Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019 Hildur Björg Kjartansdóttir Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir Þjálfari: Benedikt Guðmundsson Árangur 2018-19: 4. sæti og tap gegn Val í undanúrslitum, 3:1. Íslandsmeistari: 1961, 1977, 1979, 1980, 1981, 1982, 1983, 1985, 1986, 1987, 1999, 2001, 2002, 2010. Bikarmeistari: 1976, 1977, 1982, 1983, 1986, 1987, 1999, 2001, 2002, 2009.  KR vann Keflavík í fyrstu um- ferð, Breiðablik í annarri umferð, tapaði fyrir Val í þriðju umferð og vann Skallagrím í fjórðu umferð. Liðið mætir Grindavík í kvöld í fimmtu umferð. BAKVERÐIR: Alexandra Eva Sverrisdóttir Danielle Rodriquez Margrét Blöndal Perla Jóhannsdóttir Ragnhildur Arna Kristinsdóttir Sóllilja Bjarnadóttir Þóra Birna Ingvarsdóttir FRAMHERJAR: Ástrós Lena Ægisdóttir Jenný Lovísa Benediktsdóttir Margrét Kara Sturludóttir Sanja Orozovic Unnur Tara Jónsdóttir MIÐHERJAR: Eygló Kristín Óskarsdóttir Lið KR 2019-20 KOMNAR: Alexandra Sverrisdóttir frá Stjörn- unni Danielle Rodriguez frá Stjörnunni Hildur Björg Kjartansdóttir frá Celta Vigo (Spáni) Margrét Kara Sturludóttir frá Stjörnunni eftir hlé Sanja Orozovic frá Breiðabliki Sóllilja Bjarnadóttir frá Breiðabliki FARNAR: Kiana Johnson til Vals Orla O’Reilly til Sunbury (Ástralíu) Vilma Kesanen til Barakaldo (Spáni) Breytingar á liði KR  Frábærar í fyrra en ennþá betri í ár að mínu mati og á pappír eru þær með besta liðið.  Héldu sig í þekktum stærðum í útlendingum með Daniellu og Sanju sem báðar eru frábærir leikmenn og ekki síður liðsmenn.  Fengu Hildi Björgu sem er með ákveðið hlutverk sem senter. Hún er okkar allra besta inni í teig og þurfa KR-stúlkur að nýta hana vel.  Unnur Tara sem var lykilleikmaður þeirra í fyrra. Nú hefur önnur leikreynd bæst við því Margrét Kara er mætt til leiks og mun hjálpa liðinu gríðarlega. Tvær sleggjur á ferð sem enginn vill mæta.  Stærsta verkefni Benedikts er að halda öllum ánægðum og reyna að spila efnum eins og Eygló Kristínu og Alexöndru en fyrir eru Ást- rós, sem er gríðarlegt efni og gæti náð mjög langt, og svo Perla sem átti fína spretti í fyrra. Ég segi bara það er eins gott að mæta á æfingu og leggja sig fram fyrir þessar stelpur og varast fýlupyttinn. Margrét Sturlaugsdóttir um KR  Albert Brynjar Ingason hefur rift samningi sínum við knattspyrnudeild Fjölnis en þetta staðfesti hann í samtali við mbl.is í gær. Hann íhugar nú næsta skref á ferlinum og á von á að leika áfram í 1. deild á næstu leiktíð af fjöl- skylduástæðum en vill þó ekki útiloka að leika í efstu deild á nýjan leik. Albert gekk til liðs við Fjölnismenn frá Fylki fyrir síðasta tímabil og var lykilmaður í liðinu sem tryggði sér sæti í efstu deild síðasta haust. Hann er uppalinn í Ár- bænum hjá Fylki og er markahæsti leik- maður í sögu félagsins í efstu deild. Alls á hann að baki 219 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað 69 mörk fyrir Fylki, FH og Val.  Arnar Jón Agn- arsson, þjálfari kvennaliðs Gróttu í handbolta, var í gær úrskurðaður í eins leiks bann vegna grófrar óíþróttamanns- legrar hegðunar í leik ÍR og Gróttu í 1. deild síðasta föstudag. Arnar Jón mun því ekki stýra liði sínu þegar Grótta tekur á móti Fjölni á Seltjarn- arnesi á föstudagskvöld. Aganefnd HSÍ komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að refsa Robertu Ivanauskaite, leik- manni Aftureldingar, ekki frekar eftir að hún fékk rautt spjald fyrir gróft leikbrot í leik gegn Haukum í úrvalsdeildinni á laugardaginn.  Hinn tvítugi Íri, Caoimhin Kelleher, mun verja mark Liverpool í leiknum gegn Arsenal í 16-liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar en liðin eigast við á Anfield í kvöld. Pepijn Lijnders, aðstoðarstjóri Liverpool, greindi frá þessu á vef Liverpool og sagði deilda- bikarinn vera keppni Kellehers sem lék sinn fyrsta leik með aðalliði Liverpool í síðasta mánuði þegar Liverpool sló MK Dons út í 32-liða úrslitum keppninnar.  