Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 24
ÞÓR Þ.
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Morgunblaðið ræddi í gær við
Emil Karel Einarsson, lykilmann í
liði Þórs í Þorlákshöfn, um tímabilið
í Dominos-deildinni sem er nýhafið.
Þórsarar töpuðu fyrir Stjörnunni og
Val en unnu Þór frá Akureyri í
fyrstu þremur umferðunum.
„Við héldum kjarnanum í leik-
mannahópnum en fengum erlenda
leikmenn í stað þeirra sem fóru.
Þetta hefur verið nokkuð langt ferli
hjá okkur að komast í gang og við
höfum verið í smá ströggli í upphafi
móts. Þetta er að smella saman
finnst mér eftir að við fengum Dino
Butorac sem var síðasta púslið. And-
inn er orðinn miklu betri í liðinu og
við erum að dreifa boltanum betur.
Ég er mjög bjartsýnn á að takturinn
verði orðinn góður á næstu vikum,“
sagði Emil, en lið Þórsara átti
skemmtilega úrslitakeppni á síðasta
tímabili. Liðið sló út sterkt lið Tinda-
stóls og mætti meisturunum í KR í
undanúrslitum og tapaði 3:1.
„Þetta var ótrúlega gaman og skil-
ur eftir sig reynslu hjá leikmönnum.
Maður vill leika stóru leikina og
vinna þá, hvort sem er í úr-
slitakeppninni eða bikarúrslitaleiki.
Árangur okkar síðasta vetur skilur
einnig eftir sig aukið hungur að
komast enn lengra og vinna.“
Friðrik er körfuboltaheili
Þjálfarinn reyndi Friðrik Ingi
Rúnarsson tók við liðinu í sumar af
Baldri Þór Ragnarssyni, sem fór í
Skagafjörðinn.
„Mér líst vel á Frikka. Hann er
alger körfuboltaheili og hugsar
mikið um íþróttina. Hann hefur
séð þetta allt áður og við hlustum
bara á allt sem hann segir. Hann
er alveg ófeiminn við að segja
skoðun sína og lætur mann heyra
það duglega ef ástæða er til, sem
er bara mjög gott. Við spilum eft-
ir hugmyndafræði hans og skipu-
lagi. Ég verð að hrósa stjórninni í
Þorlákshöfn fyrir að ráða topp-
þjálfara hvað eftir annað. Það
segir mikið um stefnu félagsins.
Við viljum ekki fara niður aftur
heldur halda stöðu okkar og jafn-
vel bæta. Þjálfarastaðan er auðvit-
að stór þáttur í því ferli,“ benti Emil
á.
Of sveiflukennt
Emil hefur skorað 15 stig að
meðaltali í fyrstu leikjunum og hefur
sett niður átta þriggja stiga körfur í
sautján tilraunum. „Ég er í mjög
góðu formi en síðasta tímabil var ég
meiddur mestan hluta vetrarins,
sem voru vonbrigði. Leikurinn kem-
ur auðveldlega til mín um þessar
mundir. Boltinn skilar sér til mín
eftir gott flæði og þá fæ ég opin skot-
færi. Vonandi heldur það áfram en
ég er helst að leita eftir meiri stöð-
ugleika. Ég hef átt það til í gegnum
tíðina að skora 20 stig í einum leik en
taka varla skot í þeim næsta. Segja
má að sama markmið sé hjá liðinu
sjálfu því við erum of sveiflukenndir
í leik okkar,“ sagði Emil Karel Ein-
arsson í samtali við Morgunblaðið.
Stefnt að
auknum
stöðugleika
Atkvæðamikill Emil Karel Einarsson er drjúgur fyrir Þórsara.
Þjálfararáðningar endurspegla
metnaðinn í Þorlákshöfn að mati Emils
Morgunblaðið/Hari
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2019
LEIKSTJÓRNENDUR:
Ísak Júlíus Perdue
Benjamín Þorri Benjamínsson
Vladimir Nemcok
Þjálfari: Friðrik Ingi Rúnarsson
Árangur 2018-19: 9.sæti
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: Aldrei.
Þór tapaði fyrir Stjörnunni í
fyrstu umferðinni, tapaði fyrir Val
í annarri umferðinni en vann Þór
Akureyri í þriðju umferðinni. Þór
sækir Íslandsmeistara KR heim í
kvöld.
