Morgunblaðið - 30.10.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 30.10.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn Þorskhnakkar | Glæný lúða | Klausturbleikja Glæný línuýsa | Nýlöguð humarsúpa Rjúpnaveiðitímabilið hefst föstu- daginn 1. nóvember og stendur til 30. nóvember. Á tímabilinu verður leyft að veiða alla daga vikunnar, nema á miðvikudögum og fimmtu- dögum. Umhverfisráðherra fjölgaði leyfilegum veiðidögum úr 15 í fyrra í 22 á þessu ári í samræmi við til- lögur Náttúrufræðistofnunar Ís- lands (NÍ), Fuglaverndar, Skotveiði- félags Íslands og Umhverfisstofnunar. NÍ hefur metið veiðiþol rjúpna- stofnsins haustið 2019 og er ráðlögð rjúpnaveiði í haust 72 þúsund fuglar. Forsenda matsins byggist á þeirri stefnu stjórnvalda að rjúpna- veiðar séu sjálfbærar. Rjúpna- stofninn er í niðursveiflu víðast hvar. Á Norðausturlandi er hann þokkalega sterkur en annars staðar stendur stofninn veikt, til dæmis á Suðausturlandi. Viðkoma rjúp- unnar á Norðausturlandi og Vestur- landi var góð. Áætlaður rjúpnafjöldi þetta haust er vel yfir meðallagi miðað við síðustu áratugi. Rjúpnaveiðar eru bannaðar á stórum hluta Suðvesturlands. Allir með lögheimili á Íslandi og tilskilin leyfi mega veiða á þjóðlendum og á afréttum utan landareigna lögbýla. Aðeins má veiða á eignarlöndum með leyfi landeiganda. Bannað er að nota vélknúin farartæki við rjúpnaveiðar en veiðimenn mega aka á vegum og merktum veg- slóðum til og frá veiðilendum. Sölu- bann á rjúpum og rjúpnaafurðum er enn í gildi. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Ingó Rjúpnaveiðar Margir veiðimenn njóta þess að ganga til rjúpna í góðu veðri. Rjúpnaveiðar hefj- ast 1. nóvember  Ráðlögð rjúpnaveiði er 72.000 fuglar Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sú tillaga er sett fram í BS-ritgerð í umhverfisskipulagi við Landbún- aðarháskóla Íslands að komið verði upp gróðurgrafreitum sem val- kostum við hefðbundna kirkjugarða. Þar yrði hægt að setja niður duftker úr niðurbrjótanlegu efni og leyfilegt að gróðursetja tré, runna og fjöl- ærar plöntur á leiðið. Þannig gæti fólk valið að enda sem planta, þegar kemur að þeim tíma í lífinu sem allir þurfa að mæta. Stefanía Ágústa Pálsdóttir er höf- undur ritgerðarinnar. Hún segir að með þessu móti væri hægt að auka notagildi greftrunarstaða. Mögulegt væri að vinna þar að landgræðslu, skógrækt og kolefnisbindingu um leið og jarðneskar leifar fólks eru jarðsettar. Hugmyndin er ekki ný af nálinni því skógargrafreitur var settur upp í Stokkhólmi fyrir rúmum 100 árum og víðar hafa slíkar hugmyndir verið þróaðar. Tengt við útivistarsvæði Hugmyndin er að í hverjum graf- reit verði ákveðinn fjöldi plantna sem henti landsvæðinu og aðstand- endur geti valið úr. Bent er á að í mörgum bæjarfélögum sé nægt landsvæði sem hægt væri að deili- skipuleggja undir gróðurgrafreiti og unnt að tengja við útivistarsvæði eða viðkomandi bæ. Þannig yrði auðvelt að heimsækja grafreitinn án þess að fara á ökutæki. „Ef Íslendingum byðist sá kostur að láta jarðsetja sig í lítil niðurbrjót- anleg duftker ásamt fræi sem síðar verður að té, eða planta stálpaðri plöntu á leiðið, gæfist aðstandenum kostur á að eiga stað fyrir látinn ást- vin sinn til að heimsækja og eiga notalega og hugljúfa stund í skjól- góðum og gróðursælum stað,“ segir Stefanína í ritgerð sinni um ávinning samfélagsins. Tekið er fram að í reglum margra kirkjugarða sé kveðið á um að óheimilt sé að gróðursetja fjölær blóm, tré eða runna, nema í samráði við sóknarnefndir. Þeim reglum þarf að breyta og vígja grafreitina til að þeir verði valkostur fyrir þorra fólks. Vill enda sem tré Stefanía segist enn ekki hafa fengið viðbrögð við tillögu sinni enda nýlega búin að fá ritgerðina til baka. „Það væri gaman að opna um- ræðuna um þetta, sjá eitthvað ger- ast. Þegar minn tími kemur vil ég enda sem tré,“ segir Stefanía Ágústa Pálsdóttir. Fólk getur valið að enda sem tré eða plöntur  Tillaga um grafreiti til landgræðslu og kolefnisbindingar Morgunblaðið/Eggert Haust Smám saman mun rísa vöxtulegur skógur upp af leiðum í gróður- eða skógargrafreitum, verði hugmynd Stefaníu að veruleika.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.