Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019
Haustganga Þessir bláklæddu feðgar brugðu sér í hressandi haustgöngutúr um Klambratún enda um að gera að viðra sig meðan veðurfarið helst tiltölulega milt og gott.
Kristinn Magnússon
Kerfið er á vaktinni yfir eigin
velferð og þegar að því er sótt get-
ur það sýnt klærnar. Dæmin eru
mörg, misalvarleg og hafa valdið
einstaklingum og fyrirtækjum
fjárhagstjóni en einnig a.m.k.
tímabundnum álitshnekki og
erfiðleikum. Tvö nýleg dæmi eru
langt frá því að vera þau alvarleg-
ustu heldur gefa þau ákveðna inn-
sýn í inngróinn hugsanahátt kerf-
isins. Annað dæmið snertir
Seðlabankann og samskipti við
blaðamann, hitt er viðbrögð forráðamanna og
velunnara Samkeppniseftirlitsins við frum-
varpsdrögum ráðherra samkeppnismála sem
lögð hafa verið fram til kynningar og umræðu.
Á síðasta ári óskaði Ari Brynjólfsson, blaða-
maður Fréttablaðsins, eftir því að Seðlabank-
inn veitti honum upplýsingar um samning
bankans við fyrrverandi framkvæmdastjóra
gjaldeyriseftirlitsins, um styrk til náms í ein-
um dýrasta háskóla heims. Bankinn neitaði.
Úrskurðarnefnd upplýsingamála komst að því
að Seðlabankanum bæri að afhenda umbeðnar
upplýsingar. Brugðist var hart við og blaða-
manninum stefnt. Héraðsdómur felldi dóm
fyrir nokkru: Seðlabankinn skyldi láta upplýs-
ingarnar af hendi.
Nú liggur fyrir af hverju bankinn – kerfið –
taldi rétt að verjast og leggja steina í götur
blaðamanns sem var að sinna skyldum sínum
við lesendur. Náms- og starfslokasamning-
urinn sem gerður var við fyrrverandi yf-
irmann gjaldeyriseftirlitsins þoldi illa dagsins
ljós, hvorki gagnvart almenningi né öðrum
starfsmönnum Seðlabankans sem hafa komist
að því að jafnræðisregla var að engu höfð.
Harkaleg vörn
Sigurður Kári Kristjánsson hæstaréttar-
lögmaður á sæti í bankaráði Seðlabankans. Í
samtali við Fréttablaðið í síðustu viku sagði
Sigurður Kári samninginn mjög óeðlilegan:
„Hann er úr öllu hófi samkvæmt öllum hefð-
bundnum mælikvörðum.“ Bankaráðsmaðurinn
efast um að þáverandi seðlabankastjóri hafi
haft lagalega heimild til að gera samning af
þessu tagi.
Harkaleg vörn Seðlabankans
til að koma í veg fyrir að blaða-
maður fengi þær upplýsingar
sem beðið var um vekja end-
urminningar um framkvæmd
gjaldeyriseftirlits bankans, sem
hefur sætt harðri gagnrýni. Í
svari forsætisráðherra frá í jan-
úar við fyrirspurn Birgis Þór-
arinssonar þingmanns kemur
fram að Seðlabankinn hafi frá
2012 til 2016 lagt 115,9 milljóna
króna stjórnvaldssektir á fyrir-
tæki vegna meintra brota á
gjaldeyrislögum og þeim
reglum um gjaldeyrismál sem bankinn setti á
grundvelli þeirra. Dómstólar hafa hins vegar
gert ríkissjóði að endurgreiða 114,2 milljónir,
eða nær 99% þeirra sekta sem Seðlabankinn
taldi eðlilegt.
Stjórnvaldssektirnar eru því miður ekki
versta birtingarmynd gjaldeyriseftirlitsins og
framkvæmd þess.
„Blautir draumar“
Ekki liðu margar klukkustundir frá því að
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
kynnti drög að frumvarpi til breytinga á sam-
keppnislögum þar til snúist var til varnar.
Fyrrverandi formaður Samkeppniseftirlitsins
og sitjandi formaður bankaráðs Seðlabankans
var orðheppinn í samtali við Fréttablaðið og
talaði um verið væri að „láta blauta drauma
fákeppnismógúla rætast“. Forstjórinn lýsti yf-
ir vonbrigðum og þá ekki síst að lagt væri til
að fella úr gildi rétt eftirlitsins til að áfrýja
ákvörðunum áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála. „Verði frumvarpið að lögum mun enginn
gæslumaður almannahagsmuna geta borið úr-
skurði nefndarinnar undir dómstóla,“ sagði
forstjórinn í Viðskiptablaðinu sama dag og
frumvarpsdrögin voru kynnt. Þannig var gefið
undir fótinn með að úrskurðarnefnd sam-
keppnismála gætti ekki hagsmuna almenn-
ings.
Hér skal látið vera að forstjóri Samkeppn-
iseftirlitsins tali niður úrskurðarnefnd sam-
keppnismála með þeim hætti sem hann gerir.
Og að þessu sinni verður ekki gagnrýnt að
kerfið skuli innan nokkurra klukkustunda
bregðast við af fullri hörku þegar ráðherra
kynnir lagafrumvarp í samráðsgátt og óskar
eftir athugasemdum, ábendingum og umræðu.
