Morgunblaðið - 24.10.2019, Page 29

Morgunblaðið - 24.10.2019, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2019 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ram Limited Litur: Svartur/ Svartur að innan. Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, loftpúðafjöðrun, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, segl yfir palli, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 10.129.000 m.vsk 2019 Ram Limited 3500 35” Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 11.395.000 m.vsk 2019 Ford F-150 Lariat Litur: Perlu hvítur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Bakkmyndavél, Band & Olufsen hátalarakerfi, heithúðaður pallur, hiti í sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6) 10-gíra 375 hestöfl 470 lb-ft of torque VERÐ 12.590.000 m.vsk 2019 Ford F-150 Lariat Sport Litur: Svartur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Sport-pakki, Bakkmyndavél, Band & Olufsen hátalarakerfi, heithúðaður pallur, hiti í öll sæti, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6) 10-gíra 375 hestöfl 470 lb-ft of torque VERÐ 12.670.000 m.vsk Ian McEwan hefur sérstakt lagá að taka fyrir málefni líðandistundar í bókum sínum ogverða þær jafnvel eins og sókratísk umræða þar sem settar eru fram spurningar og svör þar sem allar hliðar málsins eru reifaðar. Í skáldsögunni Vélar eins og ég, sem kom út á ensku fyrr á árinu og var hraðað í útgáfu á íslensku í tilefni af því að höfundurinn hlaut Alþjóð- leg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness nú í haust, er viðfangsefnið vitræn vél- menni. Vélar eins og ég er bráð- skemmtileg af- lestrar og Árni Óskarsson þýð- ir bókina af mikilli list. Þá er mikill fengur að því að bók eins og þessi komi út í ís- lenskri þýðingu aðeins nokkrum mánuðum eftir útgáfu á frummálinu. McEwan bregður á það ráð að láta söguna gerast á liðinni öld. Fyrir ýmsar tilviljanir hefur tæknin þróast hraðar en hjá okkur og margt smá- legt því með öðrum hætti en nú er. Ein af afleiðingum tækniframfar- anna er að Margaret Thatcher tapar Falklandseyjastríðinu fyrir Argent- ínu og það hefur sínar afleiðingar. Þetta bragð heppnast ágætlega og kryddar söguna. Söguhetjan, Charlie, ákveður að verja nýfengnum arfi í að kaupa ein- tak af fyrstu kynslóð slíkra vél- menna. Kaupandinn getur ráðið per- sónuleika vélmennisins, sem vita- skuld nefnist Adam, með því að svara ákveðnum spurningum. Til þess að auka á spennuna við að fá vélmennið felur hann Miröndu, sem býr fyrir ofan hann og hann er ást- fanginn af, að svara helmingi þeirra. Adam reynist flókinn persónuleiki og fær um að sýna tilfinningar. Hann verður ástfanginn og yrkir ljóð. Hann getur reiknað margfalt hraðar en maðurinn, meistari hans. Hann getur á augabragði farið í gegnum allar bókmenntir heimsins. Hann getur stundað hlutabréfaviðskipti og fjárfestingar á leifturhraða. Hann getur meira að segja stundað kynlíf. En þó er hann vél, bara vél. Hann yrkir japanskar hækur, þær streyma fram. En er kveðskapur hans sköpun? Eigandi hans gerir lítið úr, enda erfitt stökk að eigna algrími eða reiknirita skáldskapar- gáfu, en ástæðan gæti eins verið minnimáttarkennd gagnvart vél- menninu. Eins og Charlie orðar það á einum stað: „Við vorum að verða eftirbátar tæknikunnáttu okkar, eins og alltaf hlaut að gerast, strönduð á hinu litla sandrifi takmarkaðra gáfna okkar.“ Adam er einnig ófær um að segja ósatt, jafnvel hin hvíta lygi, sem oft er forsenda mannlegra samskipta, veldur honum vandkvæðum. Eftir því sem líður á söguna kem- ur í ljós að öðrum vélmennum, sem eru eins og Adam, farnast misvel og sum þeirra eiga beinlínis í mesta basli með glundroða og mótsagnir mannheima. Þau taka sig úr sam- bandi, en gefa enga skýringu. Erfiðast virðist vélmennunum reynast að horfa fram hjá því, sem hefur farið aflaga í heiminum og taka sérhagsmuni fram yfir hagsmuni heildarinnar. Vélmennin eru ófær um að skipta vitund sinni niður í hólf og skortir því þann eiginleika að ýta hlutum til hliðar, sem er manninum svo mikilvægur eigi hann að halda söns- um. En hefur vélmennið þá siðferðis- lega yfirburði yfir skapara sinn? Svarið við þeirri spurningu er hins vegar ekki svo einfalt. Í sögunni býr McEwan til siðferðislegan prófstein fyrir menn og vélar og það er lesand- ans að meta hvar yfirburðirnir liggja. Ian McEwan er góður sögumaður og hefur sérstakt lag á að flétta mál- efni líðandi stundar inn í skáldsögur sínar. Eftirbátar tækni- kunnáttu okkar Morgunblaðið/Hallur Már Vélar og menn „Ian McEwan er góður sögumaður og hefur sérstakt lag á að flétta málefni líðandi stundar inn í skáldsögur sínar,“ segir í umsögninni. Skáldsaga Vélar eins og ég bbbbm Höfundur: Ian McEwan. Þýðing: Árni Óskarsson. Bjartur gefur út. 377 síður. 