Morgunblaðið - 04.10.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 04.10.2019, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 ✝ Birna Ásgerð-ur Björnsdóttir fæddist á Ísafirði 14. ágúst 1926. Hún lést 29. september 2019 á hjúkrunar- heimilinu Eir, þar sem hún hafði dval- ist frá árinu 2013. Foreldrar henn- ar voru Þórkatla Þorkelsdóttir, f. á Alviðru í Dýrafirði 1. mars 1885, d. 23. ágúst 1975, dóttir Þorkels Árnasonar frá Dýrafirði og Guðfinnu Jóns- dóttur, og Björn Friðfinnsson sjómaður á Ísafirði, f. á Atl- astöðum í Svarfaðardal 26. febr- úar 1888, d. 28. ágúst 1926, son- ur Friðfinns Jónssonar bónda á Atlastöðum í Svarfaðardal og Guðrúnar Björnsdóttur. Al- systkini Birnu voru Guðrún Sal- vör Björnsdóttir Poulsen, f. 1914, Haraldur Ágúst Björns- son, f. 1915 er varð úti við Siglu- fjörð 4. nóvember 1935, Guð- björg Páley Björnsdóttir Smith, f. 1917, og Sigríður Björnsdóttir Proppé, f. 1921. Sammæðra voru Henrý Alexander Hálfdán- arson, f. 1904, og Þórhildur María Hálfdanardóttir, f. 1907. og Ösp, f. 2. desember 2011. 2) Pétur, f. 25. ágúst 1960, d. 12. ágúst 1987. Eftir lát föður Birnu nokkr- um dögum eftir fæðingu hennar voru þrjú systkini Birnu sett í fóstur en Birna bjó áfram með móður sinni og Guðrúnu elstu systur sinni. Fyrstu árin bjuggu þær á Ísafirði og síðan í Djúpu- vík og á Siglufirði. Sjö ára flutti hún með móður sinni til Reykja- víkur og gekk þar í Miðbæj- arskólann. Þá fluttist hún með móður sinni á Sumarliðabæ í Rangárvallasýslu og var í far- skóla þar næstu þrjú árin. Hún fluttist aftur til Reykjavíkur og lauk grunnskólaprófi þar og settist síðan í Kvennaskólann í Reykjavík. Eftir nám vann hún á Landsímanum á langlínumið- stöðinni þar til hún fór í hús- mæðraskóla í Valdres í Noregi 1946 og dvaldi þar í eitt ár. Þau Pétur Pálsson dvöldu í Montreal í Kanada í fimm ár þar sem Pét- ur menntaði sig í verkfræði og hún starfaði hjá kanadíska lyfjafyrirtækinu Hornes Ltd. Eftir heimkomuna settust þau að í Reykjavík. Hún starfaði lengst af við heimilisstörf, en fór út á vinnumarkaðinn á miðjum aldri, þá fyrst á skrif- stofu Bananasölunnar og síðan á sambýli fyrir þroskahefta í Drekavogi. Útför Birnu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 4. október 2019, klukkan 15. Birna giftist 7. ágúst 1948 Pétri Pálssyni, f. 5. apríl 1926, d. 26. janúar 2007. Foreldrar hans voru Þórunn Sigríður Péturs- dóttir húsfreyja, f. 28. febrúar 1902, d. 29. október 1987, dóttir Péturs Þor- steinssonar, prests í Eydölum í Breið- dal og Hlífar Bogadóttur Smith, og Páll Magnússon, lögfræð- ingur í Reykjavík, f. 27. sept- ember 1891, d. 19. febrúar 1985, sonur Magnúsar Bl. Jóhanns- sonar, prests í Vallanesi á Fljótsdalshéraði og Ingibjargar Pétursdóttur Eggerz. Börn Birnu og Péturs eru: 1) Ingibjörg, f. í Reykjavík 1. jan- úar 1953. Sonur hennar og barnsföður hennar, Eriks Splitt- orff, er Björn Börkur, f. í Árós- um í Danmörku 16. júní 1979. Hann er í sambúð með Hrefnu Sif Gunnarsdóttur Lilliendahl, f. 29. júlí 1988. Dætur Björns Barkar og fv. sambýliskonu hans, Hrundar Guðmunds- dóttur, f. 20. desember 1979, eru Fura, f. 