Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 ✝ Nanna GuðrúnZoëga fæddist 24. september 1951 í Reykjavík. Hún lést 30. september 2019 á Hjúkr- unarheimilinu Droplaugarstöðum. Foreldrar Nönnu Guðrúnar voru Sveinn Zoëga for- stjóri, f. 8. október 1913, d. 4. desem- ber 1989, og Guðrún Sigríður Jónsdóttir Zoëga húsfreyja, f. 8. janúar 1918, d. 5. febrúar 1995. Nanna giftist 11. desember 1971 Lárusi Johnsen Atlasyni, flugvélstjóra, f. 22. september 1951 í Reykjavík, en hann er son- ur hjónanna Atla Helgasonar skipstjóra, f. 7. júlí 1926, d. 18. september 2001, og Sifjar Ás- laugar Johnsen húsfreyju, f. 25. ágúst 1926, d. 12. maí 2006. Nanna Guðrún var yngst fjög- urra systkina: Hanna Sveins- dóttir Zoëga, f. 1939, húsfreyja í Kópavogi, d. 2015, Jón Gunnar Zoëga, f. 1943, hæstarétt- arlögmaður í Reykjavík, Anna Sigríður Zoëga, f. 1947, hjúkrunarfræðingur í Reykja- vík. Börn Nönnu Guðrúnar og Lárusar eru: 1) Una Marsibil, f. Jónsdóttur, börn þeirra eru: Dagur Kári, f. 25. ágúst 2013, og Nanna Sigrún, f. 30. maí 2016. Nanna Guðrún ólst upp í Reykja- vík og stundaði nám við Miðbæj- arskólann og Lindargötuskólann þar sem myndaðist vinkvenna- hópur sem hefur haldið hópinn til dagsins í dag. Nanna Guðrún lærði til hárgreiðslu og öðlaðist meistararéttindi. Síðar lauk hún stúdentsprófi frá Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ árið 1989. Nanna stundaði nám við guð- fræðideild Háskóla Íslands þar sem hún útskrifaðist sem guð- fræðingur BA og djákni. Nanna Guðrún vígðist til Garða- og Bessastaðasóknar sem djákni ár- ið 1995 og starfaði þar til margra ára. Nanna Guðrún tók virkan þátt í félagsstörfum, m.a. Djákna- félagi Íslands þar sem hún var formaður, Oddfellow-stúkunni Rbst.12 Barböru og Lions- klúbbnum Eik í Garðabæ. Nanna og Lárus hófu búskap vestur í Bandaríkjunum árið 1971, árið 1972 fluttu þau til Lúxemborgar en árið 1974 fluttu þau aftur heim til Íslands og keyptu sína fyrstu íbúð á Njáls- götu. Á árunum 1976 til 1986 voru þau oft langdvölum erlend- is, m.a. í Kenía og á Möltu. Árið 1982 flutti fjölskyldan í Garðabæ þar sem þau svo bjuggu til ársins 2017 en þá fluttu hjónin í Kópa- vog. Útför Nönnu Guðrúnar fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 4. október 2019, klukkan 15. 6. nóvember 1970, eiginmaður hennar er Þorsteinn Þór- steinsson, dætur þeirra eru Alex- andra Dís, f. 12. maí 1992, hennar sonur er Nóel Gunnar, f. 30. maí 2017,og Bergrós Lilja, f. 16. maí 1997, hennar sonur er Gunnar Steinn, f. 7. desem- ber 2018, 2) Atli Sveinn, f. 8. nóv- ember 1972, synir hans eru Matthías Breki, f. 3. nóvember 2004, og Ernir Lárus, f. 30. nóv- ember 2007. 3) Kristinn Ingi, f. 19. desember 1973, kvæntur Ingibjörgu Þormar Sigfúsdótt- ur, börn þeirra eru: Kristófer Ingi, f. 7. apríl 1999, Arnór Ingi, f. 23. júní 2001, og Sigríður Svava, f. 26. desember 2005. 3) Lárus Helgi, f. 29. maí 1978, kvæntur Maríu Stefaníu Dal- berg, sonur þeirra er Hilmar Andri, f. 18. desember 2006. 4) Sigurjón Örn, f. 2. júlí 1981, kvæntur Berglindi Þórðar- dóttur, börn þeirra eru: Anna Sif, f. 25. ágúst 2007, Heimir Halldór, f. 24. júní 2009, og Rún- ar Örn, f. 5. nóvember 2013. 