Morgunblaðið - 30.10.2019, Síða 15

Morgunblaðið - 30.10.2019, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019 Haustganga Þessir bláklæddu feðgar brugðu sér í hressandi haustgöngutúr um Klambratún enda um að gera að viðra sig meðan veðurfarið helst tiltölulega milt og gott. Kristinn Magnússon Kerfið er á vaktinni yfir eigin velferð og þegar að því er sótt get- ur það sýnt klærnar. Dæmin eru mörg, misalvarleg og hafa valdið einstaklingum og fyrirtækjum fjárhagstjóni en einnig a.m.k. tímabundnum álitshnekki og erfiðleikum. Tvö nýleg dæmi eru langt frá því að vera þau alvarleg- ustu heldur gefa þau ákveðna inn- sýn í inngróinn hugsanahátt kerf- isins. Annað dæmið snertir Seðlabankann og samskipti við blaðamann, hitt er viðbrögð forráðamanna og velunnara Samkeppniseftirlitsins við frum- varpsdrögum ráðherra samkeppnismála sem lögð hafa verið fram til kynningar og umræðu. Á síðasta ári óskaði Ari Brynjólfsson, blaða- maður Fréttablaðsins, eftir því að Seðlabank- inn veitti honum upplýsingar um samning bankans við fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlitsins, um styrk til náms í ein- um dýrasta háskóla heims. Bankinn neitaði. Úrskurðarnefnd upplýsingamála komst að því að Seðlabankanum bæri að afhenda umbeðnar upplýsingar. Brugðist var hart við og blaða- manninum stefnt. Héraðsdómur felldi dóm fyrir nokkru: Seðlabankinn skyldi láta upplýs- ingarnar af hendi. Nú liggur fyrir af hverju bankinn – kerfið – taldi rétt að verjast og leggja steina í götur blaðamanns sem var að sinna skyldum sínum við lesendur. Náms- og starfslokasamning- urinn sem gerður var við fyrrverandi yf- irmann gjaldeyriseftirlitsins þoldi illa dagsins ljós, hvorki gagnvart almenningi né öðrum starfsmönnum Seðlabankans sem hafa komist að því að jafnræðisregla var að engu höfð. Harkaleg vörn Sigurður Kári Kristjánsson hæstaréttar- lögmaður á sæti í bankaráði Seðlabankans. Í samtali við Fréttablaðið í síðustu viku sagði Sigurður Kári samninginn mjög óeðlilegan: „Hann er úr öllu hófi samkvæmt öllum hefð- bundnum mælikvörðum.“ Bankaráðsmaðurinn efast um að þáverandi seðlabankastjóri hafi haft lagalega heimild til að gera samning af þessu tagi. Harkaleg vörn Seðlabankans til að koma í veg fyrir að blaða- maður fengi þær upplýsingar sem beðið var um vekja end- urminningar um framkvæmd gjaldeyriseftirlits bankans, sem hefur sætt harðri gagnrýni. Í svari forsætisráðherra frá í jan- úar við fyrirspurn Birgis Þór- arinssonar þingmanns kemur fram að Seðlabankinn hafi frá 2012 til 2016 lagt 115,9 milljóna króna stjórnvaldssektir á fyrir- tæki vegna meintra brota á gjaldeyrislögum og þeim reglum um gjaldeyrismál sem bankinn setti á grundvelli þeirra. Dómstólar hafa hins vegar gert ríkissjóði að endurgreiða 114,2 milljónir, eða nær 99% þeirra sekta sem Seðlabankinn taldi eðlilegt. Stjórnvaldssektirnar eru því miður ekki versta birtingarmynd gjaldeyriseftirlitsins og framkvæmd þess. „Blautir draumar“ Ekki liðu margar klukkustundir frá því að ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynnti drög að frumvarpi til breytinga á sam- keppnislögum þar til snúist var til varnar. Fyrrverandi formaður Samkeppniseftirlitsins og sitjandi formaður bankaráðs Seðlabankans var orðheppinn í samtali við Fréttablaðið og talaði um verið væri að „láta blauta drauma fákeppnismógúla rætast“. Forstjórinn lýsti yf- ir vonbrigðum og þá ekki síst að lagt væri til að fella úr gildi rétt eftirlitsins til að áfrýja ákvörðunum áfrýjunarnefndar samkeppnis- mála. „Verði frumvarpið að lögum mun enginn gæslumaður almannahagsmuna geta borið úr- skurði nefndarinnar undir dómstóla,“ sagði forstjórinn í Viðskiptablaðinu sama dag og frumvarpsdrögin voru kynnt. Þannig var gefið undir fótinn með að úrskurðarnefnd sam- keppnismála gætti ekki hagsmuna almenn- ings. Hér skal látið vera að forstjóri Samkeppn- iseftirlitsins tali niður úrskurðarnefnd sam- keppnismála með þeim hætti sem hann gerir. Og að þessu sinni verður ekki gagnrýnt að kerfið skuli innan nokkurra klukkustunda bregðast við af fullri hörku þegar