4. desember 2005, Ég kann enn þá nöfnin á öllum mánuðum ársins vegna þess að hún amma mín kenndi mér þá. Með fyrstu minningum mínum af henni ömmu þá sitjum við í heita pottinum inni í orkideuhaf- inu í gróðurhúsinu á Fjólugöt- unni. Ég sit í fanginu á henni og froðu-bubblurnar eru mannhæð- arháar. Afi sagaði nefnilega gat á útvegginn á húsinu og byggði innangengt glerhýsi við, fyllti það með suðrænum plöntum og setti upp viðar heitan pott og vatns- ræktunarkerfi, hvorttveggja örugglega það fyrsta sinnar teg- undar á Íslandi. Amma leyfði afa að hafa tróp- ísku plönturnar sínar í friði í loft- sagsstillta gróðurhúsakerfinu sínu, hennar ástríða var hins veg- ar garðurinn þar sem uppáhaldið var allir krókusarnir sem komu fyrstir og stoltið var bóndarós- irnar sem fengu ómælda umönn- un. Þar eyddi hún mörgum stundum og lítill þröstur elti klór- una hennar og hún gjuggaði að honum einum og einum ána- maðki. Ég var náttúrlega klifr- andi uppi í trjánum eins og apa- köttur í kringum hana – leikandi lausum hala en undir vakandi augum. Við vorum þarna á Fjólugöt- unni og á Laufásveginum fé- lagarnir, skólabræðurnir og frændurnir í hverfinu, það var alltaf mest kósí að vera uppi hjá henni í eldhúsinu með heitt kakó og kex – og á veturna passaði hún upp á að vera með nægan auka- búnað fyrir þá húfu- og vettlinga- lausu. Í sumarbústaðnum, þar sem við eyddum öllum helgum, öfugt við alla þá sem vildu halda mús- unum frá, laumaði hún ostbitum út á pall fyrir hagamýsnar sem vöndust á matargjafirnar frá henni og þurftu þá ekkert að leita inn. Ég man eftir henni með álft- irnar á Álftavatni í atferlisskoðun með kíkinum sínum eitt sumarið – og fylgdist þá með hvernig ein kvenálftin var lögð í einelti af hin- um kvensunum. Amma var alveg miður sín og við urðum auðvitað öll þátttakendur í þessu drama. Ég kveð hana elsku ömmu mína með sárum söknuði og þakka henni fyrir allt sem hún gaf mér og kenndi mér. Hún var lengi sú eina sem sá að ég var hneigður til sköpunar, hvatti mig oft og títt og hún á stóran þátt í því að ég hafði seinna kjark til að hætta snemma í menntaskóla og fara út í listnám. Börkur. Elsku Birna frænka okkar er látin, litla systir hennar mömmu. Birna og Pétur bjuggu lengi nálægt okkur og var mikill sam- gangur á milli systranna. Við systurnar dáðumst mikið að Birnu frænku, sem var alltaf svo falleg og fín. Hún var sannkölluð heimsdama og minnti helst á kvikmyndastjörnu. Eftir heim- komu frá Kanada kenndi hún mömmu að elda spennandi rétti og var spagettí með kjötsósu uppáhaldsrétturinn okkar lengi á eftir. Heimilið hennar og Péturs var einstaklega fallegt, búið flottum húsgögnum og listaverkum og sumarbústaðirnir glæsilegir og móttökurnar einstaklega hlýleg- ar. Hún var mjög góð við okkur systurnar og gátum við alltaf leit- að til hennar ef á þurfti að halda. Þegar mamma okkar fékk berkla og dvaldi á Reykjalundi kom Birna með Ingibjörgu og dvaldi hjá okkur sumarlangt. Takk, elsku Birna, fyrir mik- inn hlýhug í okkar garð. Elsku Ingibjörg, Börkur og dætur, við vottum ykkur innilega samúð. Katla, Hekla, Hrefna og Birna. Nútímakona og