Aron Bjarnason átti mjög góðan leik fyrir ungverska knattspyrnufélagið Új- pest sem vann 5:2-sigur gegn B- deildarliði Ajka í 64-liða úrslitum bik- arkeppninnar þar í landi í kvöld. Aron skoraði tvö síðustu mörk Újpest í leikn- um, á 64. og 75. mín- útu, en hann var í byrjunarliði liðsins. Þetta eru fyrstu mörk Arons fyrir Újpest en hann hef- ur leikið níu af tíu leikjum liðsins í deild- inni, sjö þeirra sem varamað- ur. Eitt ogannað Knattspyrnukonan Sigríður Lára Garðarsdóttir er gengin til liðs við FH, sem vann sig upp úr 1. deild í sumar, og skrifaði hún undir tveggja ára samning við félagið í gær. Sigríður Lára rifti samningi sínum við ÍBV um miðjan október- bermánuð en hún hefur verið fyr- irliði ÍBV undanfarin ár. Mörg félög í efstu deild reyndu að fá miðjumanninn öfluga til liðs við sig en hún ákvað að semja í Hafnarfirði. Sigríður Lára er 25 ára og á að baki 18 A-landsleiki. Sigríður Lára valdi FH Ljósmynd/@fhingar FH-ingur Sigríður Lára mun leika í búningi FH eftir 11 leiktíðir í ÍBV. Guðjón Þórðarson er hættur sem þjálfari færeyska knattspyrnu- félagsins NSÍ eftir eitt ár í starfi. Hann stýrði liðinu til 3. sætis á ný- afstöðnu tímabili. Svíinn Glenn Ståhl hefur verið ráðinn í hans stað. Í viðtali í hlaðvarpsþættinum Mín skoðun kveðst Guðjón nú vera í leit að vinnu. Hann hafi sótt um starf landsliðsþjálfara Færeyja en það verði að koma í ljós hvað verði. Guðjón er 64 ára gamall og hafði staðið utan fótboltans í sex ár þegar hann tók við NSÍ. Guðjón í leit að nýju starfi Ljósmynd/NSÍ Brons Guðjón Þórðarson stýrði NSÍ til 3. sætis í efstu deild Færeyja. KR Kristján Jónsson kris@mbl.is Gera má ráð fyrir því að Hildur Björg Kjartansdóttir verði á meðal atkvæðamestu leikmanna í Dom- inos-deild kvenna í körfuknattleik í vetur. KR nældi í Hildi í sumar sem ákvað að snúa heim eftir mörg ár er- lendis. Henni líst vel á deildina og liðin hér heima í upphafi keppnis- tímabilsins. „Það voru viðbrigði að koma aftur heim en deildin er spennandi og í henni eru margir góðir leikmenn. Það verður því bara spennandi að vera hér í vetur,“ sagði Hildur en hún lék síðustu tvo vetur á Spáni. Þar áður var hún í háskólakörfubolt- anum í Bandaríkjunum og því mörg ár síðan hún lék hér heima með Snæfelli. Spurð um KR-liðið segir hún að leikmannahópurinn sé öfl- ugur en það muni taka liðið smátíma að ná fram öllu sínu besta. „Við erum með gríðarlega sterkan hóp. Í liðinu er viss kjarni sem var einnig á síðasta tímabili og stóð sig rosalega vel. En við erum einnig nokkrar sem komum nýjar inn í þetta fyrir tímabilið. Mér finnst því liðið eiga helling inni. Við erum að vinna í okkar leik og við munum bæta okkur í hverri viku en það er nóg eftir af tímabilinu. Við setjum auðvitað pressu á okkur en um leið erum við rólegar á þessum tíma- punkti. Við vitum í hvaða átt við vilj- um fara.“ KR hefur unnið þrjá leiki af fyrstu fjórum í deildinni. Liðið tapaði heima fyrir Íslands- og bikarmeist- urum Vals 74:76 í mjög fjörugum leik. Fyrir Íslandsmótið var umræð- an á þann veg að Valur og KR myndu hafa yfirburði í deildinni. Umræðan er bara umræða „Stigasöfnunin er ásættanleg. Við höfum spilað hörkuleiki og greini- legt að öll liðin hafa æft vel og mæta tilbúin til leiks sem er gaman að sjá. Það kemur okkur ekkert á óvart. Umræðan er bara umræða og það getur allt gerst held ég. Veturinn er langur og við sjáum hvað gerist. Leikurinn á móti Val var mjög vel spilaður og þá sérstaklega miðað við hversu skammt tímabilið var á veg komið. Skemmtilegt var að spila þann leik og einnig skemmtilegt að horfa á þann leik hef ég heyrt. Það er bara mjög jákvætt fyrir deildina,“ sagði Hildur sem segist kunna vel við sig í Frostaskjólinu. „Það er erfitt fyrir mig að bera saman hvernig er að vera í Snæfelli annars vegar og KR hins vegar vegna þess að ég er alin upp hjá Snæfelli. KR er gott félag að vera í og mjög vel var tekið á móti okkur sem erum nýjar. Eftir því sem mað- ur kynnist fólkinu betur því nota- legra verður það. Það hjálpar reynd- ar helling að í KR eru margir Hólmarar og ég sé mörg kunnugleg andlit. Ég er því mjög sátt og líður vel í KR,“ sagði Hildur sem er lykil- leikmaður í landsliðinu en þar er hún með sama þjálfara: Bendikt Guð- mundsson. „Við fylgjum hans skipulagi og treystum honum. Það hefur einnig verið gaman að vinna með honum í landsliðinu en þar vann ég með hon- um fyrst,“ sagði Hildur Björg Kjart- ansdóttir í samtali við Morgun- blaðið. Sér mörg kunnugleg andlit í KR Morgunblaðið/Hari Sterk Hildur Björg Kjartansdóttir styrkir lið KR verulega.  Hildur Björg Kjartansdóttir segir að KR-liðið eigi talsvert inni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.