Morgunblaðið - 04.10.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 04.10.2019, Síða 22
1. Skrúbbaðu varirnar Notaðu varaskrúbb eða volgan þvottapoka til að fjarlægja dauðar húðfrumur af vörunum og örva blóðflæði þeirra. Auðvelt er að gera sinn eigin vara- skrúbb með því að blanda saman sykri og shea-smjöri eða nærandi olíu. 2. Varasalvi sem sléttir varirnar og húðina í kring Margir varasalvar eru í boði en gott er að nota örvandi formúlu sem mýkir varirnar, gerir þær fyllri ásýndar og vinnur gegn öldrun húðarinnar. Prófaðu Collagenist Re-Plump Lip Zoom frá Helena Rubinstein er sér- staklega hugsuð til að örva framleiðslu húðarinnar á kolla- geni sem stuðlar að aukinni þéttni húðarinnar. Útlínur var- anna verða þrýstnari og varirnar mýkri en einnig mýkir formúlan ásýnd hrukkna í kringum varirnar. 3. Notaðu langvarandi varalitablýant Varalitablýantur er lykilatriði þegar kemur að mótun varanna og nú er hægt að fá langvarandi formúlur svo mótun varanna endist talsvert lengur. Reyndu að finna lit sem er svipaður þeim litatón sem einkennir varir þínar. Einn vinsælasti varalitablýanturinn til að móta varirnar, og litur sem virðist henta mörgum, er Lip Cheat- varalitablýanturinn frá Charlotte Tilbury í litnum Pillow Talk. Aðrir varalitablýantar sem eru mjúkir og langvarandi eru til dæmis Urban Decay 24/7 Glide-On Lip Pencil og Chanel Le Crayon Lévres. Þegar rétti liturinn er fundinn skaltu lita alveg við ystu mörk varanna. Ef þú treystir þér til má fara aðeins út fyrir þá línu til að stækka varirnar. 4. Ljósari litur í miðjunni Berðu varalit yfir allar varirnar og farðu svo með ljósari varalit yfir miðju varanna. Með þessu skaparðu ákveðna sjónhverfingu um þrýstnari varir. Einnig má nota gloss á miðjuhluta varanna til að gera þær þrýstnari ásýndum. 5. Mótaðu varirnar með hyljara Þegar þú hefur mótað varirnar með varalitablýanti og bor- ið á þig varalit skaltu fara með lítinn bursta og smá hyljara í kringum varirnar. Þetta gerir varirnar enn meira áber- andi. 22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 Bankastræti 3  S 5513635 Rosa flottarsokkarbuxur Sarah Jessica Parker er með náttúrulegar varir. Urban Decay Stay Naked Correcting Concealer. Helena Rubinstein Collagenist Re-Plump Lip Zoom. Guerlain Kiss- Kiss Liquid Lipstick (Can- did Matte). Charlotte Tilbury Lip Cheat. Fyllri varir án fylliefna ILIA Color Block Lipstick (Rosette). Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að varir fólks á samfélags- miðlum virðast fara stækkandi. Fólk er orðið óhræddara við að láta sprauta fylliefnum í varirnar en nauð- synlegt er að slíkar aðgerðir séu framkvæmdar af fagaðilum. Ekki vilja allir þó grípa til svo róttækra aðgerða, enda auðvelt að skerpa á útlínum varanna og auka umfang þeirra með réttu förðunarvörunum. Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.