Morgunblaðið - 30.10.2019, Side 2

Morgunblaðið - 30.10.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019 TAUBLEIUBÚÐIN ÞÍN Kíktu á netverslun okkar bambus.is Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vildi öll gögn upp á borðið  Seðlabankastjóri gaf fyrirmæli um afhendingu bréfa vegna Samherjamálsins Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kveðst að- spurður hafa átt frumkvæði að því að afhenda upplýsingar um samskipti fv. starfsmanna bank- ans við Ríkisútvarpið sem komu fram í bréfa- skriftum Seðlabankans við forsætisráðuneytið. Póstarnir hafi fylgt með málsskjölum vegna skaðabótamáls Samherja á hendur bankanum sem þingfest var 9. september sl. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að Samherji krefðist 306 milljóna króna í skaðabætur og tíu milljóna króna í miskabætur frá Seðlabanka Ís- lands (SÍ) vegna rannsóknar bankans á meint- um brotum fyrirtækisins á reglum um gjaldeyr- ismál. Ásgeir tók við sem seðla- bankastjóri 20. ágúst sl. Hann kveðst hafa falið Jó- hannesi Karli Sveinssyni hrl. málsvörn fyrir hönd bankans. Með því sé málið úr höndum bankans og hjá lögmanni sem sé ótengdur bankanum. „Samherji fór í mál gegn Seðlabankanum sem er höfð- að fyrir dómi. Það er erfitt fyrir mig að tjá mig um málið að svo stöddu. Samherji hefur líka kært fimm starfsmenn bankans til lögreglu. Bankinn er þá undir þrýstingi úr þessari átt. Ég tók þá ákvörðun að eigin frumkvæði að koma gögnum á framfæri sem vitnað hefur verið til í umræðu um hinn meinta leka,“ segir Ásgeir og vísar til tölvupóstsamskipta fyrrverandi starfsmanns bankans við RÚV. Ræddi við forstjóra Samherja „Ég lét setja bréfin til forsætisráðuneytisins fram sem hluta af málsskjölum sem Seðlabank- inn lagði fram í tengslum við skaðabótamálið. Síðan hringdi ég í Þorstein Má [Baldvinsson, forstjóra Samherja] og skýrði honum frá því að hann gæti gengið að þessum bréfum sem hluta af gögnum málsins – og ég teldi það skyldu mína að upplýsa hann um þetta. Umræddur starfsmaður sem var í samskiptum við RÚV er hættur hjá bankanum. Við höfum því reynt að gera hreint fyrir okkar dyrum,“ segir Ásgeir. Ásgeir Jónsson Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það er ekki algengt að lýst sé yfir neyðarástandi vegna eldsneytis,“ segir Ragnar Guðmundsson, rann- sakandi hjá Rannsóknarnefnd sam- gönguslysa, í samtali við Morgun- blaðið, en hann vinnur nú að rannsókn alvarlegs flugatviks sem átti sér stað á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn mánudag. Lýstu þá flugmenn farþegaþotu Icelandair frá Seattle í Bandaríkjun- um yfir neyðarástandi vegna lágrar eldsneytisstöðu og lentu í kjölfarið á lokaðri flugbraut. Var flugbrautin lokuð eftir annað alvarlegt flugatvik þar sem lítil vél fór út af braut. Allir komust heilir frá báðum atvikum. Greint hefur verið frá því í Morgunblaðinu að búið sé að fjar- lægja flugrita Icelandair-þotunnar og verða þeir skoðaðir í tengslum við rannsóknina. Ragnar segist nú vera að vinna í því að safna gögnum, með- al annars frá Isavia, ræða við flug- menn, flugvallarstarfsmenn og aðra hlutaðeigendur. Skilgreiningin er skýr „Þetta eru í raun tvö mál. Annars vegar fer flugvél út af braut og hins vegar lýsir önnur vél yfir neyðar- ástandi og lendir á lokaðri flug- braut,“ segir