Reykjavíkur- mær, alltaf bjart bros og hlýtt viðmót. Birna Ásgerður var glaðleg, félagslynd og falleg kona. Glæsi- leg og létt á fæti, heimavinnandi, útivinnandi. Hún er órjúfanlegur hluti af fjölskylduheild, ein af mömmu- num. Færði okkur krakkahópn- um djús eða mjólk út í sólina, út á pall, út á tún, út í garð í marglit glös á bakka, bleik, fjólublá, gul – kannski hún hafi komið með þau frá Kanada? Kæfubrauð, kex eða súkkulaðikaka uppi í sumó eða í bænum. Stór súkkulaðikaka. Í minningunni er nýtískulegt og fallegt heimili, breiður rauður hægindastóll, eikarklæddur veggur, hornsófi úr einingum, einn svartur veggur. Segulbands- upptökutæki, plötuspilari og út- varpssamstæða Péturs frænda innfelld. Flott formað gult eldhúsborð með stálfæti, amerísk þvottavél, amerískur þurrkari. Nýinnréttuð risíbúð fyrir 1960. Þá og síðar, alltaf smekklegt og notalegt þar sem Birna réð ríkjum. Fallegur gróður og blóm en það sem meira var um vert, allir velkomnir. Það var sjálfsagt, sjálfsagður hluti af tilverunni að eiga góða að, að eiga skjól í þeirri miðju sem hverfðist um afa og ömmu á Laufásveginum, þar sem allir áttu leið um, þangað sem allir komu og voru mömmur, pabbar, frændur, frænkur, tengdadætur, tengdasynir, ömmusystur eða afabræður, spilafélagar, sauma- klúbbur, náskyldir eða fjarskyld- ir, nýlegir eða góðir gamlir vinir. En það var auðvitað bara tóm heppni. Heppin var ég þá og mín börn einnig síðar, Þorgrímur Darri og Ingibjörg Jara, að vera hluti af heildinni, að Birna var hluti af miðjunni, að Birna bjó í sama húsi, aðeins fjær eða í næsta húsi. Heppin að við áttum í Birnu og dýrmætt að hún vildi eiga hlut í okkur. Við þökkum henni allt það og sendum Ingibjörgu, Birni Berki og dætrum samúðarkveðjur. Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Birna Ásgerður Björnsdóttir ✝ GrímurHvammsfjörð Leifsson fæddist í Galtarvík, Skil- mannahreppi, 26. desember 1936. Hann lést á Land- spítalanum Foss- vogi 23. september 2019. Foreldrar hans voru Leifur Gríms- son, f. 1896, d. 1983, bóndi í Galtarvík, Skil- mannahreppi, og kona hans, Hólmfríður Sigurðardóttir hús- freyja, f. 1892, d. 1968. Grímur er yngstur sjö systk- ina en þau eru: Jóhannes, f. 1920, Ásgerður, f. 1921, d. 2018, Sigmundur, f. 1923, d. 1995, Sigurður, f. 1926, d. 2013, Ingiríður Helga, f. 1928, d. 2017, og Hákon, f. 1931, d. 1994. Grímur kvæntist Önnu Jepp- sen kennara, f. 4. maí 1939, d. Ágústsson. Börn þeirra eru Hrafnhildur Eyrún og Brímir Alexander. b) Ellen Rún. c) Arn- ór Gauti. Grímur ólst upp í Galtvarvík, Skilmannahreppi, þar til hann flutti til Reykjavíkur og hóf bú- skap með Önnu. Grímur lærði rafvirkjun hjá Sigurði bróður sínum. Að námi loknu, árið 1960, fluttu þau Anna til Húsa- víkur og stofnuðu þar Raftækja- vinnustofu Gríms & Árna með vinafólki sínu Árna Vilhjálms- syni rafvirkjameistara og Helgu Magnúsdóttur málarameistara. Bjuggu þau þar til 1985 en fluttu þá aftur til Reykjavíkur. Grímur var félagi í Frímúr- arareglunni og stofnfélagi Lionsklúbbs Húsavíkur ásamt Árna Vilhjálmssyni og Ásgeiri Höskuldssyni. Hann var virkur félagi í Lions-hreyfingunni allt til síðasta dags. Á þeim tíma sem Grímur og Anna bjuggu á Húsa- vík tóku þau bæði virkan þátt í starfi Leikfélags Húsavíkur. Útför Gríms fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, 4. október 2019, klukkan 13. 