BAKVERÐIR:
Sæmundur Þór Guðveigsson
Halldór Garðar Hermannsson
Magnús Breki Þórðarson
Tristan Rafn Ottósson
Ragnar Örn Bragason
Jón Jökull Þráinsson
FRAMHERJAR:
Vincent Bailey
Marko Bakovic
Emil Karel Einarsson
Davíð Arnar Ágústsson
Styrmir Snær Þrastarson
Lið Þórs Þ. 2019-20
KOMNIR:
Marko Bakovic frá Gorcia í
Króatíu
Vladimir Nemcok frá Rhein Köln í
Þýskalandi
Vicent Bailey frá Boncourt í Sviss
FARNIR:
Nick Tomsik í Stjörnuna
Kinu Rochford í Hamar
Jaka Brodnik í Tindastól
Breytingar á liði Þórs Þ.
Styrkleiki Þórs er að íslenski kjarninn hefur spil-
að lengi saman og allir þekkja hver annan inn og
út.
Hitti Þórsarar á réttu erlendu leikmennina þá á
liðið að geta verið í efri hluta deildarinnar.
Frá því að Þór kom upp í efstu deild 2011 þá end-
ar liðið nánast alltaf ofar allar spár segja til um.
Ég er á því að Þór eigi að gera unnið hvaða lið
sem er á heimavelli í Þorlákshöfn en útileikirnir verða erfiðari.
Benedikt Guðmundsson
um Þór Þorlákshöfn
Meistaradeildin
E-riðill:
Genk – Liverpool ......................................1:4
Stephen Odey 88. – Alex Oxlade-Cham-
berlain 2., 57., Sadio Mané 77., Mohamed
Salah 87.
Salzburg – Napoli.....................................2:3
Erling Braut Håland 40. (víti), 72. – Dries
Mertens 17., 64., Lorenzo Insigne 73.
Staðan:
Napoli 3 2 1 0 5:2 7
Liverpool 3 2 0 1 8:6 6
Salzburg 3 1 0 2 11:9 3
Genk 3 0 1 2 3:10 1
F-riðill:
Inter – Dortmund .....................................2:0
Lautaro Martínez 22., Antonio Candreva
89.
Slavia Prag – Barcelona..........................1:2
Jan Boril 50. – Lionel Messi 3., Peter Olay-
inka 57. (sjálfsmark)
Staðan:
Barcelona 3 2 1 0 4:2 7
Inter Mílanó 3 1 1 1 4:3 4
Dortmund 3 1 1 1 2:2 4
Slavia Prag 3 0 1 2 2:5 1
G-riðill:
Leipzig – Zenit Petersburg.....................2:1
Konrad Laimer 49., Marcel Sabitzer 59. –
Jaroslav Rakitskij 25.
Benfica – Lyon ..........................................2:1
Rafa Silva 4., 86. – Memphis Depay 70.
Staðan:
RB Leipzig 3 2 0 1 4:4 6
Zenit 3 1 1 1 5:4 4
Lyon 3 1 1 1 4:3 4
Benfica 3 1 0 2 4:6 3
H-riðill:
Ajax – Chelsea ..........................................0:1
Michy Batshuayi 86.
Lille – Valencia .........................................1:1
Jonathan Ikoné 90. – Denis Cherishev 63.
Rautt spjald: Mouctar Diakhaby (Valencia)
85.
Staðan:
Ajax 3 2 0 1 6:1 6
Chelsea 3 2 0 1 3:2 6
Valencia 3 1 1 1 2:4 4
Lille 3 0 1 2 2:6 1
England
B-deild:
Bristol – Charlton .....................................2:1
Derby – Wigan ..........................................1:0
Fulham – Luton.........................................3:2
Huddersfield – Middlesbrough................0:0
Nottingham Forest – Hull........................1:2
Staða efstu liða:
WBA 13 7 5 1 24:15 26
Leeds 13 7 3 3 17:8 24
Sheffield Wed. 13 7 2 4 18:10 23
Bristol City 13 6 5 2 20:17 23
QPR 13 7 2 4 23:23 23
Preston 13 6 4 3 24:14 22
Fulham 13 6 4 3 23:14 22
Nottingham F. 13 6 4 3 17:12 22
Swansea 13 6 4 3 17:13 22
Charlton 13 6 3 4 19:14 21
Unglingadeild UEFA karla
1. umferð, síðari leikur:
Levadia Tallinn – ÍA ...............................1:12
ÍA áfram, 16:1 samanlagt.
