Morgunblaðið - 04.10.2019, Qupperneq 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019
✝ Anna Ragn-heiður Guðna-
dóttir fæddist í
Vestmannaeyjum
25. janúar 1942.
Hún lést á Land-
spítalanum 27.
september 2019.
Hún var dóttir
hjónanna Mar-
grétar Halldórs-
dóttur, f. 22. júlí
1904, d. 8. maí
1990, og Guðna Pálssonar, f. 18.
maí 1894, d. 6. september 1959.
Tveggja ára gömul fluttist hún
með foreldrum sínum að Hverf-
isgötu í Hafnarfirði þar sem þau
bjuggu í þrjú ár eða þar til þau
fluttu á Vitastíg 9 í sama bæ og
var það heimili Önnu þar til hún
hóf búskap með eiginmanni sín-
um árið 1967.
Anna var einkabarn foreldra
sinna en fyrir átti Guðni dæt-
urnar Guðfinnu og Theódóru
1981. Þeirra börn: Logi, f. 2008,
Auður Alice, f. 2012, og Jón Úlf-
ur, f. 2017. c) Íris Ásmundar-
dóttir, f. 2000. 2) Kristrún, f. 29.
október 1967, maki Stefán Rafn
Stefánsson, f. 12. nóvember
1964. Börn: a) Birgir Rafn Stef-
ánsson, f. 1994. b) Andri Rafn
Stefánsson, f. 1999. c) Guðný
Björk Stefánsdóttir, f. 2001. 3)
Guðni, f. 6. janúar 1971, maki
Guðrún Elísa Þorkelsdóttir, f. 7.
september 1968. Börn Guðna frá
fyrra hjónabandi: a) Jason
Guðnason, f. 1998. b) Anna
Ragnheiður Guðnadóttir, f.
2001. c) Viktor Darri Guðnason,
f. 2003. Börn Elísu frá fyrra
hjónabandi: a) Garðar Þór Pét-
ursson, f. 1995. b) Ísak Péturs-
son, f. 1998. c) Hafrún Sigríður
Pétursdóttir, f. 2004.
Anna vann hin ýmsu störf á
lífsleiðinni en lengst af og til
starfsloka við umönnun á deild-
um og aðstoð við sjúkraþjálfun á
Elli- og hjúkrunarheimilinu Sól-
vangi í Hafnarfirði þar sem
mannkostir hennar nýttust vel.
Útför Önnu Ragnheiðar fer
fram frá Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði í dag, 4. október 2019,
klukkan 15.
sem báðar eru látn-
ar.
Hinn 1. desem-
ber 1966 giftist
Anna eftirlifandi
eiginmanni sínum
Birgi Eyjólfssyni, f.
27. apríl 1940, son-
ur Kristrúnar Ís-
leifsdóttur, f. 25.
júní 1909, d. 27.
mars 1997, og Eyj-
ólfs Ólafssonar, f.
24. apríl 1915, d. 17. apríl 2015.
Saman áttu þau og ólu upp
börnin sín þrjú þau: 1) Margréti
Alice, f. 10. október 1960, maki
Ásmundur Jónsson, f. 3. desem-
ber 1967. Börn: a) Anna Hlín
Gunnarsdóttir, f. 1982, maki
Fróði Steingrímsson, f. 1980.
Þeirra börn: Finnur, f. 2010,
Stella Margrét, f. 2015, og
Stormur Freyr, f. 2017. b)
Thelma Gunnarsdóttir, f. 1984,
sambýlismaður Jón Óskarsson, f.
„Sannleikurinn finnst ekki í bókum –
ekki einu sinni í góðum bókum, heldur í
fólki sem hefur gott hjartalag.“
(Halldór Laxness)
Þessi orð Nóbelskáldsins eiga
vel við þegar minnst er elsku
tengdamóður minnar Önnu
Ragnheiðar Guðnadóttur sem
kvaddi þennan heim svo skyndi-
lega hinn 27. september síðastlið-
inn.
Fáum manneskjum hef ég
kynnst á lífsleiðinni sem svo heið-
arlega, áreynslulaust og einlæg-
lega opnaði faðm sinn og hjarta
þeim sem næst henni stóðu. Æv-
inlega tilbúin að rétta hjálpar-
hönd svo óendanlega óspör á að
sýna umhyggju, alúð og hlýju.
