.“
Fjölskylda
Börn Helgu eru 1) Már Jónsson, f.
19.1. 1959, sagnfræðingur, búsettur í
Helga Kress, prófessor emerita í bókmenntafræði við Háskóla Íslands – 80 ára
Ljósmynd/Loftur Ásgeirsson
Við fræðistörf Helga stödd á Landsbókasafninu í Safnahúsinu árið 1977 við spjaldskrána í leit að heimildum um
fyrstu íslensku kvenrithöfundana. Myndin birtist með viðtalinu „Rannsaka stöðu íslenskra skáldkvenna“ í Vísi.
Fyrsti kvenkyns deildarforseti HÍ
Fjögurra ára Helga við hús afa og
ömmu, Fríkirkjuveg 3.
Í dag, 21. september, fagna Rut Ing-
ólfsdóttir fiðluleikari og Björn Bjarna-
son, fyrrv. ráðherra, gullbrúðkaups-
degi sínum. Sr. Jón Auðuns gaf þau
saman í Dómkirkjunni 21. september
1969. Myndina tók Árni Johnsen.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
50 ára Matthildur ólst
upp á Hlemmiskeiði á
Skeiðum en býr í Norð-
urgarði í sömu sveit.
Hún er leikskólakenn-
ari og grunnskólakenn-
ari að mennt. Hún er
sérkennslustjóri á leik-
skólanum Leikholti sem er í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi.
Maki: Ásmundur Lárusson, f. 1970, bóndi
í Norðurgarði, en þar er rekið kúabú.
Börn: Árný Fjóla, f. 1991, Hannes Orri, f.
1996, Bergsvein Vilhjálmur, f. 2001, og El-
ín Ásta, f. 2004. Barnabarn er Áróra Björg
Daðadóttir og Árnýjar, f. 2019.
Foreldrar: Vilhjálmur Eiríksson, f. 1930,
og Ásthildur Sigurjónsdóttir, f. 1941, fyrr-
verandi bændur á Hlemmiskeiði. Þau eru
búsett þar.
Matthildur Elísa
Vilhjálmsdóttir
Til hamingju með daginn