Danmörk
Esbjerg – Randers................................25:19
Rut Jónsdóttir var ekki á meðal marka-
skorara Esbjerg.
Dominos-deild kvenna
Skallagrímur – KR................................68:83
Grindavík – Snæfell...............................63:66
Valur – Keflavík.....................................82:51
Haukar – Breiðablik .............................64:62
Staðan:
Valur 4 4 0 364:249 8
Haukar 4 3 1 290:249 6
KR 4 3 1 315:292 6
Skallagrímur 4 2 2 276:268 4
Keflavík 4 2 2 284:272 4
Snæfell 4 2 2 271:289 4
Breiðablik 4 0 4 235:307 0
Grindavík 4 0 4 227:336 0
Evrópubikarinn
Unics Kazan – Joventus Badalona .....86:74
Haukur Helgi Pálsson skoraði 2 stig á
þeim 8 mínútum sem hann spilaði fyrir Un-
ics Kazan.
NBA
Úrslitin í fyrrinótt:
LA Lakers – LA Clippers.................102:112
New Orleans – Toronto ....................122:130
Dómaranefnd handknattleiks-
sambands Íslands hefur fordæmt þá
niðurstöðu aganefndar sambandsins
að beita Kristin Guðmundsson og
Kristján Örn Kristjánsson ekki
viðurlögum vegna ummæla sem þeir
viðhöfðu eftir tap ÍBV gegn Aftur-
eldingu í Olísdeildinni 15. október.
Ramunas Mikalonis og Þorleifur
Árni Björnsson dæmdu leikinn.
Kristinn, annar þjálfara ÍBV, lét
þung orð falla um dómarana á mbl.is
eftir leikinn og sagði meðal annars:
„Ég er búinn að segja það áður við
þá sem sjá um dómaramálin hjá
HSÍ að þetta par sé það allra slak-
asta sem boðið er upp á í þessari
deild. Sérstaklega annar dómarinn
sem er gjörsamlega út úr kú í dóm-
gæslunni sinni, hann á þrjá, fjóra
eða fimm dóma á okkur sem eru allir
vafasamir á síðustu mínútunum.“
Kristján Örn, skytta ÍBV, sagði
meðal annars við RÚV eftir tapið:
„Ég held að Afturelding telji pen-
ingana sína mjög dýrt núna. Þeir
fengu allt með sér þarna í lokin.“
Mat aganefndar var það að um-
mæli Kristins „...feli ekki í sér
ósæmilega framkomu sem skaðað
getur ímynd handknattleiksíþróttar-
innar,“ og að hið sama eigi við um
ummæli Kristjáns sem séu „með
öllu óskiljanleg bæði samkvæmt
orðanna hljóðan og almennri mál-
venju“.
Dómaranefnd kemur dómurunum
til varnar í yfirlýsingu á vef HSÍ í
gær þar sem niðurstaða aganefndar
er fordæmd. „Það er með ólíkindum
að aganefnd skuli meta það sem svo
að ummæli sem þarna féllu eins og
mátti skilja frá leikmanni og þjálf-
ara ÍBV, skuli ekki geta skaðað
ímynd handknattleiksíþróttarinnar,
eins og talað er um í fyrrnefndri 18.
grein reglugerðar um agamál,“ seg-
ir meðal annars í yfirlýsingunni. Tel-
ur dómaranefnd málið grafalvarlegt
og að vegið sé að hlutleysi og æru
dómaranna. sindris@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Óskiljanlegt tal Kristján Örn
Kristjánsson á landsliðsæfingu í gær.
Fordæma niðurstöðu
um harkaleg ummæli
Kristni og Kristjáni ekki refsað
KÖRFUKNATTLEIKUR
Dominos-deild karla:
Origo-höllin: Valur – Tindastóll ...........19.15
DHL-höllin: KR – Þór Þ. ......................19.15
Ásvellir: Haukar – Fjölnir ....................19.15
Í KVÖLD!