Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Sandro Mandrino sem hannaði
Grenoble-fatalínuna innan Monc-
ler-tískuhússins, byggði lita-
samsetningu og efnaval í þeirri
línu á innsetningum Hrafnhildar.
Hrafnhildur var síðan beðin um að
gera innsetningu fyrir tískuviku
Moncler í Mílanó síðastliðið vor.
Auk innsetningarinnar bjó Hrafn-
hildur til verk fyrir hvert sett af
flíkum línunnar sem var myndað í
„lookbook“. Nú er þessi fatalína að
koma í búðir og Hrafnhildur var
beðin um að gera stóra gluggaút-
stillingu sem samanstendur af
þremur fjögurra metra háum
björnum í mismunandi litum og
eru þeir í stíl við innsetninguna frá
því í vor. Tveir birnir verða
frammi við innganginn í búðinni og
einn þeirra verður inni í búðinni
þar sem sést upp á aðra hæð og
þar kíkir hann upp á gesti á hæð-
inni fyrir ofan,“ segir Lilja Bald-
ursdóttir um innsetningu Hrafn-
hildar Arnardóttur, eða Shoplifter,
sem verður afhjúpuð í dag, mið-
vikudag, í borg tískunnar, París, í
aðal Moncler-búðinni á 7 rue du
Faubourg St. Honoré.
„Sandro Mandrino var algerlega
innblásinn af verkum Hrafnhildar
við hönnun þessarar fatalínu, en
hann er yfirhönnuður Moncler og
við höfum virkilega gaman af því
hvað tískuhúsið ákvað að gera mik-
ið úr þessu.“
Ég togaðist í þessa átt
Lilja býr í New York og starfar
þar sem skapandi framleiðandi
(creative producer). Hún sá m.a.
um Feneyjatvíæringinn sem
Hrafnhildur tók þátt í fyrir hönd
Íslands í ár.
„Ég er forsvarsmaður Hrafn-
hildar eða hennar hægri hönd og
við erum mikið „power teymi“
saman, allavegana finnst okkur
það. Ég sé alfarið um að semja við
þá sem hún á viðskipti við og ég
passa m.a. upp á hennar hagsmuni
og höfundarrétt verka hennar. Ég
sé einnig um kostnaðaráætlanir og
skipulegg verkefnin frá grunni,
ræð fólk í vinnu og held utan um
hvernig verkefnin eru sett fram,“
segir Lilja sem hefur unnið í þess-
um geira í sjö ár og hefur mótað
sínar eigin leiðir og stofnaði ný-
lega sitt eigið fyrirtæki, Artik
Creatives.
„Ég vinn mikið með listamönn-
um, ljósmyndurum og öðru skap-
andi fólki. Ég hjálpa þeim meðal
annars við að vernda hugverkin
þeirra, en starf mitt getur líka fal-
ist í því að hjálpa skapandi fólki að
byggja upp innviði í eigin fyrir-
tækjum, því ég er bæði viðskipta-
og listamenntuð. Fyrir vikið hef ég
innsýn og skilning á báðum hlið-
um, sem er mikill kostur. Skapandi
fólk vinnur miklu meira sjálfstætt
en áður, en listamenn vilja samt
ekki þurfa að eyða dýrmætum
tíma í viðskiptahliðina og þeir eru
sjaldnast menntaðir á því sviði.
Fólk vill geta einbeitt sér að sköp-
un sinni,“ segir Lilja og bætir við
að fyrirtækið hennar bjóði upp á
þrennskonar þjónustu. Að halda
utan um framleiðslu á verkefni frá
upphafi til enda, að veita ráðgjöf
til listamanna á ýmsum sviðum, og
að taka í einstaka tilvikum að sér
að vera umboðsmaður.
„Ég skapaði þetta starf út frá
minni reynslu þar sem ég fann
hreinlega fyrir svo sterkri eftir-
spurn. Ég bjó fyrst í London áður
en ég flutti til New York og hef
safnað reynslu í hinum ólíkustu
störfum, sem ég tel vera mikil
verðmæti. Ég hef verið í því að
framleiða allt frá tónlistarmynd-
böndum til auglýsingaherferða og
stórra innsetninga. Ég togaðist í
þessa átt án þess að það væri plan-
ið í upphafi, sem leiddi mig svo
áfram í að stofna fyrirtækið mitt.
Ég er alsæl, því þetta er virkilega
fjölbreytt og skemmtilegt starf.
Ég hef mjög gaman af því að vinna
í skapandi verkefnum og að geta
lagt mitt af mörkum í því list-
ræna,“ segir Lilja og bætir við að
það þekkist ekki enn mikið að
listamenn séu með slíka mann-
eskju við hlið sér, sérstaklega ekki
á Íslandi. Lilja og Hrafnhildur eru
með skemmtileg verkefni á döf-
inni, m.a. eru þær að vinna að
stóru verkefni með BIOEFFECT,
en Hrafnhildur er að hanna með
þeim umbúðir fyrir 10 ára afmæli
þeirra á næsta ári.