Það fékk ég svo sannarlega að
reyna. Frá fyrsta degi tók hún
mér og börnunum mínum opnum
örmum með fangið fullt af vin-
semd, skilningi og ástúð. Það
verð ég ævinlega þakklát fyrir.
Það voru forréttindi að fá að
kynnast Önnu og öllum hennar
mannkostum. Með innsæi sínu,
umburðarlyndi, æðruleysi og
næmi fyrir samferðafólki hefur
hún að mörgu leyti breytt gild-
ismati mínu og ég held að það sé
ekki ofsagt að kynnin við hana
hafi gert mig að betri manneskju.
Fjölskyldan var henni allt og
hún lagði mikið upp úr því að hafa
fólkið sitt nærri sér. Ævinlega
vakin og sofin yfir velferð þeirra,
gætti vel að hverjum og einum
með hvatningu, hrósi og kærleika
að leiðarljósi.
Hún hafði yndislega nærveru,
sýndi samferðafólki sínu mikinn
áhuga, var ræðin og sagði
skemmtilega frá.
Það var alltaf gott að koma til
hennar og Bigga á Norðurbakk-
ann þar sem boðið var upp á sam-
bland af hlýju, góðu spjalli,
ógleymanlegum skemmtisögum,
nærandi og uppbyggilegum sam-
ræðum ásamt vingarnlegum
ábendingum, óendanlegri um-
hyggju, hressandi kaffisopa og
góðu meðlæti.
Anna hafði hárbeittan „húm-
or“ svo stundum þótti sumum
nóg um. Hún var hrein og bein, lá
ekki á skoðunum sínum og talaði
tæpitungulaust ef því var að
skipta.
Í mörg ár vann hún við umönn-
un á Sólvangi og þegar hún rifjaði
upp þann tíma mátti glöggt heyra
hversu mikla umhyggju hún bar
fyrir skjólstæðingum sínum. Þar
hafa eðlislægir eiginleikar henn-
ar notið sín vel.
Hún var einstaklega skilnings-
rík og umburðarlynd gagnvart
fólki sem hefur orðið undir í lífs-
baráttunni og var snillingur í að
sjá það góða í hverjum og einum.
Það haustar og fagrir haustlit-
ir klæða heiðar og fjöll. En það
haustaði allt of snemma í lífi elsku
Önnu okkar og ástvinir hefðu svo
mikið viljað njóta samvista við
hana svo miklu, miklu lengur.
Margir eiga um sárt að binda
enda er stórbrotin kona, sem var
elskuð af svo mörgum að kveðja
þessa jarðvist.
Hún hefur snert líf margra
með elsku sinni og manngæsku
og mun minning hennar lifa um
ókomna tíð í börnum hennar,
barnabörnum, barnabarnabörn-
um og eins í hjörtum okkar hinna.
Yndislega Anna, þar til að við
hittumst aftur megi Guð geyma
þig
Þín tengdadóttir
Elísa.
Elsku amma.
Það er svo stutt síðan ég sagði
þér að þú værir uppáhalds amm-
an mín. Þú sagðir að það væri af
því að ég ætti bara eina. Ég svar-
aði að þó svo að ég ætti hundrað
værirðu samt uppáhalds. Það er
svo sárt að kveðja þig svona
snemma, elsku amma. Mínar
uppáhalds minningar frá því í
æsku eru óteljandi margar frá
Erluhrauni 4. Allt drullumallið í
þvottahúsinu, allar pönnukök-
urnar sem sumar enduðu á
hausnum á þér, allt blótið sem ég
lærði af þér en var of huglaus til
að hafa eftir þér, allar sögurnar
um Jóa Pétur sem þú spannst svo
hratt að það var eins og hann
væri til. Við systurnar fengum oft
að gista og þegar lætin voru sem
mest í okkur kom og afi og sagði
að ef við færum ekki að sofa
myndi hann senda „sýsla“ inn til
okkar. Við vorum pínu stressaðar
en samt alveg jafn spenntar að fá
þig inn því þú varst alltaf jafn góð
við okkur. Við fengum okkar eig-
ið pláss í gróðurhúsinu en næst
Anna Ragnheiður
Guðnadóttir
✝ Kristmar Arn-kelsson fæddist
í Ólafsvík 19. febr-
úar 1943. Hann lést
á nýrnadeild Land-
spítalans við Hring-
braut 20. septem-
ber 2019.
