Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 1
Rétt að
afhenda
bréfin
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri
kveðst aðspurður
hafa átt frum-
kvæði að því að
afhenda upplýs-
ingar um sam-
skipti fyrrverandi
starfsmanna
bankans við
Ríkisútvarpið.
Vikið hafi verið
að þessum samskiptum í bréfaskrift-
um Seðlabankans við forsætisráðu-
neytið í ágúst síðastliðnum.
„Ég lét setja bréfin til forsætis-
ráðuneytisins fram sem hluta af
málsskjölum sem Seðlabankinn
lagði fram í tengslum við skaðabóta-
málið. Síðan hringdi ég í Þorstein
Má [Baldvinsson, forstjóra Sam-
herja] og skýrði honum frá því að
hann gæti gengið að þessum bréfum
sem hluta af gögnum málsins – og ég
teldi það skyldu mína að upplýsa
hann um þetta,“ segir Ásgeir um af-
stöðu sína til málsins. »2
Seðlabankastjóri
ræðir Samherjamálið
M I Ð V I K U D A G U R 3 0. O K T Ó B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 255. tölublað 107. árgangur
SETJA UPP
RISABIRNI Í
PARÍSARBORG DALURINN KLÁR Í MARS?
VAXTARTÆKI-
FÆRI ÚR HUG-
VITI OG TÆKNI
ÍÞRÓTTIR 24 VIÐSKIPTI 16 SÍÐURMENNING 28
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Fólki gefst kostur á að setja
niðurbrjótanleg duftker með ösku
ástvina sinna í svokallaða gróður-
eða skógargrafreiti sem tillaga er
gerð um í BS-ritgerð í umhverfis-
skipulagi við Landbúnaðarháskóla
Íslands. Hægt er að setja fræ í duft-
kerið eða gróðursetja tré, runna og
fjölærar plöntur á leiðið.
Fólk sem hugsar fyrir þessu fyrir
fram getur þannig valið að enda
sem tré eða planta, stuðlað að land-
græðslu og skógrækt á útivistar-
svæði og bundið kolefni. »10
Hinsta óskin að
enda sem tré?
Íslandsstofa hefur gengið frá sam-
komulagi við Elizu Reid forsetafrú
um að hún verði talsmaður Íslands-
stofu á völdum viðburðum erlendis á
næsta ári. Um launað starf er að ræða
og fær Eliza 576 þúsund krónur auk
vsk. í laun á mánuði.
„Við erum búin að ganga frá sam-
komulagi við Elizu Reid forsetafrú.
Hún hefur reyndar unnið fyrir okkur
áður en nú höfum við formgert sam-
band okkar við hana og verður hún
talsmaður okkar á völdum stórum
viðburðum erlendis á næstu árum.
Við reiknum með um 7-9 viðburðum á
hverju ári, auk þess að vinna með Ís-
landsstofu að kynningu á íslensku at-
vinnulífi gagnvart fjölmiðlum og sam-
starfsaðilum íslenskra fyrirtækja,“
segir Pétur Þ. Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsstofu, í samtali
við ViðskiptaMoggann.
Pétur segir að Eliza sé mjög fram-
bærilegur talsmaður og það skipti
sköpum að hafa hana með í för. „Þeg-
ar hún er með okkur fáum við miklu
meira pláss, meiri athygli og almennt
meira út úr viðburðinum,“ segir Pét-
ur, og nefnir að fjölmiðlar í Seattle
hafi t.d. verið mjög áhugasamir um
forsetafrúna á kynningu þar í borg á
dögunum.
Forsetafrú til Íslandsstofu
Morgunblaðið/Hari
Kynning Eliza Reid verður tals-
maður á viðburðum erlendis.
Eliza fær 576 þúsund kr. á mánuði í laun auk vsk.
Einungis 18% lögreglunema á
Íslandi eru hlynnt almennum skot-
vopnaburði lögreglu samkvæmt
niðurstöðum rannsóknar. Er það
næstum helmingi lægra hlutfall en í
sambærilegri rannsókn meðal
norskra lögreglunema.
Guðmundur Oddsson, dósent í fé-
lagsfræði við hug- og félagsvís-
indasvið Háskólans á Akureyri,
segir mikilvægt að spyrja nem-
endur út í afstöðu sína til skot-
vopnaburðar. „Í þessum hópi eru
lögreglumenn framtíðarinnar og
stefna lögreglunnar með tilliti til
vopnaburðar hefur vafalaust áhrif
á hvers konar fólk sækir í starfið,“
segir hann en rannsóknin verður til
umræðu á málþingi í vikunni. »9
18% lögreglunema
hlynnt vopnaburði
Gyða Valtýsdóttir hlaut í gærkvöldi tónlistar-
verðlaun norðurlandaráðs 2019, en verðlaunaaf-
hending ráðsins fór fram við hátíðlega athöfn í
Stokkhólmi í gærkvöldi.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars
að Gyða hafi verið einn af stofnmeðlimum hinnar
rómuðu tilraunakenndu rafsveitar múm, en hafi
síðan þá verið „áberandi sem fjölhæfur flytjandi í
flokki þess íslenska tónlistarfólks sem hefur getið
sér gott orð á erlendri grund“. Gyða er sjötti Ís-
lendingurinn til þess að hljóta verðlaunin. Í sam-
tali við mbl.is í gær sagði Gyða það hafa verið
mikinn heiður að vera tilnefnd til verðlaunanna.
„Maður þarf sennilega að sætta sig við að maður
er ekki byrjandi lengur.“
Ljósmynd/Norðurlandaráð
Gyða hlaut
tónlistar-
verðlaunin
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Mikil fjölgun hefur orðið á líffæra-
gjöfum hér á landi síðustu ár. Aldar-
fjórðungur er liðinn frá því líffæra-
gjafir hófust hér og fyrstu árin
gengu þær upp og ofan að sögn
Kristins Sigvaldasonar, yfirlæknis á
gjörgæsludeild. Frá 2015 hefur alger
sprenging orðið.
„Ef við framreiknum tölurnar á
milljón íbúa þá vorum við áður í 9-10
á ári en eftir 2015 náðum við upp fyr-
ir Spánverja og Ísland varð heims-
meistari í þessu. Síðan þá höfum við
verið í hópi bestu þjóða í líffæragjöf-
um á milljón íbúa. Það verða alltaf
sveiflur í þessu en aukningin er tölu-
verð,“ segir hann.
Mikil fjölgun ferðamanna hér á
landi hefur hjálpað til við þessa þró-
un. „Þetta fólk veikist líka og lendir í
slysum. Það hafa verið nokkrar líf-
færagjafir úr erlendum ríkisborgur-
um. Þetta hafa verið ferðamenn frá
Evrópulöndum þar sem þetta er vel
viðurkennt fyrirbæri. Það munar um
hvern einn og einasta líffæragjafa
enda getur hver slíkur bjargað allt
að sex mannslífum.“
Ferðamenn gefa líffæri
Íslendingar meðal fremstu þjóða í líffæragjöfum síðustu ár Vitundarvakning
hefur orðið meðal þjóðarinnar Nokkrar líffæragjafir úr erlendum ferðamönnum
Líffæragjafir í 25 ár
» Um 100 manns hafa gefið
líffæri á Íslandi frá 1993. 350
manns hafa notið góðs af líf-
færagjöfum Íslendinga.
» Elsti líffæragjafinn á Íslandi
var 85 ára.
MErum meðal fremstu þjóða »14
Ásgeir
Jónsson