Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Síða 16
Fréttir úr Freyjusvæði
Á tímabilinu 27. sept. til 8. okt.
fóru fram stjórnarskipti í 7
klúbbum sem svæöisstjóri ann-
aðist. I tveimur klúbbum var
sama stjórnin áfram og tveir
klúbbar önnuðust stjórnar-
skiptin sjálfir. 11 klúbbar eru
í Freyjusvæði með 229 félög-
um samtals, 3 landsbyggða-
klúbba og 8 af höfuðborg-
arsvæðinu. Fjölgað hefur
um 3 og 3 hafa hætt, þannig
að heildar félagafjöldinn er
óbreyttur frá upphafi starfsárs-
ins. Markmiðið er að hver
klúbbur vinni að fjölgun félaga
á starfsárinu.
Svæðisstjórnin hefur haldið
einn fund það af er starfsárinu.
Megin tilefni fundarins var
undirbúningur að svæðisráðs-
fundi nóvember og starfið al-
mennt. Þá ber að geta þess að
Bjarnar Kristjánsson, Kötlufél-
agi, fyrrv. ritari svæðisstjórn-
ar, hefur fallist á að gegna ritar-
starfinu áfram, en sá sem tekið
hafið að sér starfið hætti óvænt.
Svæðisráðstefna var haldin
23. nóv. sl. að Bíldshöfða 12,
hana sóttu fulltrúar frá 9
klúbbum. Fjölmörg mál voru
rædd á fundinum, sem fór
hið besta fram. Ekki er að sjá
annað en klúbbarnir starfi af
metnaði og krafti eins og áður.
Þetta er helst að frétta af starfi
þeirra.
Básar hafa nú þegar haldið
4 vel sótta fundi og þeir hafa
veitt nám-
skeiðsstyrk
að upp-
hæð kr.
100.000 til
sjúkraflutn-
ingamanna.
Dvngja hefur
haldið amk.
2 félagsmála-
fundi og farið
í heimsókn til
Eldeyjar. Elliði hélt hið árlega
villibráðarkvöl 25. okt. sl. að
Hótel Natúra. Það gekk með
ágætum mættir voru 130 gestir.
Ágóði af kvöldinu varð ver-
ulegur og rann hann í styrktar-
sjóð. Esja er fyrirmyndarklúb-
bur með 80-100% mætingu á
hvern fund. Esjufélagar veittu
Umhyggju, félags langveikra
barna, styrk að upphæð 1 millj
kr. til kaupa á leiktækjum í orl-
ofsbúðir félagsins. Nýafstaðin
er jólafundur klúbbsins með
eiginkonum. Hann hefur
ávalt tekist vel. Framundan
hjá Gevsi er hin hefðbunda
skötuveisla, en hún er ein
helsta fjáröflun styrktarsjóðs.
Ánægjulegt er að Geysis-
félögum hefuir fjölgað um 2.
Hekla mun halda upp á 50 ára
afmæli sitt í jan. nk, en klúbb-
urinn var stofnaður 14. jan.
1964. Þessi dagur er jafnframt
50 ára afmæli Kiwanisstarfs á
íslandi. Á hverju hausti heldur
Hekla svokallaðan lambarétta-
dag til fjáröflunar fyrir styrkt-
arsjóð klúbbsins.
Að þessu sinni
gekk fjáröflunin
vel. Hekla hefur
veitt einn styrk
sem af er starf-
sárinu til sterkasta
manns fatlaðra að
upphæð kr. 55.000.
Starf Höfða er komið á fullt
skrið og lofar mæting félaga á
fundi góðu. Nokkrir félagar úr
klúbbnum unnu í sjálfboða-
vinnu fyrir Rauða krossinn
við breytingar á húsnæði við
Laugarveg og er vinnuframlag
áætlað 88 tímar. Framundan
er afhending matarkarfa til
bágstaddra í nánu samstarfi
við presta í Grafarvogs- og
Grafarholtssókn. Hjá Töklum
er sama stjórnin áfram. Fækk-
un hefur orðið í þeirra röðum
vegna dauðsfalla. Framundan
er jólafundur klúbbsins. Törfi
hefur nú þegar haldið hina
árlegu sviðaveislu. Þar mættu
um 170 manns og rennur
ágóðinn til Umhyggju. Fleiri
fjáröflunarverkefni eru í undir-
búningi m.a. pökkun og sala
á sælgæti fyrir jólin. Þá mun
klúbburinn eins og undanfarin
ár, afhenda matarkörfur til
bágstaddra í Árbæjarhverfi í
samvinnu við sóknarprestinn
þar. Auk þessa styrkir klúbbu-
rinn þrjú börn í SOS þorp-
unum, eitt í E1 Salvador, annað
á Haiti og það þriðja í Ind-
landi. Katla heldur sína fundi
að Bíldshöfða 12 og líkar vel,
enda er húsnæðið vel til þess
fallið. Katla annast klukk-
una á Lækjartorgi og hefur
(framhald á s. 20)
Stjómarskipti hjá Dyngju
16 Kiwanisfréttir Janúar 2014