Morgunblaðið - 07.09.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 07.09.2019, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 R eyndir foreldrar vita að það getur valdið verulegum árekstri þegar barnið er klætt upp í sparifötin frá því í fyrra en þá uppgötvast að síðbuxurnar eru orðnar stuttar og sparipeysan þæfð. Fatnaður fyrir ungmenni Í Englabörnum má finna falleg vörumerki fyrir börn á öllum aldri. Eldri stelpur bíða spenntar eftir kjólunum frá Creamie. Íþróttalínan frá Molo er einnig nokkuð sem ungmenni á öllum aldri munu kunna að meta. Vörurnar frá Ralph Lauren heilla einnig ungmenni á öllum aldri. Fatnaður fyrir börn Þegar kemur að yngri börnum stendur Crea- mie alltaf fyrir sínu. Molo-kuldagallana er einnig gott að eiga á leik- skólanum eða uppi í fjalli á skíðum. Ungbarnalínan frá Sofie Schnoor er einnig dásamleg, ekki síst glimm- erstígvélin góðu. Við þá sem velja vandaðan fatnað úr góðum efnum er mælt með vörum frá Livly og Ralph Lauren. Þær flíkur ganga kyn- slóða á milli. Þær stelpur sem setja þæg- indi framar öllur geta verið fínar í Creamie. Skór frá Sofie Schnoor. Kuldagalli frá Molo hentar vel fyrir íslenska veðráttu. Fylgihlutirnir frá Sofie Schnoor eru vandaðir og fallegir. Dásamleg stúlka í kjól frá Creamie. Fatnaður frá Polo Ralph Lauren. Þegar kemur að glitrandi fatnaði og fal- legum fylgihlutum, vönduðum fötum og fágæt- um stílum má alltaf finna eitthvað fallegt í Engla- börnum og fleiri verslunum borgarinnar. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Glimmer- stígvél frá Sofie Schnoor. Kjóll frá Creamie. Fatnaður fyrir börn á öllum aldri Fatnaður frá Sofie Schnoor. Íþróttafatnaður frá Molo er fallegur fyrir krakka á öllum aldri. www.barnaloppan.is Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Hari É g er ekkert alveg viss um að fólk myndi leggja út í þá vegferð að eignast afkvæmi ef það vissi hvað biði þess þegar barnið er fætt. Það að vera foreldri reynir á allar taugar líkamans, hverja einustu frumu og hvern einasta vöðvahóp svo ekki sé minnst á hvað það getur verið snúið andlega. Við erum ekki með sömu spil á hendi þegar kemur að okkar eigin afkvæmum og öðru fólki. Okkur þykir þau náttúrlega fallegri og betur gefin en allir aðrir í þessum heimi sem gerir það að verkum að við eigum erfiðara með að setja mörk. Við gerum eitthvað fyrir börnin okkar sem við myndum aldrei nokkurn tímann gera fyrir neinn annan í heiminum. Og gerum ekki stórmál úr einhverju sem börnin okkar gera sem við myndum undir öðrum kringumstæðum brjálast yfir. Ást okkar til eigin afkvæma fer oft og tíðum yfir öll eðlileg mörk. Eins fallegt og gott það er að elska heitt og innilega þá fylgja því líka margir gallar. Við gerum engum gott með því að hefja barnið upp til skýjanna og það græðir ekkert barn neitt á því að fá allt og vera ekki sett mörk. Börn sem alin eru upp við að fá allan heiminn og eru ekki alin upp geta lent harkalega í því þegar hið raunverulega líf tekur við og börnin komast út fyrir sápukúlu mömmu og pabba. En hvernig eigum við að ala börnin okkar upp? Ef það væri til einhver ein formúla þá værum við náttúrlega í toppmálum en það er því miður ekki þannig. Eitt eru þó flestir sérfræðingar sammála um og það er að foreldrar séu með skýran ramma utan um börnin sín svo börnin upplifi ekki óöryggi. Það skiptir líka miklu máli að börnin geti stólað á foreldra sína og geti treyst því að það sem mamma og pabbi segja sé satt og rétt. Og ef mamma og pabbi lofa einhverju þá sé staðið við það. Þetta á líka við um mörkin. Það þýðir víst lítið að hóta barninu einhverju ef ekki er staðið við það. Auðvitað eru afkvæmi okkar ekkert hress með það þegar reglurnar eru hertar eða ramminn þrengdur. Þá skiptir máli að standa í lappirnar og muna að foreldrahlutverkið snýst um að ala upp, móta og styðja. Foreldrar eru nefni- lega ekki skemmtikraftar. Við eigum til að gleyma því allt of oft. Thinkstock Ertu skemmtikraft- ur eða foreldri? Marta María Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.