Morgunblaðið - 04.10.2019, Side 2

Morgunblaðið - 04.10.2019, Side 2
Hver er uppáhaldsbókin þín? „Ég á enga sérstaka uppáhaldsbók en síðasta bókin sem ég las var Kar- ítas án titils og mér fannst hún æðis- leg.“ Áttu uppáhaldssjónvarpsefni? „Það er svo margt gott í boði. Ég hef horft á Saturday Night Live frá því að ég var unglingur. Núna er ég að horfa á Fleabag, sem ég mæli með. Svo verð ég að minnast á frábæra þætti sem eru í gangi á RÚV núna og heita Heilabrot.“ Áttu þér uppáhaldsgrínista? „Spunaleikararnir í Improv Ísland. Líka Kirsten Wiig og Fred Armisen.“ Hver er uppáhaldskvikmyndin þín? „Ég get horft aftur og aftur á Mary Popp- ins.“ Hvað gerir þú til að dekra við þig? „Ég fer mjög oft í sund með syni mínum. Þá eru Vesturbæjarlaugin og Neslaugin í uppáhaldi. Þá eyði ég dágóðum tíma í guf- unni. Finnst allir dagar betri þegar ég næ að fara í gufu. Þá hverfa allar áhyggjur og spenna. Svo leyfi ég mér að fara í spa einu sinni í mánuði. Síðan er svo sturlað gaman að æfa og sýna með Improv Ísland að það mætti algjörlega flokka það undir dekur.“ Hvert er uppáhaldstískumerkið þitt? „Warrior er geggjað flott.“ Hvaða hönnuð heldur þú upp á? „Ýri Þrastardóttur.“ Hvað þýðir tíska fyrir þig? „Ég pæli sama sem ekkert í tísku. Geng alltaf bara um í gallabuxum, hettupeysu og íþróttaskóm. Ég hef aldrei keypt föt á netinu. En þegar ég vil vera mjög fín finnst mér gaman að vera í kjólum, þá bæði eftir ís- lenska hönnuði eða bara úr einhverri ódýrri búð.“ Hver er uppáhaldsliturinn þinn? „Grænn, í stíl við augun.“ Hvaða óþarfa keyptirðu þér síðast? „Mér finnst ég alltaf vera að kaupa mér varaliti, en ég týni þeim jafnóðum. Ég ætti í rauninni bara að sleppa því, í stað- inn fyrir að nota hvern bara einu sinni.“ Hver er uppáhaldsíþróttafatnaðurinn þinn? „Jógabuxur og hlýrabolur.“ Hvaða hlutur er ómissandi? „Húmorinn.“ Hver er mest notaða snyrtivaran í snyrtitöskunni? „Gullpenninn frá Yves Saint Laurent.“ Hver er uppáhalds- verslunin þín? „Kjötborg.“ Hver er uppáhalds- borgin til að versla í? „Ég eyði vanalega ekki miklum tíma í að versla þegar ég er í útlöndum. Mér finnst það eiginlega bara frekar leiðinlegt.“ Áttu þér uppáhaldsflík? „Núna er það Warrior-gallinn minn sem ég er nýbúin að fá. Sjúklega þægilegur og flott- ur. Gæti verið í honum á hverjum degi.“ Hver er besti veitingastaðurinn á Íslandi að þínu mati? „Mandi.“ Áttu uppáhaldsmorgunmat? „Já, það er egg og beikon og amerískar pönnukökur.“ Hvert er uppáhaldssmáforritið? „Instagram. Best að daðra þar.“ Hvað er á óskalistanum? „Ný íbúð.“ Fagurkeri sem segir best að daðra á Instagram Ýr Þrastardóttir er uppáhalds- hönnuður Dóru. Egg, beikon og pönnu- kökur er uppáhalds morg- unmatur Dóru. Dóra Jó- hannsdóttir dekrar við sig með því að fara reglulega í sund. Sundlaug Vesturbæjar. Dóra dekrar við sig með því að fara í SPA einu sinni í mánuði. Gamanleik konan Kirsten Wiig framan á ELLE tímaritinu. Ljósmynd/Thinkstockphotos Ljósmynd/Viðar Logi Dóra Jóhannsdóttir, leikkona og leikstjóri, er stofnandi spunaleikhópsins Improv Ísland. Hún er mikið fyrir dekur og lítur alltaf vel út þrátt fyrir að spá lítið í tísku og útliti. Hún er yfirhandritshöfundur áramótaskaupsins í ár. