Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2019
Nú ber vel í veiði, hugsaði grái skógarkötturinn, þar sem
hann læddist um í bakgarði húss við Skúlagötuna í Borg-
arnesi í vikunni. Veiðieðlið hafði sagt til sín. Stokkandar-
parið sem hékk niður úr snúrustaurnum virtist vera auð-
veld bráð, kannski gæti hann náð þeim báðum í einu
stökki. Hann náði að gera eina tilraun áður en það sást til
hans út um eldhúsgluggann. Um leið og hann horfði í
myndavélarlinsu húsráðandans stökk hann skömmustu-
legur burtu.
Skógarköttur í Borgarnesi gerði heiðarlega tilraun til að verða sér úti um væna máltíð
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Sýnd veiði en ekki gefin
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Friðbert Traustason, framkvæmda-
stjóri Samtaka starfsmanna fjár-
málafyrirtækja (SSF), segir vísbend-
ingar um að hátt
hlutfall fé-
lagsmanna sem
missti vinnuna í
haust hafi fengið
tilboð um starf.
Arion banki
sagði upp 100
starfsmönnum í
lok september. Þá
sagði Íslands-
banki upp 20
starfsmönnum og Valitor 12 starfs-
mönnum.
Alls misstu því um 130 vinnuna.
„Sem betur fer virðist okkar fólki
ganga mjög vel að fá vinnu. Við bjóð-
um ókeypis aðstoð við atvinnuleit í
gegnum Hagvang, á kostnað stéttar-
félagsins, en það hafa aðeins um 30
leitað til Hagvangs af þessum hópi.
Ég túlka það þannig að meirihlut-
anum virðist ganga vel að leita sér að
nýju starfi. Hjá þessum fyrirtækjum
var um að ræða stóran hóp vel
menntaðra sérfræðinga. Vinnumark-
aðurinn virðist vera opinn fyrir fólki
sem er með slíka menntun og
reynslu. Það kom til dæmis til mín fé-
lagsmaður á mánudag sem var strax
með tilboð frá tveimur fyrirtækjum.“
Viðkvæmur hópur
„Það er hins vegar alltaf viðkvæm-
ur hópur eldri starfsmanna sem á erf-
itt með að finna sambærilegt starf og
því verða fyrirtækin að taka sérstakt
tillit til þeirra starfsmanna við upp-
sagnir,“ segir Friðbert.
Að hans sögn er fólkið með fjöl-
breytilega menntun. „Það hefur ekki
aðeins lært viðskiptafræði, hagfræði
eða lögfræði heldur líka stærðfræði,
tölvunarfræði, verkfræði, áhættu-
stýringu og alls kyns fög sem virðast
nýtast annars staðar á vinnumark-
aði,“ segir Friðbert.
Um 3.800 félagsmenn voru skráðir
í SSF um síðustu áramót, þar af 2.800
hjá viðskiptabönkunum, og hefur
þeim fækkað jafnt og þétt síðustu ár.
Spurður hvort fjármálafólk sé farið
að dreifast á fleiri fyrirtæki en áður
segir Friðbert að flest meðalstór og
stór fyrirtæki þurfi sífellt meira af
sérþjálfuðu fjármálafólki. Þá m.a. til
að leita eftir fyrirgreiðslu bankanna.
„Þá virðist alltaf vera eftirspurn
eftir fólki með tölvuþekkingu og fólki
með mikla fjármálaþekkingu. Hingað
leita margir og spyrja hvort við höf-
um félagatal yfir þau sem misst hafa
vinnuna. Þegar við spyrjum hvers
vegna fáum við það svar að bankafólk
sé svo vant öguðum vinnubrögðum.
Það hafi unnið undir miklum aga.“
Friðbert segir aðspurður að starfs-
fólkið hafi fengið allt að sjö mánaða
uppsagnarfrest. Á meðan verði það
skráð í SSF eða allt fram í maí á
næsta ári. Því sé ótímabært að skera
úr um hvaða áhrif uppsagnir í haust
muni hafa á félagatalið. Það skýrist
þegar fólkið hættir á launum og
hættir að greiða félagsgjöld. Hins
vegar geti þeir sem fá atvinnuleysis-
bætur áfram skráð sig í félagið.
Hefur fækkað um tvö þúsund
Friðbert segir aðspurður að í árs-
lok 2007 hafi alls 4.650 manns starfað
hjá Landsbankanum, Kaupþingi,
Glitni og sparisjóðunum. Þar af hafi
um 850 verið hjá sparisjóðunum.
Í árslok 2014 hafi bankarnir yfir-
tekið nær alla starfsemi sparisjóða og
þá alls starfað 3.300 hjá bönkum. Nú
starfi um 2.700 hjá bönkunum, eða
ríflega 40% færri en 2007.
Mörgum þegar verið boðið starf
Friðbert
Traustason
Útlit fyrir að hátt hlutfall fólks sem missti vinnuna hjá bönkum í september hafi fengið starf
Framkvæmdastjóri SSF segir fyrirtækin telja starfsfólkinu til tekna að hafa starfað í banka
4.650
3.300
2.800
Fjöldi starfsmanna hjá
viðskiptabönkunum
Í árslok 2007-2018
Starfsmenn Fjöldi útibúa
Heimild: SSF
2007 2014 2018
157
95
80
Um 130 eru nú
á uppsagnarfresti.
Áætlaður fjöldi í ársbyrjun
2020 verður því um 2.670
Dolorin
Hita- og verkjastillandi paracetamól
Á HAGSTÆÐUVERÐI!
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli
fyrir notkun lyfsins.
Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari
upplýsingumumáhættuogaukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Þú færð
Dolorin í næsta
apóteki
Dolorin500mg
paracetamól töflur -
20stkog30stk
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Félag íslenskra atvinnuflugmanna
(FÍA) hefur boðað vinnustöðvun
vegna flugmanna sem starfa hjá Air
Iceland Connect. Vinnustöðvunin
felur í sér yfirvinnubann meðal allra
flugmanna Air Iceland Connect, en
þeir eru allir félagsmenn FÍA. Að
óbreyttu hefst vinnustöðvunin
klukkan 00.01 á föstudag eftir viku.
Spurður hvort búast megi við að
samningar verði í höfn fyrir þann
tíma segist Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Air Iceland Connect,
ómögulegt að geta sér til um það.
„Við erum búin að vera að ræða
málin undanfarið og við höldum
þeim viðræðum áfram. Það er ekk-
ert annað í spilunum,“ segir hann
spurður út í þá stöðu sem nú er
komin upp.
Yfirvinna ekki meginreglan
Umrætt yfirvinnubann nær til
allra verkefna flugmanna fyrir fé-
lagið sem teljast til yfirvinnu. Ann-
ars vegar fellur þannig niður heim-
ild félagsins til að kaupa vinnu af
flugmanni á frídegi og hins vegar til
að kaupa viðbótarvakttíma af flug-
manni á vinnudegi. Aðspurður segir
Árni það ekki vera meginreglu að
flugmenn félagsins vinni yfirvinnu,
en ómögulegt sé að geta sér til um
umfang afleiðinga yfirvinnubanns-
ins ef af verður.
Yfirvinnubann á flugmenn
Ómögulegt að
geta sér til um af-
leiðingarnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugvöllur 32 félagsmenn af 34 greiddu atkvæði með yfirvinnubanni.