Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 8

Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 8
Atli Fannar Franklín, nemandi í stærðfræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið viðurkenningu úr Verð- launasjóði Sigurðar Helgasonar pró- fessors fyrir frábæran náms- árangur, segir á vef HÍ. Verðlaunin nema 7.500 dollurum, eða jafnvirði um 900 þúsund króna. Atli Fannar hefur lokið tveimur námsárum við Háskóla Íslands og stefnir á að útskrifast næsta vor með BS-próf bæði í stærðfræði og tölv- unarfræði. Hefur hann lokið mörg- um erfiðum stærðfræðinámskeiðum með 10 í einkunn og tekið þátt í mörgum keppnum í stærðfræði, eðlisfræði og forritun. Stofnandi verðlaunasjóðsins er Sigurður Helgason, prófessor í stærðfræði við MIT í Boston frá árinu 1965. Eftir Sigurð liggja fjöl- margar bækur og vísindagreinar um stærðfræði. Hann hefur verið heiðursdoktor við Háskóla Íslands frá árinu 1986 og er heiðursfélagi Íslenska stærðfræðifélagsins. Fær verðlaun fyrir frábæran árangur  Koma úr sjóði Sigurðar Helgasonar Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Verðlaun Atli Fannar með verðlaunin, ásamt Jóni Atla Benediktssyni rekt- or og Ragnari Sigurðssyni og Freyju Hreinsdóttur frá stjórn sjóðsins. 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 Heiðrún Lind Marteinsdóttir,framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, ræðir veiðigjöld í pistli á vef samtakanna og bendir á að þau voru hækkuð með breytingum á lög- um í fyrra. Hún segir að borið hafi á því að staðhæft hafi verið að veiði- gjaldið hafi lækk- að með þessum aðgerðum, en það sé fjarri sanni.    Heiðrún bendir á hver áhrifinaf breytingunni hafi verið í krónum talið fyrir greinina: „Áætlað er að veiðigjald muni nema um sjö milljörðum króna á árinu. Samkvæmt fjárlaga- frumvarpi er gert ráð fyrir að gjaldið nemi einnig um sjö millj- örðum á næsta ári. Ef eldri lög um veiðigjald hefðu haldið gildi í stað þeirra breytinga sem urðu síðastliðinn vetur, hefði veiði- gjaldið orðið tveir og hálfur milljarður króna á yfirstandandi fiskveiðiári. Veiðigjald er því áætlað tæplega þrisvar sinnum hærra en það hefði orðið sam- kvæmt eldri lögum. Allt tal um að veiðigjald hafi verið lækkað vegna þeirra breytinga sem gerð- ar voru á lögum er því aug- ljóslega rangt.“    Þá nefnir hún að arðgreiðslur ísjávarútvegi hafi verið mun lægri en í atvinnulífinu í heild. Þannig hafi arðgreiðslur í sjávar- útvegi numið 27% af hagnaði, í atvinnulífinu að sjávarútvegi und- anskildum hafi þetta hlutfall ver- ið 40%.    Sjávarútvegurinn á í harðri al-þjóðlegri samkeppni og þarf ekki á því að halda – ekki frekar en aðrar útflutningsgreinar – að sæta sérstakri skattheimtu. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skattahækkun á skattpínda grein STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Minjastofnun hefur gert tillögu til mennta- og menningarmálaráðu- neytisins um að sumar- og veiðihús Ósvalds heitins Knudsens, Laxa- bakki í Öndverðarnesi í Grímsnesi, verði friðlýst. Húsið er illa farið, að hruni komið, en hefur eigi að síður mikið varðveislugildi að mati Minja- stofnunar. Núverandi eigandi Laxa- bakka, Íslenski bærinn ehf., áformar að endurbyggja húsið í upprunalegri mynd. Ósvaldur hannaði og smíðaði húsið í mynd íslensks torfbæjar með tveimur misháum burstum, torfi á þaki og hliðarveggjum hlöðnum úr hraunhellum. Stafnar eru klæddir með timbri. Við bakka Sogsins, skammt frá húsinu, eru leifar báta- skýlis með torfþekju sem er fallin. Samspil við umhverfið Minjastofnun telur að varðveislu- gildi Laxabakka felist ekki síst í samspili byggingarlistar við náttúru og umhverfi. Húsið sé sem samgróið landinu og falli einstaklega vel að staðháttum við Sogið. Í tillögu til friðlýsingar er áhersla lögð á að varðveita húsið á núverandi stað. Lagt er til við ráðuneytið að friðlýsingin taki til ytra borðs húss- ins, fastra innréttinga sem varðveist hafa, nánasta umhverfis hússins auk leifa af bátaskýli. helgi@mbl.is Tillaga um friðlýsingu Laxabakka  Minjastofnun telur að húsið hafi mikið varðveislugildi  Er að hruni komið Morgunblaðið/Sigurður Bogi Laxabakki Torfhúsið er illa farið. Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.