5) Guðjón Hrafn, f. 2. júlí 1981, í sambúð með Önnu Friðrikku Elsku Nanna mín, núna ertu loksins búin að fá kærkomna hvíld eftir erfið síðustu ár. Ég er lánsöm að hafa kynnst þér. Þú varst svo hjartahlý, alltaf með opinn faðm og alltaf hægt að leita til þín. Þú varst alltaf tilbúin í að að- stoða við hvaða verkefni sem var, sauma kjóla, baka púður- sykurköku, þrífa heimili manns eða vera með barnabörnin þín. Það var einstakt að vera í kringum þig, kærleikurinn var alltaf til staðar og samband þitt við syni þína endurspeglar það og var það alveg einstakt. Það sem þú varst þakklát fyrir að fá nöfnu, litla ömmu gullið hana Nönnu Sigrúnu. Allt fram á síð- ustu stundu sá maður gleðina í andliti þínu þegar Nanna Sigrún og Dagur Kári komu í heimsókn til þín. Við eigum eftir að geyma allar fallegu minningarnar í hjörtum okkar og munum ávallt sakna þín. Takk fyrir allt elsku, Nanna mín. Anna Friðrikka Jónsdóttir. Elskuleg vinkona hefur kvatt jarðvistina eftir harða raun í sjúkdómsbaráttu sem braut hana niður á fáum árum. Við höf- um átt gjöfular gæðastundir saman bæði á heimilum okkar, í ferðalögum, félagsstarfi og á vettvangi kirkjunnar. Allir mættu mildi og hlýju viðmóti og ómældum kærleika í þessari ein- stöku konu sem Nanna Guðrún var. Nanna Guðrún starfaði sem djákni í Vídalínskirkju og ann- aðist starf meðal eldri borgara. Áberandi var að þeim þótti vænt um hana og löngu eftir að hún lét af störfum spurðist fólk fyrir um hana, fólk sem hún hafði starfað fyrir eða stutt með öflugri kær- leiksþjónustu sinni. Nanna var fundvís á ýmsar lausnir og naut sín vel í safn- aðarstarfinu og fór vel með öll sín verk í kirkjunni. Augljóst var að hún átti náið kærleikssamband við syni sína og fjölskyldu, sem hún studdi og hvatti með ráðum og dáð. Hlýjan í samskiptunum var augljós og snart strengi í hjartanu. Einnig var hún gestrisin og gamansöm. Við hjónin sendum Lárusi og fjölskyldunni allri innilegar sam- úðarkveðjur og þakkir fyrir gæðastundir og vináttu og biðj- um þann sem öllu ræður að vaka yfir og allt um kring. Anna Nilsdóttir. Horfin er okkur langt um ald- ur fram eftir erfið veikindi Nanna Guðrún frænka mín. Við áttum mikið saman að sælda sem börn. Árið 1930 reisti Jón Brynj- ólfsson afi okkar, sem fæddur var á Hreðavatni 1865, sér hús þar sem hann nefndi Æsku- minni. Á þeim unaðsreit dvöld- um við frændsystkinin mörg sumur frá fjögurra og fimm ára aldri með mæðrum okkar, systr- unum Önnu Margréti og Guð- rúnu Sigríði, og voru þar sannar- lega okkar æskuminni. Hreðavatn og umhverfi er skreytt öllu því fegursta sem ís- lensk náttúra hefur upp á að bjóða. Við vorum sem systkini og lékum okkur saman daga langa á þessum unaðsreit. Vorum þó ekki há í loftinu þegar við unnum verk dagsins, sem var að sækja mjólk á Hreðavatnsbæinn og burðast með brúsann fullan til baka. Frænka mín var ákaflega ljúf og glaðlynd og við uppá- tækjasöm eins og búast má við af ungum krökkum. Hennar er sárt saknað. Elsku Lassi, Una Marsibil, Atli Sveinn, Kristinn Ingi, Lárus Helgi, Sigurjón og Guðjón, mínar innilegustu sam- úðarkveðjur til ykkar og allra ykkar. Kristinn Karlsson. Nanna Guðrún Zoëga HINSTA KVEÐJA Elsku besta amma, ég sakna þín rosa mikið. Ég elska þig, elsku amma. Þú varst alltaf svo góð við mig og alltaf svo flott og sterk. Ég á eftir að sakna þín mik- ið. Guð mun passa upp á þig. Dagur Kári Guðjónsson. ✝ Einar Ár-mannsson fæddist að Engja- vegi 3, Selfossi, 16. maí 1953. Hann lést á Tenerife 17. sept- ember 2019. Foreldrar Einars voru Guðbjörg Ey- vindsdóttir sauma- kona, f. 30. septem- ber 1927, d. 29. mars 2013, og Ár- mann Einarsson bifvélavirki, f. 5. desember 1920, d. 25. apríl 1993. Systur Einars eru: Laufey, f. 15. mars 1947, og Freydís, f. 7. ágúst 1960. Uppeld- isbróðir Einars er Steinþór Óm- ar Guðmundsson, f. 9. júní 1950. Einar giftist hinn 13. janúar 1979 Ásdísi Garðarsdóttur, f. 28. janúar 1957. Foreldrar hennar eru Garðar Karlsson, f. 28. nóv- ember 1928, og Gyða Sigurð- 2011, og Ólafur Kári, f. 2. júní 2013. 