Morgunblaðið - 07.09.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 07.09.2019, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 PANTANIR Í SÍMA: 588 8998 joifel@joifel.is Yndisfagrar skírnartertur að hætti Jóa Fel F ríða býr í Kingston ásamt eiginmanni sínum, Tait Simpson, eiganda brugghúsins Kingston Standard Brewing Company. Saman eiga þau dótturina June Kristínu, sem er að byrja í fyrsta bekk í haust. Kingston er í New York- ríki í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Hudson-dalnum, í tveggja tíma akstursfjarlægð frá New York-borg. Fjöl- skyldan hefur verið búsett í Kingston í fimm ár en áður bjuggu þau í Brooklyn. Fríða segir að lífið hafi breyst eftir að þau eignuðust dóttur sína. „Við keyptum gam- alt hús frá 1924 sem stóð autt í þrjú ár og var ekki íbúðarhæft. Við unnum hörðum höndum í rúmt ár að því að koma húsinu í stand og og erum ofboðslega ánægð í þessu fallega húsi. Við búum í fimm mínútna göngufæri frá skóla, kaffihúsum og grænmetismark- aðinum,“ segir hún. Kingston er merkilegur bær fyrir margar sakir, en þar búa um 24 þúsund manns. Bærinn fór í mikla efna- hagslega lægð fyrir nokkrum áratugum þegar IBM- verksmiðjan lagði niður starfsemi sína í bænum. „Síðastliðin ár hefur verið mikil uppbygging og margt ungt fólk flust til Kingston og hafið ýmsan rekst- ur. Opnað kaffihús, veitingastaði og fleiri fyrirtæki. Tait, maðurinn minn, opnaði í vor ásamt félögum sínum brugghús sem heitir Kingston Standard Brewing Company. Þetta var lengi í bígerð og við lögðum öll „Góðar mömmu- vinkonur nauðsynlegar“ Fríða Kristinsdóttir flutti fyrir 11 árum til New York, þar sem hún vann fyrir fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún fór síðan í kokk- anám og vinnur nú við að elda fyrir ýmsa viðburði, tekur ljósmyndir og kennir á matreiðslunámskeiðum fyrir börn svo eitthvað sé nefnt. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Fríða flutti fyrir 11 árum til New York þar sem hún vann fyrir Fasta- nefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún fór síðan í kokka- nám og vinnur nú við að elda fyrir ýmsa viðburði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.