Gífuryrði og orðaleikir (smíðaðir á PR-stofum)
skila hins vegar litlum árangri og þjóna hvorki
hagsmunum almennings né atvinnulífsins.
Snýst um réttindi borgaranna
Ég hef lengi haldið því fram að röksemdir
fyrir því að lægra sett stjórnvald (í þessu til-
felli Samkeppniseftirlitið) geti skotið ákvörð-
unum æðra stjórnvalds (hér úrskurðarnefndar
samkeppnismála) til dómstóla gangi ekki upp.
Þetta snýst um réttindi borgaranna – fyrir-
tækjanna – ekki um réttindi eftirlitsaðila eða
stofnunar. Hér er um mikið hagsmunamál að
ræða fyrir atvinnulífið, ekki síst minni fyrir-
tæki sem standa berskjölduð gagnvart stjórn-
valdi. Við höfum mörg dæmi um það hvernig
mál hafa dregist þannig að einstaklingar og
fyrirtæki bíða árum saman eftir niðurstöðu í
málum sínum. Ég fæ illa séð hvernig slíkt
þjónar almannahagsmunum.
Ef niðurstaðan verður sú að rétt sé að Sam-
keppniseftirlitið eigi að geta skotið úrskurði
æðra stjórnvalds til dómstóla er miklu hrein-
legra og betra að leggja áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála niður. Sá sem skýtur sínu máli til
áfrýjunarnefndar getur aldrei treyst því að
niðurstaða nefndarinnar sé endanleg frá hendi
samkeppnisyfirvalda. Í þessu sambandi er
vert að hafa í huga að ákvörðun Samkeppnis-
eftirlitsins verður ekki borin undir dómstóla
fyrr en úrskurður áfrýjunarnefndar liggur
fyrir.
Seint verður hægt að undirstrika nægj-
anlega hversu mikilvæg virk samkeppni er
fyrir almenning en ekki síður fyrirtæki. Í
greinargerð sem fylgir frumvarpsdrögunum
er bent á að samkeppnislög byggi á þeirri
hugsun að virk samkeppni sé þjóðhagslega
hagkvæm og leiði til aukinnar almennar hag-
sældar: „Þannig hefur verið sýnt fram á að
fyrirtæki sem búa við öflugt samkeppnis-
aðhald eru líklegri til að eflast, leita hagræð-
ingar og nýsköpunar og auka framleiðni og
eru þannig betur búin til að mæta virkri sam-
keppni bæði á innlandsmörkuðum og á alþjóð-
legum mörkuðum. Auk öflugri fyrirtækja er
einn helsti ábati virkrar samkeppni lægra
verð og meiri gæði á vörum og þjónustu,
meira og betra framboð og aukið valfrelsi
neytenda.“
Flest til bóta en …
Harkaleg viðbrögð forráðamanna Sam-
keppniseftirlitsins við frumvarpsdrögunum
eru umhugsunarverð. Sumir eru fljótari en
aðrir að taka sér stöðu í skotgröfunum. Ekki
verður séð að hástemmdar yfirlýsingar um að
verið sé að veikja Samkeppniseftirlitið eigi við
rök að styðjast. Hitt er rétt að í nokkru er
markmið breytinganna að einfalda fram-
kvæmd samkeppnislaga og auka skilvirkni.
Það er í samræmi við yfirlýsingar ríkisstjórn-
arinnar til stuðnings lífskjarasamnings aðila
vinnumarkaðarins fyrr á þessu ári.
Drögin að breytingum á samkeppnislögum
eru í flestu til bóta. Mikilvægasta hlutverk
samkeppnisyfirvalda er að stuðla að eðlilegri
og sanngjarnri samkeppni og heilbrigðum við-
skiptaháttum á mörkuðum með hagsmuni
neytenda og atvinnulífsins að leiðarljósi. Þess
vegna á að leggja áherslu á leiðbeinandi hlut-
verk Samkeppniseftirlitsins. Refsi- og agavald
á alltaf að vera neyðarúrræði. Þetta á ekki að-
eins við um Samkeppniseftirlitið heldur allar
eftirlitsstofnanir og stjórnkerfið í heild.
Á þessu þarf að skerpa í lögum. Einnig er
vert að huga að því að setja inn lagaákvæði um
sjálfstætt reglubundið ytra mat á samkeppnis-
lögunum, starfsemi og árangri Samkeppn-
iseftirlitsins. (Sambærilegt ákvæði er í nýjum
lögum um Seðlabankann.) Úttektin færi fram
á fimm ára fresti og væri unnin af óháðum sér-
fræðingum á sviði samkeppnismála. Á fleira
má benda, s.s. að styrkja stöðu einkafyr-
irtækja í samkeppni við opinbera aðila.
Ástæða er til að óttast að erfitt verði að eiga
efnislegar rökræður um nauðsynlegar breyt-
ingar á samkeppnislögunum í skotgröfum
gífuryrða og klisjukenndra orðaleppa.
Eftir Óla Björn Kárason
Óli Björn Kárason
Kerfisklær og skotgrafir
» Gífuryrði og orðaleikir
(smíðaðir á PR-stofum)
skila hins vegar litlum árangri
og þjóna hvorki hagsmunum
almennings né atvinnulífsins.
Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.