3) Emil Karel, f. 5. mars 1994. Einar ólst upp á Selfossi en snemma leitaði hugur hans til sjávar. Eitt sinn þegar hann var 11 ára gamall hjólaði hann frá Selfossi að Eyrarbakka til þess eins að berja hafið augum. Einar bjó á Selfossi fram yfir tvítugt en flutti til Reykjavíkur árið 1976 með Ásdísi, eftirlifandi eigin- konu sinni, til að nema við Skip- stjóra- og stýrimannaskólann. Einar og Ásdís fluttust til heima- bæjar hennar Þorlákshafnar ár- ið 1977, þar sem þau bjuggu æ síðan, og hóf hann störf við sjó- mennsku. Ýmist sem skipstjóri eða stýrimaður. Einar var til sjós í 34 ár en síðustu 13 árin vann hann hjá Lýsi. Einar var um ára- bil félagi í Lionsklúbbi Þorláks- hafnar og tók virkan þátt í starfi félagsins á því tímabili. Einar verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju í dag, 4. október 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. ardóttir, f. 16. júní 1928, d. 8. febrúar 2001. Einar og Ás- dís eignuðust þrjú börn: 1) Una Björg, f. 25. febrúar 1977, maki Hallgrímur Stefánsson, f. 2. nóvember 1970. Sonur þeirra er Orri Hrafn, f. 24. nóvember 2015. Dóttir Unu Bjargar og Rúnars Arnar Hafsteinssonar, f. 25. september 1978, d. 8. nóvember 2009, er Arna Eir, f. 2. september 2008, sonur Hallgríms og stjúpsonur Unu Bjargar er Stefán Fannar, f. 7. október 2005. 2) Ármann, f. 5. september 1982, maki Þór- halla Sólveig Jónsdóttir, f. 20. febrúar 1980; börn þeirra eru: Jón Hjaltalín, 17. janúar 2006, Einar Þórhallur, f. 1. febrúar Pabbi varð bráðkvaddur á Te- nerife hinn 17. september, langt fyrir aldur fram. Hann naut sín vel í hitanum og sagði við mömmu á hverjum degi hve frábært væri að vera þarna. Dásamlega, dásam- lega jákvæði pabbi minn. Pabbi var yfirleitt með bros á vör og allt- af tilbúinn að sjá jákvæðu hliðarn- ar á lífinu. Það lýsir pabba svolítið vel að ekki fyrir svo löngu sagði hann við mömmu hvað hann væri sáttur við lífið. Hann hefði allt sem hann þyrfti og lifði svo góðu lífi. Hann ætti þak yfir höfuðið, góða konu, þrjú börn sem hann væri stoltur af, hann ætti frábær barna- börn og svo ætti hann sinn griða- stað á ættaróðalinu á Hömrum. Hvers meira gæti einn maður ósk- að sér. Þessi orð finnst mér lýsa pabba svo ótrúlega vel. Hann sá alltaf það besta og fallega í lífinu. Pabbi var helsti stuðningsmaður okkar systkina í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Hann hafði þann hæfileika að sjá alltaf eitthvað jákvætt við hvaða bras sem okkur datt í hug og var alltaf fyrstur mættur á staðinn, ásamt mömmu, til að aðstoða ef á þurfti að halda. Aldrei taldi hann okkur af því að gera eitthvað, hann sýndi okkur stuðning og áhuga. Hann var alltaf til staðar. Hvort sem það var að keyra dótturina í skólann á Laugarvatni seint á sunnudags- kvöldi, mæta á körfuboltaleiki son- anna eða standa í flutningum. Það var ótrúlega dýrmætt að heyra pabba segja að hann lifði fyrir börnin sín. Sem hann og sýndi í verki. Pabbi var ósérhlífinn, pínu stríðinn, kvartaði aldrei, hafði afar gaman af því að rökræða pólitík og hafði stórt jafnaðarmannahjarta sem sló fyrir þá sem minna mega sín. Pabbi gat talað við alla og hann sýndi fólki virðingu. Hann var ljúfmenni. Hann var jafnframt mikill matmaður og hafði gaman af að borða góðan mat. Ef skál með súkkulaði eða konfekti var sett fyrir framan pabba leið ekki á löngu þar til búi var úr skálinni. Ósjaldan um jól heyrðist setning- in: „Einar, ertu búinn með kon- fektið úr skálinni?