15. desember 2015, hinn 13. júní 1959. Börn Gríms og Önnu eru: 1) Emil, f. 8. apríl 1960. Maki Rikke Elkjær Knudsen. Börn þeirra eru Emma Soffía og Anna Björk. 2) Leifur, f. 26. maí 1962. Maki Elsa Hrönn Reyn- isdóttir. Börn þeirra eru: a) Matthías. Sam- býliskona Kristjana Kristjáns- dóttir. b) Anna Björg. Maki Kristinn Jóhann Lund. Börn þeirra eru Davíð Leó, Daníel Snær og Aníta Ruth. c) Stein- unn. d) María. e) Bjarki Már. Maki Unnur Ósk Steinþórs- dóttir. Barn þeirra er Valgerður Elsa. f) Tinna Karen. g) Thelma Lind. 3) Sigríður Sif, f. 19. febr- úar 1969. Maki Árni Arnórsson. Börn þeirra eru: a) Helena. Sambýlismaður Davíð Þór Pabbi, ég elska þig. Annað var ekki hægt. Þú lést þó stundum reyna vel á þá ást þegar maður var krakki því þú gast verið hel- víti harður og ákveðinn við okkur Emma bróður á sínum tíma. Gast verið „Óli Þórðar“ pabbanna, en þá samlíkingu skilja fótbolta- áhugamenn og þá sérstaklega Skagamenn. Ég veit að þú skilur ekkert hvað ég meina, þótt þú hafir alist upp í næsta nágrenni við Skag- ann, sem er jú heimavöllur fót- boltans. Fótboltinn var nefnilega ekkert fyrir þig. En af hverju nenntirðu samt ekki fótboltaiðk- un okkar bræðra? Eða bara íþróttaáhuga okkar almennt? Þú vissir ekki einu sinni að Völs- ungar spila í grænu! Það hefði nú ekki drepið þig að sýna smá áhuga. Já, eða sýna smá áhuga á einhverju öðru í okkar lífi en hvað við vorum lengi að skipta um kló! Ég held samt að þú hafir verið þokkalega stoltur af okkur og við staðið sæmilega undir kröfum þínum þrátt fyrir allt. Einhvern veginn fann maður það alltaf. Og þér að segja þá stóðst þú, þrátt fyrir þetta kvabb í mér núna, mínar kröfur til þín sem pabba og miklu meira en það. Ég var alltaf með þig á stalli. Þú varst algjör klettur og áreið- anlegasti maður sem til var. Ég var líka drullumontinn af þér. Þér gekk vel í því sem þú tókst þér fyrir hendur svo eftir var tekið og ég veit að þú reyndist mörgu fólki vel. Auðvitað skil ég betur núna að á mínum uppvaxtarárum hafðir þú kannski ekki mikinn tíma fyr- ir bolta og bull, þar sem þú varst að byggja upp fyrirtæki af mikl- um myndarbrag sem þú stofnað- ir með Árna Vill vini þínum. Svo þegar þú varst kominn yfir erf- iðasta hjallann þar þá gast þú allt í einu verið mjúki maðurinn sem Sif systir fékk svo að kynnast. Þótt ég geti ekki gefið þér 10 fyrir uppeldið verð ég samt að gefa þér toppeinkunn fyrir það veganesti sem þú gafst okkur krökkunum út í lífið. Þú vildir ekki heyra neitt væl og aum- ingjaskap og lagðir gríðarlega áherslu að maður „stæði sína plikt“ eins og þú orðaðir það. Reyndir að innprenta í okkur dugnað og ósérhlífni. Held að þú hefðir fílað Óla Þórðar. Þegar þið mamma fluttuð suð- ur sagðist þú ætla að taka það ró- lega og dunda þér eitthvað. Því trúði auðvitað enginn. Enda kom það á daginn að það var alltaf eitthvað í gangi. Hver man ekki eftir