Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019
577 5757 | www.igf.is | igf@igf.is
ERT ÞÚ AÐ FARA Í
FRAMKVÆMDIR?
Fyrir nánari upplýsingar,
við söludeild okkar í síma 577 5757
Við bjóðum upp á margar stærðir
af opnum og lokuðum
krókagámum
til leigu
hafið samband
„Æ, LÁTTU ÞETTA FARA Í TALHÓLFIÐ.” „SEGÐ’ ONUM ÞAÐ! ÉG VAR HÉRNA FYRST, EKKI SATT?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að líða eins og barni
aftur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GRETTIR, GERÐU
EITTHVAÐ!
EKKI
MÁLIÐ
5 KM
HRÓLFUR! FÆRÐU
DROTTNINGUNNI
ÞENNAN SEKK!
HVAÐ? ÉG ER
HÉR TIL ÞESS AÐ
SÆKJA GULL
FYRIR OKKUR!!
ÉG LÍKA! ÉG
STAGAÐI
Í KJÓLA
DROTTNINGAR-
INNAR FYRIR
TUTTUGU GULL-
SKILDINGA!
Fjölskylda
Eiginkona Kjartans er Hildigunn-
ur Garðarsdóttir, f. 6.1. 1973, flug-
freyja hjá Icelandair, og eru þau
bús. í Reykjavík. Foreldrar Hildi-
gunnar eru hjónin Garðar Siggeirs-
son, f. 26.8. 1942, fyrrverandi kaup-
maður, og Erla Ólafsdóttir, f. 24.10.
1945, fyrrverandi flugfreyja og
kennari. Þau eru bús. í Garðabæ.
Börn Kjartans og Hildigunnar eru
Andri Fannar Kjartansson, f. 15.11.
1997, nemi og kvikmyndatökumað-
ur, kærasta hans er Bryndís Muller,
f. 28.11. 1997, og Garðar Sölvi Kjart-
ansson, f. 27.7. 2004, nemi.
Hálfbróðir Kjartans samfeðra er
Dagur Eyjólfsson, f. 2.10. 1982, við-
skiptafræðingur og fjármálastjóri
Epal, bús. í Hafnarfirði, og uppeld-
issystir Kjartans er Álfrún Helga
Jónsdóttir, f. 22.12. 1974, bús. í Dan-
mörku.
Foreldrar Kjartans eru Eyjólfur
Pálsson, f. 27.6. 1946, kaupmaður í
Epal, bús. í Reykjavík, og Guðbjörg
Kristín Kjartansdóttir, f. 4.12. 1946,
fyrrverandi þingskjalavörður, bús. í
Reykjavík.
Úr frændgarði Kjartans Páls Eyjólfssonar
Sólveig Kjartansdóttir
húsfreyja í Hofteigi í Eyjafi rði
Kjartan Páll
Eyjólfsson
Kristinn Árnasson
verkamaður í Reykjavík
Guðbjörg Árnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Helga Kristinsdóttir
húsfreyja í Rvík
Guðbjörg Kristín Kjartansdóttir
fv. þingskjalavörður
Kjartan Bergmann Guðjónsson
yfi rskjalavörður Alþingis, frkvstj.
ÍSÍ og Glímusambands Íslands
Sólveig Árnadóttir
húsfreyja á Flóðatanga
Guðjón Kjartansson
bóndi á Flóðatanga í Borgarfi rði
Páll V.G. Kolka
læknir
Jón Guðmundsson
b. á Torfalæk
Björn Leví Jónsson
veðurfr. og læknir
Ingibjörg Jónasdóttir forseti
Evrópud. Delta Kappa Gamma
Torfi Jónsson
odd viti á TorfalækJóhannes Torfason b. á Torfalæk
Guðmundur Jónsson
skólastj. á Hvanneyri
Ásgeir Guðmundsson fv.
forstöðum. Námsgagnast.
Jónas Jónsson
fræðslustj. í Rvík
Ögmundur Jónasson
fv. alþm. og ráðherra
Margrét Pétursdóttir húsfr. í RvíkHelgi H. Jónsson fréttastjóri
Marta Guðmundsdóttir
húsfreyja á Lækjarbakka
Jakob Pétur Stefánsson
sjómaður og verkamaður á
Lækjarbakka á Skagaströnd
Elísabet Pétursdóttir
húsfreyja í Rvík
Gróa Eyjólfs dóttir húsfr.
á Höfn í Hornafi rði
Ingólfur Arnarson
fv. fl ugvallarstjóri á
Egilsstöðum
Margrét Eyjólfsdótt ir
húsfr. á Bessa-
stöðum í Fljótsdal
Þórey Axelsdóttir
form. Þingborgar
Páll Eyjólfsson
leigubílstjóri í Rvík
Ásgerður Pálsdóttir
húsfreyja á Melum
Eyjólfur Þorsteinsson
bóndi á Melum í Fljótsdal
Eyjólfur Pálsson
kaupmaður í Epal
Jósefína Meulengracht Dietrichsegir frá því á Boðnarmiði að
„það komu sko gestir um daginn af
númer 17 með fisk í poka handa
mér og áðan lét ég fólkið mitt
velgja restina í örbylgjuofninum“:
Alsæl ligg ég undir sæng í ýsu rúsi
því til matar fékk ég fisk,
fullan disk.
Á sama tíma er Ólafur Stefáns-
son í sólarlöndum og talar á Leir
um „blessaða hlýjuna“:
Hamfarahlýnunin bráða
á héraðið setur sinn brag:
Þrjátíu og þrjár og hálf gráða,
það er hitinn í dag.
Fía á Sandi hefur varann á:
Þó hann Óli sé ansi klár
efast ég samt um það.
Voru það ekki 3,3
sem þarna fóru á blað.
Ólafur svarar:
Von að finnist hitinn hár
Hólmfríði á Söndum,
en „Úti er ég við eyjar blár“,
undan Ghanaströndum.
Fía aftur:
Æ, þrjátíu og þrjár er alltof mikið.
Ef ég væri úti þar
af mér fykju spjarirnar
svo held ég mundi hrynja af mér spikið.
„Ef ég hef lesið rétt ætlar Katrín
Jakobsdóttir að setja reglur um
landakaup,“ skrifar Erlingur Sig-
tryggsson:
Útlendingar aðgangsharðir
alltaf kaupa fleiri jarðir
en brátt mun lögum breytt með hraði
og bannað að selja Gunnarsstaði.
Jón Gissurarson skrifar til Leir-
verja:
„Takk fyrir móttökurnar við
endurkomu mína á Leirinn. Mér
telst til að það séu sjö ár síðan ég
var hér síðast. Hlýt ég því að teljast
vera afturgenginn hér á Leirnum.
Vonandi fæ ég einhver viðbrögð við
afturgöngunni.
Karlinn genginn aftur er
ylja mun þó ljóðageir.
Sjö eru vetur sýnist mér
síðan ég var hér á Leir.“
Sigmundur Benediktsson bauð
hann velkominn og segir að enn sé
týndum sauðum vel fagnað á Leir:
Ullin reyndist honum hlý
hörðu árin fimm og tvö,
hann er mættur aftur í
útigöngureyfum sjö.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af hamfarahlýnun
og týndum sauðum