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Spunaleikhópurinn Improv Ísland er með sýningar á hverju mið- vikudagskvöldi í Þjóð- leikhúskjallaranum. Thinkstock Gyllti bauga- hyljarinn frá YSL er í uppá- haldi hjá Dóru. 2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is Elínrós Líndal elinros@mbl.is Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Kristinn Magnússon É g verð að játa að ég klökknaði örlítið þegar ég las viðtal Elínrósar Líndal við Sæunni Kjartansdóttur, sálgreini og hjúkrunarfræðing, sem er á síðum 14 og 16 hér í blaðinu. Sæunn hefur síð- ustu ár setið við skriftir og gert upp samband sitt við móður sína, sem var krefjandi og sársaukafullt. Í viðtalinu játar hún að hún hafi verið mjög efins hvort hún ætti að gefa bókina út eða ekki. „Við getum skrifað hluti niður eða rætt þá við góðan vin eða fagaðila. Smám saman undu skrifin upp á sig og tóku aðra stefnu en ég hafði séð fyrir. Þau urðu ekki síð- ur um mig en mömmu enda er aldrei hægt að fjalla um fólk án samhengis. Það var því mjög stórt skref fyrir mig að ákveða að deila bókinni með hverjum sem lesa vildi. Annars vegar sjálfrar mín vegna, en líka vegna skjólstæðinga minna. Sem sálgreinir ræðir maður aldrei sín persónulegu mál eða setur sína eigin persónu í fókus. Það er ein ástæða þess að ég var hikandi við að gefa bókina út og ég er að sama skapi tvístígandi að koma í svona viðtal. Ég vil ekki þröngva mér inn í líf skjólstæð- inga minna með blaðaviðtali, þeir eiga að geta lesið blað- ið sitt í friði án þess að ég sé mætt við morgunverðar- borðið með mína sögu,“ segir Sæunn í viðtalinu. Sæunn bendir á að allir eigi sér sögu og upplifi eitt- hvað á lífsleiðinni sem er erfitt. Barnæskan er henni hugleikin og bendir hún á að fólk eigi það til að fegra hana. En hvers vegna erum við að því? Hvers vegna vilj- um við láta allt líta betur út en það er í raun og veru? Hvers vegna segjum við ekki bara satt? Líf flestra væri til dæmis miklu einfaldara ef þeir myndu bara segja satt og rétt frá og leyna engu. Samt gerum við það ekki. Við erum alltaf að reyna að halda einhverri glans- mynd á lofti sem stenst varla skoðun. Skoðum sam- félagsmiðla eins og Instagram og Facebook. Þar eru all- ir frekar sprækir og glaðir og segja hinum hvað þeir lifi stórkostlegu lífi. Instagram er svolítið eins og ferilskrá fyrir atvinnuviðtal. Þar tínir fólk til það albesta úr lífi sínu en sleppir restinni. Minnist ekkert á vondu tíma- bilin. Facebook gerir það hins vegar með sérhnapp sem heitir minningar. Þar blasa við vondu tímabilin í lífi okk- ar þegar færslur fyrri ára eru rifjaðar upp. Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá hugsa ég oft: „vá, hvernig fór ég að því að vera svona mikill plebbi.“ Hvers vegna var ég að monta mig af því þremur dögum fyrir bankahrun að ég ætti geggjað hreint heimili. Hverjum er og var ekki sama um það? Og hvers vegna var ég með hálfkveðnar vísur um að ég hefði gert eitthvað æðislegt kvöldið áður? Ég veit ekki alveg. Á þessum tíma var ekki einu sinni læk-takki. Það er annað sem truflar mig hinsvegar meira en vondu Facebook-minningarnar og það er þörf „vina“ minna á samfélagsmiðlum til að henda öðru fólki fyrir strætó. Þegar þetta rant byrjar hugsa ég oft: Hvað ætli sé að angra þennan „vin“ minn núna. Hvers vegna er hann/hún í svona miklu ójafnvægi? Það er nefnilega þannig að þegar við höfum það gott, eigum ástríkt samband við maka okkar og börn, upp- lifum gleði í vinnunni og finnst við vera metin að verð- leikum, þá höfum við litla þörf til að níða skóinn af öðru fólki því við erum bara upptekin í okkar eigin lífi. Þegar við erum hinsvegar vanstillt þá getum við gert alls kon- ar heimskulega hluti. Stundum væri mun farsælli lausn að panta tíma hjá fagaðila og reyna að slétta úr krump- unum sem búa innra með okkur í stað þess að nota sam- félagsmiðla sem lífæð. Þær minningar verða örugglega ennþá verri í framtíðinni en mont um hreinasta heimili landsins. Hver er undir strætó núna? Marta María Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.