Foreldrar hans
voru Aðalheiður Jó-
hannsdóttir frá
Fagurhól, Ólafsvík,
f. 27. apríl 1917, d.
4. október 1971, og Arnkell Jón-
as Einarsson frá Reykjavík, f.
15. október 1920, d. 7. mars
1985. Hálfsystir Kristmars sam-
mæðra er Hlíf Björk Sigurð-
ardóttir, f. 25. desember 1945.
Eiginmaður hennar er Árni
Ólafur Sigurðsson. Þau eru bú-
Kristmar ólst upp hjá móður
sinni og afa í Fagurhól í Ólafs-
vík. Þegar hann var í kringum
tvítugt flutti hann í Brúarholt 8 í
Ólafsvík og bjó þar allt sitt líf.
Kristmar byrjaði ungur að árum
að vinna við ýmis störf í landi.
Þar má nefna sem vörubílstjóri,
rútubílstjóri, vöruflutningabíl-
stjóri, veghefilsstjóri og lög-
reglumaður. Einnig vann hann
sem handflakari í fiskvinnslu.
Tónlist lék stórt hlutverk í lífi
hans og var hann meðal annars
meðlimur í hljómsveitinni Ómó
frá Ólafsvík þar sem hann spil-
aði á saxófón.
Útför Kristmars fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju í dag, 4. októ-
ber 2019, og hefst hún klukkan
14.
sett á Skagaströnd.
Hinn 15. nóvember
1980 kvæntist Krist-
mar Þórdísi Ingi-
björgu Ólafsdóttur.
Foreldrar hennar
voru Ólafur Bjarni
Ólafsson, f. 27. mars
1911, d. 9. ágúst 1979,
og María Þorbjörg
Maríasdóttir, f. 17.
maí 1914, d. 4. októ-
ber 1989. Þau skildu.
Þau eignuðust eina dóttur, Að-
alheiði Jóhönnu, f. 6. ágúst 1980.
Börn hennar eru: a) Ísmael Krist-
mar, f. 30. september 2008, b)
Sara Rakel, f. 18. september 2011,
c) Lilya Þórdís, f. 4. janúar 2015,
d) Adam Þór, f. 22. júlí 2016. Þau
eru búsett í Frakklandi.
Elsku pabbi minn.
Þau verða mér þung sporin
sem ég tek í dag þegar ég fylgi
þér síðasta spölinn. Það er stórt
skarð höggvið í litla fjölskyldu
þegar svo mikilvægur hlekkur
fellur frá. Nú er komið að kveðju-
stund og mikið er það sárt.
Með hjálp nútímatækni gastu
tekið virkan þátt í okkar daglega
fjölskyldulífi úti í Frakklandi
sem gerði fjarlægðina bærilegri.
Það var hringt á hverjum degi,
stundum oftar, sungið með
börnunum, glaðst saman í af-
mælum og á jólum, svo ef eitt-
hvað bilaði hringdi maður í
pabba og þá var málunum redd-
að gegnum skype.
Síðustu vikurnar þínar voru
erfiðar. Það var ekki auðvelt að
horfa upp á pabba sinn svona
mikið veikan en huggun að vita
að við vorum öll sameinuð í síð-
asta sinn og barnabörnin gátu
knúsað þig og kysst enda brostir
þú eins og sól í heiði í hvert sinn
sem þau gengu inn í sjúkrastof-
una til þín. Það er yndislegt að sjá
að svo litlar verur geti glatt
mannshjartað eins og raun er en
alltaf gast þú brosað og glaðst yf-
ir að sjá andlit þeirra þrátt fyrir
að þróttur þinn leyfði vart meira.