ráðherra kynnir lagafrumvarp í samráðsgátt og óskar eftir athugasemdum, ábendingum og umræðu. Gífuryrði og orðaleikir (smíðaðir á PR-stofum) skila hins vegar litlum árangri og þjóna hvorki hagsmunum almennings né atvinnulífsins. Snýst um réttindi borgaranna Ég hef lengi haldið því fram að röksemdir fyrir því að lægra sett stjórnvald (í þessu til- felli Samkeppniseftirlitið) geti skotið ákvörð- unum æðra stjórnvalds (hér úrskurðarnefndar samkeppnismála) til dómstóla gangi ekki upp. Þetta snýst um réttindi borgaranna – fyrir- tækjanna – ekki um réttindi eftirlitsaðila eða stofnunar. Hér er um mikið hagsmunamál að ræða fyrir atvinnulífið, ekki síst minni fyrir- tæki sem standa berskjölduð gagnvart stjórn- valdi. Við höfum mörg dæmi um það hvernig mál hafa dregist þannig að einstaklingar og fyrirtæki bíða árum saman eftir niðurstöðu í málum sínum. Ég fæ illa séð hvernig slíkt þjónar almannahagsmunum. Ef niðurstaðan verður sú að rétt sé að Sam- keppniseftirlitið eigi að geta skotið úrskurði æðra stjórnvalds til dómstóla er miklu hrein- legra og betra að leggja áfrýjunarnefnd sam- keppnismála niður. Sá sem skýtur sínu máli til áfrýjunarnefndar getur aldrei treyst því að niðurstaða nefndarinnar sé endanleg frá hendi samkeppnisyfirvalda. Í þessu sambandi er vert að hafa í huga að ákvörðun Samkeppnis- eftirlitsins verður ekki borin undir dómstóla fyrr en úrskurður áfrýjunarnefndar liggur fyrir. Seint verður hægt að undirstrika nægj- anlega hversu mikilvæg virk samkeppni er fyrir almenning en ekki síður fyrirtæki. Í greinargerð sem fylgir frumvarpsdrögunum er bent á að samkeppnislög byggi á þeirri hugsun að virk samkeppni sé þjóðhagslega hagkvæm og leiði til aukinnar almennar hag- sældar: „Þannig hefur verið sýnt fram á að fyrirtæki sem búa við öflugt samkeppnis- aðhald eru líklegri til að eflast, leita hagræð- ingar og nýsköpunar og auka framleiðni og eru þannig betur búin til að mæta virkri sam- keppni bæði á innlandsmörkuðum og á alþjóð- legum mörkuðum. Auk öflugri fyrirtækja er einn helsti ábati virkrar samkeppni lægra verð og meiri gæði á vörum og þjónustu, meira og betra framboð og aukið valfrelsi neytenda.“ Flest til bóta en … Harkaleg viðbrögð forráðamanna Sam- keppniseftirlitsins við frumvarpsdrögunum eru umhugsunarverð. Sumir eru fljótari en aðrir að taka sér stöðu í skotgröfunum. Ekki verður séð að hástemmdar yfirlýsingar um að verið sé að veikja Samkeppniseftirlitið eigi við rök að styðjast. Hitt er rétt að í nokkru er markmið breytinganna að einfalda fram- kvæmd samkeppnislaga og auka skilvirkni. Það er í samræmi við yfirlýsingar ríkisstjórn- arinnar til stuðnings lífskjarasamnings aðila vinnumarkaðarins fyrr á þessu ári. Drögin að breytingum á samkeppnislögum eru í flestu til bóta. Mikilvægasta hlutverk samkeppnisyfirvalda er að stuðla að eðlilegri og sanngjarnri samkeppni og heilbrigðum við- skiptaháttum á mörkuðum með hagsmuni neytenda og atvinnulífsins að leiðarljósi. Þess vegna á að leggja áherslu á leiðbeinandi hlut- verk Samkeppniseftirlitsins. Refsi- og agavald á alltaf að vera neyðarúrræði. Þetta á ekki að- eins við um Samkeppniseftirlitið heldur allar eftirlitsstofnanir og stjórnkerfið í heild. Á þessu þarf að skerpa í lögum. Einnig er vert að huga að því að setja inn lagaákvæði um sjálfstætt reglubundið ytra mat á samkeppnis- lögunum, starfsemi og árangri Samkeppn- iseftirlitsins. (Sambærilegt ákvæði er í nýjum lögum um Seðlabankann.) Úttektin færi fram á fimm ára fresti og væri unnin af óháðum sér- fræðingum á sviði samkeppnismála. Á fleira má benda, s.s. að styrkja stöðu einkafyr- irtækja í samkeppni við opinbera aðila. Ástæða er til að óttast að erfitt verði að eiga efnislegar rökræður um nauðsynlegar breyt- ingar á samkeppnislögunum í skotgröfum gífuryrða og klisjukenndra orðaleppa. Eftir Óla Björn Kárason Óli Björn Kárason Kerfisklær og skotgrafir » Gífuryrði og orðaleikir (smíðaðir á PR-stofum) skila hins vegar litlum árangri og þjóna hvorki hagsmunum almennings né atvinnulífsins. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.