Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Qupperneq 15
þurfum að bæta úr því, hreyf-
ingin þarf að fara í markvissa
vinnu með ímynd og sýnileika.
Það hvað hreyfingin er ósýnileg
gerir okkur erfitt fyrir að „selja"
hana sem skemmtilegan og
áhugaverðan kost fyrir fólk sem
vill starfa í góðum félagsskap og
láta gott af sér leiða. Við þurf-
um að fjölga Kiwanisfélögum á
Islandi og það er mikilvægt að ná
til yngra fólks, annars er hætta á
að starfið hér lognist útaf þegar
við sem nú störfum eldumst og
hættum að vera virk.
JO: Kiwanishreyfingin á Islandi
þarf að fara „út fyrir boxið" og
gera sig eftirsóknarverðari í sam-
keppninni um sífellt færri sjálf-
boðaliða og finna nýjar leiðir til
að ná til þeirra og hætta að vera
svona upptekin af sjálfri sér.
Félögum fjölgar ekkert frekar þó
við eyðum 3 milljónum í embætti
umdæmsstjóra á einu starfsári
og mokum viðurkenningum og
verðlaunum hvert í annað á um-
dæmisþingum, næstum því fyrir
að hafa farið á fætur. Það þarf að
þora að segja „pass" við að mæta
á erlenda grundu og slaka þarf á
í yfirgengilegu viðurkenningar-
brölti. Eg tel áhersluna á þetta
vera of mikla. Setja á peninga
frekar í markaðs- og kynning-
arstarf í umdæminu og vera
meira útávið hér innanlands.
Nýr klúbbur finnur nákvæmlega
enga tengingu við þessa
kostnaðarliði en ber af þeim
fullan kostnað og í raun
óhagræði því svo virðist sem
áherslan um stofnun klúbb-
sins hafi öðrum þræði snúist
um að gerast á réttri vakt.
Kiwanishreyfingin á ekki að
þurfa að óska eftir nýjum
félögum ef rétt er að málum
staðið. Þeir sækja um að
fá að vera með vegna þess
að það er eftirsóknarvert,
„cool", og vel kynnt.
“...fljótum að feigóarósi
eða erum við með tök á
því verkefni að viðhalda
fjöldanum eða fjölga
félögum?” [JónÓskar]
Hvemig sjáið þið framtíð
klúbbsins ykkarfyrir ykknr?
JE:Við erum komnar með sam-
hentan og skemmtilegan hóp sem
vinnur vel saman og góð fjáröfl-
unarverkefni, svo ég held að það
eigi bara eftir að fjölga í hópnum.
GJ: Eg sé fyrir mér að Dyngja eigi
eftir að verða öflugur klúbbur og
gera góða hluti, þetta eru áhuga-
samar, duglegar og samhentar
konur en sem stendur erum við of
fáar og þurfum að vinna í því að
fjölga í hópnum. Eg hef mikla trú
á klúbbnum takist okkur að fjölga
félögum og hlakka til að taka
þátt í starfinu í framtíðinni og því
skemmtilega verkefni að taka þátt
í að byggja upp góðan klúbb.
JO: Framtíð Eldfells er í óvissu.
Við vonumst þó til þess að fjölga
í klúbbnum hægt og rólega á
nýjan leik og þá þannig að þeir
sem gangi í hann hafi gefið sér
góðan tíma til að kynnast honum.
Verkefni okkar hafa gert það
að verkum að klúbburinn er að
vinna sér sess hægt og rólega og
hef ég fulla trú á því að sú sígandi
lukka sé best. Það er leiðinlegt
að segja það hér, en það er satt,
að af og til, og raunar alltof oft,
kviknar sú umræða innan okkar
raða hvort þessi félagsskapur
eigi heima innan Kiwanis vegna
áðurnefnds kostnaðar. Það er
fremur, en þó ekki einungis,
uppruni okkar en Kiwanis, sem
heldur okkur saman.
Eitthvað að loknm?
JE: Eg er stolt af því að vera
Kiwanisfélagi og vinna að því að
hjálpa börnum heimsins
GJ: Eg hlakka til að starfa innan
Kiwanis í framtíðinni og veit að
saman getum við eflt umdæmið
okkar og látið gott af okkur leiða.
JO: Kiwanishreyfingin er ennþá
ansi öflug og er að gera frábæra
hluti í samfélaginu á ýmsum
sviðum. Við höfum fylgst með
starfi Helgafells, Eldeyjar og
Hraunborgar svo dæmi séu tekin
og er það hvatning fyrir okkur
græðlingana. Tel ég þessa klúbba
eina af flaggskipum hreyfingar-
innar. Nýta þarf styrk og getu
þeirra og annarra sambærilegra
klúbba. Það eru blikur á lofti
varðandi fjölda félaga og hvíl-
ir mikil ábyrgð á þeim sem fara
með völd og auðlindir hreyfing-
arinnar, að horfa á heildarhags-
muni Kiwanis og samfélagsins.
I aukinni samkeppni um frítíma
nýrrar kynslóðar þurfum við að
spyrja okkur hvort við fljótum
að feigðarósi eða erum við með
tök á því verkefni að viðhalda
fjöldanum eða fjölga félögum?
Ritstjóri þakkar viðmælendum
áhugaverð skoðanaskipti og af-
sakar að ekki skildi vera neitt
bitastætt með kaffinu!
Kiwanisfréttir Janúar 2014 15