“ og hann svar- aði „nei, ég fékk mér bara lítið“ og glotti. Pabbi var ótrúlega vinnu- samur og alltaf að. Þegar hann var til sjós kom oft fyrir að þegar hann kom í land þá fór hann í húsverkin eða jafnvel að baka skonsur. Pabbi var mikill barnakarl og elskaði að vera með barnabörnunum. Þeim fannst ótrúlega gaman að fara í Þorlákshöfn, eða Citýið eins og við kölluðum það, því þar var mikið brallað. Farið í sund, keyptur ís, farið með afa á bryggjurúnt að skoða bátana, bakað með ömmu og kósíkvöld voru ómissandi. Pabbi og mamma voru skemmtilega samheldin. Þau hjálpuðust að á heimilinu, fannst gaman að ferðast, tuða stundum svolítið í hvort öðru og síðustu árin elskuðu þau að vera í hjólhýsinu sínu á Hömrum III með fólkinu sínu. Þar áttu þau sér sinn griðastað. Margs er að minnast, margs er að sakna. Pabbi var ákveðin fyr- irmynd í því hvernig á að lifa lífinu. Einblína á það jákvæða, láta sig þjóðfélagsmálin varða og hugsa vel um fólkið sitt. Ég mun halda minningu hans á lofti með því að halda áfram að tileinka mér þessa eiginleika sem hann eftirlét okk- ur. Pabbi, þú verður ávallt elskað- ur og þín minnst með hlýhug. Þín dóttir. Una Björg Einarsdóttir. Í dag kveðjum við bræðurnir ljúfa afa Einar okkar í hinsta sinn. Hann fór allt of snemma. Við kvöddum hann síðast með gleði í hjarta þegar hann fór með ömmu Ásdísi í langþráð frí. Margar góð- ar minningar um afa munu fylgja okkur í gegnum árin að ógleymd- um sögum um sjómennskuna og veðurfar. En afi Einar gat alltaf með mikilli nákvæmni sagt til um veðrið á hverjum stað. Við munum sakna afa með djúpu röddina sem vakti okkur alla þrjá sem ungbörn því það fór ekki framhjá neinum þegar hann kom í heimsókn. Við munum sakna lífsgleðinnar og hversu jákvæður hann var alla daga innan um okkur bræður og þá munum við einnig sakna þess að spjalla við hann um körfubolta- heiminn. Elsku afi Einar, við bræður munum líka passa vel upp á ömmu Ásdísi sem saknar þín svo sárt. Hvíldu í friði. Þínir afastrákar, Jón Hjaltalín, Einar Þórhallur og Ólafur Kári. Einar Ármannsson ✝ Magnús LárusJónsson fædd- ist 14. maí 1919 í Reykjavík. Hann lést 4. maí 2016. Foreldrar hans voru Guðlaug Björnsdóttir versl- unarkona, ættuð frá Karlsstöðum í Fljótum, og Jón A. Erlendsson, verk- smiðjustjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands, frá Sturlureykjum í Reykholtsdal í Borgarfirði. Systir hans var Unnur Andrea Jónsdóttir, f. 1.5. 1925, d. 7.2. 1962. Magnús ólst upp í Reykjavík, fyrst á Lokastíg 15 og síðar á Álfabrekku við Suðurlands- braut. Hugur hans stefndi til náms og eigin reksturs en eftir lát föður hans þurfti hann að að- stoða móður sína við rekstur heim- ilisins og vann hann ýmis störf sem til féllu. Magnús fluttist til Bandaríkjanna árið 1941 og bjó þar síðan. Hann kvænt- ist Patriciu Weigh árið 1959. Eignuð- ust þau soninn Jon Eirik, f. 7.2. 