Morgunblaðið - 30.10.2019, Side 25
Íþróttir
Bandarískar íþróttar eiga
undir högg að sækja þessa dag-
ana. Áhorfið fer minnkandi á
nánast allar íþróttir sem í boði
eru vestanhafs, ekki bara hjá
Kananum sjálfum, heldur líka hjá
íþróttaunnendum annars staðar
í heiminum.
Ég hef reynt að hanga yfir
NFL-deildinni öðru hverju en hef
ekki fjárfest í fullri áskrift að
deildinni núna í tvö ár. NBA-
deildin er eins og hún er. Um það
bil 1.250 leikir á einu tímabili áð-
ur en úrslitakeppnin tekur við.
Leikmenn deildarinnar spila að
sjálfsögðu af fullum krafti í öll-
um leikjum og í íþróttahúsum
Vestanhafs er ekki til neitt sem
heitir göngubolti. Móðir allra
íþrótta, eða meira kannski
langamma.
Hafnaboltinn er svo íþrótt
sem fáir í Evrópu hafa náð að
tengja við og kemur það svo sem
ekki mikið á óvart. Ég hef farið á
einn hafnaboltaleik á minni ævi
og það geri ég aldrei aftur. Það
er bókstaflega eins og að horfa á
málningu þorna enda gerist allt í
hægri endursýningu inni á vell-
inum. NHL-deildin í íshokkíi er
hins vegar eitthvað sem ég á enn
þá eftir að setja mig inn í.
Knattspyrnan er á uppleið í
Bandaríkjunum og ætli hún taki
ekki yfir íþróttamenninguna
þeirra á endanum. Ég er á leið til
New York, í nóvember, og er að
reyna ákveða hvaða íþrótta-
viðburðum ég eigi að verða vitni
að. Eins og staðan er í dag finnst
mér líklegast að ég endi á leik í
NHL-deildinni og NFL-deildinni.
Eins þreyttar og bandarískar
íþróttir geta verið er alltaf ákveð-
inn sjarmi yfir úrslitakeppnunum
þar í landi, svipað og hér heima,
en ef ég ætti að velja á milli
bandarísku úrslitakeppninnar í
körfunni og þeirrar íslensku
myndi ég alltaf velja íslensku úr-
slitakeppnina sem á sér engin
takmörk þegar kemur að
skemmtanagildi.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Álasund varð í efsta sæti b-
deildarinnar í Noregi í knattspyrnu
með nokkrum yfirburðum og leikur í
efstu deild á næsta tímabili. Aron
Elís Þrándarson ætlar þó að yfirgefa
félagið, telur tíma til kominn að
reyna fyrir sér á nýjum slóðum.
Morgunblaðið hafði samband við Ar-
on Elís í gær.
„Við erum bara með mjög gott lið.
Ég myndi segja að við værum með
lið sem er svipað að styrkleika og
fínt lið í efstu deild en spiluðum í
næstefstu deild. Það sást einnig í
bikarkeppninni þegar við slógum út
Molde og Rosenborg en féllum úr
keppni eftir vítaspyrnukeppni gegn
Viking. Við sýndum í þeim leikjum
að við áttum í fullu tré við lið í efstu
deild. Í fyrra vantaði meira upp á
breiddina hjá okkur því við vorum
óheppnir með meiðsli. Við erum með
sterkari leikmannahóp í ár og meiri
breidd. Fyrir utan það þá small liðið
saman og það var eiginlega aldrei
spurning um að við færum upp um
deild,“ sagði Aron en hann lék sem
miðtengiliður á tímabilinu. Hann er
vanari því að leika framar á vellinum
en kann ágætlega við sig á miðjunni.
„Tían er staða sem virðist vera að
deyja út í fótboltanum og maður
þarf að geta leyst fleiri stöður af
hendi. Ég hef verið að spila sem átta
í 3-5-2 kerfi. Á Íslandi var ég vanur
því að spila fyrir aftan framherjann í
meira sóknarhlutverki. Núna er ég
með meiri varnarskyldur. Ég hef
spilað vel að mér finnst og tel að
mínir styrkleikar nýtist vel í þessari
stöðu en það tók mig smátíma að
venjast þessu hlutverki.“
Er opinn fyrir öllu
Þótt Álasund leiki í efstu deild í
Noregi á næsta tímabili ætlar Aron
Elís að halda sig við þá ákvörðun að
reyna fyrir sér annars staðar en
samningur hans rennur út í lok
tímabilsins.
