Morgunblaðið - 04.10.2019, Qupperneq 25
GRINDAVÍK
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Ingibjörg Jakobsdóttir, leikmaður
kvennaliðs Grindavíkur í körfu-
knattleik, er reyndasti leikmaður
nýliðanna þrátt fyrir að vera fædd
árið 1990. Grindavík féll úr úrvals-
deildinni vorið 2017 en tryggði sér
sæti í efstu deild á nýjan leik eftir
að hafa lagt Fjölni að velli í um-
spili síðasta vor.
„Tímabilið leggst mjög vel í
okkur og við erum virkilega
spenntar að byrja þetta. Við höf-
um í raun bara beðið eftir því að
hefja leik, allt frá því að umspil 1.
deildarinnar kláraðist í apríl.“
Grindavík hefur undanfarin tvö
ár leikið í 1. deildinni og telur
Ingibjörg að það hafi gert liðinu,
sem og leikmönnum liðsins, mjög
gott.
„Í hreinskilni sagt var þetta
komið út í smá vitleysu hjá okkur,
tímabilið áður en við féllum um
deild, og að lokum varð fall svo
bara niðurstaðan. Að sama skapi
var þetta frábært tækifæri fyrir
ungu stelpurnar til þess að sýna
sig og sanna. Ég vona innilega að
þessi dýrmæta reynsla sem þær
öðluðust allar í fyrstu deildinni
muni skila sér núna í vetur og ég
hef fulla trú á því. Eins leiðinlegt
og það var að falla um deild voru
jákvæðir punktar í því líka.“
Stöðnun sem hafði áhrif
Grindvíkingar hafa ekki styrkt
sig mikið í sumar en Bríet Sif
Hinriksdóttir, fyrrverandi leik-
maður Stjörnunnar, gekk til liðs
við félagið.
„Að mínu mati þurftum við ekki
marga leikmenn til þess að bæta
liðið og stelpurnar sem hafa komið
inn í þetta í sumar styrkja allar
hópinn. Það var frábært fyrir okk-
ur að fá Bríeti, bæði innan sem ut-
an vallar. Hún er frábær í körfu-
bolta og þá er hún einnig með
mikla reynslu sem mun nýtast
okkur vel. Kaninn okkar lítur
mjög vel út og hún hefur aðlagast
vel. Það er góð breidd í hópnum
og stærðin er mátuleg ef svo má
að orði komast. Auðvitað hefðum
við viljað fá einn stóran leikmann
undir körfuna en heilt yfir er ég
mjög sátt við allt sem snýr að
leikmannahópnum.“
Ingibjörg segir að myndast hafi
ákveðin gjá í uppgangi félagsins
síðastliðinn áratug.
„Þetta hefur verið upp og ofan
undanfarin ár. Það hefur hins veg-
ar verið haldið mjög vel utan um
yngri flokkastarfið að undanförnu
og við njótum góðs af því. Það
kom ákveðin stöðnun í þetta en
uppgangurinn er að taka aftur við
sér núna. ’90-árgangurinn var öfl-
ugur og nú er ’00-árgangurinn að
taka við af honum í rauninni en
það kemur þarna tíu ára gat sem
hafði áhrif á kvennaliðið. Þá hefur
Jóhann Árni Ólafsson, þjálfari
liðsins, gert mjög flotta hluti með
liðið og hann er búinn að þjálfa
margar af þessum stelpum lengi.“
Þrátt fyrir að Grindvíkingar séu
nýliðar í deildinni er markið sett
hátt suður með sjó.
„Einn af helstu styrkleikum
okkar er sá að margir af leik-
mönnum liðsins hafa spilað mjög
lengi saman. Það er hins vegar
ekki mikil reynsla hjá þessum
stelpum í efstu deild, en reynslan
er mjög mikilvæg í þessu líka. Það
er alltaf erfitt að vera nýliði í
efstu deild og ætla sér að sigra
heiminn. Við horfum raunsætt á
hlutina og erum heiðarlegar með
það. Valur og KR eru með svaka-
lega hópa þannig að markmið okk-
ar er einna helst að reyna að kom-
ast í úrslitakeppnina og við teljum
okkur fullfærar um það.“
Nýliðarnir
stefna á úr-
slitakeppni
Morgunblaðið/Hari
Úrslitaeinvígi Hrund Skúladóttir og stöllur í Grindavík slógu liði Fjölnis við
í úrslitaeinvígi 1. deildar og tryggðu sér þar með sæti í úrvalsdeildinni.