Þú átt nú helling í yngsta barna-
barninu þínu honum Adam Þór,
og hafðir þú lúmskt gaman af því
að fylgjast með honum svipta öllu
upp eins og ekkert væri og sagðir
svo: „Ætlar þú að vera sterkur
eins og afi?“
Heljarmenni varst þú að burð-
um þegar þú varst upp á þitt
besta. Fórst nú létt með Full-
sterk og Húsafells-helluna. Gerð-
ir bestu kjötsúpuna og heita
kakóið þitt var nú frægt en eng-
um hefur tekist að útbúa það eins
gott og þú.
Elsku pabbi og afi, þú munt
lifa í minningum okkar að eilífu
og aldrei gleymast. Ég kveð þig
nú í hinsta sinn en veit að við
sjáumst aftur.
Þar sem jökulinn ber við loft
hættir landið að vera jarðneskt
en jörðin fær hlutdeild í himninum
þar búa ekki framar neinar sorgir
og þessvegna er gleðin ekki
nauðsynleg
þar ríkir fegurðin ein
ofar hverri kröfu.
(Halldór Laxness)
Þín dóttir,
Aðalheiður Jóhanna.
Nú er komið að kveðjustund,
elsku Kristmar.
Okkur langar í nokkrum orð-
um, elsku bróðir og mágur, að
minnast þín. Það var alltaf gaman
að vera í kringum þig, þú hafðir
einstakt minni og mundir eftir
ótrúlegustu atburðum á lífsleið-
inni. Við sitjum hér og skrifum
um þær góðu stundir sem við átt-
um saman, sem voru því miður
allt of fáar. Ástæðan kannski þar
að það var langt á milli okkar, þú í
Ólafsvík og við á Skagaströnd.
Við höfðum reglulega samband
við þig í síma og spjölluðum þá
æði lengi saman. Það var dýr-
mætt að heyra þig ræða um elsku
Aðalheiði dóttur þína og litlu afa-
gullin þín sem búa í Frakklandi,
en hugur þinn var alltaf þar alla
tíð. Það hafa verið erfiðir tímar
hjá þér undanfarið vegna veik-
inda og átakanlegt var að hitta
þig þá en jafnframt ánægjulegt.
Alltaf höfðum við trú á því að þú
myndir koma til baka á einn eða
annan hátt.
En við vonum sannarlega að
þú hvílir nú á betri stað eftir að
þú yfirgafst þetta líf.
Elsku Aðalheiður Jóhanna,
Ísmael Kristmar, Sara Rakel, Li-
lya Þórdís og Adam Þór.
Við vottum ykkur öllum okkar
dýpstu samúð og vonum að Guð
gefi ykkur styrk á þessum erfiðu
tímum.
Megi Guð geyma þig, elsku
Kristmar okkar.
Hlíf og Árni.
Elsku Kristmar frændi.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku Aðalheiður Jóhanna,
Ísmael Kristmar, Sara Rakel, Li-
lya Þórdís og Adam Þór.
Við systir vottum ykkur öllum
okkar innilega samúð á þessum
erfiðu stundum.
Aðalheiður Sif, Halla Kristín
og Elva Dröfn.
Minningarnar birtast hver af
annarri þegar ég rifja upp sam-
skiptin við æskuvin minn Krist-
mar Arnkelsson frá Fagurhóli í
Ólafsvík. Hann gerði ekki víð-
reist og var ekki mikið fyrir að
fara að heiman til starfa eða dval-
ar og hann átti alla tíð heimili í
fæðingarbænum sem var honum
mjög kær og hann bar samfélagið
í Ólafsvík mjög fyrir brjósti. Á
æskuárum Kristmars var leik-
svæði okkar krakkanna í þorpinu
fjaran og höfnin, Gilið og farveg-
ur þess, Kotlækurinn, Tvísteina-
hlíðin og Stekkjarinn þar sem var
róið á heimasmíðum kajökum í
sumarblíðunni eða stigið á skauta
þegar færi gafst að vetri. At-
hafnasvæði okkar var einnig á
túnunum í námunda við Kot þar
sem fjölskylda Kristmars reisti
sér síðar myndarlegt hús og þar
átti hann sitt heimili. Það var gott
að eiga Kristmar að vini svo hæg-
látur og traustur sem hann var
jafnt á unglingsárunum sem þá
er hann var orðinn fullorðinn.
Allt sem Kristmar tók sér fyrir
hendur var framkvæmt af yfir-
vegun, fyrirhyggju og það var
ekki flanað að hlutunum.