1960, en hann lést í september 2018. Magnús og Patricia störfuðu bæði hjá CIA. Útför Magnúsar fer fram í Arlington-kirkjugarði í dag, 4. október 2019, kl. 10 og er hún svokölluð „full military honors ceremony“ sem eingöngu þeir fá sem taldir eru hafa þjónað bandarísku þjóðinni af hetju- skap. Magnús móðurbróðir okkar lýsti því oft hversu vonlaust það var fyrir ungan mann að koma undir sig fótunum á Íslandi þar sem allt byggðist á klíkuskap. Ár- ið 1941 vann hann hjá Héðni sem suðumaður og féllst á að fara með skipi til New York til lagfæringar. Skipið kemur til New York 2. des- ember. Fimm dögum síðar réðust Japanir á Pearl Harbour og öllum höfnum í Bandaríkjunum var lok- að og skipasmíðaiðnaðurinn þjóð- nýttur. Dvalarleyfi Magnúsar rann út og voru honum gefnir tveir kostir, að ganga í bandaríska herinn eða að vera sendur heim til Íslands. Honum fannst lítið bíða sín á Íslandi svo hann gekk í her- inn. Hann var sendur til Filipps- eyja að berjast við Japani og tók þátt í orrustunum kenndum við Guadacanal. Hann lýsti þessari sorglegu reynslu svo: „Þegar við vorum tilbúnir með flotann til inn- rásar í Japan sumarið 1945 var okkur tjáð að mannfall yrði gíf- urlegt, allt að 75%. En þá kom sprengjan (kjarnorkusprengjan á Hirosima), hún bjargaði okkur.“ Þessi reynsla fékk mikið á Magn- ús en hann gegndi áfram herþjón- ustu eftir að heimsstyrjöldinni lauk, m.a. í Kóreustríðinu. Við heimkomuna til Bandaríkjanna sem stríðshetju beið hans lítið annað en atvinnuleysi. Hann komst síðar í radíótækninám hjá RCA og starfaði m.a. við að setja upp fjarskiptamöstur á háhýsi New Yorkborgar. Um 1950 er honum boðið starf hjá CIA við uppsetningu fjarskiptastöðva, m.a. vegna tungumálakunnáttu. Þá kom í ljós að þeir höfðu miklar upplýsingar um hagi og fortíð hans á Íslandi, sem bendir til þess að CIA hafi haft njósnara á Ís- landi. Magnús var dulur um störf sín, en ræddi þau meira síðustu árin, ljóst er að njósnir voru hluti af starfi hans. Í starfi sínu ferðað- ist hann til um 100 landa og hitti og þekkti þjóðarleiðtoga, s.s. Bush eldri ásamt fleiri forsetum BNA, Chiang Kai-shek, leiðtoga Kína og Taívan, Maó, Jasser Ara- fat og Idi Amin. Þar sem sögulegir atburðir voru að gerast þar var Magnús gjarnan staddur. CIA eða „The Organization“, eins og hann kall- aði vinnuveitendur sína, skipti sér af einkahögum starfsmanna sinna og þurfti hann t.a.m. að bera undir þá er hann kvongaðist Pat, sem einnig var starfsmaður CIA. Þau bjuggu í Reykjavík á sjöunda ára- tugnum vegna starfa sinna. Gam- all samstarfsfélagi og vinur Magnúsar segist aldrei hafa kynnst manni eins og Magnúsi, hann hafi verið lykilmaður í mörg- um flóknum verkefnum og unnið Bandaríkjunum ómetanlegt gagn. Magnús hafði sterkar taugar til Íslands og var í sambandi við móður sína eftir því sem starf hans leyfði. Honum var einnig ein- staklega hlýtt til Línu móðursyst- ur sinnar og Jóns Gunnarssonar eiginmanns hennar sem studdu hann fyrstu árin í BNA. Samband okkar við hann jókst síðustu árin, það var okkur dýrmætt að kynn- ast betur þessum óvenjulega manni og sögum frá bæði Íslandi og heimsatburðum sem spanna heila öld. Hann heimsótti Ísland síðast árið 2011. Á ferðalagi um ættarslóðirnar í Borgarfirðinum lifnuðu gamlir tímar við og hann hafði engu gleymt. Magnús náði háum aldri, hélt sér vel andlega, hafði stál- minni, hann bjó heima og sá um sig sjálfur þar til hann veiktist og lést stuttu fyrir 97 ára afmæli sitt í maí 2016. Útför hans fer fram í Arling- ton-kirkjugarði en þar hvílir Pat einnig. Lýkur þar með merkilegri og viðburðaríkri ævisögu sem Magnús fékkst því miður aldrei til að skrá. Blessuð sé minning Magnúsar frænda. Guðmundur Guðmundsson Karólína Guðmundsdóttir Guðlaug Guðmundsdóttir Einar Guðmundsson. Magnús Lárus Jónsson Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.