Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Þetta verða milliliðalaus samskipti,
listamennirnir verða á staðnum og
sýna verk sín og gestir geta spjallað
við þá og kynnst þeim og list þeirra.
Þannig geta gestir átt í beinum sam-
skiptum við listamenn og keypt af
þeim verk ef þeir vilja. Það eru oft
ekki mörg tækifæri til að hitta lista-
menn, jafnvel þó að þeir sýni verkin
sín oft. Þetta verður afslappað, svo-
lítið eins og menningarnótt, mark-
miðið er að hafa umhverfið sem
notalegast og að öllum líði vel,“ seg-
ir Ástþór Helgason, kynningarstjóri
listamessunnar TORG, sem haldin
verður á Hlöðuloftinu og í Ráðs-
mannsportinu á Korpúlfsstöðum nú
um helgina.
„Við verðum með um sjötíu bása
en listamennirnir verða vel yfir
hundrað, því suma básana hafa félög
listamanna leigt og þá geta verið
margir listamenn þar innan. Sam-
band íslenskra myndlistarmanna,
SÍM, stendur fyrir messunni sem er
stærsta listamessan hér á landi og
leggur undir sig nær alla Korpúlfs-
staði, “ segir Ástþór og bætir við að
mikil breidd sé í þeim listamönnum
sem verða á messunni, margir stílar
í listinni og ólíkir frumkraftar. Hann
segir að sumpart séu sömu lista-
menn að sýna og í fyrra en að einnig
hafi nýir bæst í hópinn, en auðvitað
sé um ný verk að ræða.
Kýrnar í Ráðsmannsportinu
„Messan er aðgengilegur vett-
vangur fyrir marga, bæði listunn-
endur og þá sem vilja kynnast list
og listamönnum. Þetta eykur
breiddina í hópi fólks sem nýtur list-
ar.
Að koma á messuna getur verið
hentugur helgarrúntur, tækifæri til
að sjá fjölbreytta flóru listamanna á
einum stað. Þetta er því annar vett-
vangur og alþýðlegri. Aðsóknin var
mikil í fyrra þegar messan var hald-
in í fyrsta sinn, en þá komu á Korp-
úlfsstaði mörg þúsund manns.
Hverjum listamanni fylgir líka
margt fólk úr hópi vina og fjölskyldu
sem mæta á svæðið. Auk þess dreg-
ur húsið sjálft að, það er virkilega
gaman að koma inn á Korpúlfsstaði,
þetta sögufræga hús, ég fékk gæsa-
húð þegar ég kom hingað fyrst.
Þetta er ótrúlegt hús. Núna verður
opið í fleiri rýmum en í fyrra, við
sýnum líka niðri í Ráðsmannsporti í
ár sem er skemmtilegt svæði sem er
opið út í portið, en þar var kúnum
líklega hleypt út í gamla daga.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Undirbúningur Ástþór ásamt Önnu Eyjólfs, formanni SÍM, en listamessan er hennar þrekvirki að stórum hluta.
Listamessa á hlöðulofti
Gestum og gangandi boðið á Korpúlfsstaði um helgina
Yfir 100 listamenn kynna verk sín og selja á staðnum
Torg-Listamessa verður opnuð í
dag, föstudag, kl. 18-20. Opið á
morgun, laugardag, kl. 12-20 og á
sunnudag kl. 12-19.
Nánar á Facebook undir Torg
listamessa í Reykjavík.
Franski kvikmyndaleikstjórinn Claire Denis,
heiðursgestur RIFF í ár, hlaut í gær heiðurs-
verðlaun hátíðarinnar fyrir framúrskarandi list-
ræna sýn og var það Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, sem afhenti henni lundann góð-
kunna við hátíðalega athöfn á Bessastöðum, að
viðstöddu fjölmenni.
Af fyrri heiðursverðlaunahöfum má nefna
Mads Mikkelsen, Susanne Bier, Helgu Stephen-
son, Jim Jarmusch, David Cronenberg, Marg-
arethe von Trotta, Mike Leigh og Milos Forman.
Denis hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín
en hún hóf að leikstýra snemma á áttunda ára-
tugnum. Af þekktustu kvikmyndum hennar má
nefna Beau travail, Chocolat, White Material,
Let the Sunshine in og þá nýjustu, High Life.
