Morgunblaðið - 04.10.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.10.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOL TA Hefur þú prófað Holta drumsticks? Vísað úr samráði sveitarfélaga  Þrjú sveitarfélög brutu ákvæði samnings sveitarfélaganna  Formaður er bjartsýnn um lausn Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Þremur sveitarfélögum, Súðavíkur- hreppi, Reykhólahreppi og Tjörnes- hreppi, hefur verið vísað úr samráði sveitarfélaganna í kjaraviðræðum vegna brota á ákvæðum samnings Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þetta staðfestir Aldís Hafsteinsdótt- ir, formaður sambandsins, í samtali við Morgunblaðið en hún flutti setn- ingarræðu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem var hófst í gær. Er ráðstefnan stærsti viðburður sveit- arstjórnarstigsins á hverju ári og sækja hana um 500 manns. „Sveitarfélög á Íslandi, utan Reykjavíkur- borgar, gáfu sam- bandinu fullnað- arumboð til að vinna að kjara- samningum og í raun semja fyrir hönd sveitarfé- laganna. Því fylgdu þau skil- yrði, sem allir skrifuðu undir, að þar með myndu sveitarfélögin ekki hafa áhrif á eða skipta sér af kjarasamn- ingsgerð. Þessi þrjú sveitarfélög gerðu það því miður núna og þar af leiðandi var stjórn sambandsins nauðugur kostur að virkja þetta ákvæði sem er í samningunum, sem sveitarfélögin undirrituðu sjálf, að ef að þessi staða myndi koma upp þá væri það augljóst að viðkomandi sveitarfélög hefðu ekki lengur áhuga á að vera í samstarfi hvað varðaði kjaraviðræður,“ sagði Aldís. Segist hún þó hafa fulla trú á því að farsælli lausn verði náð í kjara- samningum þrátt fyrir þá óvissu sem ríki um þá. Segir hún að helstu málefni sveit- arfélaganna, fjárhagslegt umhverfi sveitarfélaganna, fjármálaleg sam- skipti ríkis og sveitarfélaga og tekju- skipting þeirra ásamt þingsályktun- artillögu samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra um framtíðarsýn sveitarfélaga hafa verið með því helsta sem fjallað var um á fjármála- ráðstefnunni. Segir hún að ekki megi gleyma að tillagan snúist ekki aðeins um sameiningu sveitarfélaga. Óánægja með urðunarskatt „Þetta er aðgerðarbundin áætlun. Þarna eru 11 aðgerðir sem lúta að því að efla sveitarfélögin í landinu og sameiningin er bara eitt af þeim verkefnum sem sett eru fram,“ segir Aldís. Hún segir einnig að mikil og heit umræða hafi verið um hinn boðaða urðunarskatt umhverfisráðherra á ráðstefnunni en hún segir mikla óánægju ríkja meðal sveitarstjórn- armanna um málið. „Þetta er í rauninni einhliða ákvörðun án samráðs til sveitarfé- laga sem þó sinna þessum málaflokki frá a til ö. Þannig að okkur finnst það afar sérkennilegt að setja þetta fram með þessum hætti án þess að tala við okkur og hafa samráð um það með hvaða hætti við getum í sameiningu unnið að því markmiði að minnka úr- gang sem fer til urðunar í staðinn fyrir að setja bara strípaðan nefskatt á alla íbúa,“ segir Aldís. Aldís Hafsteinsdóttir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Tillögur starfshóps á vegum um- hverfisráðherra um hvort takmarka eigi notkun flugelda hafa enn ekki litið dagsins ljós. Hátt í átta mánaða töf hefur orðið á því að þriggja manna starfshópurinn skilaði af sér. Hann var skipaður 28. desember í fyrra og átti upphaflega að skila til- lögum til ráðherra fyrir 15. febrúar sl. Annir og gagnaöflun Fram kemur í svari sem fékkst í umhverfisráðuneytinu í gær að vinn- an sé langt komin en hafi tafist af ýmsum ástæðum, svo sem vegna anna og gagnaöflunar. Er vonast til að niðurstöðurnar liggi fyrir í næsta mánuði. „Ekki er hægt að segja til um niðurstöður starfshópsins fyrr en hann er búinn að skila af sér og því er ekki ljóst hvort þær hafi áhrif strax um næstu áramót,“ segir í svari við spurningu Morgunblaðsins um hvort niðurstað- an sé líkleg til að hafa áhrif á flugeld- anotkun um næstu áramót. Starfshópnum var gert að taka til skoðunar og gera tillögur um ,,hvort og þá með hvaða hætti eigi að tak- marka notkun flugelda og hvernig hægt sé að tryggja að það hafi sem minnst neikvæð áhrif á fjármögnun þeirra verkefna sem björgunarsveit- ir inna af hendi í þágu almanna- heilla.“ Átti hann m.a. að meta áhrif flugelda á loftgæði og aðra mengun. Tillögur starfshóps um flug- eldanotkun ekki fullbúnar  Liggi fyrir í nóvember  Óvíst hvort hafa áhrif um áramót Morgunblaðiðið/Árni Sæberg Flugeldar Óljóst er hvort stjórnvöld setji á takmarkanir fyrir áramót. Mjög lítil aukning varð á umferð ökutækja um þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgar- svæðinu í nýliðn- um mánuði eða 0,3%. Fram kem- ur í nýrri sam- antekt Vegagerð- arinnar að þessi litla aukning kemur í kjölfarið á lítilli aukningu í ágúst sem var 0,1% hærri. ,,Þessi aukning núna er í raun borin uppi af einu mælisniði ofan Ártúnsbrekku en aukningin þar reyndist vera 2,1%. 1,4% samdráttur varð í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi en engin aukning á mælisniði á Reykjanesbraut,“ segir í frétt Vega- gerðarinnar. Í ljós kom að umferðin yfir mæli- sniðin þrjú á höfuðborgarsvæðinu hef- ur nú aukist um 1,1% frá áramótum og er það nákvæmlega sama staða og var árið 2012, miðað við árstíma. Í sept- ember jókst umferðin mest á mánu- dögum eða um 0,8% en dróst mest saman á sunnudögum eða um 2,2%. Umferðin á bíllausa deginum 22. sept. var 3,1% undir meðalumferð sunnu- daga í mánuðinum. Umferðardeild Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir að umferðaraukning verði frá því að vera engin og upp í 1,5% í árslok. Lítil aukn- ing á um- ferðinni Umferð Hægt hef- ur á aukningunni.  Hægt hefur á vexti umferðar ökutækja Borgarstarfsmenn unnu að því að setja upp nýtt leiktæki, svokallaða jafnvægisslá, í Heið- mörk í fyrradag. Von er á því að mörg börn og jafnvel fullorðnir muni geta skemmt sér við jafnvægisæfingar í náttúrufegurð Heið- merkur áður en langt um líður. Jafnvægis- slárnar eru náttúrulegar á að líta, gerðar úr hráum trjábolum, og munu því seint skyggja á náttúruna. Settu upp nýtt leiktæki Morgunblaðið/Eggert Jafnvægisslár úr trjábolum nýjasta leiktækið í Heiðmörk

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.