Morgunblaðið - 04.10.2019, Side 10

Morgunblaðið - 04.10.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 Garnaveiki, ekki riða Villa slæddist inn í fréttagrein um garnaveiki sem birtist á blaðsíðu 32 í blaðinu í gær. Sagt var að riðuveiki hefði greinst á tveimur bæjum fyrir austan í ár en þar átti að standa garnaveiki, eins og ljóst mátti vera af samhenginu. Beðist er velvirð- ingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Kvenfélagasamband Íslands efnir til umhverfisdags á Hallveigar- stöðum á morgun, laugardag, frá kl. 12-16. Þar munu kvenfélags- konur mæta og aðstoða gesti og gangandi við fataviðgerðir og einn- ig verður skiptimarkaður með föt á staðnum. Er umhverfisdagur nú haldinn í þriðja sinn. Fataskiptimarkaður Útreikningarnir ná einnig til meðalíbúðar í nágrannasveitarfélög- um höfuðborgarsvæðisins. Íbúðaverð þar hefur að meðaltali hækkað um- fram hækkanir á höfuðborgar- svæðinu frá árinu 2017 en mánaðar- leg afborgun af verðtryggðu láni staðið í stað vegna vaxtalækkana. Við það bætast launahækkanir og eru afborganir því lægri sem hlutfall af ráðstöfunartekjum en árið 2017. Vextir í Evrópu og Bandaríkjunum eru nú sögulega lágir sem birtist í því að ríkissjóður gat í sumar sem leið sótt sér evrulán á 0,1% vöxtum. Sterk staða þjóðarbúsins hefur sitt að segja í þessu efni en fjármögnun ríkissjóðs hefur áhrif á vaxtaþróun. Sögulega góðir tímar Elvar Orri Hreinsson, hagfræðing- ur hjá Greiningardeild Íslandsbanka, segir sjaldan eða aldrei hafa verið jafn hagstætt að taka íbúðalán. „Vaxtaumhverfið og aukin sam- keppni á markaðnum með innreið líf- eyrissjóða gera það að verkum að þetta eru sögulega góðir tímar fyrir neytendur hvað varðar vexti í land- inu,“ segir Elvar Orri. Ólíkt fyrri samdráttarskeiðum sé nú ekki kreppuverðbólga á Íslandi heldur svigrúm til vaxtalækkana. „Þótt efnahagsumsvif séu að drag- ast saman er það í mýflugumynd í sögulegu samhengi. Þetta er miklu grynnri efnahagslægð en við eigum að venjast,“ segir Elvar Orri. Þá bendir hann á að ekki sé hægt að bera saman lánamarkaðinn nú og fyrir efnahagshrunið. Í síðustu uppsveiflu hafi verið hægt að taka 100% íbúða- lán en nú sé lánshlutfallið hæst 85% hjá almennum lántökum. Næsta kastið séu meiri líkur en minni á enn frekari vaxtalækkunum. Aukið hlut- fallslegt vægi óverðtryggðra íbúða- lána geti aukið líkur á því að vaxta- lækkanir Seðlabankans skili sér í lægri íbúðalánavöxtum. Spurður hvort lántökukostnaður á Íslandi sé að nálgast hin norrænu löndin segir Elvar Orri vaxtakjörin aðeins einn af mörgum þáttum í heildarkostnaði við að eignast og reka húsnæði. Til dæmis sé húshitunar- kostnaður allt að 3,5 sinnum hærri annars staðar á Norðurlöndum. Það sé betri mælikvarði að miða við hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráð- stöfunartekjum. Á þann mælikvarða sé Ísland samkeppnishæft við hin norrænu löndin. Ari Skúlason, sérfræðingur hjá Landsbankanum, segir marga þætti hafa áhrif á kaupgetu almennings í húsnæði. Almennt megi þó fullyrða að vaxtaumhverfið á Íslandi sé hagstæð- ara en áður og horfur á jafnvel enn frekari vaxtalækkunum. Fjármagns- kostnaður sé því að lækka. Munurinn á Íslandi og hinum norrænu löndun- um sé að minnka hvað þetta varðar. Nálgast hin norrænu löndin „Við höfum verið með miklu hærra vaxtastig á Íslandi. Umræður um vaxtastigið hafa þó verið skrítnar. Það er lítið rætt um stærð íslenska fjármálakerfisins og álögur í banka- kerfinu. Þegar leiðrétt er fyrir þess- um þáttum hafa vaxtakjörin á Íslandi nálgast mikið kjörin annars staðar á Norðurlöndum,“ segir Ari. Hann segir raunverð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu hafa verið stöð- ugt í lengri tíma, eða um 60% hærra en 2011. Horfur séu á að nafnverð hækki í takt við verðbólgu á næsta ári þannig að raunverð verði