Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Blaðsíða 17
Fréttir úr Ægissvæði
Svæðisstjóri Jóhann Einarsdóttir
Fyrsta verkefni svæðisstjóra
ár hvert er innsetning stjórna
klúbbanna í svæðinu. Að
þessu sinni voru engin sameig-
inleg stjórnarskipti í svæðinu og
fóru stjórnarskiptin í klúbbunum
8 fram á 11 dögum og ánægju-
legt hve vel gekk að skipuleggja
þau. Samstarfið við kjörsvæðis-
stjóra Magnús Eyjólfsson var mjög
ánægjulegt, en hann aðstoðaði
við öll stjórnarskiptin nema í eigin
klúbbi, en hann gegnir starfi ritara
Hofs þetta starfsár.
Eg þáði boð Hraunborgar á ár-
legan villibráðardag. Þaðvarmjög
skemmtilegt að taka þátt í þessum
viðburði sem er greinilega mjög
vel skipulagður. A viðburðinn var
uppselt og seldust öll listaverkin
sem boðin voru upp. Mjög gott
fjáröflunarverkefni hér á ferð.
A svæðisráðsfundinum 16.
nóvember var breytt út af
hefðbundinni dagskrá. Engar
skýrslur vora lesnar upp á fundi-
num aðeins umræður um þær.
Forsetar sendu allar skýrslur sínar
með tölvupósti til svæðisstjóra og
voru þær síðan áframsendar til
allra forseta og ritara í svæðinu.
Einnig voru skýrslurnar birtar á
svæði Ægissvæðis á heimasíðu
umdæmisins.
Oskar Guðjónsson, fulltrúi í
heimsstjórn ræddi um þróun fél-
agafjölda í heiminum undir lið-
num "Snúum vörn í sökn" ein-
nig ræddi hann um fjölgunarátak
heimsstjórnar sem
hrundið var af stað 1. október sl.
Konráð Konráðsson fráfarandi
svæðisstjóri ræddi um hvort og
hvar möguleiki væri á að stofna
klúbba í svæðinu. Eftir þessi
fróðlegu erindi var félögum að
skipt upp í þrjá umræðuhópa sem
ræddu um þrjú fyrirfram ákveðin
málefni. Umræðuhóparnir voru:
• Samstarf og samvinna
klúbbanna í svæðinu.
• Kynningar og markaðs-
setning Kiwanis
• Hvernig sérðu fyrir þér
breytt umdæmisþing?
Miklar umræður urðu í hóp-
unum og gaman að sjá hvað fél-
agar höfðu mikið til málanna að
leggja, t.d vill hinn almenni félagi
breyta dagskrá umdæmisþings að
einhverju leiti. Niðurstöðurn-
ar verða síðan ræddar áfram og
kynntar umdæmisstjórn. Almenn
ánægja var með fundinn og er
þetta form fundarins örugglega
komið til að vera.
Jóhanna M Einarsdóttir
Ákall frá Filippseyjum
Margir umdæmisklúbbar og Slyrktarsjóour urðn
við ákalifrá Kiwanisfélögum okkar á Filippseyjum
í kjölfar selfilegra náttúruhafmfara par í landi í
nóvember sl. Meðfylgjandi eru nokkur þakkarorð frá
þarlendum félögum okkar.
Kæur Kiwanisfélagar
Gabrielito "Boy" Prado.umdæmisstjóri Filippíska
suður umdæmisins er innilega þakklátu fyri þá
fjárhagslegu aðstoð sem umdæmisklúbbar ykkar
hafa veitt vegna náttúruhamfarananna á Filippseyjum. Framlög ykkar hafa gert okkur kleift að
aðstoða fleira fólk - og lengur. 22 klúbbar, þar af 20 staðsettir á hamfarasvæðunum - sinna nú
hjálpar- og uppbyggingarstarfi. Margir Kiwanisfélagar bera nú þungar byrgðar eftir að þeir og/eða
ættingjar þeirra hafa misst heimili sín og allar eigur. Kiwanisfélagi sem rekur spítala varð t.d. að
loka honum þar sem ekkert rafmagn var að hafa. Ymis fyrirtæki hafa orðið fyrir beinu og óbeinu
tjóni, ekkert byggingarefni aðgengilegt eða það er óhemju dýrt. Matvælaverð hefur rokið upp úr
öllu valdi, sem veldur síðan vissum áhyggjum, því það hefur áhrif á alla landsbúa hvort sem þeir
urðu fyrir tjóni eða ekki. Alger uppskerubrestur blasir við, kókoshnetutré hafa rifnað upp með rót-
um og fiskibátar eyðilagst með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á nauðsynlega matarframleiðslu.
Að taka þátt í uppbyggingar- og hjálparstarfi á sárafátækum svæðum, kemur í veg fyrir að við
veltum framtíðinni mikið fyrir okkur, en vitandi að þið eruð með okkur í anda og verki gefur okk-
ur von um að allt fari vel! Það gleður okkur óstjórnlega að vita að það eru Kiwanisfélagar í hinu
kalda Norðri sem hugsar hlýlega til okkar hér í sól og sumri. Góðum lífsskilyrðum er nú ógnað af
jarðskjálftum, vopnuðum átökum og náttúruhamförum sem eiga fáar sína líka.
Þúsund þakkir.
Kiwanisfréttir Janúar 2014 17