Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 14
S
æunn Kjartansdóttir, hjúkrunarfræðingur og sálgreinir frá
Arbours Association í London, er einn af stofnendum Miðstöðvar
foreldra og barna. Hún starfar með fólki en hefur einnig í gegn-
um árin skrifað vinsælar bækur um barnæskuna.
Nýverið lauk hún við að skrifa bókina Óstýriláta mamma
mín … og ég – sem fjallar að hluta um hennar eigin barn-
æsku en einkum þó um ævi móður hennar og sambandið
þeirra á milli.
Hún segir töluverðan mun á þessari sögu og því sem hún hefur látið frá
sér á prenti áður.
„Þessi bók á sér langan aðdraganda en kveikjan að henni var andlát
mömmu fyrir 12 árum sem bar að með nokkuð óvenjulegum hætti.
Ég fann sterka þörf til að vinna mig út úr tilfinningum sem vöknuðu
þá en þurfti að bíða í fjögur ár með að byrja að skrifa. Ég þurfti tíma
og næði því að ég gat ekki unnið þessa bók með sama hætti og ann-
að sem ég hef skrifað, þegar frítími hefur gefist hér og þar. Í fyrstu
vissi ég ekki hvað ég myndi gera við þessi skrif, hvort þau yrðu
bara fyrir mig og fjölskyldu mína. Þetta var fyrst og fremst mik-
ilvæg úrvinnsla fyrir mig.“
Óstýrilát móðir sem var á undan sinni samtíð
Sæunn segir úrvinnslu tilfininga geta gerst með svo marg-
víslegum hætti.
„Við getum skrifað hluti niður eða rætt þá við góðan vin eða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sæunn er á því að tengsl foreldra og barna
séu flóknustu ástarsambönd sem til eru.
Sálgreinirinn Sæunn Kjartansdóttir hefur nýlokið við að skrifa
bók um eigin barnæsku sem lýsir margbrotnu sambandi
hennar við móður sína. Hún segir alla eiga sér sögu og með
því að deila þeim sjáum við skýrar hversu margslungið líf
okkar allra getur verið. Hún segir flóknustu ástarsamböndin
sem til eru vera tengslin á milli foreldris og barns.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
„Flóknustu
ástarsam-
bönd sem
til eru“
Sjá síðu 16
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019
VIÐTAL
SMARTLAND