Ingibjörg segir að fall úr efstu deild
hafi á endanum gert Grindavík gott
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019
BAKVERÐIR:
Anna Margrét Lucic Jónsdóttir
Bríet Sif Hinriksdóttir
Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir
Ólöf Rún Óladóttir
Sædís Gunnarsdóttir
Telma Bjarkardóttir
Viktoría Rós Horne
FRAMHERJAR:
Andra Björk Gunnarsdóttir
Arna Sif Elíasdóttir
Elísabet María Magnúsdóttir
Elísabeth Ýr Ægisdóttir
Hrund Skúladóttir
Ingibjörg Jakobsdóttir
Thea Olafía Lucic Jónsdóttir
MIÐHERJAR:
Kamilah Jackson
Sigrún Elfa Ágústsdóttir
Þjálfari: Jóhann Árni Ólafsson.
Aðstoðarþjálfari: Nökkvi Már
Jónsson.
Árangur 2018-19: Sigurvegari 1.
deildar.
Íslandsmeistarar: 1997.
Bikarmeistarar: 2008 og 2015.
Grindavík tapaði fyrir Val á
heimavelli í fyrstu umferð, 96:49.
Liðið sækir Skallagrím heim í 2.
umferð næsta miðvikudagskvöld
og tekur svo á móti Haukum í
næsta heimaleik, 16. október.
Lið Grindavíkur 2019-20
KOMNAR
Bríet Sif Hinriksdóttir frá
Stjörnunni
Kamilah Jackson frá Espoo Basket
Team (Finnlandi)
FARNAR
Hannah Cook, óvíst
Breytingar á liði Grindavíkur
Komnar aftur í efstu deild og ætla væntanlega
að halda sér þar Jói Óla þjálfari er með mikla
reynslu og þroska sem þarf til að leiða þetta
unga lið; meðalaldurinn er rétt undir 20 ár en
flestar eru með fína leikreynslu úr 1. deild og
yngri landsliðum.
Gætu ,,stolið“ sigrum vegna vanmats, þurfa að
mæta allar með 100% einbeitingu til að knýja
fram sigra og virkilega leggja sig fram við að
taka réttar ákvarðanir.
Ingibjörg Jakobs og Kamilah Jackson verða leiðtogarnir og ungu
leikmennirnir stíga vonandi upp.
Spennandi leikmenn eru að koma upp og verður áhugavert að
fylgjast með þeim og þá sérstaklega Elísabetu Ýri Ægisdóttur, sem
er 16 ára og mikið efni.
Þori að lofa að þetta er eina liðið með þríbura að spila saman á ís-
landi, en Lucic Jónsdætur eru allar efnilegar.
Bríet kom frá Stjörnunni, þar sem hún spilaði gríðarlega vel í
fyrra og þá sérstaklega framan að vetri. Hún mun láta að sér kveða
í vetur og hjálpar að mynda ógn fyrir utan þriggja stiga línuna.
Margrét Sturlaugsdóttir
um Grindavík
Þegar rýnt er Íslandsmótið í
knattspyrnu er athyglisvert að
liðin í neðri hluta efstu deildar
kvenna spjöruðu sig betur en
oft áður.
Nýliðarnir í deildinni Fylkir
og Keflavík sýndu að þeir áttu
bæði erindi í deildina. Nýliðar
hafa oft átt erfitt uppdráttar í
efstu deild kvenna og þurft að
sætta sig við stór töp. Keflavík
vann tvo stórsigra þótt liðið hafi
fallið og Fylkir náði 6. sæti.