2019. KARL BLÖNDAL BÆKUR Söngvarinn og leikarinn Helgi Björns verður gestur Jóns Ólafs- sonar tónlistarmanns í spjall- tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20.30. Helgi hefur komið víða við á ferli sínum, bæði sem sólótónlist- armaður og með hljómsveitum, m.a. Grafík og Síðan skein sól. Má því búast við að þeir Jón hafi um nóg að ræða á sviðinu í Salnum. „Helgi hefur verið í fremstu röð allt frá því hann kom fram á sjón- arsviðið með hljómsveitinni Grafík. Nauðsynlegt er einnig að nefna SS Sól og Reiðmenn vindanna en báðar sveitirnar njóta gríðarlegra vin- sælda. Leikhús og bíó hafa einnig verið fyrirferðamikil hjá Helga Björns og víst er að margt mun bera á góma í Salnum,“ segir á vef Salarins þar sem hægt er að kaupa miða á viðburðinn. Af fingrum fram með Helga Björns Morgunblaðið/Kristinn Reiðmaður Helgi Björns með ónefndum fáki. Helgi hefur m.a. sungið með Reið- mönnum vindanna á ferli sínum. Netflix hefur stöðvað framleiðslu kvikmyndar sem byggist á bók eftir norska rithöfundinn Karl Ove Knausgård, að því er fram kemur á vefnum Deadline. Alexander Payne átti að leikstýra myndinni, Mads Mikkelsen að fara með aðal- hlutverkið og tökur áttu að hefjast nú í vikunni. Ástæða stöðvunarinnar mun vera óvænt ákvörðun rithöfundarins að vilja ekki að bók hans yfðir kvik- mynduð en titill bókarinnar er ekki nefndur í fréttinni. Hafa árangurs- lausar tilraunir verið gerðar til þess að fá höf- undinn til að skipta um skoð- un. Kvikmyndin átti að fjalla um danskan blaða- mann sem fer í ferðalag um Bandaríkin með dóttur sinni og skrifar um það ferðagrein. Tökur áttu að fara fram í Svíþjóð, Danmörku og Bandaríkjunum. Knausgård bregður fæti fyrir Netflix Karl Ove Knausgård Sýning á verkum japönsku lista- konunnar Yui Yaegashi verður opnuð í galleríinu i8 í dag kl. 17. Í tilkynningu segir að úr fjarlægð gæti virst sem Yui Yagashi geri smágerð og látlaus verk sem beri í sér þöglan einfaldleika en nánari skoðun leiði í ljós flókin mynstur og lög smáatriða. „Einlitir fletir eru í raun flóknir vefir pensilfara, en í öðrum samsetningum má greina eldri bendingar faldar undir ákveðnum litastrokum sem hlaðið er hverjum ofan á aðrar. Hárfín notkun Yui á málningu og litavali skapar lifandi spennu á milli þess tilviljunarkennda og þess skipu- lagða, á milli nákvæmni og óvæntra tilbrigða við fegurð, sem fá áhorf- andann til að skoða aftur, og aftur, enn nær,“ segir þar. Yaegashi býr og starfar í Tókýó, hlaut BA-gráðu frá málaradeild Zokei-háskóla í Tókýó árið 2009 og MFA-gráðu frá lista- og hönn- unardeild sama skóla árið 2011. Sýningin sem opnuð verður í dag er sú fyrsta sem hún heldur í i8. Yui Yaegashi sýnir í i8 galleríi Vefir Hluti olíumálverks eftir Yui Yaegashi sem ber heldur forvitni- legan titil, P078+026. Pólsk-íslenska heimildarmyndin In Touch, eftir Pawel Ziemilski, verð- ur frumsýnd í dag í Bíó Paradís. Hefur hún þegar hlotið fjölda verð- launa og þá m.a. dómnefnd- arverðlaun á IDFA sem er ein virt- asta heimildarmyndahátíð heims, skv. tilkynningu og aðalverðlaunin á heimildarmyndahátíðinni Skjald- borg. Myndin fjallar um fólk frá smá- bænum Stary Juchy í Póllandi og tengingu þeirra við fjölskyldu- meðlimi sína á Íslandi. „Þriðjungur íbúa hvarf til starfa á Íslandi og þeir sem eftir eru, flestir af eldri kynslóðinni, halda í vonina um að börn þeirra og barnabörn snúi einn daginn til baka. Í millitíðinni, verða þau að láta rafræn samskipti hlýja sér um rætur þar sem mörg þúsund kílómetrar skilja þau að,“ segir m.a. um efni myndarinnar. Í dag verða haldnar pallborðs- umræður á ensku og pólsku í kjöl- far sýningar á myndinni sem hefst kl. 17.45. Þátttakendur verða Sandra Pawlik og Adrian Jaszcz- urowski, tvö þeirra sem eru í mynd- inni, leikstjórinn Ziemilski sem tek- ur þátt í gegnum Skype og Anna Wojtynska sem nýlega lauk við doktorsritgerðina sína um Pólverja á Íslandi. Marta Sigríður Péturs- dóttir, kvikmyndagerðarkona og gagnrýnandi, stjórnar umræðun- um. In Touch er framleidd af Lukasz Dluglecki og Hauki M. Hrafnssyni fyrir NUR í Póllandi og meðfram- leidd af Antoni Mána Svanssyni fyr- ir Join Motion Pictures á Íslandi. Haukur og Pawel skrifuðu hand- ritið, kvikmyndataka var í höndum Filip Drozdz og Ástu Júlíu Guðjóns- dóttur, myndin var klippt af Dorota Wardeszkiewicz og frumsamin tón- list í henni er eftir Árna Val Krist- insson. Tengsl Stilla úr heimildarmyndinni. Sýningar hefjast á In Touch

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.