„Í fyrra hefðu þeir getað selt mig
en vildu fá meira fyrir mig en áhuga-
söm lið voru tilbúin að borga. For-
ráðamenn Álasunds tóku því þá
ákvörðun að nota mig frekar á þessu
tímabili þótt ég geti farið á frjálsri
sölu. Þeir sýndu áhuga á að semja
við mig en ég er ákveðinn í að breyta
til. Ég er búinn að vera hjá Álasundi
í langan tíma (fimm ár) og tel að ég
þurfi á nýrri áskorun að halda en
það var gaman að enda á góðum nót-
um,“ sagði Aron sem er opinn fyrir
því að spreyta sig utan Noregs.
Hann segist ekki hafa skoðað hvað
sé í boði enn sem komið sé því tíma-
bilinu sé bara rétt að ljúka í Noregi.
Fylgist vel með
Aron Elís er uppalinn í Víkingi og
æfði um tíma með liðinu í sumar.
Hann gladdist mjög þegar liðið varð
bikarmeistari síðsumars.
„Það var mjög skemmtilegt. Ég er
ánægður með það sem er í gangi í
Víkinni miðað við það sem ég hef
séð. Ég æfði aðeins með þeim í sum-
ar og finnst Arnar (Gunnlaugsson
þjálfari) vera að gera flotta hluti. Nú
er loksins komin smástefna hjá fé-
laginu, bæði hvað varðar leikstílinn
og leikmannahópinn. Liðið gefur
ungum leikmönnum tækifæri og
spilar skemmtilegasta fótboltann á
Íslandi myndi ég halda. Það var
geggjað hjá þeim að klára dæmið í
bikarnum,“ sagði Aron en ekki fer á
milli mála að Aron fylgist vel með
gangi mála á Íslandi því hann gerði
sér lítið fyrir og sigraði í Drauma-
liðsdeild Eyjabita og Fótbolta.net í
sumar. Slíkt er ekki hrist fram úr
erminni en keppnin tekur fimm
mánuði og mörg þúsund lið eru
skráð til leiks.
„Ég fylgist vel með fótboltanum á
Íslandi enda þekki ég fullt af leik-
mönnum. Mér finnst gaman að fylgj-
ast með þeim og Pepsi-deildinni. Ég
ákvað að vera með í leiknum en svo
gekk það bara svona helv … vel.“
Hugsar sér
til hreyfings
Ljósmynd/aafk.no/Srdan Mudrinic
Á miðjunni Aron Elís Þrándarson hefur færst aftar á völlinn.
Aron Elís lék sem miðtengiliður
Ísland mætir Slóvakíu, Kósóvó og
Lúxemborg í fyrstu umferð for-
keppni heimsmeistaramóts karla í
körfuknattleik sem fram fer 2023.
Dregið var í riðla í gær en ís-
lenska liðið mun hefja keppni í
febrúar.
Í hinum riðlinum eru Hvíta-
Rússland, Portúgal, Kýpur og Alb-
anía. Spilað er heima og að heiman
í febrúar og nóvember 2020 og í
febrúar 2021.
Tvö efstu liðin úr hvorum riðli
fara áfram í 2. umferð forkeppn-
innar en þar munu bætast við þau
átta lönd sem ekki komast á EM
2021 í gegnum undankeppnina, en
hún verður leikin í sömu landsliðs-
gluggum næstu tvö keppnistímabil.
Fyrsti leikur Íslands verður
gegn Kósóvó ytra í febrúar og í
framhaldinu verður heimaleikur
gegn Slóvakíu hérlendis ef Laug-
ardalshöllin fær áfram undanþágu
til landsleikjahalds eins og undan-
farin ár.
Kósóvó fékk um tíma ekki að
leika í undankeppni í knattspyrn-
unni í heimalandinu. Aðstaðan
þótti ekki fullnægjandi. Lék Kó-
sóvó heimaleiki sína í Albaníu um
tíma af þeim sökum.
