Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 20

Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 20
Ljósmynd/Kári Sverrisson Laugalækur fyrir breytingar Eldhúsið er sérsmíðað hjá Hegg en borðplatan, sem er úr marmara, kemur frá Fígaró. Eldhúshornið var svo vel nýtt með innbyggðum sófabekk úr leðri.“ Hvernig eru áherslur að breytast hjá þér í hönnun? „Aðaláherslurnar breytast aldrei, en þær eru að sér- hanna hvert og eitt heimili með tilliti til óska og þarfa íbú- anna. Það er að kunna að „lesa salinn“. Mér finnst í raun ekkert vera að breytast hjá mér. Maður þróast bara með tíðarandanum. Það er tíska í þessu fagi eins og öðrum en samt er nauðsynlegt að þekkja muninn á því hvað getur verið bóla og hvað ekki því að fólk er að eyða miklum fjár- munum í breytingar og því er ekki verið að tjalda til einn- ar nætur.“ Innréttingarnar í húsinu voru sérsmíðaðar hjá Hegg. Hanna Stína segist sækja mikið í sömu aðila þegar kemur að sérsmíði. „Reynslan hefur kennt mér það, en það eru nokkrir sem eru í uppáhaldi hjá mér.“ Hvað um borðplöturnar? „Borðplatan og gestabaðsvaskurinn eru smíðuð hjá Granítsmiðjunni en marmarinn í eldhúsinu er frá Fígaró.“ Hvað drífur þig áfram í þinni hönnun? „Að auka lífsgæði og gleði fólks á heimilum sínum.“ Færðu aldrei leið á vinnunni? „Stundum er vissulega mikið álag en ég er alltaf að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt. Það heldur mér gangandi.“ Hver er litur ársins að þínu mati? „Grænn – í alls konar útgáfum.“ Blár veggur mætir gráum fataskápum sem eru sér- smíðaðir hjá Hegg. 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.