ljósalampaframleiðslunni, Greiðabílnum, farsímaleigunni, síldar- og rækjusölunni, sælgæt- isheildsölunni og ég veit ekki hvað. Þú varst einstaklega handlag- inn og gast alltaf lagað alla hluti. Það gat reyndar verið smá pirr- andi stundum. T.d. þegar mömmu langaði að endurnýja gamalt raftæki. Biluð brauðrist að morgni var klár að kvöldi. Elsku pabbi. Nú ertu kominn til Önnu þinnar, þangað sem þú hefur alltaf vilja vera. Þegar maður fór að eldast fór maður að taka betur eftir því hvað þið mamma voru flott hjón. Virðing- in ykkar á milli, sjálfstæði ykkar og það sást úr flugvél hvað þú varst alltaf skotinn í mömmu. Það er vel gert. Hún var líka óskaplega skotin í þér. Takk kærlega fyrir allt, elsku pabbi, og skilaðu kveðju til mömmu. Þið eruð best. Þinn sonur Leifur. Hann Grímur Frændi með stóru effi er farinn og Jói, sá elsti af sjö systkinum, er einn eftir. Grímur var yngstur og ég leit alltaf á hann sem stóra frænda minn, bæði í eiginlegri og óeig- inlegri merkingu. Þegar ég var að alast upp á Seyðisfirði ætlaði ég að vera eins stór og Grímur frændi, það tókst og ég varð mjög stoltur af því. Mér eru minnisstæðar ferðirnar frá Seyð- isfirði til Reykjavíkur vegna þess að það var alltaf komið við hjá Grími og Önnu á Húsavík og dvalið í einn til tvo daga í góðu yf- irlæti. Síðar meir þegar fjöl- skyldan flutti til Reykjavíkur var gott fyrir mig, stamandi sveita- strákinn, að komast undir vernd- arvæng Karls, bróður Önnu, sem var umsjónarkennari minn í barnaskóla. Grímur tengdist mér bæði í gegnum pabba og mömmu. Í gegnum pabba sem bróðir og í gegnum mömmu sem sonur systur ömmu, mömmu mömmu minnar, þannig að stóra effið á vel við. Síðustu árin bauð Grímur mér á þorrablót í Lions- klúbbnum sínum sem voru haldin um miðjan dag á laugardegi í Hörpunni og eftir það síðasta keyrði ég hann heim þar sem við sátum dágóða stund og spjölluð- um. Það var góð stund sem því miður verður ekki hægt að endurtaka. Ég mun sakna Gríms en ég á góðar minningar sem hægt verður að ylja sér við. Far- vel Frændi. Guðjón L. Sigurðsson. Grímur Leifsson  Fleiri minningargreinar um Grím Leifsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. Innilegar þakkir fyrir þá samúð og hlýju sem okkur hefur verið sýnd vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, GUNNARS ANDRÉSAR JÓHANNSSONAR, bónda og fyrrv. forstjóra, Árbæ, Holtum. Vigdís Þórarinsdóttir Grétar Þórarinn Gunnarsson Guðríður Sigurðardóttir Maríanna Gunnarsdóttir Ólafur Örn Ólafsson Gunnar Jóhann Gunnarsson Hafdís Svava Níelsdóttir og afabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ORRI HRAFNKELSSON húsasmíðameistari, lést fimmtudaginn 26. september. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 12. október klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Dyngju. Valgerður Valdimarsdóttir Árdís Dögg Orradóttir Finnbogi Gunnlaugsson Berglind Orradóttir Jóhann Þórsson Sóley Orradóttir Pétur Wilhelm Jónasson Þröstur Orrason Elín Ingibjörg Kristófersdóttir Fjóla Orradóttir Viðar Benjamínsson og barnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ val- inn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.