Að þessu leyti hefur deildin
orðið jafnari. HK/Víkingur átti
reyndar erfitt uppdráttar en
stóð sig vel sumarið áður. Fyrir
hina hlutlausu er hins vegar
minna varið í að tvö lið skeri sig
alveg úr eins og Valur og
Breiðablik gerðu. Það hefur því
miður gerst af og til í gegnum
tíðina að tvö lið séu með yfir-
burði í deildinni. Það eru ekki
endilega sömu liðin en Breiða-
blik, Valur, KR, Stjarnan eða
Þór/KA hafa þá yfirleitt komið
við sögu. Fyrir áratug eða rúm-
lega voru frægar rimmur á milli
Vals og KR þar sem innbyrðis-
viðureignirnar voru úrslitaleikir í
mótinu.
Ég óttast að þetta geti orðið
niðurstaðan í efstu deildum
kvenna í vetur í handboltanum
og körfunni. Valur og Fram eru
líkleg til að hafa yfirburði í
handboltanum og Valur og KR í
körfuboltanum. Þá yrðu bara úr-
slitarimmurnar sjálfar skemmti-
legar.
Jafnvel þótt forystufólk hjá
Breiðabliki og Val sendi frá sér
yfirlýsingu og sverji af sér að
róa í ungum leikmönnum þá
hefur tilhneigingin verið sú að
leikmenn fari í stórum stíl í
bestu liðin. Í ríkari mæli en hjá
körlunum. Einhverra hluta
vegna. Sara Björk Gunnarsdóttir
og Margrét Lára Viðarsdóttir
fengu ekki sitt knattspyrnu-
uppeldi í Breiðabliki og Val.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði
glæsimark í Evrópudeildinni í fót-
bolta í gær þegar fjórir íslenskir
landsliðsmenn voru á ferðinni í 2.
umferð riðlakeppninnar. Hörður
Björgvin Magnússon studdi sig aft-
ur á móti við hækju eftir leik og eng-
inn Íslendinganna fagnaði sigri.
Rúnar hefur þar með skorað fimm
mörk í átta leikjum í Evrópudeild-
inni í ár, ef leikirnir í forkeppninni
eru taldir með, en mark hans í gær
reyndist aðeins sárabót í 2:1-tapi
Astana á heimavelli gegn Partizan
Belgrad. Astana er því enn án stiga
því liðið tapaði á Old Trafford í
fyrstu umferð. Í hinum leik riðilsins
gerðu AZ Alkmaar og Manchester
United markalaust jafntefli í afar
bragðdaufum leik, þar sem Albert
Guðmundsson var fjarri góðu gamni
vegna alvarlegra meiðsla. Albert
þarf að treysta á liðsfélaga sína til
þess að spila meira í Evrópukeppni í
vetur, með því að komast í útslátt-
arkeppnina sem hefst í febrúar.
Arnór Sigurðsson og Hörður
Björgvin léku allan leikinn í 2:0 tapi
á heimavelli gegn Espanyol og eru
því án stiga í H-riðli, eftir flotta
framgöngu í Meistaradeildinni fyrir
ári. Hörður sást styðja sig við hækju
eftir leik og því óvíst að hann geti
tekið sæti í íslenska landsliðs-
hópnum sem kynntur verður í dag,
fyrir leikina við Frakkland og An-
dorra.
Jón Guðni Fjóluson lék sem aft-
asti miðjumaður hjá Krasnodar í
heimaleik gegn Getafe en var tekinn
af velli eftir fyrri hálfleik. Getafe var
þá 1:0 yfir og vann leikinn 2:1, svo
Krasnodar er án stiga. Arnór Ingvi
Traustason og félagar í Malmö náðu
hins vegar í sitt fyrsta stig, með 1:1-
jafntefli á heimavelli í grannaslag
við FC Köbenhavn. Arnór kom inn á
snemma í seinni hálfleik.
Arsenal rúllaði yfir Standard
Liege og er með fullt hús stiga í F-
riðli. Brasilíski táningurinn Gabriel
Martinelli skoraði tvennu á fyrsta
korteri leiksins og lagði upp loka-
mark leiksins fyrir Dani Ceballos,
eftir að hinn tvítugi Joe Willock
hafði skorað. sindris@mbl.is
Þrumufleygur Rúnars
en Hörður með hækju
AFP
Á ferð Arnór Sigurðsson í baráttu við David Lopez í Moskvu í gærkvöld.
Íslendingaliðin eiga erfitt uppdráttar í Evrópudeildinni