Morgunblaðið - 24.10.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 24.10.2019, Síða 32
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 OKTÓBER TILBOÐ WWW.ILVA.IS/TILBOD INCONTRI GLÖS Vatnsglös. 4 í pk. 3.495 kr. Nú 2.395 kr. Vínglös. 4 í pk. 3.495 kr. Nú 2.395 kr. 20-30% AF ÖLLUM SÓFUM, HÆGINDASTÓLUM & SVEFNSÓFUM Sofadagar’ 24. OKTÓBER - 4. NÓVEMBER 30%Borgarbókasafnið í Kringlunni ogBorgarleikhúsið hafa staðið fyrirleikhúskaffi til nokkurra ára þar sem leiksýningar eru kynntar fyrir áhugasömum fyrir frumsýningu þeirra. Í dag kl. 17.30 verður eitt slíkt haldið, þá mun Kristín Jóhann- esdóttir, leikstjóri sýningarinnar Eitur, segja kaffigestum frá upp- setningu Borgarleikhússins á verk- inu og að erindi loknu verður haldið í leikhúsið þar sem gestir fá kynn- ingu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar. Eitur í kaffinu FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 297. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Liverpool og Napoli eru í góðum málum í E-riðli Meistaradeildar Evr- ópu í fótbolta nú þegar fyrri helm- ingi keppninnar er lokið. Bæði hafa þau nú lokið tveimur af þremur úti- leikjum sínum og er Napoli með 7 stig en Liverpool 6. Alex Oxlade- Chamberlain, „Uxinn“, skoraði tvö fyrstu mörk Liverpool í 4:1-sigri gegn Genk í Belgíu í gær. »26 Uxinn hraustur og Liv- erpool í góðum málum ÍÞRÓTTIR MENNING Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur á tónleikum sínum í kvöld verk frá 18. öld eftir Bach, Händel og Ha- ydn en einnig verður flutt Passa- caglia eftir franska tónskáldið Georg Muffat ásamt tveimur minna þekktum verkum eftir Maríu Ant- oníu Walpurgis og Önnu Amalíu af Braunschweig-Wolfenbüttel. Ein- leikari og kons- ertmeistari verður fiðluleik- arinn Matthew Truscott og hljómsveit- arstjóri Matthew Halls. Verk frá 18. öld á tónleikum kvöldsins með selló að láni frá skólanum þar til hún var 15 ára, en þá hafi hún fengið sitt eigið í fyrsta sinn. „Þetta var á mögru árunum, ég var á lágum laun- um hjá Ríkisútvarpinu og þurfti að hafa mikið fyrir því að hafa ofan í okkur og á, en ég átti bílskrjóð, sem ég seldi fyrir lítið. Upphæðin nægði engan veginn fyrir nýju sellói og því varð ég að taka lán, sem ég greiddi upp á þremur árum. Þá keypti ég mér aftur notaðan bíl, því það var flókið að vera bíllaus þar sem ég var að syngja úti um allar trissur, en hann brann áður en ég hafði átt hann í eitt ár og átti samt eftir að borga af honum í tvö ár til viðbótar! Þá hugsaði ég með mér að betra væri að eyða peningunum í selló en í bíl.“ Hildur hefur slegið í gegn að undanförnu. Fyrir skömmu fékk hún Emmy-verðlaun fyrir fyrr- nefnda tónlist og henni hefur verið hrósað í hástert fyrir tónlistina í kvikmyndinni Joker og ekki er útséð um hvert það leiðir. „Ég er gríð- arlega stolt og ánægð með Hildi og það er ánægjulegt að finna hvað hún er elskuð og dáð í tónlistarheim- inum,“ segir Ingveldur. „Fátt er jafn dásamlegt í lífinu og að sjá börn- unum sínum ganga vel og vera ham- ingjusöm. Það er besta gjöfin.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ingveldur G. Ólafsdóttir, móðir Hildar Guðnadóttur, sellóleikara og tónskálds, komst við þegar dóttirin tileinkaði henni heiðurinn eftir að hafa verið útnefnd sjónvarps- tónskáld ársins fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttaröðinni Chernobyl á Heimshljóðrásar-verðlaunahátíðinni (World Soundtrack Awards) í Gent í Belgíu um liðna helgi. „Ég trúði ekki mínum eigin eyrum og átti alls ekki von á þessu, var mjög hissa en glöð,“ segir Ingveldur. Hún leggur áherslu á að mjög gam- an hafi verið að vera í salnum með Kára, sjö ára syni Hildar, við þetta hátíðlega og mikilvæga tækifæri. Kári æfi fótbolta og hann hafi ekki síður verið spenntur. „Þegar Hildur hefur verið tilnefnd til verðlauna spyr hann hana gjarnan hvort hún fái bikarinn, rétt eins og sigurveg- arar í fótboltanum.“ Tónlist er Hildi í blóð borin. „Hún ólst að miklu leyti upp í Tónlistar- skólanum í Reykjavík,“ segir Ing- veldur og bætir við að síðan hafi hún drukkið tónlistina enn frekar í sig þegar foreldrarnir hafi verið í námi í Amsterdam. Bílar, selló og lán Hildur sagði í þakkarræðunni að Ingveldur hefði ávallt lagt áherslu á að tónlistin væri mikilvægari en veraldlegar eigur og benti á í því sambandi að móðir sín hefði selt bíl- inn til þess að kaupa selló handa sér. Ingveldur segir að eftir að Hildur hafi lokið stúdentsprófi hafi hún ver- ið tvístígandi um framhaldið. „Þá sagði ég henni að hún ætti að gera það sem henni þætti skemmti- legast og stæði hjarta hennar næst því það myndi skila bestum árangri. Þá velti hún fyrir sér hvort hún gæti lifað af tónlistinni og ég svaraði því til að andlegu gæðin, að vera glaður og hamingjusamur í því sem maður væri að gera í til dæmis tónlistinni skiptu meira máli en hið veraldlega.“ Bílamálin eiga sér lengri sögu. Ingveldur segir að Hildur hafi verið Betra að eyða pen- ingum í selló en bíl  Hildur Guðnadóttir tileinkaði móður sinni heiðurinn Stolt Mæðgurnar Ingveldur G. Ólafsdóttir og Hildur Guðnadóttir, ásamt Kára, syni Hildar, eftir verðlaunaafhendinguna í Gent í Belgíu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.