Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 1

Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 1
F Ö S T U D A G U R 4. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  233. tölublað  107. árgangur  SHAKESPEARE VERÐUR ÁSTFANGINN HÖNNUN, TÍSKA, FÖRÐUN OG ÁSTARSAMBÖND SMARTLAND 40 SÍÐURFRUMSÝNING 28 Lóa Margrét Hauksdóttir og Snæfríður Edda Ragnarsdóttir, 11 ára, stóðu í gær fyrir mótmælum gegn áformum borgarinnar um að byggja hús á Vatnshólnum við Háteigsveg sem þær segja að sé vinsælt leiksvæði barna. Þær marseruðu um svæð- ið ásamt fleiri börnum í um klukkutíma og hengdu m.a. upp ámálaðan borða með slagorðinu: Ekki stoppa ævintýrin okkar! Hvasst og blautt veður var og því stóðu mótmælin yfir í styttri tíma en áætlað var. Hafa stúlkurnar þegar safnað 100 und- irskrifum og stefna á fund með borgarstjóra um málefnið. „Ekki stoppa ævintýrin okkar!“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Tvær 11 ára stelpur stóðu fyrir mótmælum á Vatnshólnum  Aðili sem keypti umtalsverðan hlut í 2,7 milljarða skuldabréfaút- gáfu Upphafs fasteignafélags, sem er í eigu GAMMA: Novus fast- eignasjóðs segist bjartsýnn á að endurheimta það fjármagn sem sett var í útgáfuna ásamt vöxtum sem þó verða nokkuð lægri en upp- haflega var gert ráð fyrir sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Í fundarboði sem sent var á skulda- bréfaeigendur kemur fram að lagt sé til að skilmálum skuldabréfanna verði breytt á þá leið að vextir verði lækkaðir úr 15-16,5% föstum vöxt- um niður í 6% fasta vexti. Fjárfest- ing sjóðsfélaga GAMMA: Novus er aftur á móti að mestu töpuð og til frekari skoðunar. »12 Skuldabréf í Novus fáist endurheimt Kolbeinn Óttarsson Proppé, varafor- maður þingflokks Vinstri grænna, segist hafa „miklar áhyggjur“ af þeim tíðindum sem reglulega berast af umsvifum erlendra hersveita hér við land. Segir hann nú brýna þörf á umræðu inni á Alþingi um veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu (NATO) og reglulega viðveru erlendra hersveita á Íslandi. „Uppbyggingin eins og hún er núna er ekki síst vegna fyrri skuld- bindinga annarra ríkisstjórna,“ segir Kolbeinn í samtali við Morgunblaðið og heldur áfram: „Þingið hefur ekki fengið að fjalla um þetta af neinu viti frá því að varnarsamningurinn var samþykktur árið 1951. NATO var stofnað í allt öðru umhverfi en nú er uppi og við verðum að geta sýnt þá hugsjón að detta ekki ofan í gamla kaldastríðsfarið.“ Herskip úr 2. flota Bandaríkjanna, Atlantshafsflotanum, hefur verið við æfingar á Norður-Atlantshafi að undanförnu. Til stuðnings henni var sett upp tímabundin aðgerðastjórn á öryggissvæðinu á Keflavíkurflug- velli og var henni komið fyrir í flug- skýli þar í september. »6 Alþingi ræði veru hersveita hér á landi  „Hann hefur enga heimild til að tengja hjólhýsin við fráveitukerf- ið,“ segir Haraldur Birgir Haralds- son, skipulags- og byggingar- fulltrúi Rangárþings ytra. Haraldur Birgir hefur gert Loo Eng Wah, landeiganda að Leyni 2 og 3 þar sem fyrirhuguð er mikil uppbygging í ferðaþjónustu, að rjúfa tengingar hjólhýsa við rotþró- arkerfi á staðnum. Hjólhýsin hafa verið í útleigu. Í bréfi Haraldar Birgis til land- eiganda í Landsveit, sem kvartaði undan starfseminni á staðnum, kemur fram að ákvörðun sveitar- stjórnar um veitingu stöðuleyfis fyrir hjólhýsin hafi byggst á þeim skilyrðum sem fram komu í umsókn landeigandans þar sem fullyrt var að þau yrðu ekki tengd vatnsveitu- eða fráveitukerfi. »4 Í óleyfi Landeigandi að Leyni 2 og 3 hafði ekki leyfi til að tengja hjólhýsi við fráveitu. Loo má ekki tengja hjólhýsi við fráveitu „Það er nær óheyrt að óútkomin bók njóti jafnmikillar athygli og Um tímann og vatnið er að fá núna frá erlendum útgefendum,“ segir Egill Örn Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Forlagsins. Mikil eftirvænting er í bóka- heiminum vegna nýrrar bókar Andra Snæs Magnasonar sem kemur út í dag. Bókin nefnist Um tímann og vatnið og umfjöllunar- efnið er loftslagsmál. Réttindastofa Forlagsins sendi fyrir skömmu út kynningarefni um bókina, umfjöllunarefni hennar og höfundinn. „Nú þegar hafa farið fram uppboð milli útgefenda í tveimur löndum um það hver hreppir hnossið og bókin hefur samtals verið seld til sjö landa áð- ur en hún kemur út á Íslandi. Þar á meðal til stærstu markaðs- svæðanna; Bretlands, Bandaríkj- anna og Þýskalands,“ segir útgef- andinn, sem vill meina að nýja bókin komi í kjölfar Draumalands- ins, bókar Andra Snæs um ís- lenska náttúru. Sú bók seldist í hátt í 30 þúsund eintökum hér á landi. »9 Seld til sjö landa fyrir útgáfu  Erlendir útgefendur berjast um nýja bók Andra Snæs Spenna Andri Snær Magnason. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Lántaki sem kaupir meðalstóra íbúð á höfuð- borgarsvæðinu með 70% verðtryggðu láni borgar nú 10 þúsund krónum minna á mán- uði í afborgun en hann gerði árið 2017. Sá munur safn- ast saman og skil- ar um 120 þúsund krónum á ári. Þetta er meðal þess sem má lesa úr útreikningum Guðmundar Sig- finnssonar, hag- fræðings hjá Íbúðalánasjóði, fyrir Morgun- blaðið. Stuðst er við nokkrar forsendur sem eru útskýrðar í blaðinu í dag. Elvar Orri Hreinsson, hag- fræðingur hjá Greiningardeild Íslandsbanka, segir sjaldan eða aldrei hafa verið jafn hagstætt að taka íbúðalán. „Vaxtaum- hverfið og aukin samkeppni á markaðnum með innreið lífeyrissjóða gera það að verkum að þetta eru sögulega góðir tímar fyrir neyt- endur hvað varðar vexti í landinu,“ segir Elv- ar Orri. Ari Skúlason, sérfræðingur hjá Lands- bankanum, telur útlit fyrir frekari vaxta- lækkanir. Vaxtakjörin á Íslandi hafi nálgast mikið kjörin annars staðar á Norðurlöndum. Skilar 120 þúsundum á hverju ári  Afborgun af íbúðaláni lækkað um 10 þúsund á mánuði miðað við 2017 M Íbúðalánin sjaldan … »10 Hærri laun, lægri vextir » Raunverð íbúða á höfuðborgar- svæðinu er nú stöðugt. » Laun hafa að meðaltali hækkað um 16,7% frá byrj- un árs 2017 sem bætist við lægri af- borganir af íbúða- lánum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.