hann og bendir á að rannsókn muni einkum beinast að eldsneytisstöðu farþegaþotunnar, hreinsun flugbrauta og stöðu vara- flugvalla. Umrædd flugvél Iceland- air hafði Reykjavíkurflugvöll sem varaflugvöll en bremsuskilyrði þar voru ekki talin góð vegna ísingar. Flugrekstrarstjóri Icelandair sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að flugstjóri vélarinnar hefði metið öruggast að lenda í Keflavík. Að lenda á lokaðri flugbraut er þó, að sögn Ragnars, alltaf flokkað sem al- varlegt flugatvik. „Skilgreiningin er skýr en svo mun rannsóknin leiða þetta mál bet- ur í ljós. Ég get á þessari stundu ekki tjáð mig mikið um þetta.“ Skoða sérstaklega eldsneyt- isstöðu og hreinsun brauta  Alltaf „alvarlegt flugatvik“ að lenda á lokaðri flugbraut Sigurður Ingi Jó- hannsson, sam- starfsráðherra Norðurlanda, seg- ir að fólk eigi að geta flutt milli landa á Norð- urlöndunum án hindrana líkt og þegar flutt er á milli sveitarfélaga á Íslandi. Hann er nú staddur á þingi norðurlandaráðs í Stokkhólmi og sagði í samtali við mbl.is í gær að eitt af því sem nú væri rætt um væri að kennitölur hvers lands yrðu gjaldgengar í hinum nor- rænu ríkjunum. Sigurður Ingi segir að um 65 þús- und íbúar á Norðurlöndunum flytji á milli landanna á Norðurlöndunum og ef horft sé til Íslands búi meginþorri þeirra Íslendinga sem erlendis eru í öðru norrænu landi. „Þetta er mjög stór hópur og þetta skiptir okkur hlutfallslega miklu máli. Eitt af því sem verið er að vinna í núna er að kennitölur hvers lands verði gjald- gengar í öðrum norrænum löndum. Það mun þýða að þegar þú flytur er eins og þú sért að flytja milli hverfa og sért strax kominn inn í kerfið og enginn biðtími verði eftir bankareikn- ingi eða öðru eins það er í dag,“ segir Sigurður Ingi en nánar er rætt við hann á mbl.is. guna@mbl.is Kennitölur verði gjald- gengar Sigurður Ingi Jóhannsson  Auðveldara verði að flytja milli landa Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur samþykkt að gera upp öll þau iðgjöld og vexti sem vantaði til að gera sjóðsfélaga Stapa og starfsfólk sveitarfélagsins jafnsett öðrum sjóðsfélögum. Tilefnið er að vegna mistaka um ellefu ára skeið fékk starfsfólk sveitarfélagsins of lága greiðslu á mótframlagi í lífeyrissjóð- inn Stapa. Vegna þessa tekur hreppurinn lán upp á 70 milljónir hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Jafnframt var ákveðið að stefna Stapa til greiðslu skaðabóta vegna mistaka við innheimtu iðgjaldanna, en deilt hefur verið um hvar ábyrgð- in liggi. Telur Vopnafjarðarhreppur að Stapi beri hluta ábyrgðarinnar en viðræður við sjóðinn hafa ekki borið árangur, segir í bókun sveitar- stjórnar frá sl. mánudegi. Taka lán og stefna Stapa Hrekkjavakan svonefnda verður haldin á fimmtudaginn en gjarnan tíðkast að fólk bregði sér þá í gervi hinna ýmsu illfygla og ólíkindatóla. Nokkur örtröð var í Partýbúðinni vegna þessa í gær og þurftu þessir viðskiptavinir búðarinnar að velta fyrir sér hvort ásjóna hins ógnvænlega trúðs Pennywise, sem Stephen King gæddi lífi í bók sinni IT, væri sú ákjósanlegasta til þess að fagna hrekkjavökunni með. Mikilvægt að finna sér réttu grímuna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Undirbúningur hrekkjavökunnar stendur sem hæst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.