2. umferð í ágúst 2021
Morgunblaðið spurði Hannes S.
Jónsson, formann KKÍ, út í þetta
atriði í gær og Hannes á ekki von
á öðru en að Kósóvó fái að spila
heimaleiki sína í Kósóvó. Þeir
héldu til að mynda mót í Kósóvó í
U18 ára aldurs-
flokki í sumar og
léku heima í Kó-
sóvó í forkeppni
EM karla. Að-
staðan ætti því
að vera fullnægj-
andi. Íslendingar
búast í það
minnsta við því
að þeir séu á leið
til Kósóvó í febr-
úar en ekki Albaníu. Lið Lúx-
emborg þekkja Íslendingar frá
Smáþjóðaleikum og voru í riðli
með Slóvakíu í undankeppni EM
fyrir nokkrum árum.
Ísland er efst þeirra liða sem
fara í fyrstu umferð forkeppninnar
á heimslistanum. Fari svo að Ís-
land nái öðru af tveimur efstu sæt-
unum þá tekur við 2. umferð for-
keppninnar. Hún yrði afgreidd í
ágúst 2021. Með svipuðum hætti
og riðillinn sem Ísland var í þegar
forkeppni EM fór fram í ágúst síð-
asta sumar.
Eftir 2. umferð forkeppninnar
tekur við hin hefðbundna und-
ankeppni fyrir HM en þangað fara
átta lið af tólf úr 2. umferð for-
keppninnar. Ísland lék í und-
ankeppni HM 2019 og var þá í riðli
með Tékklandi, Finnlandi og Búlg-
aríu. Ísland vann þá góða sigra
gegn Tékklandi og Finnlandi hér
heima en tvö töp gegn Búlgaríu
gerðu það að verkum að Ísland
komst ekki áfram í milliriðil.
kris@mbl.is
Forkeppni hefst í febrúar
Fyrsti leikur Íslands verður gegn Kósóvó ytra Ísland einnig í riðli með Slóvakíu
og Lúxemborg Leikið í febrúar og nóvember 2020 og aftur í febrúar 2021
Hannes S.
Jónsson
Fjölnir tyllti sér á toppinn í Hertz-
deild karla í íshokkíi þegar liðið
vann 5:3-sigur gegn SR í Skauta-
höllinni í Laugardal í gær. Það var
mikið fjör í fyrsta leikhluta þar sem
Ólafur Björnsson og Michal
Stoklosa skoruðu fyrir Fjölnismenn
snemma leiks.
Jón Óskarsson og Miloslav Rac-
ansky jöfnuðu metin fyrir SR um
miðjan fyrsta leikhluta. Michal
Stoklosa kom Fjölnismönnum í 3:2
skömmu síðar og Ólafur Björnsson
skoraði fjórða mark Fjölnismanna
undir lok fyrsta leikhluta og staðan
4:2, Fjölnismönnum í vil.
Kári Guðlaugsson minnkaði mun-
inn fyrir SR undir lok annars leik-
hluta en Steinar Grettisson innsigl-
aði sigur Fjölnis með marki undir
lok þriðja leikhluta og þar við sat.
Fjölnismenn eru með fullt hús stiga
eða 12 stig í efsta sæti deildarinnar
eftir fyrstu fjóra leiki sína. SA er í
öðru sæti með 9 stig og SR er án
stiga. bjarnih@mbl.is
Fjölnismenn með fullt
hús stiga á toppnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mörk Ólafur Björnsson var atkvæðamikill og skoraði tvívegis fyrir Fjölni.
Danmörk
Esbjerg – Herning-Ikast .................... 26:24
Rut Jónsdóttir var ekki á meðal marka-
skorara Esbjerg.
HANDBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Blue-höllin: Keflavík – Skallagrímur ..19.15
DHL-höllin: KR – Grindavík................19.15
Smárinn: Breiðablik – Valur ................19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Haukar.......19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Ásvellir: Haukar – ÍBV.........................18.30
Austurberg: ÍR – FH.................................19
KA-heimilið: KA – Stjarnan......................19
Kórinn: HK – Fram...............................19.30
Dalhús: Fjölnir – Valur..............................20
Í KVÖLD!