stöðugt. Ef vextir lækki meira séu meiri lík- ur á að vextir óverðtryggðra íbúða- lána lækki meira en vextir verð- tryggðra lána. Íbúðalánin sjaldan hagstæðari  Vegna vaxtalækkana hefur afborgun af dæmigerðri íbúð lækkað þrátt fyrir verðhækkanir á húsnæði 6% 5% 4% 3% 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Verðtryggðir vextir íbúðalánaÓverðtryggðir vextir íbúðalána Lægstu skráðu breytilegu vextir óverðtryggðra íbúðalána frá 21. mars 2010 til 21. sept. 2019 Lægstu skráðu fastir vextir verðtryggðra íbúðalána frá 21. mars 2010 til 21. sept. 2019 9% 8% 7% 6% 5% 4% 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 10 daga tölur nema fyrir lífeyrissjóði sem eru mánaðarlegar. Heimildir: Seðlabanki Íslands. *Meðaltal vaxta hjá Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka. Engin gögn fyrir Arion banka fyrir 1.12. 2013 nema frá 11.2.-1.5. 2011 . **Meðaltal vaxta Gildis lsj., Lífsverks og Lsj. starfsm. ríkisins. Meðalvextir viðskiptabankanna* Meðalvextir lífeyrissjóða** Vextir Íbúðalánasjóðs*** Meðalvextir viðskiptabankanna* Meðalvextir lífeyrissjóða** *Meðaltal vaxta hjá Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka.**Meðaltal vaxta Almenna lsj., Festu lsj., Frjálsa lsj., Gildis lsj., Lífsverks, Lsj. starfsm. ríkisins, Lsj. v erslunarmanna, Stapa lsj. og Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. ***Vextir Íbúðalánasjóðs miðast við verðtryggða vexti íbúðalána með uppgreiðsluþóknun frá og með desember 2005, en án upp- greiðsluþóknunar fyrir þann tíma. 10 daga tölur nema fyrir lífeyrissjóði sem eru mánaðarlegar. Heimildir: Íbúðalánasjóður, Seðlabanki Íslands. Íslandsbanki og Landsbanki Íslands Arion banki og Íslandsbanki 1. mars 2015 Frá 1. des. 2013: Arion banki, Íslandsbanki og Landsbanki Íslands Frá 1. mars 2013: Arion banki, Íslandsbanki og Landsbanki Íslands 5,77% 5,50% 4,20% 3,52% 3,23% 5,24% 4,50% 8,25% 5,49% Húsnæðisverð og greiðslubyrði húsnæðislána 2010-2019 24,7 16,6 37,7 23,1 38,8 25,9 2010 2017 2019 2010 2017 2019 Höfuðborgarsvæðið Nágrannasveitarfélög höfuðborgarsv.*** Húsnæðisverð, milljónir kr.* Húsnæðislán, 70% af kaupverði húsn. Greiðslubyrði, þús. kr. á mánuði:** Óverðtryggt lán Verðtryggt lán *Meðalraunverð á u.þ.b. 80 m2 íbúð í fjölbýli byggðri á árunum 1985-2000 á núvirði skv. vísitölu neysluverðs. **Mánaðarleg greiðsla af 25 ára láni á lægstu breytilegum vöxtum, óverðtryggðum og verðtryggðum (miðað við 3% verðbólgu yfir lánstímann). ***Suðurnes, Akranes, Ölfushreppur, Hveragerði og Selfoss. Heimild: Íbúðalánasjóður. 102 164 162 69 101 84 127 137 127 85 84 108 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vegna vaxtalækkana hefur mánaðar- leg afborgun af dæmigerðu íbúðaláni lækkað um rúmar 10 þúsund á mán- uði frá 2017. Miðað er við 70% láns- fjárhlutfall af 80 fermetra íbúð í fjöl- býli á höfuðborgarsvæðinu sem kostar 38,8 milljónir króna. Lánið er verðtryggt og til 25 ára. Þetta kemur fram í útreikningum Guðmundar Sigfinnssonar, hagfræð- ings hjá Íbúðalánasjóði, fyrir Morg- unblaðið. Hann segir aðspurður að samhliða betri vaxtakjörum hafi laun á Íslandi hækkað að meðaltali um 16,7% frá byrjun árs 2017. Þá hafi kaupmáttur launa á Íslandi aukist yfir sama tímabil um 8,4%. Miðað við lægstu vexti Útreikningar Guðmundar eru hér endurgerðir í töflu. Miðað er við lægstu vexti sem eru í boði á verð- tryggðum og óverðtryggðum lánum. Eins og sjá má hefur íbúðaverð hækkað mikið frá árinu 2010. Árið 2017 er hér líka valið til samanburðar vegna þess að það var þensluár og af því að vextir hafa síðan lækkað. Opið virka daga kl. 11-18, laugard. kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 Fallegar jakkapeysur, slæður, töskur LISTHÚSINU TAUBLEIUBÚÐIN ÞÍN Kíktu á netverslun okkar bambus.is Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.