Denis sat fyrir svörum í gærmorgun í Norræna
húsinu en þar spurði rithöfundurinn Auður Ava
Ólafsdóttir hana út í eitt og annað tengt verk-
unum og ferli hennar og gestum í sal bauðst
einnig að spyrja.
Franski leikstjórinn Claire Denis hlaut heiðursverðlaun RIFF á Bessastöðum
Morgunblaðið/Hari
Lundi fyrir framúrskarandi listræna sýn
Myndlistarsýning Ólafar Bjargar
Björnsdóttur, Eitur sem meðal –
meðal sem eitur, var opnuð í gær
í Borgarbókasafninu í Spönginni.
Ólöf sýnir þar verk unnin með
blandaðri tækni en hún útskrif-
aðist frá málaradeild Listahá-
skóla Íslands árið 2001 og hefur
einnig stundað nám við Listahá-
skólann í Granada á Spáni. Í til-
kynningu segir m.a. um verkin að
fegurðin liggi í því að umfaðma
breyskleika egósins, umbreyta
sársauka í mynstruð hjartalaga
ör eins og blómamynstur á við-
kvæmu postulíni. „Fegurðin end-
urheimtir tært flæðið, viljann og
endurskapar sjálfa sig. Dansar á
milli þess að vera lýsing, sögn og
sjálfsins nafn,“ segir þar m.a.
Sýningin stendur til 14. nóv-
ember.
Eitur sem meðal –
meðal sem eitur
Litríkt Hluti málverks eftir Ólöfu.
Þarftu að láta
gera við?
FINNA.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 13/10 kl. 13:00 Sun 20/10 kl. 13:00
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Brúðkaup Fígarós (Stóra Sviðið)
Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn Fös 18/10 kl. 19:30 8.sýn
Lau 12/10 kl. 19:30 7.sýn Fös 25/10 kl. 19:30 9.sýn
Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart
Shakespeare verður ástfanginn (stóra sviðið)
Fös 4/10 kl. 19:30 Frums Fös 11/10 kl. 19:30 4.sýn Mið 6/11 kl. 19:30 7.sýn
Sun 6/10 kl. 19:30 2.sýn Lau 19/10 kl. 19:30 5.sýn Sun 10/11 kl. 19:30 8. sýn
Fim 10/10 kl. 19:30 3.sýn Lau 26/10 kl. 19:30 6.sýn Fös 15/11 kl. 19:30 auka
Hrífandi og skemmtileg stórsýning fyrir áhorfendur á öllum aldri
Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn)
Lau 5/10 kl. 19:30 5.sýn Lau 12/10 kl. 19:30 8.sýn Fös 25/10 kl. 19:30 11.sýn
Sun 6/10 kl. 19:30 6.sýn Fim 17/10 kl. 19:30 auka Lau 26/10 kl. 19:30 auka
Fim 10/10 kl. 19:30 7.sýn Fös 18/10 kl. 19:30 9.sýn Lau 2/11 kl. 19:30 12.sýn
Fös 11/10 kl. 19:30 auka Lau 19/10 kl. 19:30 10.sýn Lau 23/11 kl. 19:30 auka
Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga
Gilitrutt (Brúðuloftið)
Lau 5/10 kl. 13:00 5. sýn Lau 12/10 kl. 13:00 7. sýn
Lau 5/10 kl. 15:00 6. sýn Lau 12/10 kl. 15:00 8. sýn
Brúðusýning fyrir alla fjölskylduna
Atómstöðin (Stóra Sviðið)
Fös 1/11 kl. 19:30 Frums Mið 13/11 kl. 19:30 4. sýn Fös 22/11 kl. 19:30 7. sýn
Fim 7/11 kl. 19:30 2. sýn Fim 14/11 kl. 19:30 5. sýn
Fös 8/11 kl. 19:30 3. sýn Fim 21/11 kl. 19:30 6. sýn
Nýtt og framsækið leikverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins Halldórs Laxness
Stormfuglar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 10/10 kl. 19:30 3. sýn Sun 13/10 kl. 19:30 4. sýn
Hinn rómaði sögumaður Einar Kárason stígur á svið
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200