Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019
Sunnudagaskólinn
í Vídalínskirkju fer a!ur
af stað sunnudaginn
1. september kl. 11.
Sunnudagaskólinn er fyrir
alla krakka sem hafa
gaman af því að syngja,
horfa á brúðuleikhús
og hlusta á sögur af Jesú.
Allir velkomnir Sunnudagaskoli
1. september kl. 11
ævintýri að læra nýtt tungumál, hjóla út um alla Kaup-
mannahöfn og kynnast nýrri menningu. June Kristín er
byrjuð í píanónámi og ballett og við reynum að verja
miklum tíma saman fjölskyldan, ferðast og gera eitt-
hvað skemmtilegt.“
Saknar fjölskyldunnar
Þar sem Fríða hefur verið búsett erlendis um árabil
segist hún sakna margs frá Íslandi og þá sérstaklega
fjölskyldunnar.
„Fjölskyldan er dugleg að koma til okkar í heimsókn
og ég hef farið til Íslands einu sinni til tvisvar á ári síð-
an ég flutti hingað út. Ég öfunda stundum systur mína
og vinkonur í Reykjavík að hafa ömmur og afa til halds
og trausts, en hérna úti koma vinirnir svolítið í stað
fjölskyldu. Við hittumst mikið um helgar og erum dug-
leg að hjálpast að við að sækja börnin í skólann og
passa.“
-Er eitthvað eitt frekar en annað sem þú saknar frá
Íslandi?
„Ég sakna þess mest að geta farið í sund allan ársins
hring í hitaðri laug,“ segir Fríða og þegar hún er spurð
hvort það sé eitthvað við Ísland sem hún er fegin að
losna við nefnir hún skammdegið. „Ég áttaði mig á því
þegar ég flutti út að þegar það er bjart úti á morgnana
finnst mér ekkert erfitt að fara á fætur.“
Nauðsynlegt að eiga vinkonur
„Flestar vinkonur mínar hér úti eru mömmu-
vinkonur. Þegar ég flutti til Kingston fyrir fimm árum
var June Kristín rétt að verða eins árs og ekki byrjuð á
leikskóla. Ég kynntist yndislegum hópi af konum sem
áttu það sameiginlegt að vera nýfluttar frá New York
hingað upp í sveit og voru með ung börn. Við hittumst
með börnin á hverjum einasta þriðjudegi allan veturinn
og aðra daga líka ef okkur leiddist. Nú eru börnin öll
byrjuð í skóla en við mömmurnar erum ennþá bestu
vinkonur og pabbarnir líka. Það er enn að bætast í
vinahópinn þegar fleiri fjölskyldur flytja til Kingston og
núna á ég meira að segja íslenska vinkonu í næstu
götu, hana Katrínu Björk sem er ljósmyndari og kokk-
ur. Krakkarnir okkar eru orðnir bestu vinir og það er
alveg frábært að eiga íslenskt samfélag hér úti, borða
saman páskalambið og skera út laufabrauð.“
Fríða ákvað að fara í kokkanám og vinnur nú við að gera fallegar veitingar
fyrir alls konar tilefni.
Fríða er mikill fagurkeri og leikur sér með liti og form.
„Tait bruggar bjórinn og ég
baka kringlur og svo erum
við líka með ostrur og humar-
samlokur á matseðlinum.“
Ljósmyndir/Camilla French