Starfsferill hans mótaðist af
umhverfinu og þeirri staðreynd
að hann hóf mjög ungur að vinna
fulla vinnu og sjá fyrir sér sjálfur.
Og það lá þá beint við að hefja
störf í fiskvinnslu í þorpinu þar
sem allt snérist um sjávar-
útveginn. Síðar gerðist hann bif-
reiðarstjóri og hann rak eigin
vörubifreið um árabil. Þá vann
hann við akstur hjá öðrum og
starfaði sem vélamaður hjá Vega-
gerðinni. Kristmar hafði mikinn
áhuga á tónlist. Saxófónn var
uppáhaldshljóðfærið og hann
lagði rækt við að ná tökum á
saxófónleik og kynnti sér tónlist
þar sem blásturshljóðfæri komu
við sögu. Um tíma lá leið okkar
saman í hljómsveitunum ÓMÓ og
Þyrnum sem léku fyrir dansi á
Snæfellsnesi og Dölum. Við nut-
um mjög þeirrar vináttu sem
skapaðist á hljómsveitarárunum.
Hljómsveitin hafði æfingarað-
stöðu í skólanum en einnig á
heimili foreldra minna í Borgar-
túni í Ólafsvík. Þar voru stofurn-
ar lagðar undir æfingar á lögum
Bítlanna, Shadows, Kinks og tón-
list sem hentaði fyrir gömlu
dansana sem voru stundaðir á öll-
um dansleikjum á þeim tíma.
Voru margar ferðir farnar til að
leika á sveitaböllum svo sem á
Breiðabliki, Görðum, Arnarstapa
að Staðarfelli í Dölum og í Dala-
búð, en oftast var spilað í Röst-
inni Hellissandi og Samkomuhús-
inu í Ólafsvík. Þegar hluti
hljóðfæraleikaranna fór að heim-
an til skólagöngu í höfuðborginni
var þeirri skemmtilegu iðju að
spila á dansleikjum hætt. Sá
ánægjulegi og eftirminnilegi tími
var jafnan rifjaður upp þegar við
Kristmar hittumst.
Hestmennska og hrossarækt
var mikið áhugamál hjá Krist-
mari. Þar lágu leiðir okkar saman
í hestamennsku og mótahaldi á
Kaldármelum í Kolbeinsstaða-
hreppi þegar stórmót Hesta-
mannafélagsins Snæfellings voru
haldin með miklum tilþrifum.
Samskipti okkar Kristmars hafa
ekki verið mikil hin síðari ár en
það gladdi okkur Kristmar báða
að dætur okkar tengdust vina-
böndum þegar þær dvöldu sam-
tímis við nám og störf í Montpel-
lier í Frakklandi fyrir nokkrum
árum. Að leiðarlokum vil ég
minnast Kristmars vinar míns
með virðingu og þökk og sendi
Aðalheiði dóttur hans og fjöl-
skyldu samúðarkveðjur. Blessuð
Kristmar Arnkelsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR ÞORLEIFSSON
símaverkstjóri,
Einbúablá 44,
Egilsstöðum,
lést á Landspítalanum mánudaginn
30. september eftir stutt veikindi.
Kári Hólm
Þórleifur Hólm
Guðríður Björg
Guðmundur Hólm
Stefán Bjarnar
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
DR. HALLDÓR I. ELÍASSON
stærðfræðingur,
prófessor emerítus
við Háskóla Íslands,
lést á Landspítalanum 1. október.
Jarðarför auglýst síðar.
Björg Cortes Stefánsdóttir
Stefán V. Halldórsson
Anna Margrét Halldórsdóttir Haraldur Darri Þorvaldsson
Steinar Ingimar Halldórsson Xue Li
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
BARBRO S. ÞÓRÐARSON
lyfjafræðingur,
lést þriðjudaginn 1. október á Hrafnistu
Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði fimmtudaginn 10. október klukkan 15.
Blóm og kransar afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Gigtarfélag Íslands.
Tryggvi V. Traustason Kristín Þorvaldsdóttir
Ásta M. Traustadóttir Óskar Sveinsson
Íris Ó. Tryggvadóttir Anton Ström
Helena R. Tryggvadóttir Hlynur G. Inguson