Fjögurra metra háir birnir Hrafnhildar
Innsetning Hrafnhildar verður afhjúpuð í dag í borg tískunnar, París Hönnuðurinn Sandro
Mandrino var innblásinn af verkum Hrafnhildar Lilja Baldurs er hægri hönd Hrafnhildar
Lilja Skapandi framleiðandi.
Ljósmynd/Lilja Baldursdóttir
Risabjörn Hrafnhildur Arnardóttir og Cecilia Pfaff, sem er í innsetningar-
teymi Hrafnhildar og Lilju, hér með hluta af einum birni innsetningarinnar.
aftur og hugsar með blöndu af kvíða
og spennu til framhaldsins.
Eins og nafn bókarinnar gefur til
kynna er fjallað um málefni innflytj-
enda hér á landi í sögunni. Það hlýt-
ur að vera snúið að koma til lands
þar sem kuldi og myrkur umlykur
allt nokkra mánuði ársins og eiga
það á hættu að vera litinn hornauga
vegna útlits sem er frábrugðið
„hefðbundnum“ Íslendingum.
Uppbygging bókarinnar er
áhugaverð, en strax í upphafi verður
lesanda ljóst að glæpur hefur verið
framinn. Það er síðan sannfærandi
hvernig Hildur er nánast allt í einu
kominn í hringiðu rannsóknar, þar
Hvað er það í okkur mann-fólkinu sem fær okkurtil þess að vera enda-laust að draga hvert
annað í dilka, leita uppi óvini, skipa
okkur í fylkingar? Hvers vegna
treystum við helst engum nema
þeim sem eru eins og spegilmynd af
okkur sjálfum?
Þetta er ein spurninganna sem
aðalsöguhetjan Hildur spyr sig í
nýrri bók eftir Ólaf Jóhann Ólafs-
son. Í bókinni
Innflytjandanum
er fylgst með ferð
ekkjunnar Hildar
frá New York til
Íslands þar sem
ætlunin er að
stoppa stutt við
og gera gömlum
vini greiða.
Ferðin verður
lengri en Hildur
gerði ráð fyrir og dregst hún inn í
rannsókn á morði og mannshvarfi,
auk þess sem hún reynir að uppfylla
greiðann við gamla vininn. Hægt er
að lýsa Innflytjandanum sem blöndu
af spennusögu, þar sem ætlunin er
að leysa glæp, og sögu þar sem aðal-
persónan lítur yfir farinn veg, sakn-
ar þess sem liðið er og verður ekki
sem hún sleppur við að hugsa um
vandamál sem hún þarf að kljást við
í New York; bæði í einkalífinu og
vinnunni. Helst mætti setja út á
hvernig rannsókn glæpamálanna
lýkur en það er líklega smekks-
atriði.
Bókin er fremur auðlesin og
þægileg en skilur þó eftir sig áleitn-
ar spurningar, á borð við þær sem
standa hér efst. Hvers vegna treyst-
um við frekar speglunum en fólki
sem er uppfullt af annarri reynslu
og ætti þar með að víkka sjóndeild-
arhringinn okkar? Speglaunnendur
hefðu gott af því að lesa þessa
ágætu bók.
Morgunblaðið/Ómar
Speglar „Speglaunnendur hefðu gott af því að lesa þessa ágætu bók,“ segir
í gagnrýni um nýjustu skáldsögu Ólafs Jóhanns, Innflytjandinn.
Áleitnar spurningar
Skáldsaga
Innflytjandinn mn
Eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson.
Veröld gefur út. 398 bls., innb.
JÓHANN
ÓLAFSSON
BÆKUR
Fjöldi viðburða
er á dagskrá
Ljóðadaga óperu-
daga í dag. Af
þeim má nefna
opnunartónleika
hátíðarinnar sem
fram fara í Hátíð-
arsal Háskóla Ís-
lands kl. 12.30. Á
þeim frumflytja
Eva Þyri Hilmarsdóttir píanisti, Cat-
herine Maria Stankiewicz sellóleik-
ari og Guja Sandholt söngkona ís-
lensk og erlend verk sem eru óður til
náttúru og umhverfismála. Dagskrá
má finna á operudagar.is.
Hátíð sett í HÍ
Guja Sandholt
Marína Ósk sendi
frá sér fyrstu
sólóplötu sína,
Athvarf, fyrr í
mánuðinum og
hélt fyrri útgáfu-
tónleika sína í
Hofi á Akureyri
25. október en
þeir seinni verða
haldnir í kvöld
kl. 20 í Sunnusal Iðnó. Marína hefur
síðustu sjö ár einbeitt sér að djass-
námi í Hollandi og í Svíþjóð en tón-
listin á plötunni er í berskjölduðum
söngvaskáldastíl og gítarinn fær
mikið pláss.
Tónleikar í Iðnó
Marína Ósk